Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1986, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1986, Blaðsíða 4
4 DV. LAUGARDAGUR 25. JANÚAR1986. Ri: YA./i V ÍKl RSKÁKMOTIÐ 11.- 23. FEBRÚAR STERKASTA MOT SEMHALDIÐ HEFUR VERIÐ Á ÍSLANDI KEMUR KASPAROV? Reynt hefur verið að fá heims- meistarann Kasparov til þess að taka þátt í mótinu. Hann hefur sýnt áhuga og reynst jákvæður. Þó er ekki víst að hann geti komið vegna hugsanlegs einvígis við Karpov í febrúar. Að sögn Þorsteins Þorsteinsson- ar hjá Skáksambandinu er engin ástæða til annars en að vera bjart- sýnn á að Kasparov komi. Honum hefur verið boðin há upphæð fyrir vikið. 10 þúsund dollarar er sagt, eða um 425 þúsund ísl. krónur, þótt það liggi ekki alveg ljóst fyrir ennþá. STERKUSTU ÞÁTTTAKENDURNIR Þátttakendur á mótinu eru í kringum 70 manns, margir sterk- ustu skákmenn heims. Þarna verða menn eins og Anthony J. Miles, sterkasti skákmaður Englendinga, Sovétmaðurinn Mikhail Tal, fyrr- um heimsmeistari og Efim Geller, aðstoðarmaður Spasskys í heims- meistaraeinvíginu sem haldið var hér á landi 1972. Bandaríkjamaður- inn Maxim Dlugy kemur. Hann var heimsmeistari unglinga 1985. Nú, svo verða góðkunningjar okkar fslendinga og vinir, þeir William Lombardy og Bent Larsen. „Það reyndist ekki erfitt að fá þessa bestu skákmenn til landsins. Island er orðið það stórt númer í skákheiminum, þetta er sterkt mót og góð verðlaun í boði,“ sagði Þorsteinn Þorsteinsson. -KB HÆSTU VERÐLAUN HINGAÐTIL Heildarverðlaunin á Reykja- víkurskákmótinu nema um 34.400 doliurum, sem eru um 1,5 milljónir íslenskra króna. Það eru hæstu verðlaun sem boðin hafa veríð hérlendis. Fyrstu verðlaun eru 12.000 doll- arar eða 510 þúsund, önnur verðlaun 8.000 dollarar eða 340.000 íslenskar krónur og þriðju verðlaun 213 þúsund eða 5.000 dollarar. „Það er uppsveifla núna hjá Skáksambandinu og við mun- um ná því að skrapa þessa peninga saman,“' sagði Þor- steinn, er DV spurði hann hvort kostnaðurinn væri þeim ekki ofviða. „Við fáum fasta styrki frá Alþingi á hverju ári, í kríngum þrjú hundruð þúsund, og svip- aða upphæð frá Reykjavíkur- borg,“ sagði Þorsteinn. UNQUM OG EFNILEGUM SKAKMÖNNUM BOÐIN ÞÁTTTAKA Ætlunin er að leyfa ungum og efnilegum íslenskum skák- mönnum að taka þátt í mótinu þótt þeir hafi engin Elo-stig. „Við ætlum að gefa þeim tæki- færi til þess að keppa á alvöru- móti,“ sagði Þorsteinn. Friðrik Ólafsson er ekki á táningaaldrinum en Þosteinn sagði að nú væri verið að reyna að fá hann til þátttöku. „Það er mjög ólíklegt að ég keppi á mótinu, 99% öruggt að ég tek ekki þátt. En við skulum ekki útiloka þetta eina pró- sent,“ sagði Friðrik Ólafsson stórmeistari og fyrrum forseti FIDE, alþjóðaskáksambands- ins. Reykjavíkurskákmótið, sem nú er í uppsiglingu og haldið verður 11.- 23. febrúar næstkom- andi, mun verða það sterkasta sem haldið hefur verið hérlendis til þessa. Tefldar verða U umferðir. Stórmeistarar alls staðar að úr heiminum mæta, enda há verðlaun í boði. „Til þess að fá sterka menn verðum við að bjóða góð verðlaun. Við fslendingar eigum geysilega góðan efni- við, topp-skákmenn, og við verðum að gefa þeim tækifæri til þess aó keppa á sterkum mót- um,“ sagði Þorsteinn Þorsteinsson, forseti Skáksambands íslands. Skáksamband íslands og Taflfélag Reykjavíkur standa fyrir og kosta Reykjavíkurskákmótið. Reykjavíkurborg mun leggja sitt af mörkum, en ekki liggur fyrir hversu háa fjárhæð borgin leggurfram. „Það er erfitt að komast á