Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1990, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1990, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1990. 9 Utlönd Vestrænum ferða- mönnum snúið við Mikil mótmæli hafa verið víða um heim vegna innrásar íraka í Kuwait. Á þessari mynd, sem tekin var í London, má sjá konu frá Kuwait mótmæla innrásinni. Símamynd Reuter Landamæri íraks og Jórdaníu: íraskir hermenn sneru í gær við bílalest vestrænna ríkisborgara sem reyndu að aka frá Bagdad í írak til landamæra Jórdaníu, að því er ít- alskir stjómarerindrekar greindu frá í morgun. Sögðu þeir að átta til tíu bílar hefðu farið frá Bagdad í gærmorgun og ekið í þrjár eða fjórar klukkustundb' í áttina að landamærum Jórdaníu. Þá hefðu þeir verið stöðvaðir af íröskum hermönnum og snúið til baka. Önnur vestræn sendiráð kváðust litlar sem engar upplýsingar hafa um mögulega flutninga á útlendingum frá höfuðborg íraks. Sænski sendi- fulltrúinn í Jórdaníu greindi reyndar frá því að tveimur sænskum kaup- sýslumönnum heíði tekist að komast til Jórdaníu frá írak í leigubíl. í nótt barst svo fregn um að yfir sjötíu japanskir ferðamenn og nokkrir aðrir útlendingar hefðu, ásamt íröskum knattspyrnumönn- um, verið fluttir í íraskri flugvél til Jórdaníu. Jórdanskir embættismenn til- kynntu í gær að írakar hefðu opnað landamærin við Jórdaníu á mánu- dag. En í viðtali við sendifulltrúa Svía í Bagdad vísaði íraska utanrík- isráðuneytið á bug fullyrðingum um að útlendingum væri heimilt að fara frá írak. Sænska utanríkisráðuneyt- ið hefur ekki getað fengið staðfesta fréttina um að útlendingum væri leyft að fara frá Kuwait. Seint í gærkvöldi tilkynnti sendi- herra íraks í Jórdaníu í útvarpi að landamæri íraks og Jórdaníu væru opin öllum útlendingum sem vildu fara frá írak. Bandaríska utanríkisráðuneytið segir að um fjörutíu bandarískir rík- isborgarar, sem íraskir hermenn fluttu frá Kuwait, séu í haldi á hóteli í Bagdad og að þeim sé ekki leyft að faraþaðan. ReuterogTT fríska þjóðarráðið, sem í gær féll frá í gær þar sem segir aö Afrlska frá, um stundarsakir, vopnaðri þjóðarráðið muni ekki beita vopna- baráttu gegn stjóm hvíta minni- valdi gegn stjórninni. Þeir segja að hlutans í Suður-Afríku, hefur full- stjórnin hafi ekki gefið nóg eftir en vissað stuðningsmenn sína um að stjórnvöld hafa m.a ákveðið að láta nái umbætur ekki fram að ganga í lausa pólitíska fanga. Ákvörðun landinu muni vopnin verða látin þjóðarráðsinshefuríraunruttveg- tala. inn fyrir friðarviöræöur blökku- Sumir blökkumenn í Suður-Afr- manna og fulltrúa stjórnvalda. íku eru varir um sig vegna yfirlýs- Reuter ingar Afríska þjóðarráðsins, ANC, Sovétríkin: Andstæðingar í samvinnu Boris Jeltsin, sem hér sést, og Gor- batsjov Sovétforseti hafa nú gert með sér samning um umbótaáætlun í efnahagsmálum. Simamynd Reuter Mikhail Gorbatsjov Sovétforseti og Boris Jeltsin, forseti rússneska lýð- veldisins, hafa gert með sér samning um sameiginlega umbótaáætlun í efnahagsmálum. Segir Pravda, mál- gagn sbvéskra kommúnista, að þessi samningur jafngildi póhtísku banda- lagi þessara tveggja manna. Sameig- inleg nefnd kom saman til fundar í vikunni til að ræða nýja róttæka umbótaáætlun og mun nefndin skila af sér áliti í lok mánaðarins. í forystugrein Pravda, á forsíðu blaðsins, voru báðir menn hylltir fyrir að leggja til hliðar ágreining sinn en þeir- hafa lengi verið póli- tískir andstæðingar. Æ síðan árið 1987, þegar skildi með þeim, hefur Jeltsin gagnrýnt harkalega hversu hægt gengur að innleiða efnahags- legar umbætur í Sovétríkjunum. Hann hefur sagt að Sovétforseta hafi hvorki tekist að brjóta á bak aftur andstöðu íhaldsmanna í sovéska kommúnistaflokknum né kerfis- karla. Síðustu mánuði hefur Gorbatsjov siglt milh skers og báru, reynt að halda bæöi róttækum umbótasinn- um sem og íhaldssamari kommúnist- um innan flokksins. Á þingi flokks- ins í síðasta mánuði sætti forsetinn mikihi gagnrýni, ekki síst frá Jeltsin sem þá tilkynnti að hann hygðist segja sig úr sovéska kommúnista- flokknum. Nú hafa þeir hins vegar gert með sér samning sem róttækir fagna mjög. Reuter Bein lína um breyttar gj a Ideyrisreglu r! Breytingar á gjaldeyrisreglum á íslandi eru framundan. í meginatriöum stuöla þær aö frjálsari gjaldeyrisviöskiptum. Viöskiptavinum íslandsbanka og öörum þeim sem hafa áhuga á aö kynna sér nánar áhrif þessara breytinga er velkomiö aö hringja í UPPLÝSINGASÍMA ÍSLANDSBANKA: 91-679455 !' ■/. <o Síminn er opinn frá kl. 9.15-16.00 alla virka daga. s Íw < Q ÍSLANDSBANKl -í takt við nýja tíma!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.