Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1987, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1987, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1987. íþróttir Efstu menn í golfinu Glenn Hoddle er á förum til Paris SG Eftir Faxakeppnina í Eyjum sem fram fór nú fýrir skemmstu, er staða efstu manna nú þessi í stiga- keppninni í golfi: 1. Ulfar Jónsson, GK..........73 2. Sigurjón Amarsson, GR......63 3. Gylfi Kristinsson, GS......52 4. Sveinn Sigurbergsson, GK...50 5. Sigurður Sigurðsson, GS....50 6. Einar L. Þórisson, GR......44 7. Hjalti Pálmason, GV........41 8. T ryggvi Traustason, GK....38 9. Björgvin Þorsteinsson, GR..34 10. Jón H. Karisson, GR.......33 Enski landsliðsmaðurinn Glenn Hoddle sem alla sína tíð hefur leikið í treyju Tottenham Hotspur, er nú á förum frá því félagi til franska liðsins Paris Saint-Germain. Þykir sjálfsagt mörgum sjónarsvipt- ir að því er þessi konungur hverfur úr ríki sínu, ensku knattspyrnunni. Gerard Houllier, framkvæmdastjóri Parísarliðsins, sagði í spjalli við blaða- menn í gær að félagsskiptin væm nánast í höfii. „Samningar verða undirritaðir inn- an tveggja daga,“ sagði stjórinn. „Tottenham krefst milljón punda fyrir Hoddle (60 millj. króna) en tilboð okk- ar er fjarri þvi. Við munum borga enska liðinu fjárupphæð sem markast af 450 þúsund pundum annars vegar (27 millj. króna) og 1 milljón punda hins vegar,- hún verður á því bilinu." Hoddle verður ekki fyrsti Totten- hamleikmaðurinn til að spila með Parísardýrlingunum. Argentínumað- urinn Oswaldo Ardiles var í hebúðum þeirra leikárið 1982 eftir útistöður við allt breskt í kjölfar Falklandseyjadeil- unnar. Parísarliðið heíúr nú þegar þrjá er- lenda leikmenn á sínum snærum en hefur aðeins heimild til að nota tvo slíka í opinberri keppni, samkvæmt franskri knattspymulöggjöf. Auk Hoddle verða þeir Gabriel Calderon, frá Argentínu og Safet Susic, frá Júgó- slavíu í herbúðum PSG. Sá fyrmefiidi er framherji en sá síðameíhdi miðju- maður. Það er þó víst að Hoddle mun hvorki verma bekkinn né sitja hjá þegar leik- ið verður. Hann er meðal skæðustu miðjumanna heims enda aðeins 29 ára gamall. -JÖG Aiftaki Völlers fundinn Werder Bremen hefur nú fúndið arftaka Rudi Völler sem nýlega var seldur til AC Roma. Leikmaðurinn sem um ræðir er 21 árs gamall, frá Blau-Weiss Berl- in, Karl-Heinz Rieble að nafni. Að sögn forráðamanna Blau- Weiss mun Rieble skrifa undir samning við Werder í dag, föstu- dag. Söluverðið er 1.6 milljón mörk eða 35 milljónir króna. -JÖG Kvenna- boltinn Tveir leikir fóru fram í l.deild kvenna í gærkvöldi. KA og ÍA gerðu jafhtefli 1-1 á Akureyri. Irsa Helgadóttir skorði mark KA en Guðrún Gísladóttir mark ÍA. Þá sigruðu KR-stúlkumar Þór 0-1 og var það Helena Ólafsdóttir sem skoraði mark þeirra. • Pétur Ormslev þrumar hér knettinum upp i þaknetið í leik Víðis og Fram DV-mynd GUN Engin enduitekning - í Garðinum. 1-1 jafntefli hjá Víði og Fram en Framarar sigruðu í fyrra 04 Magnús Gislason, DV, Suöumesjum: Bæði Fram og Víðir náðu að krækja sér í eitt stig í leik liðanna í Garðinum í gærkvöldi. Þegar upp er staðið verða það að teljast sanngjöm úrslit. Leikur liðanna var þolanlegur á að horfa, sérstaklega þegar á leið. Leikurinn var fremur daufur framan af og var greini- legt af leik Framara að þeir ætluðu að leika af skynsemi. Þeir unnu 0-4 í fyrra en tókst ekki að endurtaka leik- inn nú. Leikurinn byrjaði með hálfgerðum hægagangi. Víðismenn lögðu mikla áherslu á vömina eins og oft áður og var víglína þeirra aftarlega. Sókn þeirra var því heldur fámenn. Framar- ar vom hættulegri án þess þó að skapa sér hættuleg færi. Á 8. mínútu kom þó ágætt færi hjá þeim þegar Pétur Arnþórsson átti skot af stuttu færi. Gísli Heiðarsson varði vel. Stuttu síð- ar átti Pétur Ormslev aukaspyrnu sem virtist ætla að fara inn óáreitt en