Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1987, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1987, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1987. 9 Utlönd John Howard, leiötoga stjórnarandstöðu íhaldsmanna i Astralíu, verður lít- ið ágengt í kosningabaráttunni, þrátt fyrir stór loforð. Simamynd Reuter Stjórnarandstöðunni verður lítið ágengt Stjómarandstöðunni í Ástralíu verður ákaflega lítið ágengt í kosn- ingabaráttunni fyrir kosningamar sem fram eiga að fara í næsta mán- uði, þrátt fyrir stórtæk kosningaloforð um niðurskurð skattheimtu og ríkisút- gjalda. Skoðanakannanir sýna að Verka- mannaflokkur landsins, undir forystu Bob Hawkes forsætisráðherra, hefur að minnsta kosti fimm prósentustiga forskot á íhaldsmenn og frjálslynda samanlagt Skoðanakannanimar sýndu ennfremur að mikill meirihluti ástralskra kjósenda telur hann best færan um að stýra efhahagsmálum landsins sem og iðnaðarmálúm, skattamálum og almannatryggingum. Aðspurðir kváðust kjósendur yfir- leitt efa að íhaldsmenn gætu staðið við loforð um minnkaða skattheimtu. Meirihluti þeirra taldi áætlanir þess efnis freistandi en ómögulegar í fram- kvæmd. Jóhannes Páll II páfi hitti Lech Walesa, leiðtoga Einingar í Póllandi, í Gdansk j gær. -Simamynd Reuter Páfi hitti Walesa Jóhannes Páll II páfi hitti í gær Lech Walesa, leiðtoga Einingar í Póll- andi. Fundur þeirra átti sér stað í Gdansk. Skömmu fyrir fundinn lýsti páfi því yfir á bænasamkomu, að Pól- verjar ættu að horfa með stolti til Einingar en samtökin eru bönnuð í landinu. Talsmenn kaþólsku kirkjunnar sögðu að páfi og Walesa hefðu ræðst við i um þrjátíu mínútur í bústað bisk- upsins í Gdansk. Eftir fundinn sagði Walesa fréttamönnum að fundur sinn með páfa hefði verið mjög hvetjandi og að sér fyndist rafhlöður sínar hafa verið hlaðnar á ný. Á bænasamkomunm fyrir mót sitt með Walesa, sagði páfi að orðið Eining hefði verið notað í Póllandi í nýrri merkingu og að veröldin myndi aldrei gleyma því. Sagði hann að orðið væri stolt pólsku þjóðarinnar. Stúdentar í Seoul, höfuðborg S-Kóreu, reyna að komast hjá handtöku með þvi að klifra yfir múra kaþótsku dóm- kirkjunnar í borginni. Simamynd Reuter Lögreglan hótar að ráðast á dómkirkjuna Lögreglan í Seoul, höfuðborg Suð- ur-Kóreu, hótaði í morgun að ráðast inn í kaþólsku dómkirkjuna í borginni þar sem hundruð stúdenta hafa komið sér fyrir. Hafa stúdentamir haldið kirkjunni frá þvi á miðvikudagskvöld þegar þeir tóku þátt í mótmælum gegn stjóm landsins. Lögreglan hefur kraf- ist þess að þeir gefist upp og gangi úr kirkjunni en þeim kröfum hefur ekki verið sinnt. Einn af ríkissaksóknurum S-Kóreu sagði í gær að lögreglan hefði fyrir- mæli um að handtaka alla stúdentana í kirkjunni. Var jafhframt tilkynnt að yfirvöldum kirkjunnar hefði verið skýrt frá því að ráðist yrði inn í hana til að framfylgja handtökuskipuninni, ef þörf krefði. Hafa kirkjunnar menn mótmælt þeirri ákvörðun. Talið er að um fjögur hundrað stúd- entar séu við kirkjuna, umkringdir hundruðum óeirðalögreglumanna og annarra sérþjálfaðra löggæslumanna. KVARTMÍLA Keppni veröur haldin laugardaginn 13. júni ef veður leyfir. Keppendur mæti fyrir kl. 12.00. Keppni hefst kl. 14.00. Ef rignír er keppni frestad til sunnudags eða næstu helgar. Stjórnin. Óttast skemmdir á styttum Borgaryfirvöld í Feneyjum fyrir- skipuðu í gær athugun á því hvort skemmdir hefðu orðið á styttum og minnisvörðum borgarinnar í tengsl- um við fund leiðtoga sjö helstu iðnríkja heims sem haldinn var þar nú í vikunni. Óttast menn þar eink- um að titringur frá þyrlum lögregl- unnar hafi losað um marmara í einni af höllum borgarinnar. Óttast er að skemmdir hafi orðið á minnisvörðum vegna hljóðtitrings frá löggæsluþyrlum sem flugu lágt yfir torg heilags Markúsar. Marm- arabrot hafa hrunið úr veggjum hallar við torgið og hafa þau verið send til greiningar. Hóíjegisæfingar í TBR-húsinu gætu leyst vandann? _______Þrekæf ingar-hlaup-badminton. Viltu losno viö nokkur aukokíló? ^ Er moginn ennþá of stór, þrótt fyrir veturinn?^ (Stjórnondi Hrólfur Jónsson landsliðsþjálfari *) ÆTLAD HRAUSTUM KARLMÖNNUMl 'Tennis- og badmintonfélag Regkjavíkur^ ^Gnoðarvogi 1 s. 82266_______________^ ÞRLKÆFINGAR OG BADMINTON!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.