Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1988, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1988, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 20. APRfL 1988. Fréttir Verkfall verslunarmanna mun örugglega skella á - Verzlunarmannafélag Reykjavíkur skipuleggur verkfallsvörslu Nú er augljóst aö verkfall verslun- armanna. mun skella yfir á fostudag hjá þeim félögum sem þá hafa boðað verkfall. Nýr sáttafundur hjá ríkis- sáttasemjara verður ekki haldinn fyrr en á morgun, fimmtudag, klukk- an 15.00. Á fysta sáttafundinum var gjáin milli deiluaðila svo breið að ekki þótti ástæða til að reyna annan sátta- fund fyrr, en skylda er að halda sáttafund áður en verkfall kemur til framkvæmda. Verkfall verslunarmanna mun þegar í stað hafa víðtæk áhrif. Pétur Maack hjá Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur sagði að verslunar- mannafélögin yrðu mjög spör á undanþágur í verkfallinu. Búið er að skipuleggja verkfallsvörslu. Skipaðir hafa verið 40 flokksstjórar til að ann- ast verkfallsvörsluna og eru 5 til 20 menn í hverjum flokki og hefur hver þeirra sitt svæði í borginni. Pétur sagði að strax í dag myndu verkfallsverðir fara í verslanir og skora á félaga í Verzlunarmannafé- Bakarí, þar sem eigandinn vinnur, munu ekki loka í verkfaUi verslunar- manna og þvi ætti engin hætta að vera á brauðskorti í verslunar- mannaverkfalhnu. Þar að auki munu bakarar ekki leggja niður laginu að vinna ekki yfirvinnu í dag, síöasta vinnudag fyrir verkfall. Þeir gætu aö vísu ekki gert annað en biðja fólk að vinna ekki yfirvinnu. „Við viljum með þessu minna á okkur,“ sagði Pétur Maack. -S.dór vinnu, aðeins afgreiðslufólkið. Þá mun mjólk fást eitthvaö fram í næstu viku í þeim verslunum sem mega hafa opið, en það eru minni búðir þar sem eigendur geta annast afgreiðsluna. -S.dór Heilbrigðis- þjónustunni veitt undanþága í gær var haldinn fundur hjá verkfallsnefiid Verzlunarmanna- félags Reykjavikur þar sem fjall- aö var um hluta af þeim fjölmörgu beiönum til undan- þágu frá verkfalli verslunar- manna sem borist hafa til Verzlunarmannafélags Reykja- víkur. Pétur Maack hjá Verzlunar- mannafélaginu sagði að ákveðið hefði verið að veita undanþágu til Læknasetursins, þar sem krabbameinssjúklingar fá með- ferð, og sömuleiðis Hótel Lindar sem er sjúkrahótel. Einnig var íjallað um undanþágubeiöni meðferðarstofnana en þær ekki afgreiddar. Undanþágubeiðni barst frá apó- tekunum og var henni hafnað þar sem lyfjafræðingai’ geta afgreitt nauösynleg lyf þótt afgreiðslufólk sé í verkfalli. -S.dór ísafjörður: Emir flýgur á 3ja tíma fresti til Reykjavíkur -eftilverkfaiis kemur Ef til verkfalls kemur núna þá mun Flugfélagið Ernír vera með ferðir milli ísafiaröar og Reykja- víkur á þriggja tíma fresti á venjulegum fargjöldum eins og gengur og gerist að sögn Harðar Guömundssonar, forstjóra Em- is. Einnig sagði Hörður að hann myndi fara utan næstkomandi sunnudag til að sækja nýja fiug- vél og kemur með hana hingað til lands fyrir mánaöamótin. ÁæUunaiflug og rútu- ferðir leggjast niður Ljóst er að samgöngur innanlands munu leggjast af á