Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1990, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1990, Blaðsíða 25
FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1990. 33 Afmæli Árelíus Níelsson Árelius Níelsson prestur, Vestur- götu 7, Reykjavík, er áttræður í dag. Árelíus er fæddur í Flatey á Breiða- firði og ólst upp á Svínanesi til 1920 og eftir það í Kvígindisfirði í Múla- sveit í A-Barðastrandarsýslu. Hann lauk kennaraprófi í Kenn- araskóla íslands 1932 og var kennari í Unglingaskólanum í Gerðum í Garði 1932. Árelíus var farskóla- kennari í Múlas veit 1933 og kennari í Barnaskóla Stykkishólms 1933- 1937. Hann var við einkakennslu í Rvík 1937-1940 og lauk guðfræði- prófiíHÍ1940. Árelíus var prestur á Hálsi í Fnjóskadal 1940, á Stað á Reykjanesi í A-Barðastrandarsýslu 1940-1943 og við unglingakennslu í Reykhóla- sveit 1940-1943. Hann var prestur á Stokkseyri og kennari á Stokkseyri, Eyrarbakka og á Selfossi 1943-1952. Árelíus var prestur í Langholts- prestakalh í Rvík 1952-1980 og kenndi við ýmsa gagnfræðaskóla í Rvík. Hann var kennari í Kennara- skóla íslands í tiu ár og við smá- bamakennslu í sjö ár. Árelíus var stofnandi og formaður Ungmenna- félags Múlasveitar 1929 og starfaði við ungmennafélög og bamastúkur 1932-1970. Hann var formaður Breiðfirðingafélagsins og ritstjóri Breiðfirðings 195371978 og í stjóm Verndar frá 1955. Árehus var stofn- andi Ungtemplarafélagsins Háloga- lands 1958, einn af stofnendum ís- lenskra ungtemplara og formaður félagsins í tíu ár. Hann var einn af stofnendum Æskulýðssambands ís- lands og formaður Bandalags æsku- lýðsfélaga í Rvík nær tíu ár. Árelíus var einn stofnenda og formaður Bindindisráðs ísl. safnaða í tólf ár, kom á fjölbreyttu safnaðarstarfi í Langholtssókn og var helsta drif- fjöður í kirkjubyggingarmálum Langholtssafnaðar. Rit eftir Árelíus eru: Kristin fræði, lesbók handa framhaldsskólum, 1951; Saga Bamaskólans á Eyrar- bakka 1852-1952,1952; Leiðarljós við kristilegt uppeldi á heimilum, í skól- um og til fermingarundirbúnings, 1957; Félagsstörf ogleikir, 1968; Um Frans frá Assisi; Á bjargi aldanna, armenskakirkjan, 1976; Stofnandi Rauða krossins, Henry Durant, Sögusafn barnanna, 1971, Gleymd ljóð, 1980, og Horft um öxl á Háloga- landshæð, Æviminningar 1988. Hann var ritstjóri Kirkjublaðs Langholtssafnaðar 1953-1980 og Breiðfirðings, tímarits Breiðfirð- inga, 1954-1979. Árelíus sá um kirkjuþátt í Tímanum í tuttugu og þijú ár og Við gluggann í Morgun- blaðinu í tólf ár og var í ritstjórn jólablaðs Hálogalands í tuttugu og fimmár. Árelíus kvæntist2. maí 1940 Ingi- bjorgu Þórðardóttur, f. 24. nóvemb- er 1918, d. 13. nóvember 1978. Ingi- björg var dóttir Þórðar, b. og hrepp- stjóra í Firði í Múlasveit Jónssonar, og konu hans, Guðbjargar Þórðar- dóttur. Böm Árelíusar og Ingibjarg- ar em: Þórður Bjarkar, f. 4. sept- ember 1940, veiðieftirlitsmaður, kvænturÁsdísi Sigrúnu Guð- mundsdóttur, börn þeirra eru: Hilmar tónlistarmaður, Árehus Örn stýrimaður, Ragnar Guðmundur viðskiptafræðingur og Ingi Ólafur nemi; Ingvar Níels Bjarkar, f. 15. ágúst 1942, d. 30. ágúst 1947; María Ingibjörg Bjarkar, f. 