Dagur - 17.02.1988, Page 4

Dagur - 17.02.1988, Page 4
4 - DAGUR - 1 ^fJbrÍjár “1988 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI SlMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 560 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 55 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 400 KR. RITSTJÓRAR: ÁSKELL ÞÓRISSON (ÁBM.) BRAGI V. BERGMANN BLAÐAMENN: ANDRÉS PÉTURSSON (Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík), ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERT TRYGGVASON, EGILL BRAGASON, FRÍMANN HILMARSSON (Blönduósi vs. 95-4070), INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, KRISTJÁN KRISTJÁNSSON (íþróttir), STEFÁN SÆMUNDSSON, TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960), AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDIS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Fræðslusjónvarp Mönnum hefur lengi verið ljós sú staðreynd að Sjónvarpið er ákaflega áhrifamikill fjöl- miðill. Möguleikar hans hafa þó alls ekki ver- ið nýttir sem skyldi. Hæstráðendur Ríkisút- varpsins, þ.e. yfirvöld menntamála, hafa t.d. að mestu látið hjá líða að nota Sjónvarpið sem vettvang markvissrar almennings- fræðslu. Á það hefur áður verið bent á þess- um vettvangi, að ef rétt er á málum haldið, hefur Sjónvarpið alla burði til þess að verða eitt áhrifáríkasta menntasetur þjóðarinnar, ef svo má að orði komast. En nú hillir undir betri tíð hvað þetta varðar. Fyrir skömmu var hafinn markviss undirbúningur að stofnun sérstakrar fræðsludeildar innan Ríkisútvarpsins. Deild- in hefur ekki hlotið nafn enn sem komið er, en „Fræðslusjónvarp" og „Sjónvarpsskóli Ríkisútvarpsins “ hafa verið notuð sem vinnuheiti. Bæði nöfnin lýsa tilgangi slíkrar fræðsludeildar vel. Markmiðið er að hefja útsendingar efnis, sem fyrst og fremst hefur fræðslu- og menntunargildi. Fyrst í stað verður efnið sent út sem hluti hinnar almennu dagskrár. En ef vel tekst til má gera ráð fyrir því að síðar verði sérstök rás ætluð til þessara nota. Kostir þess að taka upp fjölþætta kennslu í Sjónvarpinu eru ótvíræðir. Væntanlega verður mest áhersla lögð á íslenska tungu, sögu og menningu, enda ekki vanþörf á. Hraðfleygar tækniframfarir hafa gert það að verkum að ísland er ekki lengur einangrað land í Norður-Atlantshafi, heldur land í al- faraleið, opið fyrir nýjungum á öllum sviðum. Vissulega er þetta breyting til batn- aðar að flestu leyti. Þó fylgir sá böggull skammrifi að fyrir bragðið er þjóðin við- kvæmari en áður fyrif erlendum menningar- áhrifum, sem í sumum tilfellum geta haft skaðleg áhrif. Þannig hafa erlend áhrif gert vart við sig í auknum mæli í málfari manna hin síðari ár, svo dæmi sé tekið. Við þessu þarf að bregðast og snúa vörn í sókn. Mark- viss almenningsfræðsla með tilstuðlan Sjón- varpsins er stórt skref í þá átt. Mikilvægt er að rétt verði staðið að málum strax frá upphafi. Reynsla nágrannaþjóð- anna sýnir að farsælast er að aðilar innan menntakerfisins sjái um að skipuleggja og þróa fræðslusjónvarpið. Það þarf að vera í aánu samstarfi við skólana í landinu og taka mið af kröfum sérhvers menntastigs og því sem nemendum nýtist best. Á þann hátt mun því vel farnast. BB. Örn Ingi: Vantraust á menn- ingarmálanefnd Það er svo sem ekki á hverjum degi að maður œsir sig upp til mótmœla við opinbera aðila eins og neðanritað bréftil bœjarstjórnar sýnir. Akvörðun mín að birta einn- ig bréfið opinberlega, orsakast af því, að mér finnst það ekki borðligjandi að vantraust mitt á Menningarmála- nefnd Akureyrarbœjar muni hljóta sérstaka meðferð hjá bœjarstjórninni, þótt alltaf megi vona. Ég held að les- endur Dags muni við áframhaldandi lestur sannfœrast um að þessi mál komi öllum við, og óskandi að í kjöl- farið leiddiþað menn til umhugsunar um það hvort allt sé á réttri leið í bœjarkerfinu, og aðfólk í öðrum bœjar- félögum skoði einnig sínar pólitísku nefndir, og gagn- rýni þœr á opinberum vettvangi ef ástœða þykir til. Ég vil ennfremur nota þetta tilefni til þess, að þakka hinum mörgu velunnurum Laxdalshúss samstarfið og samver- una. Nýjum leigutökum óska ég VELFARNAÐAR. Til bæjarstjórnar Akureyrarbæjar. Háttvirti bæjarfulltrúi. Mér undirrituðum þykir það í raun ekkert skemmtilegt áð verða að gagnrýna störf menn- ingarmálanefndar, en annað er samt ekki hægt. Þegar þessi nýja nefnd var sett á laggirnar urðu flestir glaðir við og trúðu á betri tíð með blóm í haga. Fullvíst má telja að gömlu aldamótamennirn- ir hefðu verið fullsæmdir af þeim heitstrengingum og fýrirheitum er sumir nefndarmenn viðhöfðu á fyrstu vikum og mánuðum hinnar nýju nefndar. Það skal fúslega viðurkennt, að það sem kemur mér sérstak- lega til að gagnrýna nefndina - er hneykslanleg meðferð hennar á málefnum Laxdalshúss, en fleira kemur þó til, svo sem nú verður rakið. 