virt skákmót erlendis, ásóknin er mikil. íslensku skákmennirnir verða að fá tækifæri og það fá þeir á mótum hér á landi ef þau eru nægilega sterk,“ sagði Þorsteinn. „Árið 1982 opnuðum við Reykjavíkurskákmótin fyrir útlendinga. Þessi mót eru orðin hátt skrifuð í skákheiminum í dag, njóta álits og virðingar. Við fáum alltaf sterkari og sterkari skákmenn hingað,“ sagði formaður Skáksambandsins. To the Icelandic Chess Federation: Dear Sirs , I have always been impressed by the popularity of chess in your country. I also have a high respect for Mr Fridrik‘Olafsson who became the president of FIDE in 1978. Unfortunate1y he was replaced by someone who has damaged the genuine interests of the chess world so badly that we can hardly estimate the eventual consequences of his "acitivities". I have entitled my good friend GM Andras Adorjan to represent me in chess affairs in the west and especially to speak for me in my dealings with FIDE. I would be grateful if yoii would provide him the opportunity to discuss the state of FIDE today with the many internationa1 chess players who will participate in your forthcommg Tournament. Garry Kasparov Munich, World Chess Champiqn 27.12.1985 Bréfið sem Kasparov sendi til Skáksambandsins vegna Reykjavík- urskákmótsins. Hann segist m.a. alltaf hafa verið heillaður af vinsældum skáklistarinnar á Islandi og bera mikla virðingu fyrir Friðriki Ólafssyni, fyrrverandi forseta Alþjóðaskáksambandsins. Ennfremur segir hann að því miður hafi annar tekið við þeirri stöðu, eða Campomanes. Hann hafi eyðilagt hinn gífurlega áhuga á skákheiminum það mikið að varla sé hægt að meta raunverulegar afleiðingar athafna hans fyrir skákina. Anthony J. Miles, sterkasti skákmaður Englendinga, kem- ur. Heimsmeistarinn Kasparov. Mjög líklegt að hann komi, samkvæmt ummælum forseta Skáksambandsins, enda er honum boðin há fjárhæð fyrir vikið. William Lombardy, stórmeist- ari og góðkunningi okkar, mætir. Það var hann sem fór í fýlu og hvarf með válegum hætti á alþjóðaskákmótinu í Vestmannaeyjum í júní síðast- liðnum. Sovétmaðurinn Mikhail Tal, heimsmeistari 1960, keppir. Umsjón: Katrín Baldursdóttir íslensku skákstjörnurnar Efri röð: Helgi Ólafsson, Jóhann Hjartarson, Margeir Pétursson. Neðri röð: Guðmundur Siguijónsson og Jón L. Árnason, taka þátt í mótinu. Aðeins 1% líkur eru á að Friðrik Ólafsson, t.h., taki þátt. ELO-STIGIN AÐALATRIÐIÐ Það fær ekki hver sem er að taka þátt í Reykjavíkurskák- mótinu. Til þess þarf a.m.k. 2.300 Elo-stig. íslendingar njóta þó sérstöðu, þeir þurfa 2.200 stig. íslensku þátttakendurnir, sem eru undir 2.400 Elo-stigum, greiða þátttökugjald að upp- hæð 1.8oo islenskar krónur. Útlendingar og Islendingar, sem eru með 2.400 Elo-stig eða meira, borga ekkert. Stórmeistarar með 2.600 Elo- stig eða meira fú 1.000 dollara alls í dagpeninga eða 42.500 íslenskar. Stórmeistarar með 2.500 til 2.595 Elo-stig fá hins vegar 500 dollara, eða um 22 þúsund íslenskar. 8.500 íslen- skar fá þeir stórmeistarar sem eru með 2.400-2.495 Elo-stig. „Þetta er enn ein leið til þess að fá sterkustu skákmennina til að koma,“ sagði Þorsteinn Þorsteinsson, forseti Skáksam- bandsins. Þorsteinn sagði að nú stæði yfir auglýsingasöfnun til þess að létta róðurinn varðandi kostnaðinn við mótið. „Auglýs- ingaskilti verða í mótssalnum sem er á Hótel Loftleiðum. Einnig munum við gefa út mjög myndarlegt mótsblað með aug- lýsingum."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.