Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1986, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.1986, Page 6
6 DV. LAUGARDAGUR 14. JÚNl 1986. Peningamarkaður Utlönd Utlönd Utlönd Sjö manns hafa beðið bana siðan neyðarástandi var lýst yfir í Suður-Afríku í fyrradag. Virðast ráðstafanir ekki ætla að bera neinn árangur. Ofbeldi og dauði er enn daglegt brauð fyrir svarta íbúa landsins. Suður-Afríka: Stjómvöld banna fréttaflutning Inntán með sérkjörum Alþýðubankinn: Stjörnureikningar eru fyrir 15 ára og yngri og 65 ára og eldri. Inn- stæður þeirra yngri eru bundnar þar til þeir verða fullra 16 ára. 65-69 ára geta losað inn- stæður sínar með 9 mánaða fyrirvara, 70-74 ára með 6 mánaða fyrirvara og 75 ára og eldri með 3ja mánaða fyrirvara. Reikningamir eru verðtryggðir og með 8% vöxtum. ^riggja stjörnu reikningar eru með hvert innlegg bundið í tvö ár, verðtryggt og með 9% nafnvöxtum. Lífeyrisbók er fyrir þá sem fá lífeyri frá lífeyrissjóðum eða almannatryggingum. Inn- stæður eru óbundnar og óverðtryggðar. Nafnvextir eru 15% og ársávöxtun 15%. Sérbók. Við fyrsta innlegg eru nafnvextir 10% en 2% bætast við eftir hverja þrjá mán- uði án úttektar upp í 16%. Ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu er 13,64% á fyrsta ári. Búnaðarbankinn: Sparibók með sér- vöxtum, Gullbókin, er óbundin með 13% nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun á óhreyfðri innstæðu eða ávöxtun 3ja mánaða verð- tryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 0,75% í svonefnda vaxtaleið- réttingu. 18 mánaða reikningur er með innstæðu bundna í 18 mánuði á 14,5% nafnvöxtum og 15% ársávöxtun, eða ávöxtun 6 mánaða verð- tryggðs reiknings reynist hún betri. Iðnaðarbankinn: Bónusreikningar eru annaðhvort með 10,5% nafnvöxtum og 10,8% ársávöxtun eða verðtryggðir og með 3% vöxb um. Hærri ávöxtunin gildir hvem mánuð. Á hreyfðum innstæðum gildir verðtrygging auk 1% vaxta í úttektarmánuðinum. Taka má út tvisvar á hverju 6 mánaða tímabili án þess að vaxtakjör skerðist. Vextir eru færðir 30.06. og 31.12. Landsbankinn: Kjörbók er óbundin með 13% nafnvöxtum og 13,4% ársávöxtun eða ávöxtun 6 mánaða verðtryggðs reiknings reynist hún betri. Af hverri úttekt dragast 0,7% í svonefnda vaxtaleiðréttingu. 100 ára afmælisreikningur er verðtryggð- ur og bundinn til 15 mánaða. Vextii em 7,25% og breytast ekki á meðan reikningurinn verð- ur í gildi. Samvinnubankinn: Hávaxtareikningur hefur stighækkandi vexti á hvert innlegg, fyrst 8%, eftir 2 mánuði 8,25%, 3 mánuði 8, 50%, 4 mánuði 9%, 5 mánuði 9,5% og eftir 6 mánuði 12%, eftir 12 mánuði 12,5% og eftir 18 mánuði 13%. Sé ávöxtun betri á 3ja eða 6 mánaða verðtryggðum reikningum gildir hún um hávaxtareikninginn. 