Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1990, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1990, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1990. 7 Fréttir Sauðárkrókur: Miðar hægt í mál- efnum Melrakka ÞórhaHur Ásmundsson, DV, Sauöárkróki; Enn er allt í óvissu um framtíð fóður- stöðvarinnar Melrakka. Greiöslu- stöðvun lauk í lok maí en enginn kröfuhafi hefur enn óskað eftir gjald- þrotaskiptum. Virðist það benda til þess að þeir ætli að taka boði um greiðslu allt að 22% krafna. Að sögn Áma Guðmundssonar, stjórnarformanns Melrakka, er lítið að frétta af málinu. Gert var ráð fyr- ir að Seðlabankinn tæki við skulda- bréfum vegna skuldbreytinga bænda á skuldum sínum við fóðurstöðina án affalla. Undanfarið hefur Búnað- arbankinn einnig blandast í mábö. Með haustinu fer fóðurþörfm að aukast og við það verður enn erf- iöara að halda rekstri stöðvarinnar gangandi en hún þarf að staðgreiða öll aðföng. Sauðárkrókur: Svartur rey kur frá öskuhaugunum Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauðárkroki; Fjórðungsþing Norðlendinga var haldið nýlega. Þar var meðal annars fjallað um umhverfismál. Ekki var eins mikil reisn yfir þeirri umræðu og menn höfðu vonast til. Þegar til kom virtust menn ekki hafa áhuga á að ræða þessi mál. Bæjarbúum á Sauðárkróki fannst það nokkuð táknrænt að á sama tíma og umhverfismálin voru rædd í íþróttahúsinu af takmörkuðum áhuga voru öskuhaugar bæjarins hreint í essinu sínu og spúðu kol- svörtum reyk yfir Nafirnar. Höfðu menn orð á því að ekki hefði sést svo svartur reykur lengi, eða síðan páfa- kjörið misheppnaðist svo hrapallega þarna um árið. Göngustígurinn upp í Súgandisey er nú fullgerður. DV-mynd Ingibjörg Hinriksdóttir Stykkishólmur: Ástarhreiður á Breiðafirði Ingibjörg Hnriksdóttir, DV, Stylddshólmi: Stykkishólmsbær hefur nú lokið við að leggja göngustíg frá ferjubryggj- unni upp í Súgandisey. „Framkvæmdir viö stíginn hafa gengið mjög vel,“ sagði Högni Bær- ingsson, yfirverkstjóri bæjarins, í samtali við fréttaritara DV fyrir helgina. „Við byrjuðum að grafa fyr- ir tröppunum í síöustu viku og erum nú aö ljúka við verkið." Tröppurnar, sem eru úr timbri, eru hinar glæsilegustu og falla mjög vel inn í umhverfið. Efst uppi á eyjunni hafa verið settir niður bekkir þar sem fólk getur notið útsýnisins yfir Breiðafiörð. Staður þessi hefur þegar hlotið viöurnefnið „ástarhreiðrið" meðal heimamanna. Göngur: Afréttur við Blöndu smalaður í síðasta sinn Þórhallui Ásmimdsson, DV, Sauöárkróki; Enn einu sinni er sumri tekið að halla og göngur og réttir á næsta leiti. Þetta verður síðasta haustið sem afréttarlönd þau sem lenda und- ir lóni Blönduvirkjunar verða smöl- uð því vatni verður hleypt á næsta vor. Gangnamenn eru famir að leggja á hesta sína og halda brátt til fialla ásamt smalahundum sínum. Helgin 15.-16. september verður afréttarhelgi haustsins en þá verða allar helstu fiárréttir í Húnavatns- sýslum og Skagafírði. Hross verða réttuð í Stafnsrétt föstudaginn 14. september og fiárrétt daginn eftir. ÁSGEIfí FRÍMA»‘m' ' ' ■ Asgeir Frímanns ÓF 21. Hið nýja skip kostaði um 150 milljónir króna. Nýtt skip keypt til Ólafsfjörðar: Gert út á ónýtta fiskistofna Helgi Jónsson, DV, Ólafefirði: Á miðvikudag korr.> til landsias 299 tonna skip sem gert verður út á ónýtta fiskistofna við ísland. Valeik hf. keypti skipið, sem er fiögúrra ára, af norskum banka. Með nauðsynleg- um lagfæringum kostar það 150 milljónir króna. Skipið hefur hlotið nafnið Ásgeir Frímanns ÓF 21. Aö fyrirtækinu Valeik hf. standa Helgi Már Reynis- son, nýútskrifaður sjávarútvegs- fræðingur við Sjávarútvegshás«óla í Noregi, Ásgeir Logi Ásgeirsson, sem er að íjúka námi við sama skóla í vor, og Sæunn Axels hf. á Ólafsfirði. Skipið er keypt með það að mark- miði að sækja ónýtta fiskistofna við íslandsmið og er þá sérstaklega hugsað um lúðu, löngu og keilu. Þessar tegundir eru utan við kvóta. Ásgeir Frímanns er frystiskip, það fyrsta sem sérhæfir sig til þessara veiða hér á landi. Aflinn verðu flutt- ur út í kæligámum. Útgerðin hefur að auki keypt veiði- heimildir Atlanúps frá Raufarhöfn sem veröa um 400 þorskígildi á næsta ári. Tólf manns eru í áhöfn skipsins en skipstjóri og fiórir hásetar eru norskir. Nýr hótelstjóri á Ólafsf irði Helgi Jónsson, DV, Ólafefirði; Baldvin Sigurðsson hefur verið ráð- inn hótelstjóri við Hótel Ólafsfiörð. Hann hóf störf þar í sumar og sá um rekstur hótelsins eftir að Smári Jóns- son, fyrrverandi hótelstjóri, flutti burt. Rekstur hótelsins gekk betur í sumar en nokkru sinni áður, enda lá mikill feröamannastraumur í gegnum bæinn. Baldvin er Ólafsfirðingum að góöu kunnur. Hann starfaði sem mat- reiðslumaður við hótelið um tveggja ára skeið. Dansskóli Auðar Haralds Innritun í alla hópa stendur yfir. Börn yngst 3ja ára Símar: 39600 31360 656522 frá kl. 13-19. DAN88 Raðgreiðslur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.