Dagur - 15.05.1986, Qupperneq 6
I
I
6 - DAGUR - 15. maí 1986
!
i
I
I
V "
Ljos ■ Ljos • Ljos
Hvað er betra en að fara í Ijós og öðlast þann eftirsókn-
arverða brúna lit sem flestir eru svo hrifnir af?
Eflaust hafa fá okkar komist hjá því að verða vör við
þá Ijósabylgju sem gengur nú yfir.
Hverjum hefði dottið í hug að fara í Ijós fyrir 3-4
árum? Eflaust aðeins litlum hluta af þeim sem stunda
þetta núna.
Er fólk sem stundar þetta núna ekkert hrætt við húð-
krabba og aðra kvilla? Hvert er best að fara og hvað þarf
að borga fyrir munaðinn?
Við fórum einn daginn á Ijósastofur hér í bæ og röbb-
uðum þá við viðskiptavini sem og starfsfólk í leit að
svörum við ofangreindum spurningum.
Hólmfríður (missti af föðurnafn-
inu) og Ragnheiður Ragnars-
dóttir voru í óðaönn að panta
sér tíma í Hawaii fyrir helgina.
- Farið þið mikið og oft í Ijós
stelpur?
„Svona einu sinni í viku, það
er nóg til að halda sér við þegar
maður er búinn að fá lit.“
- Hvað hafið þiö stundað
þetta lengi?
„í allan vetur.“
- Ætlið þið að halda áfram?
„Já, maður missir ekki litinn!"
- Hvað með sólina í sumar,
haldið þið að þið látið ykkur
nægja að fara í sólbaö?
„Ja, við förum náttúrlega í
sólbað í sumar og þá minnkar
maður Ijósanotkunina en heldur
sér samt eitthvað viö.“
- Finnst ykkur dýrt að fara í
Ijós?
Ragnheiður: „Það er misjafnt
eftir því hvert maður fer.“
Hólmfríður: „Ég held að maður
eyði þessu hvort sem er.“
- Látið þið það sitja fyrir að
fara i Ijós ef þið eigið ekki mikinn
pening?
„Nei, þá sleppir maður þessu."
- Hvað með húðkrabbann og
allt annað sem fylgir þessu?
Hólmfríður: „Ég held að maður
geti fengið hann af öllu, maður
fær hann ekkert frekar af þessu
-heldur en einhverju öðru.“
- Hvert farið þið helst j Ijós?
„( Hawaii."
- Hafið þið prófað margar
Ijósastofur?
Ragnheiður: „Flestar."
Hólmfríður: „Ég held allar
hérna í bænum."
- Hvers vegna Hawaii?
„Þetta er eini staðurinn þar
sem maður getur fengið að vera
útaf fyrir sig og það skiptir miklu
máli. - Svo eru líka góðir lampar
hérna.“
- Hvenær farið þið svo helst í
Ijós?
„Svona tveimur dögum fyrir
helgar (hlátur).“
- Eruð þið spenntar fyrir Ijósa-
kortunum?
„Ja, það er svona misjafnt - ef
maður á fyrir korti þá kaupir mað-
ur kort.“
- Þið setjið tímann ekkert fyrir
ykkur?
„Maður gefur sér
bara tíma.“
Hjördís Áskelsdóttir.
Hjördís Áskelsdóttir meðeig-
andi Sólstofunnar að Glerárgötu
20:
- Hve lengi hefur þú rekiö
þessa stofu?
„Við erum búnar að vera með
hana í fjögur ár.“
- Nú eru Ijósastofurnar hérna
í bænum ansi margar. Heldur þú
að það sé markaður fyrir þær
allar?
„Það hefur oft verið hringt
hingað í mig og spurt hvort það
sé hægt að komast í Ijós strax -
þá er allt orðið upppantað í
bænum, þannig að það hlýtur að
vera grundvöllur fyrir allflestum
af þessum stofum."
- Er það alveg fengin gróða-
lind í dag að reka svona sól-
stofu?
„Nei, ekki nema það sé alltaf
brjálað að gera, það er búið að
vera mikið að gera hjá okkur
alveg síðan í haust en það er
mikil vinna á bak við þetta."
- Heldurðu að aðsóknin
minnki eitthvað þegar líða tekur
á sumarið?
„Það fer eftir því hvernig
sumarið verður, ef það verður sól
og gott veður þá má búast við að
það verði mikið að gera hjá
okkur."
- Nú, þarf fólk ekki síður að
fara í Ijós ef það getur legið í
sólbaði yfir sumarið?
„Ef veðrið er gott fer fólk að
ganga um léttklætt og allir sjá
hvað það er brúnt - nú þá vilja
allir vera snöggir að ná lit og drífa
sig í ljós.“
- Nú var síöasta sumar frem-
ur kalt - hvernig gekk þá?
