Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1987, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1987, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1987. Fréttir Á útifundi herstöðvaandstæðinga f gær tók Ragnar Stefánsson sig til og beindi eldflaugarlíkani að Hótel Sögu, kannski til að hræða ráðherrana til afvopnunar. DV-mynd KAE 300 hevstoðvaand- stæðingar Um þrjú hundruð herstöðvaand- stæðingar komu saman á Hagatorgi síðdegis í gær til- að mótmæla veru íslands í NATO og hemaðarstefnu Atlantshafsbandalagsins. Á fúndinum fluttu þau Margrét Bjömsdóttir og Eiríkur Hjálmarsson ávörp en í lok fúndarins samþykktu fúndarmenn áskorun til Matthíasar Á. Mathiesen utanríkisráðherra. 1 áskoruninni er mótmæltu afvopnunartillögum fagnað en varað við að slíkt verði tilefhi til kjamorku- uppbyggingar annars staðar í heimin- um. Skorað er á Matthías að leggja öllum tillögum lið er minnkað geta vígbúnað í Evrópu og gefa út yfirlýs- ingu um að íslendingar muni aldrei sætta sig við aukinn herbúnað á norð- urslóðum. -JFJ Skipholt 50c. í burðarþolsskýrslunni segir aö burðarþol hússins sé ekki fullnægjandi. Nú hefur komið fram að það er fullnægjandi. Svartfuglsegg talin öiva kynhvotina Athygli hefúr vakið að flokks- skilar góðum árangri ef þeir hafe formennirnir, Jón Baldvin Harvni- borðað svartfúglsegg," sagði Ásgeir. balsson, Steingrímur Hermannsson Hann sagði að svartfúglsegg hefðu og Þorsteinn Pálsson, snæddu svart- helst verið taiin verka vel á kyn- fúglsegg á fúndinum langa í Rúg- hvötina. brauðsgerðinni í gær. Af þvi tilefni „Þau örva ábyggilega kynhvötina, hringdi DV í Ásgeir Erlendsson, maður verður frjálsari, hraustari, bónda og vitavörð á Hvallátrum, sterkari, liprari og heilinn starfar vestast á Vestflörðum, sem talinn er líka betur. manna fróðastur um bjargfúglsegg, Þau eru talin hollur og góöur og spurði hvort einhver náttúra matur. Það er sama næringargildi í væri tengd áti svartfúglseggja og einueggioghálfúmpottiafnýmjólk. hvort slíkt át gæti gagnast sérstak- Þennan vísdóm hef ég frá gamla lega við myndun ríkiastjómar. fólkinu,“ sagði vitavörðurinn. „Það er enginn vafi á þvf að það -KMU Burðarþolið: Ekki fullnægjandi þýðir fullnægjandi DV hefúr borist í hendur bréf sem Hafsteinn Pálsson, deildarverkfræð- ingur hjá Rannsóknastofnun bygg- ingariðnaðarins, sendi til hönnuða hússins að Skipholti 50c. Það hús er eitt þeirra húsa sem gerð var burðar- þolskönnun á. í niðurstöðum segir að teikningar séu vel gerðar en burðarþol er ekki fúllnægjandi að mati nefndar- innar. Bréf það sem Hafsteinn Pálsson hef- ur látið frá sér fara er svohljóðandi: „Málefrii: Nýleg könnun á ástandi þolhönnunar bygginga á vegum RB. Byggingin Skipholt 50c.