Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1988, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1988, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1988. Sandkom Gulir af öfund? Samkepimin tekuroftásig skemmtilegar myndir, ekki sistsamkeppni fjölmiðlanna. Á Isafirðierugef- inúttvöágætis óháöfréttablöð, Vestfirska fréttablaðið og BB. BB stendur vístfyrir Bæjarins besta og nafngiftin ein sér gefur til kynna álit útgefendanna á sjálfum sér og sam- keppnisaðilanum. Blöðin virðast eiga dálitiö erfitt með að láta hvort annað í friði og senda til skiptis smá pillur á keppinautinn. í nýjasta tölublaði Vestfirska fréttablaðsins er í slúður- dálki talað um „að gula hafi skotið upp kollinum á ísafirði". Þar er átt við að Vestftrska fréttablaöið, sem verið hefur rauðleitt eins lengi og elstu menn muna, hafi skyndilega orðið gult í síðustu viku. „Og svo var Barna-Blaðið í gær orðíð svona líka!“ Hvort Vestfirska er hér að gefa i skyn aö BB sé s vona ungt að árum eða að ritstjórar þess séu bamungir skal ósagt látið, en það verður spennandi að sjá svar Bæj arins besta við þessu. Heiðurs- Þingeyingur Einsogstund- umáðurleyf- umviðokkur aðvitnaörlitið í Víkurbiaðið á Húsavík,að þessusinnií greinum melstara KristjánJÖ- hannsson. „Kristján er orðinn slikur sniliinguraðsú spuming hlýtur að vakna hvort hann sé ekki þar af leiðandi Þingeyingur efirnig. Ekki síst í Ijósi þess að fáir Þingeyingar komast með tærnar þar sem Kristján hefur hæiana í þeirri iist aö segj a þann sannieika um sjálfi an sig sem sómi er að. “ Beinar útsendingar Sjónvarpiðhef- urtekiðuppá þvíuppásíð- kastiðaövera meðbeinarút- sendingarfrá hinum marg- vislegustu viðburðum. Þettaergóðra gjaldavert,ená þessarigjöf Njarðareruþó tveirgallar.Sá fyrri er að sárafáir vita um þessar útsendingar og sá seinni að þær haía verið á þeim tima dagsins þegar vel- flestir eru í vinnu og fjarri skjám, jafnvel þó þeir hafi vitað af útsend- ingunum. Um daginn var bein útsending frá flugvellinum í Alsír og gátu þeir sem óvart kveiktu á sjón- varpinu sinu séð stillimynd af flugvél i beinni útsendingu í tuttugu mínútur meðan fréttamaöur ruddi út úr sér öllu sem hann vissi um flugræningja og gísla. Á mánudaginn var Sjón- varpið svo með beina útsendingu frá atkvæðagreiðslu um bjórfrumvarpið á Alþingi. Fáir vissu af þessari út- sendingu og enn færri höfðu tækifæri til að horfa á sj ónvarp á þessum tíma dags. Nú má gera ráð fyrir aö við fáum að sjá 1 beinni útsendingu þegar dyr iokast í stórmörkuðum í dag, síð- asta verslunardaginn fyrir verkfall. Verstu árin Ogþessier fenginnúr Vestfirska fréttablaðinu: „A dögunum tókutveir menn, Þingeyr- ingurogFlat- eyringur, tal saman. Um- ræðan snerist umskólamál. „Veistuhver ærufiögurerf- iðustu árin í lífi Patreksfirðings?" spuröi Þingeyringurinn. „Nei,“ sagði Flateyringurinn, eins og þeir segja alltaf. „Það er einfalt," svaraði hinn, „það er sjö ára bekkurinn!" Umsjón Axel Ammendrup Fréttir Fiskmavfcaðurinn í Þýskalandi: Verðhrun vegna hitabylgju - fiskur úr 28 gámum frá íslandi verður boðinn upp í dag „Hér er nú mikil hitabylgja, sem kom óvænt og alltaf þegar slíkt ger- ist fellur verð á fiski. Hitinn í dag var 27 gráður og þetta er í fyrsta sinn á vorinu sem fólk getur tekið útigrillið fram og grillað á svölunum eða garð- inum. Þegar svo er selst fiskur ekki. Og eins og allir vita gera hitabylgjur ekki boð á undan sér og því er erfitt að stýra fiski inn á markaðinn