fóstudaginn, þeg- ar verkfall verslunarmanna kemur til framkvæmda. Allt innanlandsflug Flugleiða hf. mun leggjast af og Helgi E. Guðbrandsson hjá Verzlunar- mannafélagi Reykjavíkur fullyrðir að starfsfólk Arnarflugs tilheyri fé- laginu og fái því ekki leyfi til að vinna. Arnarflugsmenn hafa haldið því fram að þeirra fólk geti unnið í verkfallinu. Allt starfsfólk Umferðarmiðstöðv- arinnar í Reykjavík er félagar í Verzlunarmannafélaginu og því leggjast rútuferðir frá Reykjavík nið- ur. Verslunarmannafélag Suðurnesja hefur boðað verkfall á mánudaginn kemur og þá um leið leggst allt milh- landaflug frá Keflavíkurflugvelli niður. Þar með hafa allar almenn- ingssamgöngur lagst af vegna verk- falls verslunarmannafélaganna í landinu. -S.dór Ferðaskrifstohir verða að loka „Það hefúr ekkert verið rætt um undanþágu fyrir feröaskrifstofurn- ar til að koma fólki heim frá sólarlöndum. Ætli það veröi ekki bara að kaupa sér meiri sólarolíu,“ sagði Pétur Maack hjá Verzlunar- mannafélagi Reykjavíkur í samtali viö DV í gær. Hann sagði ljóst að ferðaskrifstofumar yrðu aö loka þegar til verkfallsins kemur og það væri ekkert sjálfgefiö að undan- þága yrði veitt til að sækja farþega til sólarlanda. Þess má geta aö í ferðaskilmálum sem fólk undirgengst hjá ferða- skrifstofunum þegar það fer í skipulagðar hópferðir er tekiö fram að ferðaskrifstofurnar séu ekki skaöabótaskyldar vegna tafa eöa óþæginda og beri ekki ábyrgð ef verkfall skellur á, ef náttúruham- farir eiga sér stað ellegar ef styrjöld skellur á í því landi þar sem dvahð er hveiju sinni. Hver farþegi í hóp- ferð verður að undirgangast þessa skilmála. -S.dór Mikil ös var í matvöruverslunum í gær vegna yfirvofandi verkfalls og búist er við miklum atgangi í dag. DV-mynd GVA Bensínafgreiðsla mun ekki stöðvast Þaö mun eitthvað hafa borið á því í gær að fólk hamstraði bensín af ótta við að það yrði ekki afgreitt í verkfalli verslunarmanna. Þetta er óþarfi þar sem bensínafgreiöslu- menn í Reykjavík eru í Dagsbrún og ■ fara því ekki í verkfall. Bensín verður afgreitt áfram þótt verslunarmenn fari í verkfall eins og ekkert hafi í skorist. -S.dór Engin hætta á brauðskorti í dag mælir Dagfari Bjórinn kemuri Neðri deild alþingis mannaði sig upp í þaö í gær að samþykkja bjór- inn. Flutningsmenn frumvarpsins voru búnir aö hóta því að láta banna allan bjór í landinu ef frum- varpið yrði fellt, þar á meðal ferðamannaskammtinn, og við það urðu alþingismenn logandi hrædd- ir því þeir hafa margir hverjir látið sig einu gilda bjór eða ekki bjór, meðan þeir sjálfir hafa getað keypt hann í fríhöfninni. Tillaga um að visa málinu til þjóðaratkvæða- greiðslu var líka felld enda treysta þingmenn ekki þjóðinni fyrir þeirri ábyrgð aö ákveöa það sjálf hvort hún vilji bjór eða ekki. Þingmenn verða að hafa vit fyrir íslendingum í þessu máli sem öðrum og nú er sem sagt bjórfrumvarpið komið í efri deild og þar eru bjórstuðnings- menn taldir í öruggum meirihluta. Bjórinn er því á leiöinni og hlýtur það að gleðja þessa þjóð sem hefur haft af því miklu meiri áhyggjur hvort bjór fáist í landinu heldur en hinu hvort fólk