18 og 24 mánaða reikningar eru bundnir og verðtryggðir og gefa 7,5 og 8% vexti. Útvegsbankinn: Ábót ber annaðhvort hæstu ávöxtun óverðtryggðra reikninga í bankanum, nú 13%, eða ávöxtun 3ja mánaða verðtryggðs reiknings með 1% nafnvöxtum sé hún betri. Samahburður er gerður mánað- arlega en vextir færðir í árslok. Sé tekið út af reikningnum gilda almennir sparisjóðs- vextir, 8%, þann mánuð. Verslunarbankinn: Kaskóreikningur < r óbundinn. Þá ársQórðunga sem innstæða er óhreyfð eða aðeins hefur verið tekið út einu sinni eru reiknaðir hæstu vextir sparifjár- reikninga í bankánum. Nú er ársávöxtun annaðhvort 13,1% eða eins og á verðtryggðum 6 mánaða reikningum með 3% nafnvöxtum. Af úttekinni upphæð reiknast almennir spari- sjóðsvextir, 8,5%, og eins á alla innstæðuna innan þess ársfjórðungs þegar tekið hefur verið út oftar en einu sinni. Innlegg fær strax hæstu ávöxtun sé það óhreyft næsta heila ársfjórðung. Vextir færast fjórum sinnum á ári og leggjast við höfuðstól. Þeir eru alltaf lausir til útborgunar. Sparisjóðir: Trompreikningur er verð- tryggður og með ávöxtun 6 mánaða reikninga með 3% nafnvöxtum. Sé reikningur orðinn 3ja mánaða er gerður samanburður á ávöxtun með svokölluðum trompvöxtum, 12,5%, með 13% ársávöxtun. Miðað er við lægstu inn- stæðu í hverjum ársfjórðungi. Reynist trompvextir gefa betri ávöxtun er þeim mun bætt á vaxtareikninginn. Hreyfðar innstæður innan mánaðar bera trompvexti sé innstæðan eldri en 3ja mánaða, annars almenna spari- sjóðsvexti, 8%. Vextir færast misserislega. 12 mánaða reikningur hjá Sparisjóði vél- stjóra er með innstæðu bundna í 12 mánuði, óverðtryggða en á 15,5% nafnvöxtum. Þeir eru færðir einu sinni á ári og ársávöxtun er því einnig 15,5%. 18 mánaða reikningar. Nokkrir stærri sparisjóðanna eru með innstæðu bundna óverðtryggða í 18 mánuði en á 14,5% nafn- vöxtum og 15,2% ársávöxtun. Spariskírteini Spariskírteini Ríkissjóðs íslands eru seld í Seðlabankanum, viðskiptabönkum, sparisjóð- um, hjá verðbréfasölum og í pósthúsum. Nýjustu skírteinin eru að nafnverði 5, 10 og 100 þúsund krónur, nema vaxtamiðabréf sem, eru 50 þúsund að nafnverði. Þau eru: Hefðbundin, til mest 14 ára. Með þriggja ára binditíma eru ársvextir 7%, fjög- urra ára 8,5% og sex ára 9%. Verðbætur, vextir og vaxtavextir greiðast með höfuðstól við innlausn. Með vaxtamiðum, til mest 14 ára, innleysanleg eftir fjögur ár. Ársávöxtun er 8,16% á verðbættan höfuðstól hverju sinni og vextir greiðast út 10.01. og 10.07. ár hvert. Við innlausn greiðast verðbætur með höfuð- stól. Gengistryggð skírteini eru til fimm ára. Þau eru bundin safngjaldeyrinum SDR (til- tekin samsetning af dollar, pundi, yeni, þýsku marki og frönskum franka). Vextir eru 8,5%. Höfuðstóll, vextir og vaxtavextir greiðast í einu lagi við innlausn. Almenn verðbréf Fasteignatryggð verðbréf eru til sölu hjá verðbréfasölum. Þau eru almennt tryggð með veði undir 60% af brunabótamati fasteign- anna. Bréfin eru ýmist verðtryggð eða óverðtryggð og með mismunandi nafnvöxtum. Þau eru seld með affollum og ársávöxtun er almennt 12 16% umfram verðtryggingu. Húsnæðislán Nýbyggingarlán frá Byggingarsjóði ríkis- ins, F-lán, nema á 1. ársfjórðungi 1986: Til einstaklinga 782 þúsundum króna, 2-4 manna fjölskyldna 994 þúsundum, 5 manna og fleiri 1.161 þúsundum, 7 manna og fleiri (í sértilvik- um) 1.341 þúsundum. Lánin eru til 31 árs. Lán til kaupa á eldri íbúðum, G-lán, nema á 1. ársfjórðungi 1986: Til kaupa í fyrsta sinn er hámark 391 þúsund krónur til einstakl- ings, annars mest 195 þúsund. 