Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1986, Side 23
DV. LAUGARDAGUR 10. MAÍ 1986.
23
milli skáldskapar og raunveruleika. I
þessari mynd leikur hann Casey Abb-
ott, sjóliðsforingja á kafbát, sem
skipstjórinn sakar um að hafa beitt
hemaðarlegum ákvörðunum til að
gagnast eigin hagsmunum (hann fyrir-
skipaði að kafbáturinn skyldi fara í
kaf með þeim afleiðingum að maður
sem var úti á dekki drukknaði en sá
var keppinautur hans um hylli hjúkr-
unarkonunnar Helen Blair sem var
leikin af Nancy Reagan). Seinna ge-
rist það að spennan nær hámarki
þegar kafbáturinn kafar til botns eftir
að Japanir hafa ráðist á hann og í
þetta skiptið er það Abbott sem verður
eftir í hylki utan á skrokki kafbátsins.
Skipstjórinn, Don Landon, sem áður
hafði gagnrýnt Abbott fyrir það sem
á undan var gengið, hafði nú orðið
að gefa skipanir um að kafa - og það
var ekki af hefhigimi heldur varðaði
þetta þjóðaröryggi. Og nema hvað,
þegar kafbáturinn kemur aftur upp á
yfirborð sjávar kemur kraftaverkið í
ljós. Abbott er lifandi. - Auðvitað hafði
hann aldrei farið niður með bátnum
en fyrir áhorfandann j afht sem hinar
sögupersónumar j afnaðist þetta á við
sjálfa upprisuna.
I lokin búa þau sig undir giftingu,
Abbott og Blair en hún hafði aldrei
hætt að elska hann heldur verið hon-
um trú gegnum súrt og sætt og aldrei
trúað því að hann hefði vísvitandi
komið keppinaut sínum fyrir kattar-
nef. Sem síðasta mynd forsetans var
hún ennfremur fullkominn gmndvöll-
ur fyrir farsælt og endingargott
hjónaband."
-Hvernigþá?
„Á flokksþingi repúblikana 1984
sýndi Nancy Reagan brot úr „Vítis-
köttunum í flotanum“ þar sem hún
sést sjálf vera að hjúkra bömum og
stríðshrjáðum hermönnum og grét víst
í alvöru þegar verið var að taka þessi
atriði upp. Og nú fékk hún annað
tækifæri tl að láta í ljós tryggð sína
og undirgefhi við liðþjálfann sem var
að leggja upp í leiðangur örlaga sinna.
Og þama var hún aftur mætt, í alvö-
runni, með hendur á lofti til að veifa
ógnarstjórri mynd af eiginmanninum
á skermi sem gnæfði yfir fjöklann."
- Og að lokum, próf. Rogin. Hefurðu
fengið einhver viðbrögð frá forsetan-
um sjálfum eða Hvíta húsinu?
Bíó útskýrir raunveruleikann
„Ekki beint. I september sl. hringdi
blaðamaður frá „New York Times“,
Martin Tolchin, i Hvíta húsið, eftir
að hafa hlýtt á fyrirlestur hjá mér, og
hann bað þá um að gefa eitthvað út á
það sem ég var að segja. Einn af þeim
sem skrifa ræðumar fyrir Reagan,
Anthony Dolan, varð fyrir svörum;
„kvikmyndimar auðga raunvemleik-
ann en ekki öfugt. Það sem forsetinn
er að reyna að segja er að við erum
öll undir sterkum áhrifum frá þessum
einstæða bandaríska listmiðli sem
kvikmyndin er.“ Og víst er það rétt,
þvi eins og forsetinn sagði 1982 þá
„færa bíómyndimar okkur heim sann-
inn um það sem við raunverulega
erum“.
Að gefhu tilefhi em þeir, sem eitt-
hvað þekkja til norður-afrískrar
kvikmyndagerðar, beðnir um að gefa
sig fram við almannavamir ríkisins!
(Þýtt og endursagt úr L’Espresso.
Guðm. Amason.)
Er
„raunveru-
leiki“
Bandaríkja-
forseta
fenginn að
láni frá
Hoilywood?
a