Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1984, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.1984, Blaðsíða 40
Fréttaskotið 68-78-58 SIMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt — hringdu þá í síma 68-78-58. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað i DV, greið- ast 1.000 krðnur og 3.000 krónur fyrir besta fréttaskotið i hverri viku. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. ÞRIÐJUDAGUR 8. MAÍ1984 WoHgang Petersen, hinn nýi leik- stjóri. Hér er hann við töku myndar- innar „Das Boot". Wolfgang Petersen ráðinn í stað Loncraine: Listrænn ágrein- ingur — sagðurástæða brottfarar Loncraine Tökum myndarinnar Enemy Mine er hætt hér á landi, leikst jórinn R. Lon- craine er farinn úr landi og nýr leik- stjóri hefur verið ráöinn að myndinni sem haldiö verður áfram með í Ung- verjalandL Nýi leikstjórinn er Wolfgang Peter- sen sem vakti athygli fyrir mynd sína „Das Boot” en hann hlaut útnefningu til óskarsverðlauna fyrir þá mynd. I tilkynningu frá 20th Century Fox og frá Stanley O’Toole, framleiðanda myndarinnar, er sagt að Loncraine hafi farið frá verkefninu vegna list- ræns ágreinings, hafi brottförin verið með samþykki allra aðila og verið vin- samleg. Loncraine hefur átt í erjum við for- ráðamenn Fox og framleiðandann vegna myndarinnar, því eins og getið var um í DV fyrir nokkrum vikum lá við að hann hætti við leikstjóm mynd- arinnar áður en tökur hófust á Islandi. ' -FRI lukkudagar\ 8. MAÍ 3690 - | HARMÓNÍKA FRÁ I.H. HF. AD VEROMÆTI KR. 1.500,- LOKI Nú gilda boxhanskarnir í töxtunum í staö gömlu ökuhanskanna! LEIGUBÍLATAXTAR GEFNIR FRJÁLSIR? — „Ekkert sem bannar nú samkeppni undir hámarkstaxta,” segir verðlagsstjóri Stríði leigubílstjóra út af tilboöum í akstur fyrir Borgarspítalann og samningi spitalans við Bæjarleiðir er ekki lokið. Á fundum um málið er meirihluti gegn „niðurboðum” frá taxta, en þeir segja að Bæjarleiðir taki nú 21% undir honum. „Það er ekkert sem bannar nú samkeppni undir hámarkstaxta,” segir Georg Olafsson verðlagsstjóri um málið. Taxtar leigubíla eru undir verðlagseftirliti, þó þannig að það á- kveður aðeins hámarkstaxta. Verðlagsstjóri segir það ljóst að landslög banni ekki leigubíla- stöðvum að lækka verð frá þeim taxta. Samkomulag eða ákvörðun um slíkt bann geti aðeins staöið á fé- lagslögum bilstjóranna en ekki landslögum. Ef taxtar leigubila væru frjálsir gilti um þá það ákvæði laga, sem leggur bann við samkeppnishöml- um. Þykir nú koma til greina að leigubilataxtarnir verði gefnir’ frjálsir. Samkeppni sé næg og líklega um 200 bilum ofaukið á höfuðborgar- svæðinu, þar sem nægi 400—500 leigubílar. Tilhneiging leigubílstjóra til þess að halda uppi háum töxtum við þessi skilyrði stangist algerlega á við anda og eðli þeirra frjálsu viðskiptahátta sem stefnt sé að. Er í þessu sambandi vísað til þess að nú hafi Verðlagsstofnun uppi sér- stakar aðgerðir til þess að koma í veg fýrir samráð um taxta hjá ýms- um stéttum, nema þá viðmiðunar- taxta. -HERB. 0MARIAREKSTRI Enginn er hólpinni umferðinni.Ekki einu sinni rallkappinn og bila- fræðingurinn Ómar Ragnarsson sem þarna klórar sér i kollinum og virðir fyrir sér skemmdirnar eftir árekstur sem hann lenti i i Nóatún- inu nú i morgun. Sagt er að Ómar hafi verið irétti. DV-mynd GVA. Álit Sigurðar Líndals: Búsetián lánsréttar Sigurður Líndal prófessor segir í áliti sem hann samdi aö beiðni fé- lagsmálanefndar neðri deildar að ákvæði frumvarps um Húsnæðis- stofnun taki engan veginn af tvi- mæli um aö húsnæðissamvinnufé- lög eða aðrir sem stofna til félags- skapar i þvi skyni að eiga og reka leiguibúöir eigi rétt til lána. Sama telur hann eiga við búseturéttar- íbúöir og ráðleggur hann nefndinni aðsetja hérumskýrariákvæði. Talsverðar deilur hafa staðið um þetta atriði milli stjórnarflokk- anna. Alexander Stefánsson félags- málaráðherra er þeirrar skoðunar að frumvarpið tryggi húsnæöis- samvinnufélaginu Búseta rétt til lána úr Byggingarsjóði verka- manna en sjálfstæðismenn eru á móti þeirri túlkun eins og ákvæði frumvarpsins eru nú. Mál þetta hefur verið til umræðu milli stjóm- arflokkanna undanfarna daga og þeim umræðum verður haldið áframídag. oef FALKAEGGIAÞJOFARNK LAUSIR ÚR HALDI — grunsemdir um að fleiri ætli sér að iáta greipar sópa í fálkahreiðrum hérálandi Fálkaeggjaþjófamir sem teknir vom í Gilsfirði í siðustu viku eru lausir úr haldi. Þeir em þó í farbanni og gert að vera innan lögsagnar- umdæmis Reykjavíkur þar til rannsókn er lokiö. Að sögn Hallvarðs Einvarðssonar, rannsóknarlögreglustjóra ríkisins, miðar rannsókninni vel áfram. Ungu, þýsku hjónunum var sleppt á laugardag, þar sem talið var að þau hefðu skýrt frá öllu er þau vissu, þótt gæsluvarðhaldsúrskurðurinn væri til 9. maí. Við yfirheyrslur kom í ljós að þau komu hingað í þeim tilgangi að ræna fálkahreiður og þau voru send hingað af þýskum aðila. Hver sá aðili er mun ekki með öHu ljóst. Rannsóknarlögreglan hefur leitað aðstoðar vestur-þýsku lögreglunnar til að kanna þá hlið málsins. Hvort þýsku hjónin hafi haft íslenska samstarfsmenn er ekki ljóst, né heldur hversu þungan dóm þau fá. Þegar rannsókninni verður að fullu lokið, verður málið sent ríkissaksóknara sem taka mun ákvörðun um frekari málatilbúnað. Þá mun útlendingaeftirlitinu hafa- borist töluvert af upplýsingum varðandi fálkaþjófa sem munu vera væntanlegir hingað til Iands eða vera staddir hér. „Við könnum öll svona mál og ger- um okkar ráðstafanir. Okkar aðilar og samstarfsaðilar eru í viðbragðs- stöðu,” sagði Jóhann Jóhannsson hjá Utlendingaeftirlitinu. „Nánari upplýsingar get ég ekki gefið, því það hljóta að vera grunsemdir um íslenska samstarfsmenn. Slíkar upp- lýsingar væru til þess eins að vara þávið.” Samkvæmt heimildum DV mun þýskur fuglafriðunarmaður hafa kært ungu hjónin til vestur-þýskra yfirvalda í tengslum við þetta mál. Ekki er ljóst hvað er fólgið í þeirri á- kæru en líklega mun það vera varðandi smygl á fálkaeggjum til Þýskalands, en það var það, sem ungu hjónin hugðust gera. -KÞ.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.