Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1990, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1990, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1990. Utlönd Gislumheitiðlausn Aöur óþc-kkt palestinsk skæru liöasamtök segjast munu láta tvo svissneska borgara, sem þau hafa í haldi, lausa innan sólarhrings. Samtökin, Byltingarfylking Palest- ínu, sendu frá sór yfirlýsingu i gær þar sem sagöi að Emmanuel Christen, 33 ára, og Elio Erriquez, 24 ára, yröi sleppt í kjölfar óska forseta Sýrlands, Alsír og Líbýu. Með yfirlýsingunni sendu samtiik in mynd af Christen. 1 yfirlýsingunni sagöi að samtók- in hel'ðu fengiö tryggingu l'yrir því aö gengiö yröi aö krofum þeirra en þar sagöi al'lur ;i ruóti ekkert um hverjar þær kröfur væru. Bæði Chdsten og Erriquez unnu manuel Christen, sem palestlnsk fyrir Rauða krossinn. Þeim var skæruliðasamtök segjast ætla að rænt í október árið 1988 fyrir utan láta lausan. Sfmamymt Reuter skrifstofu i Sídon. Díanaveldurusla Pellibylurinn Díana skall með offorsi á strendur Mexíkó i gær og olli ílóðum og skemmdum áöur en dró úr krafti hans. í kjölfar Díönu urðu miklar skemmdir á byggingum sem og ílóð við strendur landsins en að sögn embættismanna er ekki vitað um manntjón. Um átta hundruð fjölskyldur í fátækrahverfum borgarinnar Tampic misstu heimili sín þegar veðurofsinn reif meö sér léleg híbýli þeirra. Díana gekk yfir strendur Mexíkó um miðjan dag í gær og var vindhraöinn allt að 145 kílómetrar á klukkustund þegar verst lét. Þegar kvöldaði lægði og þá komst vindhraöinn niöur í 100 kílómetra á klukkustund. Nýr forseti í Kólumbíu Cesar Gaviria, nýkjörinn forseti Kólumbíu, ásamt eiginkonu sinni, Ana Milena. Símamynd Reuter Cesar Gaviría, sem í gær tók við forsetaembættí Kólumbíu, hefur heit- ið hertri baráttu gegn kókaínbarónunum svokölluðu og vaxandi ofbeldi í landinu vegna striðsins við fíkniefnasmygl og neyslu. Gífurleg öryggis- gæsla var viö innsetningarathöfn Gaviria í gærdag því lögreglumenn ótt- uðust að kókaínbarónar myndu láta til skarar skríða gegn forsetanum nýja. Honum hafa þegar borist líflátshótanir og hann sór embættiseið sinn bak við skothelt gler. Þúsundir vopnaðra lögreglumanna voru við Gaviria,_sem er yngsti forseti Kólumbíu á þessari öld, kvaðst ekki mundu gefa eftir í þaráttunni við kókaínbarónana en Virgilio Barco, fyrrum for- seti, sagði barónunum stríð á hendur fyrir skömmu. Bílasprengja gerð óvirk Sovéskir sprengjusérfræðingar gerðu í gær óvirka bílasprengju sem fest haíði verið á bifreið fyrir utan heimili í Moskvu. Ekki er ljóst hverj- um sprengjan var ætluð en einn heimildarmaður sagöi það ekki ólíklegt að hér hefðu andstæð glæpasamtök verið að verki. Að því er fram kom í fréttum Tass, hinnar sovésku fréttastofu, var sprengjan það öflug aö hefði hún sprungið hefði bifreiðin eyðilagst og allír látist sem í henni heíðu verið. Bandaríkin bregðast við spennunni í Persaflóa: Senda hermenn til Saudi-Arabíu - írakar hlaða eiturgasi í þotur, segir bandarískt dagblað Svo virtist sem íraskir hermenn hafi verið að hlaða eiturgasbirgðum um borð í orrustuþotu í gær að því er fram kom í bandaríska dagblaðinu The Washington Post í mergun. Blaöið getur þess einnig að ef til vill séu írakar að búa sig undir átök viö Bandaríkjamenn og aðra andstæð- inga sína. Heimildarmenn blaösins eru bandarískir leyniþjónustumenn sem neituðu að greina frá á hverju þeir byggðu ályktun sína. Hjá bandarísku leyniþjónustunni, CIA, og í Hvíta húsinu vildu menn ekki tjá sig í morgun um fréttina. Blaðið nefur það einnig eftir banda- rískum leyniþjónustumönnum að ír- akar hafi næstum tvöfaldað skrið- drekaíjölda sinn í Kuwait frá því að þeir réðust inn í landið síðastíiðinn fimmtudag. Er nú talið að þeir hafi þar fimm hundruð