“ Eins og fram hefúr komið vom athugasemdir varð- andi hin 10 hús, sem könnunin náði til, mismiklar og misalvarlegar. f könnuninni er reiknað með Z stuðli varðandi jarðskjálftaálag 0,75. Varðandi framangreint hús vom at- hugasemdir með minna móti en í skýrslunni segir eftirfarandi: „Teikn- ingar: Vel gerðar. Mat á burðarþoli: Ekki fúllnægjandi." Skýringar á því að burðarþol þótti ekki fullnægjandi er framannefiit gildi á jarðskjálfta- stuðli (0,75) en með gildi 0,5, sem byggingayfirvöld í Reykjavík miða við, telst burðarþol hússins fullnægj- andi. Bréfið undirritar Hafsteinn Pálsson, verkfræðingur hjá Rann- sóknastofnun byggingariðnaðarins. Með bréfinu tekur Hafeteinn Páls- son að hluta til baka niðurstöður nefndarinnar. Þeir sem unnu að skýrslunni sögðu að burðarþol væri ekki fullnægjandi. Nú kemur skýrt fram að samkvæmt þeim stuðli sem allar byggingar í Reykjavík em byggð- ar eftir er burðarþolið fúllnægjandi. -sme Hatrammar deilur í Sjálfstædisflokknum: Sjálfetæðisráð- herrar gagniýna Þorstein Miklar deilur virðast nú í uppsigl- ingu í Sjálfstæðisflokknum. Tveir af ráðherrum Sjálfetæðisflokksins hafa nú bæst í hóp þeirra sem gagnrýna forystu flokksins og þá sérstaklega framgöngu Þorsteins Pálssonar í stjómarmyndunarviðræðunum. Matthías Bjamason samgöngu- ráðherra sagði í samtali við DV í morgun að hann væri ekki ánægður með það hvað skort hefði á samráð Þorsteins við þingmenn og ráðherra flokksins. „Það er mjög óeðlilegt að hafa ekki samráð. Menn verða að athuga að hver þingmaður hefur sinn rétt og skyldur gagnvart sínum kjósendum. Það er víst að ég þekki vinnubrögð fyrri formanna flokksins og þessi vinnubrögð Þorsteins em mjög ólík þeim,“ sagði Matthías. Sverrir Hermannsson mennta- málaráðherra bætti um betur en hann sagði í sjónvarpsviðtali í gær: „Sjálfetæðisflokkurinn er flokkur í upplausn. Flokkur sem ekkert veit og ekkert kann.“ Þá sagði Sverrir að ekki kæmi til greina að hann gæfi kost á sér til ráðherradóms í hugsanlegri ríkisstjóm. Sverrir sagði í viðtali við DV í morgun að hann hefði ýmislegt við framgöngu forystu flokksins að at- huga. „Miðstjóm flokksins kaus endurskoðunarnefnd til að taka á vanda flokksins eftir kosningamar. Þessi nefnd var ekki fyrr sest niður en nefndarmenn fara að gefa út sér níðrit um flokkinn sem kom út suður í Kópavogi. Ég var þrumulostinn yfir þessum vinnubrögðum. Ég komst nú ekki á þingflokksfund sem haldinn var í fyrrakvöld en þar skilst mér að ég hafi verið tekinn rækilega fyrir. Það mun vera fyrir þær sakir að ég talaði í gamni við stúlku á Tímanum um stjómar- myndunina," sagði Sverrir Her- mannsson í samtali við DV í morgun. Þess má geta að hér er um mikil sinnaskipti að ræða hjá Sverri. Síð- ast í gærmorgun sagði hann í samtali við DV að honum litist vel á stjórn- armyndunina og í gærmorgun var einnig haft eftir honum í blaðavið- tali að hann „myndi gefa kost á sér sem ráðherraefni í þessa ríkisstjóm, er reyndar alveg staðráðinn í því“. