Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1991, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1991, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 16. NÓVEMBER 1991. Veiðivon Fluguköst hjá Ármönnum: 2000 flugukast- arar hafa lært leyndardóminn „Fluguköstin hjá okkur eru að byrja fyrir alvöru þennan veturinn en við erum að frá hálfellefu til tólf á sunnudagsmorgnum héma í íþróttahúsinu," sagði Daði Harðar- son, formaður Ármanna, er við heimsóttum þá í íþróttahús Kenn- araháskólans, um síðustu helgi. En þá voru mættir í morgunsárið nokk- ir áhugasamir flugukastarar. Kenn- arar þennan morgun voru þeir Kol- beinn Grímsson, Þorsteinn G. Gunn- arsson og Stefán Hjaltested. „Núna fyrir jól er ennþá hægt að koma nokkrum að en í febrúar marz komast færri að en vilja. Það hafa líklega um 2000 flugukastarar lært hjá okkur í gegnum tíðina. Það eru Kolbeinn Grímsson og Þorsteinn Þorsteinsson sem hafa lagt grunninn að þessu mikla starfi og þeir hafa líka alið upp marga góða kennara í þess- um kös'tum. Starfið hjá okkur í vetur verður fjölbreytt. Hnýtingar verða hjá Skeggi og skotti á mánudagskvöldum og svo opið hús á miðvikudögum. Einu sinni í mánuði verðum með ein- hverja kynningu á opnu húsi. i félag- inu eru núna 280 manns,“ sagði Daði og brá sér til félaganna til að ræða áfram um veiðiskap. Um hann er hægt að tala um allan ársins hring, svo skrítið sem það er nú. Þaö styttir veturinn að geta æft fluguköst, sagt veiðisögur og skoðað veiðimyndir. í Laugardalshölhnni er líka hægt að æfa fluguköst, hjá Kast- klúbbi Reykjavíkur. Þangað hafa veiðimenn líka lagt leið sína til að nema þessi fræði. -G.Bender Þessar rjúpur höfðu ekki miklar áhyggjur af skotveiðimönnum. Þær höfðu flogið inn á sumarbústaðalandið í Munaðarnesi og voru þar í friði fyrir rjúpnaskyttum sem eru næstum um allt þessa dagana. DV-mynd G. Bender Kolbeinn Grímsson segir áhugasömum nemanda til er við litum inn hjá flugukösturum um siðustu helgi í íþróttahúsi Kennaraháskólans. DV-mynd G.Bender Það var fjör hjá Stangaveiðifélagi Patreksfjarðar og allir skemmtu sér kon- unglega á árshátíðinni þar. Á myndinni sjást þrír af gestunum sem virtust „allir“ hafa gaman af. DV-mynd ÁL Nokkrir þeirra sem persónurnar í bókinni þinni líkjast af algjörri tilviljun eru hér fyrir utan og vilja ræða við þig. Nafn:........ Heimilisfang: Þjóðar- Sá fingralangi Neðangreind vísa var fest á tré- kross sem stóð á leiði hins fram- liðna. Halldór þessi þótti nokkuð fxngraiangur og nýtinn á muni annarra, svo að vægt sé tii orða tekið: Þessí Halldór er búinn góðri gáfu, gekk til svefns þá höldar vöknuöu, og fór á stjá, er flestir ýtar sváfu, hjá honum fannst, er aðrir söknuöu. Andlitið aukaatriði Hjón nokkur í Kópavogi höföu eignast sjö stelpur áður en sonur þehra kom í heiminn. Hjónin voru aö sjálfsögðu kampakát með litla hnokkann, enda búin aö biða lengi eftir strák í bamahópinn. Skömmú eftii- fæðingu sonarins var maðurinn spurður iivoru þeirra strákunnn líktist nú meira. Maðurinn svaraði að bragði; „Iss, viö erum nú ekki farin að líta á andhtið emtþá.“ Nágrannakærleikur Séra Sígvaldi haföi átt í miklum þrætum og illdeilum við Jón ná- granna sinn og þóttist sá síðar- nefndi ílla ieikinn í þeim viðskipt- um. Einu sinni var séra Sigvaldi aö messa og varö það óvart á að mismæla sig því hann sagði: „Elska skaltu nágranna þinn sem sjálfan þig. Jón bóndi var við messuna og heyrði hvað prestur sagði. Þegar gengið var út úr kirkjunni vék Jón sér að prestinum og segir: „Það er gleðilegt að heyra hversu hugarfar - yðar hefur breyst gagnvart nágrönnum yð- ar, klerkur góöur.“ „Þama var nú um mismæh aö ræða, áifurinn þinn,“ hreytti séra Sigvaldi út úr sér. „Það væri brot á boöorðum Drottins að sýna ná- granna sínum nokkra miskunn en hvað náungann snertir, þá eru þeir sjaldan svo nærri að þeir flækist fyrir manni." Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ijós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á hægri myndinni og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum hðnum birtum við nöfn sigurvegara. 1. Fimm Úrvalsbækur að verðmæti kr. 3.743. 2. Fimm Úrvalsbækur að verðmæti kr. 3.743. Bækurnar sem eru í verðlaun heita: Á elleftu stundu, Flugan á veggnum, í helgieipum hat- urs, Lygi þagnarinnar og Leikreglur. Bækurnar eru gefnar út af Frjálsri fjölmiðl- un. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 129 c/o DV, pósthólf 5380, 125 Reykjavík Vinningshafar fyrir hundrað tuttugustu og sjöundu getraun reyndust vera: 1. Elín Ósk Gísladóttir Frostafold 40,112 Reykjavík 2. Herdís Guðmundsdóttir Reynigrund 40, 300 Akra- nesi Vinningamir verða sendir heim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.