Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1986, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1986, Side 5
DV. LAUGARDAGUR 14. JÚNÍ 1986. 5 Fréttir Fréttir Fréttir Fréttir Meistaraflokkur KA með sigurbros á vör fyrir framan HM-Coltinn frá KA, en hann er i verðlaun í getraun félagsins vegna HM í knattspyrnu í Mexíkó. DV-mynd JGH KA tekur þátt í HM í Mexíkó Jón G. Hauksscm, DV, Akureyri; Knattspymufélag Akureyrar, KA, tekur þátt í heimsmeistarakeppninni í knattspymu í Mexíkó með stór- skemmtilegri getraun sem félagið stendur íyrir þessa dagana. Getraunin byggist á þremur spumingum; Hverjir spila úrslitaleikina á HM í Mexíkó? Hverjir verða heimsmeistarar? Og hver verður markatalan í úrslitaleikn- um? Geíhir eru út 2000 getraunaseðlar og kostar hver seðill 500 krónur. í verðlaun er stórglæsileg bifreið, Colt ’86. Skila þarf seðlunum i síðasta lagi á hádegi miðvikudaginn 25. júní næst- komandi í nýja KA-húsið eða verslun- ina Sporthúsið á Akureyri. Á þeim tíma liggur fyrir hvaða íjögur lið keppa í undanúrslitum HM. Dregið verður úr réttum lausnum. Svo er það spumingin hver ekur á nýja HM-Coltinum frá KA að lokinni heimsmeistarakeppni. Ferðaskrrfstofa ríkisins 50 ára: Geysisgos og ferðir á afmælisverði í tilefhi þeirra tímamóta að Ferða- skrifstofa ríkisins er 50 ára um þessar mundir verða haldnir „ferðadagar Ferðaskrifstofu ríkisins" i dag og á morgun, sunnudag. Afinælisafsláttur verður veittur á ferðum og opið hús verður að Skógarhlíð 6, hjá Ferða- skrifstofu ríkisins, frá kl. 10-17 báða dagana. í dag verður boðið upp á ferð að Geysi í Haukadal og gos í Geysi á afmælisverði, kr. 300 fyrir fullorðna og 150 krónur fyrir böm í fylgd með fullorðnum. Brottför verður frá Ferða- skrifstofu ríkisins kl. 13.30. Á sunnudag verður boðið upp á ferð- ir til Þingvalla, þar sem Hótel Valhöll býður afmælisafslátt af veitingum fyrir þátttakendur. Brottför er frá Ferða- skrifstofunni kl. 11.00, 13.00 og 14.00. Verð er 150 krónur fyrir fullorðna en 75 krónur fyrir böm í fylgd með þeim. Báða dagana verður veitt ráðgjöf til ferðamanna og seld gisting með morg- unmat á Edduhótelum dagana 17.-25. júní með 50% afslætti. -BTH Undur og stórmerki á Austfjörðum: Fresskötturínn ketUingafullur „Það getur fátt annað verið að skepnunni. Hún hlýtur að vera kettl- ingafull,“ sagði Skúli Hjaltason, bóndi á Miðbæ í Norðfirði, í samtali við DV. Þar á bæ gerðust þau undur og stór- merki fyrir skemmstu að fressköttur, sem verið hefur á heimilinu í tvö ár, tók upp' á þvi að bólgna út. Vissu menn ekki í fyrstu hveiju um væri að kenna en nú þykist Skúli bóndi þess fullviss að fresskötturinn sé kettlinga- fullur og tvíkynja. „Hann var úrskurðaður fressköttur strax eftir fæðingu og ég hef ekki merkt neinar breytingar á honum í gegnum árin. Hann varð þó aldrei eins stór og gengur og gerist með aðra fressketti hér í nágrenninu," sagði Skúli bóndi. Öllum er hulin ráðgáta hvemig kettlingamir komu undir svo og hvemig fresskötturinn ætlar að fæða. Honum var ungum gefið nafnið Snúð- ur og nú velta heimilismenn í Miðbæ því fyrir sér hvort ekki sé rétt að skíra hann upp og kalla Snældu. -EIR RIKISUTVARPIÐ Ríkisútvarpið Hijóðvarp minnir á, að skiiafrestur í verð/aunasamkeppni þess um h/jóðvarpsieikrit er t/i 15. september nœstkomandi. Verkin sku/u send/eik/istardei/d Hijóðvarps, pósthóif 120, í ums/agi merkfu Leikritasamkeppni Ríkisútvarpsins 1986. Verkin eiga að vera undir duinefni og rétt nafn höfundar að fyigja með í iokuðu ums/agi Leikritin sku/u vera frumsamin, hvergihafa verið birt áður og miðað við að þau séu40-60mínútur í fiutningi. Fyrstu verð/aun ísamkeppninni verða ekkiiægrien kr. 200.000, en ai/s hefur dómnefnd kr. 350.000 t/i ráðstöfunar. RÍKISÚTVARPIÐ Útvarpsmenn enn í salti „Ætli ég verði ekki að athuga þetta mál,“ sagði Gunnlaugur Briem yfir- sakadómari aðspurður um mál út- varps- og sjónvarpsmannanna sem kærðir vom fyrir að ganga úr störfum sínum í verkfalli BSRB 1984. Tiu stjómarmönnum í starfsmannafélög- um Ríkisútvarpsins var birt ákæra fyrir tæpu ári en síðan hefur ekkert gerst. „Þetta er sjálfstætt mál í höndum Ármanns Kristinssonar sakadómara þannig að það er hans að gefa upplýs- ingar um gang þess,“ sagði Gunnlaug- ur Briem. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir hefur Ármann Kristinsson verið ófáanlegur til að tjá sig um þann drátt sem orðinn er í afgreiðslu kæmnnar. -EIR „Við erum ekki í klámi“ „Síminn hefur ekki stoppað hjá okk- ur. Hingað hringja karlmenn á öllum aldri og spyrja hvort hægt sé að fá stúlku," sagði Svava Jóhannsdóttir, eigandi verslunarinnar Lady of Paris að Laugavegi 84 í Reykjavík. „Menn virðast halda að við séum eitthvað í tengslum við Pan-hópinn en það er af og frá. Við sérhæfum okkur í undirfatnaði, nærfötuiji og sokkum. Við erum ekki í klámi.“ .ftr II GARÐPLONTURIURVALI * Allt í garðinn * Sígrænar plöntur * Limgerðisplöntur * Skrautrunnar * Tré Að auki sumarblóm, bætiefnamold, Starplate hús, leiktæki fyrir börn, svalakassar, ker o.fl. Op\ð a tWadaga V/MIKLATORG, S. 622815. Opv 5 aWa ^aWa V\.^*

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.