5. nóvember 1943, kennari, gift Steinari Berg Björnssyni viðskiptafræðingi, starfsmanni Sameinuöu þjóðanna í írak, börn þeirra eru: Skarphéðinn Berg viðskiptafræðingur, Ingvar flugmaður og Sverrir Berg nemi; Rögnvaldur Bjarkar, f. 8. apríl 1945, tónlistarmaður, og Sæmundur Bjarkar, f. 21. febrúar 1946, útgerð- armaður, kvæntur Ásdísi Hildi Jónsdóttur, dætur þeirra eru: Stef- anía lögfræðinemi, Ingibjörg Þóra menntaskólanemi, Sigríður nemi og Ása Laufey, nemi. Uppeldissonur Árelíusar er Ingvar Heimir Bjarkar, f. 4. apríl 1953, býr í Danmörku. SystkiniÁrelíusarvoru: Kristín og Kristófer, fluttu til Ameríku, Sig- ríður, sjómaður í Flatey, og Júlíus, verkamaður og sjómaður, síðast í Rvík. Systir Árelíusar, sammæðra, var Inga Jóhannesdóttir, var gift Valentíusi Valdemarssyni, starfs- manni Reykjavíkurborgar. Foreldrar Árelíusar: Níels Árna- Arelíus Níelsson. son, tómthúsmaður í Flatey, og kona hans, Einara Ingileif Péturs- dóttir, vinnukona í Flatey. Fóstur- foreldrar Árelíusar voru: Sæmund- ur Guðmundsson, b. á Svínanesi, síðar í Kvígindisfirði, og kona hans, María Einarsdóttir. Níels var sonur Árna, b. á Kirkjubóli, Jónssonar og konu hans, Guðbjargar Jónsdóttur. Eiúara var dóttir Péturs, sjómanns á Hellissandi, Bjarnasonar og konu hans, Sigríðar Oddnýjar Einars- dóttur. Árelíus er staddur á Forhábnings- holmsalle 17 C í Kaupmannahöfn. Hulda Helgadóttir Hulda Helgadóttir, Skólabraut 3, Seltjarnarnesi, áður á Seftjörn, Sel- tjarnarnesi, er sjötíu og fimm ára í dag. Hulda giftist Alfreð Justssyni, f. 17. nóvember 1912, d. 8. febrúar 1985. Börn Huldu og Alfreðs eru: Jón, sendibílstjóri í Rvík, kvæntur Ingu Maríusdóttur; Gunnþór, sendi- bílstjóri í Rvík, kvæntur Sigríði Þórðardóttur; Baldur, verkstjóri í Rvík, kvæntur Ingibjörgu Magnús- dóttur; Helgi Már, bifvélavirki í Rvík, kvæntur Kristínu Th. Hah- grímsdóttur, og Ásthildur, húsmóð- ir í Rvík, gift Þórhalh Birgi Jóns- syni, steinsmiði í Rvik. Systkini Huldu eru: Baldur, sjómaður í Rvik, og Kristín, húsmóðir á Stöðvarfirði. Systkini Huldu, sammæðra, eru: Magnús Jónsson, verkstjóri í Rvik, Ásta Jónsdóttir, húsmóðir í Hafnar- firði, og Helgi Jónsson, verkamaður Hulda Helgadó.tir. í Kópavogi. Foreldrar Huldu eru Helgi Ólafsson, sjómaður á Eski- firði, og kona hans, Oddný Þóra Magnúsdóttir. BjamiR, Bjarni R Jónsson, fyrrv. forstjóri G.J. Fossberg vélaverslun hf., Drápuhhð 46, Reykjavík, er áttatíu og fimm ára í dag. Bjarni Ragnar er fæddur á Arnarnúpi í Dýrafirði og ólst upp á Þingeyri. Hann fór á kútter í þrjú sumur frá níu ára aldri og var afgreiðslumaður og skrif- stofumaður hjá Sigmundi Jónssyni, kaupmanni á Þingeyri, frá sextán ára aldri þar til hann hóf nám í Verslunarskólanum 1927. Bjarni lauk verslunarskólaprófi 1930 og hóf þá störf sem skrifstofustjóri hjá G. J. Fossberg en hann hafði stofnað það þremur árum áður. Vélaverslun- inni var síðar breytt í hlutafélag og tók Bjarni við forstjórastarfinu er Gumilaugur Fossberg andaðist 1949. Hann lét af forstjórastarfinu fyrir ári en vinnur enn hjá fyrirtækinu sem formaður stjórnar. Bjarni Jónsson kvæntist Kristínu G. Haraldsdóttur, f. 19. febrúar 1904, d. 