2-4 manna fjölskylda fær mest 497 þúsund til fyrstu kaupa, annars mest 248 þúsund. 5 manna fjöl- skylda eða stærri fær mest 580 þúsundir til fyrstu kaupa, annars mest 290 þúsund. Láns- tími er 21 ár. Húsnæðislánin eru verðtryggð með láns- kjaravísitölu og með 3,5% nafnvöxtum. Fyrstu tvö árin er ekki greitt af höfuðstól, aðeins vextir og verðbætur. Útlán lífeyrissjóða Um 90 lífeyrissjóðir eru í landinu. Hver sjóður ákveður sjóðfélögum lánsrétt, lánsupp- hæðir, vexti og lánstíma. Stysti tími að lánsrétti er 30 60 mánuðir. Sumir sjóðir bjóða aukinn lánsrétt eftir lengra starf og áunnin stig. Lán eru á bilinu 150-1000 þúsund eftir sjóðum, starfstíma og stigum. Lánin eru verð- tryggð og með 5% vöxtum. Lánstími er 15-42 ár. Biðtími eftir lánum er mjög breytilegur. Hægt er að færa lánsrétt við flutning milli sjóða eða safna lánsrétti frá fyrri sjóðum. Nafnvextir, ársávöxtun Nafnvextir eru vextir í heilt ár og reiknað- ir í einu lagi yfir þann tíma. Séu vextir reiknaðir og lagðir við höfuðstól oftar á ári verða til vaxtavextir og ársávöxtunin verður þá hærri en nafnvextimir. Ef 1000 krónur liggja inni í 12 mánuði á 10% nafnvöxtum verður innstæðan í lok tíma- bilsins 1100 krónur. Ársávöxtunin verður því 10%. Sé innstæðan óverðtryggð í verðbólgu dregur úr raunávöxtun sem því nemur og hún getur jafnvel orðið neikvæð. Liggi 1000 krónurnar inni í 6 + 6 mánuði á 10% nafnvöxtum reiknast fyrst 5% vextir eft- ir 6 mánuði. Þá verður upphæðin 1050 krónur og ofan á þá upphæð leggjast 5% vextir seinni 6 mánuðina. Á endanum verður innstæðan því 1.102,50 og ársávöxtunin 10,25%. Dráttarvextir Dráttarvextir eru frá 01.04.1986 2,25% á mánuði eða 27% á ári. Vísitölur Lánskjaravísitala í júní 1986 er 1448 stig en var 1432 stig í maí og 1425 stig og í apríl. Miðað er við grunninn 100 í júní 1979. Byggingarvísitala á 2. ársfjórðungi 1986 er 265 stig á grunninum 100 frá 1983 en 3924 stig á grunni 100 frá 1975. Húsaleiguvísitala hækkaði um 5% 01.04. en um 10% næst þar áður, frá 01.01. Þessi vísitala mælir aðeins hækkun húsaleigu þar sem við hana er miðað sérstaklega í samning- um leigusala og leigjenda. Sjö manns hafa beðið bana í Suður- Afríku síðan neyðarástandi var lýst yfir þar, að því er haft var eftir yfir- völdum þar í gær. Engar nánari upplýsingar var að hafa vegna banns sem yfirvöld hafa sett við fréttaflutn- ingi. Þar til í fyrradag, er yfirvöld settu bann við fréttaflutningi, var vitað til þess að 1600 manns höfðu látið lifið í óeirðunum sem staðið hafa nokkuð sleitulaust í 28 mánuði. Nú hafa verið stöðvaðir fréttamannafúndir, sem áð- ur voru haldnir tvisvar á dag, og hér eftir verða það einungis yfirlýsingar Norskur ferðamaður gekk berserks- gang á hinum vinsæla ferðamaima- stað, Benidorm. Hann lagði hótelíbúð sína í rúst og slasaði níu lögreglumenn í hörðum bardaga sem lauk ekki fyrr en lögreglan beitti gasi gagn honum. Talsmaður lögreglunnar sagði að Jom Windinsstadn, sem er tuttugu