Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1987, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1987, Blaðsíða 33
ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1987. 33 Fólk í fréttum Svanur Krístjánsson Svanur Kristjánsson, dósent í stjómmálafræði við HÍ, hefur getið þess í fréttum DV að Svavar Gests- son verði líklega endurkjörinn formaður Alþýðubandalagsins þrátt fyrir yfirlýsingar Svavars um að hann hyggist ekki gefa kost á sér til endurkjörs. Svanur fæddist í Hnífsdal 23. ágúst 1947 en flutti með foreldrum sínum inn á ísafjörð þegar hann var á fyrsta ári. Hann varð stúdent frá MA 1967 og lauk BA-prófi í stjómmálafræö- um frá Macalester College í Minne- sota og MA-prófi frá háskólanum í IUinois 1972. Svanur varði doktors- ritgerð 1977 um íslensk stjómmál 1916rl944. Hann var stundakennari við námsbraut í þjóðfélagsfræði við HÍ frá 1973, lektor frá 1974 og dósent við félagsvísindadeild frá 1980. Svan- ur gegndi prófessorsstöðu í fjarveru Ólafs Ragnars Grimssonar 1981-1985 og var deildarforseti félagsvísinda- deildar HÍ frá 1983-85. Svanur gekk í Alþýðubandcdagið 1974 og var um skeið í útgáfustjóm Þjóðviljans og miðstjóm Alþýðu- bandalagsins en sagði sig úr því 1985. Hann er nú í stjóm Félagsútgáfunn- ar sem gefúr út Þjóðlíf. Svanur giftist 25. september 1980 Auði Styrkársdóttur, f. 27. ágúst 1951, ritstjóra, MA. Foreldrar Auðar em Styrkár, prentari og starfsmaður í Odda, Sveinbjömsson, og kona hans, Herdís, bókavöröur í Sól- heimaútibúi Borgarbókasafnsins, Helgadóttir, trésmiðs Jónssonar. Svanur og Auður eiga tvíburana Halldór Auðar og Kára Auðar sem em fæddir 1979. Svanur átti son fyr- ir hjónaband, Heiðar Inga, f. 1968, sem er nemi við Samvinnuskólann á Bifröst. Heiðar á dóttur á fyrsta ári. Svanur á tvö systkini: Sæmund, f. 1945, fyrrv. verkamann og sjómann í Kópavogi, og Maríu, f. 1954, fóstm, gifta Ingólfi Vestmann Ingólfssyni, raftæknifræðingi í Danmörku, og eiga þau tvo syni. Foreldrar Svans era Kristján, fyrrv. skipstjóri og nú hafnsögumaö- ur á ísafirði, Jónsson, og kona hans, Ingibjörg Bjamadóttir. Faðir Krist- jáns er Jón, sjómanns og verka- manns í Hnífsdal, Eirikssonar, b. á Moldhúsum á Álftanesi, Guðmunds- sonar. Móðir Kristjáns var Amfríð- ur Kristjánsdóttir, Ámasonar frá Súðavík, Jónssonar, af Amardals- ættinni, bróður Guðrúnar, langömmu Kristmar Ólafsdóttur, varaformanns Alþýðubandalagsins, og Gests Ólafssonar skipulagsstjóra. Móðir Svans, Ingibjörg, var dóttir Bjama útgerðarmanns í Ögumesi, Einarssonar snikkara, Bjamasonar, af Amardalsættinni. Svanur Kristjánsson. Afmæli Matthías Stefánsson Matthías Stefánsson, fýrrv. starfs- maður hjá Rafmagnsveitu Reykja- víkur, til heimilis að Bólstaðarhlíð 50, Rvík, er níræður í dag. Hann er fæddur í Grímshúsum á Grímstaða- holti og ólst upp hjá móðuAsinni til fiórtán ára aldurs en var í sveit á sumrin. Eftir fermingu var hann eitt ár í Eilífsdal í Kjós og síðan hjá séra Halldóri á Reynivöllum ínKjós fram til tvítugsaldurs. Matthías fluttist þá til Reykjavíkur og fór til sjós. Hann var fyrst á skútu, þá á mótorbátum en síðast á togurum. Þegar Matthías kom í land 1924 hóf hann störf hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur og starfaði þar í tæp fimmtíu ár. Matthías giftist 1923 Guðrúnu Kortsdóttur, f. 8. febrúar 1900. For- eldrar Guðrúnar vom Kort Gísla- son, b. á Skjaldartjöm á Vatnsleysu- strönd, og kona hans, Margrét Þorvarðardóttir. Matthías og Guðrún eignuðust fiögur böm sem öll em á lífi. Þau em: Guðrún, f. 1923, verslunarmað- ur í Bókaverslun Lárasar Blöndal í Rvík, en hún er ekkja eftir