3. maí 1986. Foreldrar Kristínar voru Haraldur Jónsson og kona hans, Valgerður Bjarnadóttir. Dætur Bjarna og Kristínar eru: Valgerður, f. 29. maí 1934, skilin, á hún fimm börn, og Halla, f. 11. janúar 1938, gift Braga Þorsteinssyni, b. á Vatnsleysu í Biskupstungum, og eiga þau fiögur börn. Systkini Bjarna eru: Þorberg- ur Ágúst, f. 22 ágúst 1906, d. 5. júní 1983; Steinunn Jóhanna, f. 22. sept- ember 1907, d. 1. desember 1984; Jón Gísli, f. 23. apríl 1910, d. 25. desemb- er 1986, og Kristján Sæmundur, f. 19. september 1913, d. 11. júlí 1986. Foreldrar Bjarna voru: Jón Kr. Guð- mundsson, f. 2. febrúar 1877, d. 26. maí 1967, skipstjóri á Þingeyri, flutti til Rvíkur 1930 og vann mörg ár hjá Rafmagnsveitu Rvíkur, og húsa- Bjarni R. Jónsson. smiður og kona hans, Halla Bjarna- dóttir, f. 2. nóvember 1878, d. 25. desember 1930. Andlát Geir Hallgrímsson Geir Hallgrímsson, fyrrv. forsæt- isráðherra, lést aðfaranótt laugar- dagsins 1.9. sl. en hann verður jarð- sunginn frá Dómkirkjunni í dag, föstudaginn 7.9., klukkan 13.30. Geir fæddist við Austurvölhnn í Reykjavík 16.12.1925 og ólst upp í foreldrahúsum. Hann lauk stúd- entsprófi frá MR1944, embættis- prófi í lögfræði frá HÍ1948 og nam síðan lögfræði og hagfræði við Har- vardháskóla í Bandaríkjunum til 1949. Geir var formaður Stúdentaráðs fyrir Vöku á háskólaárum sínum. Hann var formaður Heimdallar 1952-54 og formaður SUS1957-59. Að námi loknu stundaði Geir lög- fræðistörf í Reykjavík 1951-59 og var auk þess forstjóri H. Benedikts- sonarhf. 1955-59. Hann var borgarfulltrúi í Reykja- vík 1954-74 og borgarstjóri 1959-72. Geir var þingmaður Reykvíkinga 1970-1983, forsætisráðherra 1974- 1978, utanríkisráðherra 1983-1986 og hefur verið seðlabankastjóri frá 1986. Hann var kjörinn varaformað- ur Sjálfstæðisflokksins 1971 og var formaður Sjálfstæðisflokksins 1973-1983. Eftirlifandi kona Geirs er Erna Finnsdóttir, f. 20.3.1924. Foreldrar hennar voru Finnur Sigmundsson, fyrrv. landsbókavörður, ogkona hans, Kristín Magnúsdóttir. Börn Geirs og Ernu eru Hallgrím- ur, f. 13.7.1949, hrl. og stjórnarfor- maður Árvakurs, kvæntur Aðal- björgu Jakobsdóttur félagsfræðingi og rektorsritara, og eiga þau eina dóttur; Kristín, f. 19.3.1951, bóka- safnsfræðingur, gift Frey Þórarins- syni, doktor í jarðeðlisfræði, og eiga þau tvo syni; Finnur, f. 8.6.1953, doktor í hagfræði og framkvæmda- stjóri Nóa-Síríus, sambýhskona hans er Steinunn ÞorvaJdsdóttir menntaskólakennari og eiga þau einn son, og Áslaug, f. 7.10.1955, doktor í jarðfræði. Systkini Geirs: Ingileif Bryndís, f. 10.11.1919, stjórnarformaður og ekkja eftir Gunnari Pálsson skrif- stofustjóra; Björn, f. 17.4.1921, for- stjóri H. Benediktssonar hf„ kvænt- ur Sjöfn Kristinsdóttur, og Geir, f. 3.7.1923, d. 5.11.1924. Börn Gunnars og Ingileifar eru Hallgrímur, forstjóri Ræsis hf„ Páll hffræðingur, Gunnar Snorri, sendi- fulltrúi í Brússel, og Áslaug píanó- kennari. Sonur Gunnars er Hjálm- ar. Börn Björns og Sjafnar eru Áslaug húsmóðir, Kristinn, forstjóri Olíufé- lagsins Skeljungs hf„ Emelía Björg blaðaljósmyndari og Sjöfn verslun- arstjóri. Foreldrar Geirs voru Hahgrímur Benediktsson, f. 20.7.1885, d. 26.2. 