1. Um málefni Laxdalshúss Nefndin lagði það til við bæjar- ráð, eftir uppsögn mína á leigu- samningi milli mín og bæjarins um Laxdalshús, er gilt hafði sl. 4 ár, að leigja Laxdalshús áfram eins og verið hefði til listsýninga og annarra menningarviðburða. Nefndin lagði síðan til að veit- ingaaðilar Bautans/Smiðjunnar yrðu næstu leigutakar og væri þeim jafnframt heimil veitinga- sala í húsinu. Svo sem verið hafði einnig í fyrri leigusamningi. Hver trúir því, að þessu verði einmitt ekki alveg öfugt farið, enda er mér vel kunnugt um, að hinn nýi leigutaki sótti einungis um aðstöðu í húsinu með það eitt í huga að bjóða upp á venjulegar veitingar. Ég veit það einnig, að af hálfu bæjarins var ekki gengið eftir því sérstaklega að leigutaki uppfyllti einhver skilyrði um list- sýningar eða aðrar menningar- starfsemi, enda varla eða ekki hægt að ætlast til þess af honum. Leigutaki hefur þess vegna frá mínum bæjardyrum séð fullkom- lega hreinan skjöld að þessu leyti, þó svo að nú muni nefnd- in og bæjaryfirvöld í sameiningu mjög líklega negla sig á undir- skrift þeirra varðandi umrætt ákvæði. Ég mótmælti þessum ráðagerð- um með góðum fyrirvara bæði við nefndina og síðan síðar við formann hennar, jafnframt því sem ég lagði fram (munnlega) nýjar hugmyndir varðandi nýt- ingu hússins til eins árs, og ítrek- aði einnig varnarorð mín um frið- helgi þessarar perlu okkar Akur- eyringa og umgengni um hana (byggt á biturri reynslu). Eftir því sem ég best veit, var tillaga mín aldrei rædd - hvað þá nieir. Nefndin mun að sjálfsögðu skýla sér á bak við það ákvæði í samn- ingi að leigutakar hafi húsið að- eins til eins árs og áfram verði hugað að framtíðarnýtingu húss- ins sem hæfir. Staðreyndin er hins vegar sú að ekkert raunhæft hefur komið frá nefndinni, enda auglýsti hún húsið til leigu í þeirri von að einhverjir aðrir kæmu með góðar hugmyndir. Dreg ég það mjög í efa að nefndarmenn sjálfir hafi hugleitt mikið framtíð þessa merkilega húss sem brátt verður 200 ára gamalt. Ennfremur verður að koma hér fram að bæjarráð hafnaði því að kaupa húsgögnin, sem ég bauð þeim til kaups á góðum kjörum, og valin voru sérstaklega at' arkitekt hússins, Hjörleifi Stef- ánssyni, sem sá um endurbygg- inguna ásamt góðsmiðnum Sverri Hermannssyni. Var ég því skiljanlega tilneyddur til þess að selja hinum nýju leigutökum hús- gögnin ásamt ýmsum öðrum bún- aði. Varla er hægt að mæla gegn þeirri staðreynd að leigutakar standa nú mun betur að vígi til þess að halda húsinu um ókomin ár. Auðvitað hefði nefndin átt að hafa vit fyrir sér meðþví að mæla með því að þurrka út öll menn- ingarákvæði varðandi Laxdals- hús, ogsíðan vísa þvísem rekstr- arlegu hagsýsludæmi til atvinnu- málanefndar. 2. Um Gallery Gluggann og menningarmálanefnd Eins og sjá má í fundargerðum nefndarinnar leituðu Glugga- menn til hennar í von um stuðning. Framtak þeirra er í senn ákaflega þarft og lofsvert í alla staði, og enginn ætti að draga það í efa að miklu hefur verið til kostað svo allir hefðu sóma af. Reynsla af rekstri sýningarsala og gallería sýnir Ijóslega svo ekki verður um villst, að slíkur rekstur gengur ekki nema í mjög stuttan tíma komi ekki til einhver opin- ber stuðningur svo sem eðlilegt má teljast. Meðferð nefndarinnar vekur athygli, ekki verður annað sagt. Menningarmálanefnd vísar erindinu til atvinnumálanefndar útskýringalaust. Atvinnumálanefnd biður til baka um umsögn menningar- málanefndar, sem mælir með því að atvinnumálanefnd vinsamleg- ast athugi hvað hægt sé að gera fyrir Gluggann í rekstrarlegu til- liti. Sé vísað til orðalags í fundar- gerð menningarmálanefndar er ekki hægt að lesa mikla hvatn- ingu úr þeim orðum. Illt er að sjá forsendur fyrir þessum millifærsl- um og borið saman við fyrr- greindar niðurstöður í málefnum Laxdalshúss, má sjá að eitthvað er farið að víxlast illilega til í bæjarkerfinu. Ég fæ samt ekki betur séð, en að í þessu felist ákaflega fjand- samleg menningarpólitík eða þá mjög svo slysalegur misskilning- ur, sem vekja verður athygli á. Meðferð menningarmálanefndar á málefnum Laxdalshúss er forsenda fyrir vantraustsyfirlýsingu Arnar Inga á nefndina.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.