Gísla Stef- ánsson, hótelstjóra á Siglufirði, og á hún þrjú böm; Matthías, f. 1924, yfir- verkstjóri hjá Rafmagnsveitu Reykjavikur, giftur Líneyju Sigur- jónsdóttur, og eiga þau þrjár dætur; Margrét, f. 1927, hárkollumeistari Þjóðleikhússins, gift Ásbimi Magn- ússyni, starfsmanni á Keflavíkur- flugvelli, og eiga þau einn son; Hulda Pálína, f. 1930, gift Jóni Péturssyni, dýralækni á Egilsstööum, og eiga þau þijú böm. Systkini Matthíasar vom sjö og em þau öll látin. Þau vora: Páll, tré- smiður í Rvik; Sesselja, gift Guð- mundi Jónssyni, verkamanni í Rvík; Ragnheiður, gift Kristni Jónssyni, sjómanni í Keflavík; Gunnar, linu- maður hjá Rafveitu Reykjavíkur, giftur Ástu Hermannsdóttur; Krist- ín, sem lést sautján ára; Soffia, sem lést tveggja ára, og Sigurður, vígslu- biskup á Möðruvöllum í Hörgárdal, giftur Maríu Ágústsdóttur. Foreldrar Matthíasar vom Stefán Hannesson sjómaður, síðast í Kefla- vík, og kona hans, Guðrún Matthías- dóttir, sem lengi rak kaffisölu í Traðarkotsundi 6. Faöir Stefáns var Hannes, b. og smiður á Brekku á Hvalfiarðarströnd, Jónssonar. Móð- ir Matthíasar, Guðrún, var dóttir Matthíasar, b. á Fossá í Kjós, Eyjólfs- sonar. Matthías dvelur á sjúkrahúsi þessa dagana og verður því ekki heima á afmælisdaginn. Knstinn ísaksen Kristinn isaksen. Kristinn Isaksen bifreiðarsfióri, Hringbraut 136E, Keflavík, er sex- tugur í dag. Kristinn er fæddur og uppalinn í Reykjavík en fluttist suöur í Garð 1972 og síðan til Keflavíkur 1982. Hann var lengst af leigubílsfióri á Bæjarleiðum en hefur veriö bílsfióri hjá Sérleyfisbifreiðum Keflavíkur síðustu tíu árin. Kristinn á fiögur böm: Guðmund, þijátíu og þriggja ára, Erlu Maríu, tuttugu og fiögurra ára, Helenu, tuttugu og tveggja ára, og Eriku, nífián ára. Kristinn á sjö systkini. Foreldrar Kristins era Hag- emp og Margrét ísaksen. Kristinn mun taka á móti gestum að heimili sínu í Keflavík 16. október nk. Þórdís Þorgrímsdóttir Þórdis Þorgrímsdóttir. Þórdís Þqrgrímsdóttir frá Bald- urshaga í Ólafsvík, Lindaholti 6 í Ólafsvík, er sjötug í dag. Þórdís er fædd og uppalin í Ólafs- vík og giftist Benjamín Guðmunds- syni, f. 1. ágúst 1925, starfsmanni Rafmagnsveitu ríkisins í Ólafsvík. Foreldrar hans vom Guðmundur Þórðarson, fiskimatsmaður í Rvík, og kona hans, Guðrún Benjamíns- dóttir. Þórdís átti tvær dætur áður en hún kynntist Benjamín. Þær era: Anna Þórarinsdóttir, f. 12. október 1939, matráðskona í Skálatúni, gift Sævari Hermannssyni, vélsfióra í Rvík; og Sólveig Jóhannesdóttir, f. 31. janúar 1943, fiskitæknir í Ólafsvík, gift ívari Steindórssyni, sjómanni í ðlafsvík. Synir Þórdísar og Beifiamíns em Þorgrímur, f. 15. júlí 1947, útgerðar- maður í Ólafsvík, giftur Kristínu Kjartansdóttur; Rúnar, f. 6. desemb- er 1948, útgerðarmaður í Ólafsvik, giftur Ragnhildi Albertsdóttur; og Svavar sem lést 1968, áfián ára að aldri. Auk sinna eigin bama hafa Þórdís og Benjamín alið upp tvær fósturdætur sem era Sigrún, bama- bam Þórdísar, f. 23. desember 1956, skrifstofustúlka í Rvík, gift Krisfiáni Sturlusyni, starfsmannasfióra hjá Hagkaupi; og Ólina, bróðurdóttir Þórdisar, f. 3. febrúar 1963, skrif- stofustúlka hjá ESSO. Systkini Þórdísar em: Laufey, f. 17. desember 1911, gift Ólafi Bimi Ólafssyni, netagerðarmanni í Ólafs- vík; Kristín, f. 6. nóvember 1927, gift Ottó Ámas\Tii, skrifstofusfióra í Ól- afsvík, bæði látin; og Kristinn, f. 6. nóvember 1927, sjómaður í Ólafsvík, giftur Ebbu Jóhannesdóttur fiski- tækni. Foreldrar Þórdísar vom Þorgrím- ur Vigfússon, sjómaður í Ólafsvik, og kona hans, Sigrún Máifríður Sig- urðardóttir hjúkrunarkona. Eymundur Torfason