eftir þeim. Nú hefur útflutningsbanninu á gámum frá íslandi til Þýskalands verið aflétt og því hefur borist óvenju mikið af þeim hingað. í dag verður seldur fiskur úr 28 gámum hér í Þýskalandi. Karfaveröið er nú um 40 krónur fyrir kílóið, sem þykir mjög lágt,“ sagöi Samúel Sveinsson, umboðsmaður í Þýskalandi, í sam- tali við DV í gær. Samúel sagði að Landssamband íslenskra útvegsmanna hefði vitað af þessum mikla gámafjölda og þvi muni aðeins eitt skip frá íslandi selja ferskfisk í Þýskalandi í þessari viku. Hann sagði að ekki mætti selja karfa á lægra verði en um 33 krónur fyrir kílóið, og er það kallað lágmarksverð Efnahagsbandalagsins. Ekki sagðist Samúel eiga von á því að verðið á karfanum hrapaði niður fyrir fjörutíu krónurnar og því taldi hann aö salan úr gámunum 28 myndi sleppa fyrir horn. Hann sagði enn- fremur að ef þetta góða veður héldist áfram væri lítil von til þess að fisk- verðið færi að ráði upp á meðan, þótt þar kæmi sjálfsagt að fólk fengi leið á grillmatnum. -S.dór Kuldarnir setja strik í vorveiðina þessa dagana: Um 1400 fiskar á land „Ég var þarna í Varmánni í gær og veiddi 30 fiska, sá stærsti var 3 pund og það er víða mikið af fiski í læknum," sagði Jón Sigurðsson um Varmá en þar hefur hann veitt nokkrum sinnum í vor. „Ætli maður sé ekki kominn með 200 fiska í það heila úr læknum það sem af er, flugu- veiðin hefur gefið vel,“ sagði Jón í lokin. Þessir miklu kuldar, sem hafa ríkt síðustu vikur, hafa heldur betur stoppað vorveiðina víða. Tvær veiði- ár eru þær sem ganga þessa dagana og það eru Varmá (Þorleikslækur- inn) og Rangárnar, aðrar eru stopp vegna ísa. Veiðivon Gunnar Bender Geirland^á hefur gefið 38 fiska, Vatnamótin eru komnar í 110-120 fiska, Fossálarnir eru í 45 fiskum og í Skaftá eru einhver tugur á land. Tunguíljótið hefur 5-10 fiska. Rang- árnar hafa gefið reytingsveiði og líklega eru komnir um 150-160 fiskar á land, urriðar, bleikjur og sjóbirt- ingar. Varmá og Þorleifslækur hafa gefiö um 1000 fiska sem er mjög gott. Hraunið hefur lítiö gefið ennþá, kannski 10 fiska. Laxá í Leirársveit og Leirá eru ennþá á ís og fáir hafa komið þar niöur færi. -G.Bender Kuldarnir hafa sett strik í vorveiðina en þegar hlýnar gefur fiskurinn sig örugglega og þá verður þessi sjón líklega algeng. Aflaleysið á Snæfellsnesi: Tugmilljónatap á hverju fyrirtæki man ekki eftir öðru eins ástandi, segir Soffanías Cecilsson í Gmndarfirði „Ég hef nú fengist viö útgerð og fiskvinnslu lengi hér í Grundarfirði en ég man ekki eftir annarri eins vertíð og þeirri sem nú er langt kom- in. Ef aflinn hefði verið eins og undanfarin ár hefðu best reknu fyr- irtækin ef til vill getaö verið nærri núllinu, en ég þori að fullyrða að tugmilljóna króna tap verði á hverju fyrirtæki eftir þessa hörmulegu vetr- arvertíð," sagði Soffanías Cecilsson í Grundarfirði í samtali við DV. Soffanías tók dæmi af sinni fisk- verkun. Hann sagðist undanfarin ár hafa verkað um 800 lestir af saltfiski á vertíðinni, en í ár sagðist hann góður ef hann næði 100 lestum. Hann sagði að útkoman hjá útgerðinni væri að sjálfsögðu alveg í samræmi við þetta. „Það hefur líka gripið um sig eitt- hvert vonleysi hjá fólki hér á Snæfellsnesi eftir þessa vertíð. Út- gerð og fiskvinnsla hafa enga sjóði að hlaupa í þegar illa árar. Bændur fá bætur, meira að segja er veriö að tala um að bjarga skreiðarframleið- endum, en við höfum ekkert slíkt að hlaupa upp á og ég veit sannarlega ekki hvernig þetta