„Það var ekkert sérstakt -
miklu meira að gera sumarið þar
áður.“
- Hvað eru unglingar stór hluti
af viðskiptahópnum?
„Ég þori nú ekki að fara með
það, það fer eftir því hvað þú
kallar unglinga - gæti verið allt
að helmingur."
- Hvenær fara unglingar helst
í Ijós?
„Ja, eftir skóla eða eftir vinnu.
Það er minnst að gera hérna á
morgnana."
- Hvaö þarf Meðal-Jóninn að
fara í marga tíma hérna hjá ykk-
ur til að ná lit?
„Ja, tíu tímarnir gefa þér nátt-
úrlega yfirleitt góðan lit, annars
er fólk misjafnt og perurnar líka.“
- Hvað kostar tíu tíma kort?
„Það kostar 1.000 kr og hver
tími er 18 mín.“
- Eruð þið með einhverjar
súperperur hérna?
„Þær heita ekki neitt svona
súper en við höfum prófað mjög
margar gerðir pera og þetta er í
annað skipti sem við erum með
þessar. Fólk kann mjög vel við
þær.“
- Er hægt að treysta þessum
auglýsingum sem maður er alltaf
að sjá í blöðum, um nýjar perur
alls staðar og svo framvegis...?
„Já, þú auglýsir ekki nýjar per-
ur og ert svo með gamlar."
- Hvað með húðkrabbann?
Heldur þú að þeir unglingar sem
stunda þetta sem mest í dag fái
að kenna á honum seinna?
„Þetta er hættuminni sól-
brúnka heldur en af völdum sól-
arinnar sjálfrar, sólin fer dýpra
inn í húðina á fólki og brennir það
frekar. Hættulegasta brunageisl-
unin hefur verið tekin úr perunum
þannig að þetta er ekki eins
voðalegt og margir halda."
- Að síðustu, finnst þér sem
þetta sitji fyrir hjá krökkum frekar
en eitthvað annað?
„Ég er ekki unglingur lengur
svo ég veit það ekki, en það voru
tveir strákar sem komu hingaö í
Ijós í haust þegar skólinn var að
byrja, þeim fannst þeir ekki geta
byrjað í skólanum fyrr en þeir
væru búnir að taka tíu tíma í Ijós-
um og ná sér í smá lit. - Það var
eins og þeim fyndist að þeir væru
meiri gæjar eða eitthvað svoleið-
Baldvin Þorsteinsson var
staddur í Hawaii, hann var ósköp
brúnn (freknóttur) og sællegur á
svip enda nýbakaður úr lampan-
um. Við gripum hann glóðvolgan.
- Ferðu oft í Ijós Baldvin?
„Tvisvár í viku.“
- Hvers vegna ferðu í Ijós?
„Þaö er þægilegt og svo til að
verða brúnn."
- Hvernig er það með þá
krakka sem þú þekkir, fara þeir
yfirleitt í Ijós?
„Já, flestir eitthvað."
- Verðið, - setur þú það ekk-
ert fyrir þig?
„Jú, þetta er nú frekar dýrt.“
- Lætur þú þetta sitja fyrir
öðru ef þú ert blankur?
Baldvin Þorsteinsson.
„Nei, ég sleppi Ijósunum ef ég
er blankur."
- Hefur þú stundað Ijósastof-
urnar lengi?
„Ætli að ég hafi ekki farið fyrst
fyrir svona tveimur árum síðan.“
- Hvað þarft þú marga tíma í
litinn?
„Ég verð nú aldrei sérstaklega
brúnn - ef ég hef ekki farið lengi
þá þarf ég líklega svona fjóra
tíma.“
- Hvert ferð þú helst í Ijós?
„Hawaii það er best, maður
getur fengið að vera svona út af
fyrir sig og hér eru breiðir og góð-
ir lampar."
- Þú ert ekkert hræddur við
hrukkurnar?
„Nei.“
Siglingaklúbburinn Nökkvi
hefur starfað í nokkur ár á Akureyri
\ ALLT SPYR að þessu sinni einn
\ klúbbfélaga, Stefán Antonsson,
\ út í starfsemí klúbbsins.
.e$
&
V
&
,<A.V
'j®
vv . Vt
l*>
ALLT
spyr?
15. maí 1986 - DAGUR - 7
Hólmfríður og Ragnheiður Ragnarsdóttir.
Sólrún Helgadóttir starfsstúlka
í Hawaii - Ijósastofu að Glerár-
götu:
- Er þetta rólegt starf?
„Ja, það er dálítið mikið um
hlaup, maður þarf að vísa fólki
inn í bekkina, þrífa þá, svara í
símann og fleira.“
- Hvernig er það með greiðsl-
ur á tímunum?
„Ja, sú staða getur náttúrlega
alltaf komið upp að fólk sé ekki
með pening en flestir greiða tím-
ann áður en þeir fara í lampann
eða hafa kort.“
- Eru kortin mjög vinsæl?
