Dagur - 17.02.1988, Síða 5

Dagur - 17.02.1988, Síða 5
 Örn Ingi. 3. Stefnuleysi í uppbyggingu listasafns Akureyrarbæjar Þegar hin nýja menningarmála- nefnd tók til starfa, lá það einna brýnast fyrir, af verkefnum til úrlausnar, að marka einhverja ábyrga stefnu í innkaupum lista- verka. Pað mun á flestra vitorði að listaverkaeign bæjarins er ákaflega gloppótt og fátt um mjög góð myndverk, enda höfðu allar stjórnir gamla menningar- sjóðsins ávallt hagað innkaupum eftir því hvað rak á fjörurnar hverju sinni. Ekki get ég stillt mig um að benda á eina alvarlega gloppu sem ekki verður við unað, að enn hefur enginn séð ástæðu til þess að kaupa myndverk af einum af okkar allra bestu iista- mö'nnum sem hér starfar (enn- þá), Guðmundi Ármann, þrátt fyrir búsetu hans í bænum í 17 ár. Ekki er að sjá það í þeim 33 fundargerðum sem nú liggja eftir menningarmálanefndina að nokkru sinni hafi verið tekið á þessum málum. Skýringin er vafalaust sú, að þessi nefnd eins og allar aðrar pólitískar nefndir er ekki saman sett af sérfróðu fólki (nema þá til vara), og því ekki auðvelt fyrir það að finna góðar lausnir. 4. Útdráttur um listaverkakaup menningarmálanefndarinnar Á starfstíma nefndarinnar hafa nokkrir akureyrskir myndlistar- menn og myndlistarnemar sótt um styrki vegna sýninga og myndlistarmenntunar. Þessum umsóknum ýtti nefndin á undan sér og frestaði afgreiðslum af mikilli ákveðni eftir því sem séð verður, þar til eftir mikla umhugsun er blásið í herlúðra. Ákveðið að kaupa myndverk af flestum ef ekki öllum umsækj- endunum, en láta afgreiðsluna heita eftir sem áður styrkveit- ingu. Þarna virðist augljóst að nefndin hefur verið að kaupa sér baktryggingu. „Réttlætt styrkina með lista- verkakaupum... ...og réttlætt listaverkakaupin seni styrkveitingu." Þessi vinnubrögð lýsa í raun því sem einkennir þessa nefnd öðru fremur, en það er afstöðu- leysi hennar til allra hluta þegar á reynir. 5. Uni almenna óstarfhæfni nefndarinnar Við lestur fundargerða nefndar- innar, kemur það mjög oft ber- lega í ljós hvað hún á erfitt með að taka ákvarðanir, málunum frestað og frestað og síðan í kjöl- farið koma svo hálf hlægilegar niðurstöður, eins og t.d. þegar átti að ráða mann til söguritunar Akureyrarbæjar. Þá má sjá að nefndin, eftir mikið fum og fuður, vísar málinu frá til bæjar- ráðs. Einnig má sjá sérbókun frá meirihluta nefndarinnar þar sem mælt er með ákveðnum manni til starfans. Mér er spurn: Hvers vegna réði ekki meirihlutinn afstöðu nefndarinnar í þessu máli? Hvers vegna þurfti að vísa því frá? Var þarna um pólitík að ræða? Spyr sá sem ekki veit. Á það verður að benda, að nefndarmenn eru ekki á svo lág- um launum í þessari nefndar- vinnu sinni, þeir fá nú fyrir hvern fund kr. 2.851,00 þannig að hver fundur nefndarinnar kostar skatt- borgarana kr. 17.106,- og sé þetta margfaldað áfram á þessa 33 fundi nefndarinnar á einu og hálfa ári er upphæðin ca. 560 þús. kr. - En eins og einn góður maður sagði í bæjarkerfinu: „Það er nú einu sinni verið að greiða fyrir hugvit.