geti lifað af kaupinu eða hvort viöskiptahallinn er tíu milljarðar eða tóif milljarðar. Gert er ráð fyrir í þessu frum- varpi að bjórinn verði til sölu á næsta ári, énda verður að gefa umboösmönnum bjórtegunda um allan heim tækifæri til að undirbúa bjórflóðið inn í landiö og það verð- ur líka að veita innlendum bjór- framleiðendum svigrúm til að blanda öhð svo aö Egils öl og Sanit- as verði samkeppnisfærir á markaðnum þegar þjóöin dettur í það. Þessum tíðindum er væntanlega fagnað á flestum vígstöðvum nema þá helst í fríhöfninni, af farmönn- um og Gutta í Ámunni. Bjórsalan í fríhöfninni mun að sjálfsögðu falla niður og sennilega fer Frí- höfnin á hausinn. Farmenn munu fjótlega fara í verkfall og heimta hærri laun, vegna þess skaða sem þeir verða fyrir þegar þeir geta ekki lengur smyglað bjór inn í landið. Ekki kæmi manni á óvart þótt sigUngar legðust niður því hvaöa maður fæst á farskipin leng- ur þegar ekkert er upp úr þeim hafandi eftir að búið er að eyði- leggja smygUð. Síðast en ekki síst getur Guttormur í Ámunni ekki lengur aðstoðað heimabruggara með leiöbeiningum um hvemig ekki eigi að blanda áfengt öl og þar með leggst útbreiddur heimilisiðn- aður niður. Að öðru leyti verður að gera ráð- stafanir til aö áfengisútsölur séu settar upp á öðru hverju götuhorni og eins verður að fjölga almenn- ingssalernum ef bæjarfélögin eiga ekki að flæða af bjórhlandi í húsa- sundum þegar bjórþambarar þurfa að losa sig við niðurrennslið. Þetta verður söguleg stund hér á landi og mun jafnast á við lýðveld- istökuna eða alþingishátíðina þegar flóðbylgjan gengur yfir. Al- þingi íslendinga mun geta sér frægð og frama og flutningsmenn bjórfrumvarpsins fá sennilega styttur af sér á Austurvöll við hlið- ina á Jóni forseta. Annað eins frelsismál hefur ekki verið flutt og fullnaðarsigurinn, sem framundan er, mun valda byltingu sem kom- andi kynslóðir munu minnast með þakklæti og klökkum huga. Hér eftir verður leitun að alls- gáðum íslendingi. Hingað til hafa íslendingar aöeins getað verið full- ir í útlöndum en nú geta þeir veriö fulhr á heimavelh og drukkið bjór meö góðn samvisku frá morgni til kvölds. íslenska þjóöin mun með öðrum orðum lenda á bjórfylliríi fyrir tilstuðlan alþingis og fer vel á því. Alþingi íslendinga gerir sér ljóst aö það er miklu betra að hafa þjóðina sætkennda og hífaða þegar áföllin dynja yfir í efnahags- og at- vinnumálum. Hér er aht aö fara á hausinn, sem á annað borð er með lífsmarki, verslunarmenn komnir í verkfah, Flugleiðir hætta að fljúga vestur og þorskurinn horfmn af núðunum. Hvað er þá betra en hafa íslendinga hálffulla á bjórkennd- eríi, fagnandi þeim áfanga í þjóðar- sögunni að geta drekkt sorgum sínum samkvæmt læknisvottorði frá helmingnum af læknastéttinni. Hinn helmingurinn mun þá fá nóg að gera við aö lækna áfengissjúk- dóma. Þetta eru merkilegir tímar sem við lifum, þökk sé alþingi sem hefur ákveöið að hafa vit fyrir þjóðinni með því að leyfa henni bjór- drykkju, eftir aö hafa haft vit fyrir' þjóðinni fram að þessu með því að banna bjórinn. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.