Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1990, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.1990, Blaðsíða 32
Frjálst,óháð dagblað Veðrið á morgun: Smáskúrir sunnan-og suðvestan- lands Á morgun veröur suövestan og vestan átt. Smá skúrir sunnan- og suðvestanlands en aö mestu þurrt í öðrum landshlutum. þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022 SEPTEMBER 1990. HMíbrids: SveitSigurðar í 32 liða úrslit ísak Öm Sigurösson, DV, Genf: Sveit Sigurðar Vilhjálmssonar náöi þeim frábæra árangri að komast áfram í 32 sveita úrslit á heimsmeist- aramótinu í brids. Sveitin varð í 2.-3. sæti í sínum riðli en fjórar sveitir af átta komust áfram úr hverjum riðli. Úrslitakeppnin heldur áfram í dag og verður keppt eftir útsláttarfyrir- komulagi. Flest benti til þess að sveit Sigurðar mætti sveit Mike Moss frá Bandaríkjunum en þeir eiga flestar sveitir eftir, samtals 13. Mikill fjöldi frægra sveita er fallinn út og þar á meðal heimsmeistararnir. Handboltahöll- inerof lítil VIDEOheimar Fákafeni 11, s. 687244 Bæjarstjórn Kópavogs hefur látið verkfræðistofu yfirfara teikningar af handboltahöllinni sem reisa á fyr- ir heimsmeistaramótið árið 1995. Nið- urstöður hennar eru að húsið taki ekki nema um 5.400 manns. Á fundi forystumanna Kópavogs með Edwin Lanc, forseta Alþjóða handknatt- leikssambandsins, kom fram að sam- bandið mun aldrei samþykkja hús sem tekur færri en 7.000 áhorfendur. Venjulega er miðað við að um 12.000 áhorfendur en vegna smæðar íslands sé hugsanlegt að samþykkja undan- þágufyrir 7-8.000 mannahús. -gse 4 4 í í FOSTUDAGUR 7. Héðinn með Héðinn Steingrímsson tryggði sér 1. áfanga að alþjóðlegum meistara- titli þegar hann sigraði Halldór G. Einarsson í 9. umferð Skákþings ís- lands á Hótel Höfn í gærkvöldi. Héð- inn er sem fyrr efstur með 7 vinninga og hefur vinningsforystu á þá Björg- vin og Margeir sem hafa 6 vinninga. Jón L. er síðan í 4. sæti með 5 vinn- inga. Björgvin á góða möguleika á sínum öðrum áfanga að alþjóðlegum titli. Önnur úrslit í gær urðu þau að Björgvin vann Árna, Margeir vann Snorra, Jón L. vann Sigurð Daða, Hannes Hlífar og Þröstur Þórhalls- son gerðu jafntefli og þá fór skák Þrastar Árnasonar og Tómasar Björnssonar í bið. Jón L. tapaði bið- skák sinni við Þröst Þórhallsson úr 8. umferð. Tvær umferðir eru nú eftir og á Héðinn eftir að mæta þeim Snorra og Margeiri. Héðinn hafði 2405 Elo- stig fyrir mótið og gera má ráð fyrir að hann hækki sig verulega. -SMJ LOKI Týndist þarna Bókin um veginn? „Ekki hægtað falsapappírana" „Það er ekki hægt að falsa pappíra _ _ í þessu máli. Pappírarnir eru gerðir eftir á og tollurinn fær uppgefið hvað var í gámunum. Menn slumpa reyndar á magnið en það eru að meðaltali 13 eigendur að vikuúthlut- un og ekki þarf mikla skekkju hjá hverjum þeirra til að úr verði há heildartala og hvað þá þegar landið allt er skoðað,“ sagði Guðjón Þor- bjömsson hjá Hrelli á Höfn vegna frétta um að ferskfiskútflytjendur hafi flutt út umfram heimildir Afla- miðlunar og falsað til þess pappíra. „Vegna fjarlægðar frá mörkuðun- um í Reykjavík fáum við aldrei þess- ar 100 krónur í skilaverð sem talað er um vegna flutningskostnaðar. Ef við flytjum fiskinn með skipum dett- um við inn á helgi. Við viljum frekar U* selja á þriðjudagsmarkaði í Hull en mánudagsmarkaöi í Reykjavík. Dag- urinn skiptir engu varðandi gæði en öllu varðandi verð.“ -hlh Útför Geirs verðurí dag Útför Geirs Hallgrímssonar, fyrr- verandi forsætisráðherra, fer fram á vegum ríkisins í dag kl. 13.30 frá Dómkirkjunni í Reykjavík. Útvarpað verðurfráathöfninni. -SMJ Það er vandi að velja. Þessar myndarlegu hnátur voru að velja sér skriffæri fyrir skólann sem nú er nýhafinn. Það er nauðsynlegt að hafa réttu græjurnar þar sem annars staðar. DV-mynd GVA Reynt að upplýsa 20 ára gamalt bókahvarf „Þetta var þvi miður alveg ár- angurslaus ferð, ég held helst að Vegagerðin hafi fundið bækurnar á sínum tíma en ég hef grun um að þær hafi verið faldar þarna í jörðu,“ sagði Jónas Jóhannsson sem dvelst á dvalarheimilinu Silf- urtúni í Búðardal. Jónas, sem er rúmlega níræður, fékk sýslumann þeirra Dala- manna, Pétur Þorsteinsson, í lið með sér til að leita að þýfi sem Jón- as taldi aö væri fafið í jörðu. Fóru þeir við þriðja mann að leita að nokkur hundruð bókum sem Jónas segir að hafi verið stoliö frá Lestr- arfélagi Fellshrepps í Dalasýslu i kringum 1970. Sagði Jónas að á meöal bókanna hefði verið margt fágætra bóka og sú elsta frá 1824. „Við fórum þarna á miðvikudag- inn en ég taldi mig hafa rökstuddan grun um að bækumar væru þama og taldi mig reyndar einnig vita hver hefði tekið þær. Ég get þó því miður ekki sannað það,“ sagði Jón- as. Hann sagði aö málið hefði aldr- ei verið rannsakað, einfaldlega vegna þess að aldrei hefði verið hægt að sanna neitt. Hann sagðist hafa fengið pata af því að þær væra þarna án þess aö vilja útskýra það frekar en samkvæmt heimildum DV var það meðal annars byggt á draumi Jónasar. Þá vildi Jónas ekki segja hvar hefði verið leitað en sagöi að þetta hefði verið um tveggja tíma ferðalag. Jónas sagðist vera að verða úr- kula vonar með að finna bækurnar en sagðist þó vera að hugsa um að biðja sýslumanninn að auglýsa eft- ir þeim ef einhver, sem hefði unnið við vegagerö þama fyrir 20 áram, myndi eftir þessu. Vegageróin mun hafa lagt veg á melnum, þar sem Jónas taldi þýfið falið, en hann taldi mögulegt að það hefði verið flutt í burtu áður en vegagerðarraenn komu þar að. „Jú, þetta er með óvenjulegri embættisverkum en maður lcndir stundum í ólíklegustu hlutum," sagði Pétur sýslumaður. -SMJ roljiTesNMe í KVÖLD

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.