Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1989, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 05.06.1989, Blaðsíða 5
MÁNUDAGUR 5. JÚNÍ 1989. lúní er góður mánuður! iminmn^ l° Skemmtiþættir þar sem áskrifendur fá sín tækifæri til að hafa hönd i bagga með Helga Pé og félögum. Ekki má heldur gleyma þeim erlendu, sem eru fjötmargir og feikna skemmtilegir; Ruglukollar, Kæri Jón, Bjartasta vonin. Kvikmyndir júnímánaðar eru frábærar. Nefnum nokkrar: Lady sings the blues -þar sem Diana Ross fer með hlutverk Billy Holiday; 40 karöt eitt meistaraverka Katselas með Liv Ullmann i aðalhlutverki og Fyrsta dauðasyndin með Frank Sinatra og Faye Dunaway - já og miniserían Hands of a stranger. Æsileg mynd. H) Barnaefnið - mikill hluti þess er talsettur, þvi Stöð 2 þekkirþarfirungra áhorfenda. Brakúla greifi, Selurinn Snorri, Andabær, Elsku Hobo, Drekar og dýflissur, Þrumukettir og Begga frænka. Illllli III Fræðsluþættir, á borð við Dýraríkið (Wild kingdom) eru líka á dagskrá okkar, einnig Framtiðarsýn, Leyndardómar undirdjúpanna, Háskólinn fyrir þig óg Mannslikaminn. Tónlist - Islenskur dægurlagaþáttur, Ljáðu mér eyra, á hverju föstudagskvöldi. Bylmingur, nýr þungarokksþáttur á þriðjudögum. Lika Óháða rokkið. Fimmtudagskvöldin liða með jazzþætti. Stuðmenn koma fram í þætti sínum Listin að lifa - á 17. júní. -þ (F> miiMi'T l/llll! Ferða- og bilaþættir. Lagt i 'ann eru ferðaþættir, fjölbreyttir og fræðandi. Sigmundur Ernir og Guðjón Arngrímsson kynna perlur náttúru og menningar heima og heiman. Og Birgir Bragason stýrir bílaþætti Stöðvar 2 af alkunnri snilld og þekkingu. Princess Daisy er í einu orði sagt stórfengleg framhaldskvikmynd um magnþrungin örlög, ótrúlegar leikfléttur lifsins - þar sem heimurinn ýmist rís eða hrynur til grunna. f 11| II////7777 íþróttaþættir Stöðvar 2 eru löngu heimsfrægir á Islandi enda engu gleymt i heimi þessa kappsfulla kjarnafólks sem þar birtist. Golf, fótbolti, svif og stökk, handbolti, sund og fimleikar. Listinn er langur og vel gerður. Fréttir - innlendar sem erlendar fréttir líðandi stundar - ferskar af vettvangi. Framhaldsþættir eru margir: Bjargvætturinn, Falcon Crest, Fríða og dýrið, Santa Barbara, Bernskubrek, Dagbók smalahunds - hollenskir þættir sem fara sigurför um Evrópu. Spenna? Stöð 2 sinnir vel þeim áhorfendum sem kunna að meta spennumyndir, gæsahúð og ærlegan hroll. Sumarið verður skemmtilegt á Stöð 2. Áskrifendur stöðvarinnar geta valið um fjölbreytt, fræðandi og skemmtilegt efni af öllum stærðum, gerðum og lögun. Það verður hálfleiðinlegt að þurfa sífellt að vera að hlaupa á milli húsa til að fá að kíkja á Stöð 2 í sumar. Þeir framsýnu kaupa myndlykil - þeir sem eig'ann sleþþ'onum ekki. Gleðilegt sumar með Stöð 2. /

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.