1954, stórkaupmaður ogalþingis- maður í Reykjavík, og kona hans, Áslaug Geirsdóttir Zoega, f. 14.8. 1895, d. 15.8.1967. Föðursystur Geirs: HUdur; Guð- rún Nielsen húsmóðir, móðir Guð- rúnar, Gunnars Nielsen skrifstofu- stjóra, Ágústs Nielsen, Elínar Per- son og Snorru; Sólveig Hansen, hús- móðir í Danmörku, móðir Friðriks Þorláks og HUdu Joyce, og Ehsabet, móðir Karls Kvaran listmálara, Jóns Kvaran og Ehsabetar, konu Þorvalds Garðars Kristjánssonar. Föðurbróðir Geirs, samfeðra, var Ágúst, faðir Áslaugar, konu Bjarna Jónssonar vígslubiskups. Dóttir Ágústs var Guðrún, móðir Kristins Hallssonar óperusöngvara. Faðir Hallgríms var Benedikt, tré- smiður á Refsstað í Vopnafirði, bróðir Þorláks, langafa Finnboga Guðmundssonar landsbókavarðar. Bróðir Benedikts var Þorsteinn, langafi Þorsteins, afa Magnúsar Jó- hannessonar sighngamálastjóra. Bróðir Benedikts var einnig Hall- grímur, langafi Ólafs, foður Gunn- ars Ragnars, forstjóra Útgerðarfé- lags Akureyringa. Systir Benedikts var Sólveig, langamma Jóns Sig- urðssonar viðskiptaráðherra. Önn- ur systir Benedikts var Guðrún, amma Sigurðar Jónssonar, skálds frá Arnarvatni, og Jóns Stefánsson- ar, Þorgils gjallanda. Benedikt var sonur Jóns, prests í Reykjahlíð, Þor- steinssonar, ættföður Reykjahlíðar- ættarinnar. Móðir Hallgríms var Guðrún Björnsdóttir, b. á Stuðlum í Reyðarfirði, Þorleifssonar, b. á Karlsskála, Péturssonar. Móðir Guðrúnar var Bóel Bóasdóttir, b. á Stuðlum í Reyðarfirði, Arnbjörns- sonar. Móðir Bóelar var Guðrún, systir Páls á Sléttu, afa Páls, afa Kjartans Gunnarssonar, fram- kvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins, og Harðar Einarssonar, forstjóra Frjálsrar fiölmiðlunar. Guðrún var dóttir Jóns, gullsmiðs á Sléttu í Reyðarfirði, Pálssonar, hálfbróður Sveins, læknisog náttúrufræðings. Systir Áslaugar var Guðrún, móð- ir Geirs, fyrrv. forstjóra Ræsis hf„ Hannesar, fyrrv. aðalgjaldkera Landsbankans, Þorsteins viðskipta- fræðings, Narfa heitins lögfræðings og Bryndísar húsmóður Þorsteins- barna. Aðrar systur Áslaugar voru Sigríður ljósmyndari, móðir Bryn- dísar húsmóður, Ingileif og Jófríð- ur. Bróðir Áslaugar var Geir T. Zo- .ega vegamálastjóri, faðir Helgu; Bryndísar forstöðukonu; Geirs Agn- ars, forstjóra ísaga; Gunnars endur- skoðanda; Áslaugar og Ingileifar Sigríðarkennara. Aslaug var dóttir Geirs Zoega Geir Hallgrimsson. rektors, bróður Ingigerðar, ömmu Benedikts Gröndal yerkfræöings og fyrrv. formanns VSÍ. Bróðir Geirs rektors var Jóhannes, afi Jóhannes- ar Zoega hitaveitustjóra. Geir rektor var sonur Tómasar Zoega, for- manns á Akranesi, Jóhannessonar Zoega, glerskera í Reykjavík, Jó- hannessonar Zoega, fangavarðar í Reykjavík, frá Slésvík. Móðir Áslaugar var Bryndís Sig- urðardóttir, kaupmanns í Flatey, Johnsen. Móðir Sigurðar var Guð- rún Aradóttir, systir Sigríðar, ömmu Matthíasar Jochumssonar. Móðir Bryndísar var Sigríður Bryifiólfsdóttir, kaupmanns í Flat- ey, Bogasonar, fræöimanns á Stað- arfelh, Benediktssonar, bróður Halldóru, langömmu Magnúsar, föður Davíðs Schevings Thorsteins- sonar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.