Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1990, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1990, Blaðsíða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn Frjálst,óháð dagblað MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1990. Lögreglan leitar minksins i garðin- um. Lögreglumaöurinn var með hanska og vopnaður barefli. Ungur ibúi fylgist með álengdar. Minkur 1 Breiðholti: Krakkar voru í tjaldi í garðinum Hundur ok a bfl „Ég var stödd í sjoppunni í Bjarnabúð í Biskupstungum fyrir helgi þegar ég varö fyrír því óláni að hundur keyrði á bilinn minn,“ segir Lára Hannesdóttir í Mosfells- bæ. Málsatvik voru þau að Lára skrapp inn í sjoppuna og þegar hún kemur út aftur sér hún hvar sjálf- skiptrí Mazdabifreið haföi verið lagt skáhallt fyrir aftan Fiat Uno bifreið hennar. „Um leið og ég kom út sá ég hvar stór hundur var á ferð og flugi inni í bílnum sem var í gangi. Hann var að reyna að komast út úr bilnum en á hlaðinu var tík sem hann hef- ur sjálfsagt langað til að komast í nánari kynni við. Ég hugsaði með mér hvaða brjálæði væri að skilja hundinn eftir í bílnum og hat'a hann í gangi. Ég settist svo inn í bílinn minn og var eitthvað að spjalla við son minn, en um leiö og ég ætlaði að setja lykilinn í kveikj- ulásinn veit ég ekki fyrr til en Mazdan skellur á hurðinni mín megin. Mér dauðbrá og var fljót aö snara mér út úr bílnum farþega- megin, ég fór svo aftur inn í sjopp- una og sagði að hundur heföi keyrt á bílinn minn. Ég veit ekki nákvæmlega hvernig hundurinn hefur farið að þessu en honum hefúr einhvern veginn tek- ist að koma bílnum í gír. Ég var í 100 prósent rétti og fæ allt tjón bætt enda bíllinn kyrrstæður og ekki í gangi. Mér frnnst hins vegar sjálfsagt að benda fólkí á að það á ekki að skilja bíla eftir kyrrstæða í gangi og lausa hunda í þeím. Þaö getur valdið slysum eins og sann- aðist í mínu tilviki,“ segir Lára. -J.Mar Náttúrufræðingar: Ætiaaðkanna atvinnumögu- leika eriendis Á löngum fundi náttúrufræðinga hjá ríkinu í gær var ákveðið að efna til könnunar meðal félagsmanna á viðbrögðum við lagasetningu ríkis- stjórnarinnar. Á fundinum í gær var gerð könnun meðal fundarmanna og vildi einn þriðji þeirra segja upp störfum. Það er hins vegar ljóst að náttúrufræðingar hjá ríkinu, sem eru um 350 talsins, eru ekki búnir að taka neina ákvörðun um aðgerðir. Á fundinum var samþykkt að félag- ið athugaði um atvinnumöguleika fyrir félagsmenn hér heima og er- lendis. Sagði formaður félagsins, Auður Antonsdóttir, að fyrir suma félagsmenn væri auðvelt að fá vinnu erlendis. Einnig voru viðraðar verk- takahugmyndir, það er að segja að náttúrufræðingar vinni eitthvað af þeirri vinnu, sem þeir inna af hendi nú, sem verktakar. -SMJ Feröamannastraumur: Komum útlend- ingafjölgaði Komum erlendra ferðamanna hef- ur fjölgað um rúm fjögur prósent ef miðað er við fyrstu sjö mánuði þessa árs og í fyrra. Um síðustu mánaða- mót höfðu 88.507 útlendingar lagt leiö sína til landsins en þeir voru 85.025 á sama tíma árið 1989. Bretum hefur fjölgað verulega en komum Ncrðurlandabúa fækkaði. Bandaríkjamenn, sem á síðustu árum drógu úr komum sínum hingað til lands, stóðu nokkurn veginn í stað miðað við í fyrra. Komur íslenskra ferðamanna hafa hins vegar ðregist saman. í fyrra höfðu 75.449 íslenskir ferðalangar komið til landsins frá útlöndum en í ár eru þeir orönir 73.215. Fækkunin nemur 2.234 komum. -ÓTT Árásin á Dalbrautinm: Fanturinn finnstekki Ekki hefur tekist að hafa uppi á unga manninum sem réðst inn á heimili eldri konu við Dalbraut í Reykjavík og veitti henni áverka. Ekki eru til greinargóðar lýsingar á manninum en konan lýsir honum sem dökkhærðum, grönnum og að hann sé um 180 sentímetrar á hæö. -sme íKeflavík Þau sem f órust í Svíþjóð Tvær sæþotur skullu saman skammt frá Duusbryggju í Keflavik í gærkvöld. Stjómandi annarrar þot- unnar slasaðist. Óttast er að hann hafi lærbrotnað. Hinn stjórnandann sakaði ekki. -sme íslendingarnir, sem létust í bílslys- inu við bæinn Vara í Svíþjóð á sunnudaginn, hétu Elín Halla Gunn- arsdóttir, 29 ára, og lætur hún eftir sig eiginmann og son; og hjónin Sig- urður Sigurðsson og Sigurjóna Ör- lygsdóttir, bæði 26 ára, og láta þau eftir sig son. Elín Halla var mágkona Sigurðar. Þá slasaðist 12 ára drengur alvar- lega og liggur hann nú á sjúkrahúsi í Gautaborg en er ekki talinn í lífs- hættu. Alls voru níu íslendingar þarna á ferð og sluppu aðrir án telj- andi meiðsla. -GK „Ég leit út og sá hreyfmgu úti á stéttinni. Ég þekki mink frá því í gamla daga og sá því strax að þetta var minkur," sagði Birgir Ás sem býr í Dynskógum í Breiðholti þar sem minkur var drepinn í hádeginu í fyrradag. „Þetta var yrðlingur frá því í vor. Hann kom alveg upp að húsinu og var að snuðra svo ég henti til hans kjötbita. Hann fór síðan undir tré og á meðan hringdi konan mín á lög- regluna. Þegar þeir komu trúöu þeir ekki að þetta væri minkur. Þeir hristu tréð og þá stökk hann fram og þeir náðu að slá hann í hausinn með spýtu. Ég veit ekki til þess að minkar hafi verið svona inni í íbúð- arhverfi áður. Það sló óhug á krakk- ana sem vora í tjaldi í garðinum.“ Nágranni Birgis sem býr tveimur húsum frá segist hafa séð stóran mink í garðinum hjá sér fyrr í sum- ar. Þeir telja því að yrðlingurinn hafi ráfað frá honum og það sé greni einhvers staðar í nágrenninu. „Það þarf að hund til þess að þefa grenið uppi. Okkur var tjáð að mein- dýraeyðir borgarinnar væri ekki við fyrr en eftir helgina. Það er örugg- legagrenihérínágrenninu.“ -pj Sæþotuslys Harður árekstur varð milli sendibils og litillar rútu á mótum Kleppsvegar og Dalbrautar i Reykjavík í gær. Tvennt var í sendibílnnum og slösuðust bæði mikið. Sendibíllinn er ónýtur. DV-mynd S \ LOKI Ætli hann missi skírteinið? Veðrið á morgun: um land Á morgun verður suðaustanátt og rigning viða um land, þó mest um allt sunnan og vestanvert landið. Hiti 12-17 stig, hlýjast norðanlands. Einn sá ódýrasti í bænum ÍSVAL v/Rauöarárstig

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.