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir tókst hvorki að ná tali af Þorsteini Páls- syni né Friðrik Sophussyni í morgun. -ES Formenn stjórnmálaflokkanna, þeir Steingrimur Hermannsson, Jón Baldvin Hannibalsson og Þorsteinn Pálsson, voru giaðhlakkalegir þegar „leyni“fundur þeirra hófst um hádegi í gær. Þeim voru meðal annars borin svart- fuglsegg í hádegismat en erfitt er að segja hvort þau hafa orðið þeim til hjálpar við myndun ríkisstjórnar. DV-mynd S Stjomamtyndunaiviðræður: Samningar hafnir fyrir alvöru - mestur ágreiningur er enn um efhahagsmál Þorsteinn Pálsson, Jón Baldvin Hannibalsson og Steingrímur Her- mannsson, formenn flokkanna sem nú reyna myndun ríkisstjómar, hittust á leynifúndi í gömlu Rúgbrauðsgerðinni um hádegisbilið í gær og var lögð á það mikil áhersla að fjölmiðlar fréttu ekki af fundi þeirra. DV tók þó á móti formönnunum á fúndarstað þegar þeir mættu til fundarins. Fundurinn stóð í rúma fimm klukku- tíma og að honum loknum varð ljóst að flokksformennimir vom að semja um myndun ríkisstjómar, fyrir alvöm. „Flokkamir hafa nú lýst pólitískum vilja til samstarfs, með fyrírvara um að samkomulag takist um fyrstu að- gerðir um viðnám gegn verðbólgu," sagði Jón Baldvin Hannibalsson að loknum fundinum í gær. Hann sagði einnig að önnur atriði myndu ekki koma í veg fyrir samstarf ef samkomu- lag næðist um fyrstu aðgerðir. „Sett verður á laggimar sérstök nefnd sem á að meta þjóðhagsleg áhrif þeirra hugmynda sem uppi em,“ sagði Þorsteinn Pálsson í gær. Það er því ljóst að sjálfetæðismenn hafa lagt ffarn einhverskonar hugmyndir um fyrstu aðgerðir á móti þeim tillögum sem þegar lágu fyrir. Eins og sagt var í DV í gær höfðu framsóknarmenn haft uppi stór orð um hvað gerðist ef sjálfetæðis- menn spiluðu ekki einhverju slíku út. Nú liggur hins vegar fyrir að meta áhrif hvorrar tillögu fyrir sig og síðan að semja um það til hvaða aðgerða verður gripið. Að málefnunum gengnum er ráð- herraskipan ein eftir. „Já, við höfúm rætt ráðherraskipan hér í dag. Það var hins vegar velt upp hugmyndum um breytingar á verkaskiptingu ráðu- neyta og þær þarf að skoða ofan í kjölinn áður en gengið verður frá ráð- herraskipan," sagði Jón Baldvin í gær. Mun hann þar einkum eiga við hugmyndir um að hluti viðskiptaráðu- neytisins verði settur undir utanríkis- ráðuneytið. -ES Ráðherrafundinum lokið Utanríkisráðherrafúndi Atlants- hafsbandalagsins lauk óvænt kl. rétt rúmlega níu í morgun en áætlað hafði verið að hann stæði til hádeg- is. Bendir það til þess að samkomu- lag hafi náðst í öllum atriðum. Rétt fyrir hádegi átti að vera blaða- mannafundur Carringtons, fram- kvæmdastjóra bandalagsins, þar sem skýrt verður frá niðurstöðum fund- arhaldanna. Mat manna, sem með fundinum hafa fylgst, er að líklega hafi náðst samkomulag um hina tvöföldu núll- lausn, sem felur í sér brottflutning skammdrægra og meðaldrægra eld- flauga frá Evrópu og þannig fái Reagan Bandaríkjaforseti vilyrði fyrir áffamhaldandi samningavið- ræðum við Sovétmenn. Eining virðist vera um þetta meðal ráð- herranna en ffekar deilt um það hvort binda eigi stuðning Atlants- hafsbandalagsins við þessa leið því skilyrði að þegar verði hafiiar við- ræður um efnavopn, hefðbundinn herafla, vígvallarkjamorkuvopn og langdrægar eldflaugar. Þykir líkleg- ast að slíkur fyrirvari verði hafður á yfirlýsingu ráðherranna. -JFJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.