og fimm ára gamall, hefði í fyrrakvöld gengið berserksgang í hótelíbúð sinni á Miramar hótelinu. Óeirðalögreglan Guðrún Helga Sigurðardótlir, Hdsinki: Vegna bilunar í mælitæki mældist 1,8 millíröntgen geislavirkni í bænum Kotka í Austur-Finnlandi síðastliðið mánudagskvöld og er það fjórum sinn- um meiri geislavirkni en nokkum tíma mældist í Finnlandi í kjölfar slyssins í Chemobyl. Strax aðfaranótt þriðjudags var farið að aka bílum, útbúnum mælitækjum, um allt Austur-Finnland en hvergi mældist geislavirkni jafnmikil. í fjölmiðlum hófst umræða um það hvaðan geislavirknin kæmi. Vegna frá stjómvöldum sem berast um gang mála. Það var orðin föst venja að dagurinn væri byrjaður á því að tilkynnt var hversu margir hefðu beðið bana kvöld- ið áður. Þær upplýsingar vom faldar inn á milli frétta um það hve margir hflar hefðu orðið fyrir harðinu á upp- reisnarseggjum eða frétta af táragas- árásum lögreglunnar á óróaseggi. Það var upplýsingaráðuneytið sem birti tilkynningu um mannfallið í gær. Einungis var tilkynnt hversu margir hefðu beðið bana en ekki neitt nánar skýrt frá því. Er því ljóst að nú ríkir ástand borgarastríðs í Suður-Afríku. var kvödd á staðinn efir að hann hafði mðst út úr íbúð sinni og brotið upp bar. Lögreglan segir að níu lögreglu- menn og einn vegfarandi hafi slasast í viðureigninni sem lauk ekki fyrr en lögreglan hafði skotið viðvörunar- skotum upp í loftið og varpað tára- gashylkjum að Norðmanninum. Hann var settur í gæsluvarðhald. veðurs var strax hægt að þtiloka Chemobyl og Leningrad. Vindur blés úr suðri þetta kvöld. Skyldu yfirvöld í Suður-Finnlandi, Danmörku eða Þýskalandi merkja meiri geislavirkni hjá sér? Nei, um það var ekki að ræða. Eftir mikil heilabrot og athuganir uppgötvuðu fínnsk yfirvöld um miðja vikuna að vegna veðurs hefði geisla- virkni í loftinu fallið niður. Hefði þar verið um leifar geislavirkni frá Chemobyl að ræða þótt ekki væri hún nærri því eins mikil og mælitækin í Kotka gáfu til kynna. Hálsbrotinn maður settur í fangaklefa Gauti Giétaissan, Þiándheiim: Fimmtíu og fimm ára gamall maður frá Þrándheimi lá nærri sjö klukku- tíma í fangelsi, alvarlega slasaður. Maðurinn, sem var á heimleið frá kunningjum sínum, datt niður tröppur og lá þar nokkra klukkutíma áður en tekið var eftir honum og það tilkynnt lögreglu. Lögreglan færði manninn í lögreglu- bíl og þaðan í fangaklefa þar sem grunur lék á að maðurinn væri ein- ungis ölvaður. Þar lá hann sjö tíma áður en rannsókn fór fram og hann fluttur á sjúkrahús. Maðurinn liggur nú þungt haldinn á sjúkrahúsinu í Þrándheimi, lamaður frá hálsi og nið- ur. Ættingjar mannsins hafa kært at- vikið til rannsóknarlögreglunnar og verður rannsakað hvers vegna maður- inn lá svo lengi slasaður í fangaklefa án þess að hann væri rannsakaður. Sýknaður af morði á föður sínum Gauli Giétaissan, Þiándheimi: Kviðdómurinn í máli piltsins frá Várdal, sem drap fimmtugan föður sinn, sýknaði hann af morðákærunni. Það tók kviðdóminn, sjö konur og þrjá karlmenn, aðeins fjörutíu og fimm mínútur að komast að niðurstöðu. Dómarinn taldi