endar,“ sagði Soff- anías Ólafur Rögnvaldsson hjá Hrað- frystihúsi Helhssands á Rifi tók í sama streng og Soffanías. Hann sagði aö nú væri verið að tala um 13% tap á frystingunni í landinu en á Snæ- fellsnesi bættist svo afaleysið ofan á hjá fyrirtækjunum. Ólafur sagðist eins og fleiri vera þeirrar skoðunar að linnulaust smáfiskadráp togar- anna undanfarin ár væri ástæðan fyrir aílaleysinu nú. „Maður átti von á aö því myndi einhvern tímann fylgja högg, en aö það yrði jafnhrikalegt og raun ber vitni, hefði maður ekki trúað. í mörg ár hefur verið farið fram á það við sjávarútvegsráðherra að ekki væru leyföir minni möskvar en 7 tommu hér í Breiðafirði. Því hefur aldrei veriö ansað fyrr en nú, eftir að högg- ið hefur riðið af,“ sagði Ólafur. Hann sagöi að nú væri ekki um annað aö gera fyrir útgerðarfyrir- tækin en að setja stóru bátana á troll og taka þátt í smáfiskadrápinu eins og aðrir. Sem dæmi um aflaleysið hjá Breiðaíjarðarbátum má nefna að í marsmánuði var allur afli báta á Vesturlandi 9.399 lestir en var í mars í fyrra 21.519 lestir. Mánuðina jan- úar, febrúar og mars í ár var afli báta á Vesturlandi 32.279 lestir en var á sama tíma í fyrra 43.602 lestir. -S.dór Viðtaiið dv ——---^ áhuga á ætt- fræðiritum“ V i / Nafn: Berglind Ásgeirs- dóttir Aldur: 33 Staða: sendiráðunautur „Ég hlakka til að flytja til ís- lands og takast á við nýtt starf. Þegar maður er búinn að vera búsettur erlendis hátt í sjö ár er gott að hugsa til þess að flytja heim,“ segii- Berglind Ásgeirs- dóttir, - sendiráöunautur við íslenska sendiráðið í Svíþjóð, en hún hefur verið skipuð ráöu- neytistjóri félagsmálaráðuneytis- ins frá 1. september næstkom- andi. Berglind er fyrsta konan sem er skipuð ráðuneytisstjóri á íslandi og tekur hún við af Hall- grimi Dalberg. í Þýskalandi og Svíþjóð Berghnd útskrifaðist frá Há- skóla íslands sem lögfræöingur árið 1978. Á sumrin og fyrst eftir að námi lauk var hún blaðamað- ur hjá Dagblaðinu og Vísi. „Meö- an ég var í lögfræðinni vann ég sem blaðamaður á sumrin auk fyrsta ársins eftir að ég útskrifaö- ist. Áhugi minn beindist aö blaðamennskunni á þessum tíma og ég ætlaði að vera í faginu um einhvern tima enda fannst mér þetta mjög fjölbreytt og skemmti- leg vinna. En um áramótin 1978/1979 tók ég til starfa hjá upp- lýsinga- og menntadeild utanrík- isráöuneytisins. Það má þó segja að starf mitt í utanríkisráðuneyt- inu hafi ekki veriö svo ólíkt blaðamennskunni enda bæði störfxn á sviöum upplýsingar. Eftir tæp þrjú ár tók ég til starfa í íslenska sendiráðinu í Bonn í Þýskalandi en flutti svo yfir til Svíöþjóðar 1984.“ . Eiginmaöur Berglindar er Gisli Agúst Gufinlaugsson sagnfræö- ingur og eiga þau einn son á sjöunda ári sem heitir Ásgeir. Foreldrar Berglindar eru Ásgeir Jóhannesson, forstjóri og Sæurrn Sveinsdóttir ritari. Aðaláhugamálið bókalest- ur „Alveg frá því að ég varð læs hefur aðaláhugamál mitt verið bókalestur og er ég eiginlega alæta á bækur. Ég tek engar sér- stakar bókmenntir fram yfir aörar nema ef vera skyldu ætt- fræðirit. Frá þvi ég var krakki hef ég haft mjög gaman af ætt- fræöiritum og þarf það þá ekkert frekar að vera um mínar eigin ættir. Þetta tengist bara áhúga mínum á fólki. Auk bókanna hef ég mjög gam- an af því aö spila bridds og geri ég það með vinum og kunningj- um þegar tækifæri gefst. Hins vegar er erfitt aö vera í bridds- klúbbum þegar maöur býr er- lendis.“ -JBj

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.