bolt- inn skoppaði þó framhjá. Friðrik Friðriksson þurfti að taka á honum stóra sínum þegar Daníel Ein- arsson átti skot úr aukaspyrnu af 30 metra færi. Boltinn, vel studdur af vindinum, stefndi undir þverslána en Friðriki tókst að slá knöttinn yfir. Framarar byrjuðu seinni hálfleik af miklum krafti en Víðismenn voru dug- legir við að veiða þá í rangstöðu. Það dugði þó ekki til á 55. mínútu þegar Ormarr Örlygsson gaf á Arnljót Da- víðson sem sendi inn á markteig þar sem Pétur nokkur Ormslev var fyrir. Hann var ekkert að tvínóna við hlut- ina og sendi boltann upp undir þverslá. Snyrtilega gert og Fram komið 1-0 yfir. í stað þess að leggja árar í bát, færð- ust Víðismenn allir í aukana. 10. mínútum síðar gerðist það að Viðar Þorkelsson braut á Guðjóni Guð- mundssyni skammt frá vítateig Fram. Guðjón tók sjálfur spymuna, sendi fyrir markið þar sem Vilhjálmur Ein- arsson var fyrir og náði hann að leggja fyrir sig knöttinn og skora af 7-8 metra færi. Staðan þvi 1-1. Eftir þetta voru Víðismenn betri og unnu þeir flest návígi. Eigi að síður fengu Framarar gullið tækifæri til að hirða öll stigin þegar Arnljótur komst einn innfyrir. Daníel Einarssyni tókst þó að hreinsa á línu þegar knötturinn var á leiðinni í netið. Gísli Eyjólfsson var mest spilandi í Víðisliðinu en bræðumir Vilhjálmur og Daníel voru eins og samvaxinn klettur í vöminni. Þá var Sævar Leifs- son ágætur og þegar á leið komst Svanur Þorsteinsson vel inn í leikinn. Hjá Frömurum voru þeir Amljótur og Pétur Amþórsson bestir. Þá átti Pétur Ormslev góða spretti - alltaf hættulegur. Þá var Jón Sveinsson Víðismönnum erfiður og Viðar Þor- kelsson átti „sterkan“ vamarleik. Maður leiksins: Vilhjálmur Einars- son. Gul spjöld: Grétar Einarsson. Dómari var Friðgeir Hallgrímsson og dæmdi hann vel. Áhorfendur: 460. -SMJ Grindvíkingar lögðu Víkverja Grindvíkingar sigmðu Víkverja á gervigrasvellinum í Laugardal í gær- kvöldi, með tveimur mörkum gegn einu. Leikurinn var liður í Mjólkur- bikarkeppni KSf. Jafnræði var með liðunum lengst af en úrslit réðust á síðustu mínútum leiksins. Þá skoraði Hjálmar Hallgrímsson sigurmarkið eftir að staðan hafði verið jöfh, 1-1, um hríð. Fyrra mark Grindvíkinga gerði Rúnar Sigurjónsson en eina mark Víkverja í leiknum gerði Svavar Hilmarsson. -JÖG DV Marka - Pétur P< Urslitin Fjórðu umferð lauk í gærkvöldi og urðu úrslit þessi í umferðinni: KR Völsungur......................2-0 Pétur Pétursson......................2 Víðir-Fram........................1-1 Vilhjálmur Einarsson.............. 1 PéturOrmslev.................... 1 Valur Þór..........................2 0 Sigurjón Kristjánsson...............1 Njáll Eiðsson................. 1 KA-FH.............................2-1 GautiLaxdal.........................1 Tryggvi Gunnarsson..................1 Ólafur Kristjánsson.................1 ÍA ÍBK.............................4-2 Aðalsteinn Víglundsson...............2 Valgeir. llarðason..................1 Heimir Guðmundsson..................1 Óli ÞórMagnússon....................1 Kreyr Svcrrisson....................1 Staðan 1. Valur 4 310112 10 2. KR 4 3 1 0 7 1 10 3. ÍA 4 3 0 1 8 6 9 4.KA 4 2 0 2 3 3 6 5. ÍBK 4 2 0 2 9-13 6 6. Fram 4 1 2 I 6 6 5 7, Víðir 4 0 3 1 2 3 3 8. Völsungur 4 1 0 3 4-8 3 9. Þór 4 2 0 2 3-6 3 10. FH „4 0 3 3 1 6 1 Markahæstir: Hörður Benónýsson, Völsungi..........3 Pétur Ormslev, F ram.................3 Heimir Guðmundsson, ÍA...............3 Sigurjón Kristjánsson, Val...........3 Óli ÞórMagnússon, ÍBK................3 Valur Valsson, Val...................2 Magni Pétursson, Val.................2 Pétur Pétursson, KR..................2 Bjöm Rafnsson, KR....................2 GunnarSkúlason, KR...................2 Aðalstcinn Víglundsson, f A..........2 Valgeir Barðason, ÍA.................2

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.