Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1984, Blaðsíða 10
10
Útlönd
Útlönd
DV. MIÐVIKUDAGUR 21. NOVEMBER1984.
Útlönd
Utlönd
Kolaverkfallið
að fiara út
Lelðtogi námamanna, Arthur Scargiil, með Thatcher í ruslakörfunni. Nú er Verkfallsverðir og lögregla í átökum. Nú hefur verkfall námamanna staðið í átta mánuði og telja margir að nú fari
það jámfrúin sem hefur yfirhöndina. a® öilla undir lok þess.
Eftir átta mánuði ljótra uppþota,
biturra orðaskipta og erfiöleika virð-
ist nú verkfall breskra kolanáma-
manna vera smám saman aö fjara
út.
Námamönnum hefur verið lofað
sérstökum aukagreiðslum fyrir að
koma aftur til vinnu. Margir þeirra
eru búnir að fá nóg af verkfallinu og
fátæktinni sem það hefur í för með
sér. Undanfamar tvær vikur hafa
þeir hundruöum saman snúið aftur
til vinnu, að sögn yfirstjórnar kola-
iðnaðarins.
Verkalýðsfélag námamanna, sem
boöaði verkfailið til að berjast gegn
lokun 20 náma, neitar þessu alger-
lega. En hvort sem það er rétt eða
ekki að námamenn séu að snúa aftur
til vinnu, þá er ljóst að námamenn
eru í vörn.
Engin merki árangurs
Vandamál verkalýðsfélagsins er
einfalt. Þó að þaö sé búið að vera í
verkfalli lengur en nokkru sinni áður
getur það ekki bent á neitt merki
þess að það muni kannski bera nokk-
umárangur.
Engar samningaviðræður hafa
verið haldnar í margar vikur og yfir-
stjórnin hefur engan áhuga sýnt á að
setjast aftur að samningaborði.
Orkuskortur, sem verkalýðsfélagið
hafði gert ráð fyrir í vetur, hefur
ekki gert vart við sig. Verkalýðsfélög
sem lofuðu að styðja námamenn
„aUa leið”sýna þess fá merki að þau
ætli að efna þau loforð. Opinberar
deilur yfir aöferðum verkfallsvarða
hafa veikt stuðning Verkamanna-
flokksins við námamenn.
Kolaráðið og íhaldsstjóm Mar-
grétar Thatcher em þess nú fullviss
að rás atburðanna sé aö snúast gegn
námamönnum. Kolaráðið segir 7000
manns hafa gefið verkfallið upp á
bátinn á undanfömum tveim vikum.
Það sem hefur laðað þá að er loforð
kolaráðsins um að þeir geti unnið sér
inn sem svarar um 50.000 íslenskra
krónafyrir jól.
Þriðjungur vinnur
Um fjórðungur meölima verka-
lýðsfélags kolanámamanna fór
aldrei í verkfall. Síðan verkfallið
byrjaði höföu þegar margir snúiö
aftur til vinnu. Eftir að fleiri hafa
bæst í hópinn má gera ráð fyrir að
um þriðjungur kolanámamanna sé
nú vinnandi. Það þýðir að 58 af 174
námum framleiða einhver kol. Kola-
framleiðsla er um fjórðungur af því
semvenjulegter.
Leiðtogi námamanna, Arthur
Scargill, segir þessar tölur rangar.
En heimildarmenn innan verkalýðs-
félagsins viðurkenna að leiðtogar fé-
lagsins geri sér grein fyrir því að
tíminn vinnur á móti þeim.
Ofbeldi
Námamannafélagið er einnig að
einangrast á annarri víglínu. Ofbeldi
hefur einkennt verkfalliö frá byrjun.
Róstur og grjótkast hafa veriö dag-
legir viðburðir þegar verkfallsverðir
hafa reynt að stööva verkamenn á
leið til vinnu. Það hljómar hjáróma
þegar verkfallsveröir segja aö allt
ofbeldið sé lögreglunni að kenna.
Slíkar yfirlýsingar hafa komið
forystumönnum verkalýðshreyfing-
arinnar í Bretlandi í opna skjöldu.
Þegar Norman Willis, einn af forkólf-
um alþýðusambands Breta, sagði að
ofbeldi væri gagnstætt hefðum
verkalýðsfélaga, var hann púaður
niður. Neil Kinnock, formaöur
Verkamannaflokksins, sagöist síðar
vera sammála Willis og neitaði að
mæta á baráttufundi námamanna.
Hann sagðist ekki hafa tima en talið
er að hann hafi viljað fjarlægjast
námamenn.
Thatcher notar tækifærið
Margrét Thatcher hefur notað sér
hálfvolgan stuðning Kinnocks við
námamenn. I þingræðu í síðustu viku
sagði hún að hann vantaði „kjark”
til að gagnrýna ofbeldi verkfalls-
varða.
Verkalýðsflokkurinn tók þá það til
bragös að hvetja námamenn til að
efna til atkvæðagreiðslu meöal fé-
lagsmanna um verkfalliö. Þaö hafa
þeir alltaf neitað að gera og svo varð
einnig í þetta sinn. 1 staðinn ákváðu
leiötogar námamanna aö falast eftir
viðræðum bak við tjöldin en þeim
virðist h'tið hafa orðið ágengt. Síð-
ustu viðræðum aöila var slitiö þann
31. október.
Allt í óhag
Síðan þá hefur námamönnum
gengiö allt í óhag. Kolaráðið náöi að
semja við öryggisverði námanna og
afstaða þess varð um leið harðari.
Um leið reyndi það að bæta ásjónu
sína út á við með því að fá formann
þess, Ian McGregor, til að láta
minna í sér heyra á almennum vett-
vangi.
Enn hallaöi undan fæti fyrir
námamönnum þegar í ljós kom að
þeir höfðu rætt við Líbýumenn til
aö biðla til þeirra um fjárstyrk. Eftir
að libýskir sendiráösmenn skutu
breska lögreglukonu til bana eru
Líbýumenn h'tt vinsælir í Bretlandi.
Enginn orkuskortur
Á sama tíma og álit almennings á
verkfalhnu hefur versnað er að
verða greinilegra að verkfallið mun
hafa lítil áhrif á orkuframleiðslu.
Fyrir áratug varð verkfaU kola-
námamanna, auk annars, til þess að
stjóm Edwards Heath var bolað frá
völdum. Þá náðu þeir að stöðva kola-
strauminn til raforkustöðva sem oUi
rafmagnsleysi viða um land.
I þetta skipti sá kolaráðið tU þess
að nóg var til af kolum áður en verk-
falhð byrjaði. Þeir námamenn sem
vinna hafa svo séð tU þess að ekki
hefur þurft að ganga of mikið á þess-
ar birgöir. Stjórnin segir að ekkert
rafmagnsleysi muni skapast í vetur
og þegar hlýnar i veðri á ný muni eft-
irspurnin eftir kolum minnka.
Fórnarlamb ofbeldis verkfaUsaðgerðanna.
Umsjón: Þórir Guðmundsson