Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1987, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1987, Síða 17
LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1987. 17 Kóngadagar á íslandi myndir frá opinberri heimsókn Karls XVI. Gústafs og Silvíu Á þriöjudagsmorgun lenti SAS-vélin meö kóngafólkið innanborós. Hátiöleg athöfn var er forseti íslands bauð þau velkomin. Hér kynnir Vigdis konungshjónin fyrir Steingrimi Hermannssyni og Matthiasi Mathiesen. Frú Vigdis forseti og Silvia Svíadrottning ræddu mikiö saman á meðan á heimsókninni stóð og fór vel á með þeim eins og myndin sýnir. Reyndar undruðust Sviar aö islendingar skuli tala um forseta sinn með fornafni. Þeim fannst það jákvætt. Myndin var tekin í Vestmannaeyjum er Vigdis sagði drottningunni frá lundaveiði Vestmannaeyinga. Litlu börnin biðu spennt eftir að sjá alvöru kóngafólk og veifuðu sænska fánanum við það tækifæri. Mynd- in var tekin fyrir utan Ráðherrabústaðinn fyrsta dag heimsóknarinnar en þá bauð forseti islands konungs- hjónunum til hádegisverðar. A miðvikudag var haldið til Vestmannaeyja en sænski kóngurinn var búinn að lýsa yfir áhuga á að sjá eyjarnar aftur. Margt manna beið hinna tignu gesta á flugvellinum i Vestmannaeyjum er Fokker-vél Land- helgisgæslunnar lenti þar. Silvía drottning var ekki siður áhugasöm um hraunhitaveituna en maður hennar. Páll Zophoníasson, bæjarverkfræðingur í Eyjum, tekur hér upp brennheitan hraunmola og sýnir hjónunum. Þau fengu að gjöf minni mola til minningar. Komið til kvöldverðar aö Kjarvalsstöðum sem Davíð Oddsson og borgarstjórn buðu til. Silvia drottning er klædd rauðum kjól, jafnglæsileg sem fyrr. Hárgreiðslustill hennar vekur nokkra eftirtekt þvi hún tekur venjulega allt hárið aftur og er síðan með hinar ýmsu fléttugreiðslur að aftan. Komið til hádegisverðar i Ráðherrabústaðnum. Konungshjónin sneru sér við áður en þau gengu inn og veifuöu til barnanna handan götunnar. Silvia var alltaf jafnglaðleg á svip en varla verður það sama sagt um kónginn. Sest að borðum. Karl Gústaf ræðir við borgarstjóra, Davíð Oddsson, en Silvia virðist niðursokkin i samræð- ur viö utanrikisráðherra, Matthias Mathiesen. DV-myndir GVA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.