„Já, það eru yfirleitt svona
300-500 úti í einu.“
- Er þá ekki algengt að það
verði þó nokkur úrelt?
„Nei, yfirleitt tekur fólk þetta í
skorpum."
- Verða flestir brúnir eftir að
hafa farið tíu sinnum í röð?
„Flestir verða alveg kaffibrúnir
á tíu tímum."
(Já en er kaffið ekki svart?)
- Á hvaða aldri eru þeir sem
hingað koma?
„Ja, allt frá fjórtán og upp í
sextugt."
- Fara unglingar oftar í Ijós en
hinir aldurshóparnir?
„Ég myndi segja að þeir væru
svona fjörutíu prósent af heild-
inni.“
- Bjóðið þið upp á einhver
sérstök kjör hér?
„Ja, morguntímarnir frá kl.
8.00 og til 10.30 eru ódýrari, þeir
kosta 150 en annars kostar 200."
- Það vakti athygli mína að
tímarnir hjá ykkur eru lengur en á
flestum öðrum Ijósastofum (27
mín.), hvers vegna er það?
„Ja, ég get eiginlega ekki svar-
að því. Lamparnir voru stilltir inn
á 27 mín. þegar stofan var keypt
af fyrri eiganda - það þótti mjög
góður tími.“
- Hvernig er það með perur
og þrifnað hér?
„Ég held að við séum með
sterkustu perurnar á markaðin-
um í dag. Varðandi þrifnaðinn þá
þrífum við bekkina fyrst með
mjög fljótuppgufandi efni, síðan
er sprautað sótthreinsiefni á
bekkina og þeir þrifnir og að lok-
um er vatni sprautað á bekkina
og þeir síðan þurrkaðir. Þannig
að ég held að mér sé óhætt að
segja að þrifnaðurinn sé 100%.“
Sólrún Helgadóttir.
- Heldurðu að þrifnaðinum sé
yfirleitt fylgt svona vel eftir?
„Nei, ég held ekki.“
- Er einhver hætta á því að
fólk geti smitast þegar það fer i
þessa lampa?
„Ekki þegar þetta er almenni-
lega þrifið, en annars gæti þetta
örugglega borist með svitanum
af fólki.“
- Telur þú að krakkarnir sem
stunda þetta sem mest núna eigi
á hættu að fá húðkrabba seinna?
„Ég held ekki, svo framarlega
sem þeir misnota þetta ekki. Það
telst mjög temmilegt að taka sér
pásur inn á milli t.d. með því að
koma í einn til tvo tíma í viku til
aö halda sér við eftir að maður
hefur náð lit.“
Sigríður Magnúsdóttir.
Að lokum tókst okkur að ná tali af
Sigríði Magnúsdóttur, rétt áður
en hún skellti sér í Ijósin.
- Ferðu oft í Ijós?
„Nei, ekki mjög.“
- Hvert ferðu þá helst?
„Bara hingað í Sólstofuna því
þetta er svo ódýrt hér.“
- Aðstaðan á sólstofunum,
hefur hún minna að segja?
„Jú, hún hefur nú svolítið að
segja, mér finnst hún yfirleitt góð
alls staðar þar sem ég hef
komið."
- Hefur þú stundað þetta
lengi?
„Já, í svona tvö til þrjú ár.“
- Kaupir þú þér yfirleitt kort?
„Nei, yfirleitt ekki."
- Tilgangurinn með þessari
Ijósanotkun?
„Ég fer í Ijós til að verða brún.“
(Og svo var hún hlaupin í sól-
ina. . .).
rspurning vikunnar.
Finnst þér þú hafa orðið
var (vör) við einhverjar
kjarabætur í kjölfar síðustu
_____kjarasamninga?_____
Gunnar Sigtryggsson:
Ég finn afskaplega lítið fyrir því.
Ég er á ellilaunum og þau
hækkuðu mjög lítið, þannig að
þetta breytir litlu fyrir mig.
Brynjólfur Ingvarsson:
Nei, ég hef ekki orðið var við
það. Þetta er allt við það sama
sýnist mér, það er kannski helst
bensínlækkunin, ég keyri mikið.
Erla Hallgrímsdóttir:
Ég hækkaði í launum, en það
er lítill annar munur sem ég
finn. Það eina sem ég finn mun
á er að áður kostaði yfir 2.000
kr. að fylla bensíntankinn, en
núna fær maður afgang af
2.000 krónunum.
Halldór Halldórsson:
Nei, ég hef ekki fundið fyrir því.
Mér virðast lífskjörin vera alveg
þau sömu.
Guðrún Erlendsdóttir:
Nei, það hef ég ekki orðið vör
við. Það eina sem hefur skipt
máli er bensínlækkunin,
maðurinn minn keyrir mikið
þannig að það skiptir máli fyr:-
heimilið.