að pilturinn hefði svarað ofbeldi föður síns í nauðvöm. Pilturinn sagði, eftir að dómurinn var kunngerður, að hann væri bæði glaður og hissa. Hann þakkaði lög- fræðingi sínum fyrir góða málsvöm. Fólk víðsvegar frá í Noregi hefur sent piltinum blóm og hefúr hann haft sam- úð flestra Norðmanna. Skipstjorinn á Moby Dick dæmdur Gauti Grétarssom, Þrándheimi: Moby Dick, skip Greenpeacemanna, var fært til hafnar í Norður-Noregi í fyrrinótt þrátt fyrir kröftug mótmæli áhafharinnar. í gær var skipstjórinn síðan dæmdur til að greiða sekt að upphæð tíu þúsund norskar krónur fyrir að hafa brotið reglur um sigling- ar innan fjögurra mílna landhelgi Noregs. Moby Dick hafði elt hval- veiðibáta, sent út gúmmíbáta og siglt í kringum hvalina og reynt að hindra veiðar. VEXTIR BANKA 0G SPARISJÚÐA (%) 11.-20.06 1986 INNLAN MEÐ SÉRKJÖRUM sjA sérusta iiiiliii ll I!llil INNIÁN ÚVERÐTRYGGÐ SPARISJÓÐSBÆKUR úbundin innstæða 9.0 9.0 8.0 8.5 8.0 9.0 8.5 8.5 8.5 8.0 SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsögn 10.0 10.25 10.0 9.0 8.5 10.0 8.5 9.0 10.0 9.0 6 mán. uppsögn 12.5 12.9 12.5 9.5 11.0 10.0 10.0 12.5 10.0 12mán.uppsögn 14,0 14.9 14.0 11.0 12.6 12.0 SPARNAÐUR - LANSRÉHUR Sparað 3-5 mín. 13.0 13,0 8.5 10,0 8.0 9.0 10.0 9.0 Sp.6mán.ogm. 13.0 13.0 9.0 11.0 10.0 10.0 TÉKKAREIKNINGAR Avisanareikningar 6.0 6.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0 Hiaupareikningar 4.0 3.0 2.5 3.0 4.0 4.0 3.0 3.0 3.0 INNLÁN VERÐTRYGGD SPARIREIKNINGAR 3ja mán. uppsogn 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 1.0 6 mán. uppsogn 3.5 3.0 2.5 2.5 3.5 2.5 3.0 3.0 3.0 INNIÁN GENGISTRYGGÐ GJALDEYRISREIKNINGAR Bandarfkjadollarar 7.0 7.5 6.0 6.0 6.0 6.5 6.0 6.5 6.25 Sterlingspund 11.5 10.5 9.5 9.0 9.0 10.5 9.5 11.5 9,5 Vestur-þýsk mörk 4.0 4.0 3,5 3.5 3.5 3.5 3.5 3.5 3.5 Danskar krónur 7.5 7.5 7.0 7.0 6.0 7.5 7.0 7.0 7,0 ÚTIÁN ÚVERÐTRYGGÐ ALMENNIR VlXLAR (forvextir) 15.25 15.25 15.25 15.25 15.25 15.25 15.25 15.25 15.25 VIÐSKIPTAVlXLAR 3) (forvextir) kge 19,5 kge 19,5 kge kge kge kge ALMENN SKULDABRÉF 2) 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 15.5 VIÐSKIPTASKULDABRÉF 3) kge 20,0 kge 20,0 kge kge kgc kge HLAUPAREIKNINGAR YFIRDRÁTTUR 9.0 9.0 9.0 9.0 7.0 9.0 9.0 9.0 9.0 ÚTLÁN verðtryggð SKULDABRÉF Að 21/2 ári 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 4.0 Lengrien21/2ár 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 5.0 UTLÁN TIL FRAMLEIÐSLU SJANEÐANMALSI) l)Lán til framleiðslu á innanlandsmarkað eru á 15,0% vöxtum. Vegna útflutn- ings, í SDR 8%, í Bandaríkjadollurum 8,5%, í sterlingspundum 11,75%, í vestur- þýskum mörkum 6,25%. 2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er 2%, bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán. 3)Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfum, á þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge, hjá þeim bönkum sem þannig er merkt við, einnig hjá flestum stærstu sparisjóðunum. Norðmaður slasaði níu lögreglumenn Mögnuð geislavirkni í Finnlandi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.