skriðdreka. Leyniþjónustumennirnir sögðu jafn- framt aö íraskir hermenn í Kuwait væru nú orðnir 120 þúsund og verið væri að safna liði í Irak. Bandarískir embættísmenn sögðu í nótt að þeir hefðu ekki fengið nein- ar fregnir af árás íraka á Saudi- Arabíu eða sprengjuárásum á Bagdad. Olíuviðskiptamenn í Singa- pore sögðu að orörómur væri á kreiki um að írakar hefðu ráðist á Saudi-Arabíu. Einnig bárust fregnir af sprengjuárásum á Bagdad. Breska utanríkisráðuneytið haföi heldur ekki fengið neinar fregnir af slíkum árásum. Bandarískar orrustuþotur og um fjögur þúsund hermenn eru nú á leiðinni til Saudi-Arabíu. Fahd kon- ungur samþykkti komu bandarísks Uðsafla eftir viðræður við Dick Che- ney, varnarmálaráðherra Banda- ríkjanna, í gær. Ákvörðun Fahds konungs gæti markað tímamót í deil- unni fyrir botni Persaflóa, að matí sérfræðinga. Þar með hefur Fahd konungur tekið afstööu gegn írak og einnig Mubarak Egyptalandsforsetí sem ákvað eftir fund með Cheney að leyfa bandarískum herskipum að fara gegnum Súezskurð til Rauða hafs. Tyrknesk yfirvöld stöðvuðu í gær olíuflutninga frá írak. Einnig hefur verið greint frá því að olíuílæðið um olíuleiðsluna í gegnum Saudi-Arabíu hafi minnkað þar sem geymar séu fullir við Rauða hafið. Engri olíu var skipað um borð í olíuflutningaskip þar. Reuter og NTB Bandarískur hermaður kveður eiginkonuna áður en hann heldur til Persa- flóa um borð í Saratoga. Símamynd Reuter Young tókst ekkí ætlunarverkið Andrew Young. Andrew Young, fyrrum sendi- herra hjá Sameinuðu þjóðunum og þorgarstjóri bandarísku stórborg- tókst ekki að fá s síns í gær til að tii fylkisstjóra Ge r með urðu að engu um að verða fyrsti blökkumaðurinn til að gegna emb- ætti fylkisstjóra í þessu suðurriki Bandaríkjanna. í gær fóru fram forkosningar demókrata í fylkinu. Þegar búið var að telja hátt í áttatíu prósent atkvæða var ljóst að Young hafði hlotið 35 prósent atkvæða en Zell Milier, mótframbjóðandi hans og tílvonandi frambjóðandi demó- krata í fylkisstjórakosningunum i nóvember, haiði hlotið 65 prósent. Miller mun etja kappi við Johnny Isakson, frambjóðanda repúbiik- ana, í kosningunum. Sveif lukenndur markaður Bandaríkin vinna nú að því á bak við tjöldin að tryggja heiminum næga olíu í kjölfar bannsins á olíu- viðskipti við írak og Kuwait. Sú ákvörðun Bandaríkjanna og annarra stórra oliuneysluþjóða að kaupa ekki olíu frá írak og Kuwait hefur leitt til þess að framboð á olíu hefur minnk- að um fimm milljónir tunna af olíu á dag. Forseti Venezuela, Carlos Andres Perez, tjáði Dan Quayle, varaforseta Bandaríkjanna, í gær að OPEC, Sam- tök olíuútflutningsríkja, myndu reyna að halda olíuverði niðri. Þau væru einnig reiðubúin að reyna að fylla upp í það skarð sem myndaðist vegna viðskiptabannsins við írak og Kuwait. Olíusérfræðingar áætia að Saudi- Arabía, sem er stærsta olíuútflutn- ingsríkið, gætí aukið framleiðsluna Mlkill órói var á mörkuðum i gær eins og þessi mynd ber með sér. Símamynd Reuter um eina og hálfa milljón tunna til tvær imlljónir tunna á dag. Olíumálaráðherra írans sagði í út- varpsviðtali í gær að OPEC-ríkin væru reiðubxíin að auka framleiðsl- una ef þau teldu að skortur yrði á olíu. Sagði ráðherrann að hækkun olíuverðs að undanfornu væri við- brögð markaðarins. Olíuverð hefði ekki hækkað vegna skorts á olíu. Heimsmarkaðsverð á olíu hækkaði í gær um einn til tvo dollara á tunnu í kjölfar ákvörðunar Öryggxsráðs Sameinuðu þjóðanna um efnahags- legar refsiaðgerðir gegn írak og Kuwait. Miklar sveiflur voru á mörk- uðum í gær. Eftir fréttina um að út- lendingum í írak væri heimilt að fara úr landi lækkaði ohuverð í New York í gær niður í 26,85 dollara á tunnu en hækkaði svo aftur í 27,50 dollara. Reuter og TT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.