Eymundur Torfasqn vélsfióri, Dvaiarheimilinu Hlíf, ísafirði, er ní- ræður í dag. Eymundur er fæddur í Asparvík í Strandasýslu og ólst þar upp til átta ára aldurs en fluttist þá að Kald- aðamesi til Ólafs Gunnlaugssonar og Sigurðar Sveinssonar. Hann ólst þar síðan upp og í Reykjaríirði og Kúvíkum og var síðast á Gjögri en fluttist til ísafjarðar 1919. Eymundur lauk vélsfióraprófi á ísafirði 1926 og var síðan vélsfióri á bátunum Sæ- birni og Bifröst frá FlatejTÍ. Hann var vélsfióri í íshúsinu í Neðsta- kaupstað en hefur síðan unnið margs konar landvinnu. Fyrri kona Eymundar var Rannveig Benedikts- dóttir frá Bolungarvík. Eignuðust þau einn son, Garðar, sem lést ung- ur. Seinni kona Eymundar er Krisfi- ana Jakobsdóttir. Systkini Eymundar vora sjö. Af þeim em þijú á lífi en þau eru: Ásgeir, sjómað- ur í Rvik. Torfhildur, húsmóðir á ísafirði, og Guðbjörg, húsmóðir í Hnífsdal. Látin em Þórdís, húsmóðir í Keflavík, Kristbjörg, húsmóðir á Akureyri, Bjöm, sem lést ungur.'og Loftur, sjómaður í Hafnarhólum í Steingrímsfirði. Foreldrar EjTnundar vora Torfi Bjömsson, b. í Asparvík, og kona hans, Anna Bjamveig Bjarnadóttir. 80 ára____________________ Jónína Ólafsdóttir, Gunnlaugsgötu 17, Borgarhreppi, er áttræð í dag. 75 ára________________________ Hermann Guðjónsson, Óðinsgötu 15, Reykjavík, er sjötíu og fimm ára í dag. Jófríöur Kristjánsdóttir, Bólstað- arhlíð 66, Reykjavík, er sjötíu og fimm ára í dag. 60 ára________________________ Alfreð Kristinsson, Kleppsvegi 4, Reykjavik, er sextugur í dag. Gisli Ferdinandsson, Lækjargötu 6 A, Reykjavík, er sextugur í dag. 50 ára Bára Magnúsdóttir, Ytri-Bakka, Arnarneshreppi, er fimmtug í dag. Anna Jóhannsdóttir, Drafnargötu 7, Flateyri, er fimmtug í dag. 40 ára Benedikt Kristjánsson, Krumma- hólum 6, Reykjavík, er fertugur í dag. Sigríður Siguijónsdóttir, Varma- dal, er fertug í dag. Helgi Björnsson, Huppahlíð 1, Ytri-Torfustaðahreppi, er fertugur í dag. Kolbrún Finnsdóttir, Dalbraut 3, Reykjavík, er fertug í dag. Jóhann Magnús Magnússon, Brekkubyggð 54, Garðabæ, er fer- tugur í dag. Sigrún Einarsdóttir, Langagerði 68, Reykjavík, er fertug í dag. Stefán Finnsson, Garðsbrún 2, Hafnarhreppi, er fertugur í dag. Hjörieifur Eríendsson Ifjörleifur Már Erlendsson, Hát- úni 22, Keflavík, er sextugur í dag. Hjörleifur er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum og starfar nú sem gæslumaður í Keflavík. Kona hans er Ástrós Eyja Kristinsdóttir, f. 7. nóvember 1933, og eiga þau sex böm. Þau em: Harpa, f. 4. janúar 1953, ræstingakona í Rvík, gift Þórði Haraldssyni skordýraeyði; Þröstur, f. p. nóvember 1954, lögregluþjónn í Rvík, giftur Dýrborgu Ragnarsdótt- ur; Hrönn, f. 1. desember 1955, skrifstofumaður á Akranesi, gift Þorgeiri Kolbeinssyni, skipaaf- greiðslumanni á Akranesi; Hlíf, f. 28. janúar 1957, ræstingakona, gift Óm- ari Leifssyni, starfsmanni Eimskips; Sóley, f. 27. júlí 1963, gift Jóhanni Guðnasyni, sjómanni í Keflavík; Bylgja Dögg, f. 30. júlí 1970, verslun- armaður í Keflavík. Andlát Ingólfur Guðmundsson frá Lóma- tjörn lést í Borgarspítalanum aðfaranótt laugardagsins 10. þ.m. Guðbjörg Jónsdóttir, Efri-Holtum, Vestur-Eyjafjöllum, lést í Sjúkra- húsi Suðurlands laugardaginn 10. október. Sigurður Jónsson, fyrmm bóndi í Úthlíð, Biskupstungum, Hamra- borg 14, Kópavogi, lést sl. sunnudag í Landspítalanum. ÆTTFRÆÐINÁMSKEIÐ Hafið þið áhuga á að rekja ættir ykkar og frændgarð? Grípið þá tækifærið og lærið til verka á ættfræðinám- skeiði. Fyrsta flokks rannsóknaraðstaða. Ættfræðiþjónustan - sími 27101.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.