“ Ég vil ennfremur gagnrýna fundargerðir nefndar- innar, sem eru ákaflega óvandað- ar og óglöggar og engu líkara en að allt sé svo leynilegt að um það megi varla bóka. 6. Efasemdir um skóla- og menningarfulltrúann Starfssvið þessa nýja fulltrúa í bæjarkerfinu kom mjög til kasta hjá menningarmálanefnd, og mæltu þeir einnig með þeim aðila er fékk starfann. Það verður að segjast eins og er, að enn hefur mér ekki tekist að finna nokkurn mann úr menningargeiranum, sem telur það ekki vera hið versta óráð að setja þessa báða málaflokka undir sama manninn. Það ætti að vera mönnum aug- ljóst mál að báðir þessir mála- flokkar þurfa á fagmennsku að halda. Eins og allir vita er sá sem hefur þetta starf með höndum að upplagi skólamaður (vafalaust fær á sínu sviði) en alls óreyndur á menningarsviðinu og því afar ólíklegur baráttumaður í þeim efnum. Mér er það ennfremur mjög til efs, að hægt sé að finna mann er geti sinnt báðum þessum niálaflokkum jafnvel, þótt hann væri allur af vilja gerður. Þessi skóla- og menningarfull- trúi í einni og sömu persónunni er því vond mistök. Góðir bæjarfulltrúar nú er sennilega nóg komið (í bili að minnsta kosti) þótt ýmislegt fleira hefði mátt nefna sem gagn- rýnisvert gæti talist. Þó vil ég leiða að því líkum, að miðað við allar þær umræður um sölu á eignum Akureyrarbæjar, verði Laxdalshús brátt sett á sölulista til að létta byrðarnar af bænum, og má benda á síðustu ráðstafan- ir sem spor í þá átt. Ekki kæmi það mér neitt á óvart fyrst ráða- menn bæjarins sýna ekki lit á því að gangast við húsinu á raunhæf- ari hátt en þeir eru nú uppvísir að. Fullvíst má telja að einhverj- um þyki ég býsna óbilgjarn og dómharður, en því er til að svara, að ég gerði mér (eins og fleiri) miklar vonir með þessa nýju menningarmálanefnd og trúði henni til góðra verka, en nú finnst mér hún hafa brugðist hlut- verki sínu illilega, og mun því standa við hvert orð hér að fram- an - hvar og hvenær sem er. Lokaorð Það er mér bæði ótta- og áhyggjuefni að horfa upp á alla þá þenslu og ringulreið sem ávallt virðist ríkja í höfuðborginni. Helstu orsakir þessa að mínu viti, eru vafalaust þær, að í rauninni er höfuðborgin ekki vel undir það búin, að virka sem flótta- mannabúðir fyrir óánægt lands- byggðarfólk, sem þreyst hefur á sinni heimabyggð, vegna þess hvað þar var illa staðið að málum. Virðingarfyllst. Akureyri, 15. fébrúar 1988. Orn Ingi, Klettagerði 6, Akureyri. Ólafur Haukur Símonarson: Sögur úr sarpinum Nýlega gaf Mál og menning út Sögur úr sarpinum eftir Ólaf Hauk Símonarson. í þessari bók eru ellefu sögur sem áður hafa birst ýmist í smásagnasöfnum hans eða í tímaritum. Ólafur skrifar gjarna um fólk í hvers- dagslegu umhverfi, en jafnan er stutt í fantasíu og táknmyndir. Ólíklegustu atburðir eiga sér stað í tiltölulega venjulegu umhverfi, svo sögurnar eru oft með raunsæ- isblæ þótt þær séu ævintýralegar. Ólafur Haukur hefur áður sent frá sér fjölda bóka, bæði sögur, leikrit og ljóð; meðal þeirra mætti nefna Galeiðuna, Vík milli vina, Vatn á myllu kölska, Úngl- íngana í eldofninum, Vélarbilun í næturgalanum, Dæmalaus ævintýri og Badda og bílaverk- stæðið. Ólafur hefur einnig samið efni fyrir börn og unglinga og söngtexta. Sögur úr sarpinum er 146 blað- síður að stærð og er hún gefin út sem kilja. Guðjón Ketilsson hannaði kápu. Bókin er prentuð og bundin hjá Prentstofu G. Benediktssonar. Aðalfundur hestamannafélagsins Funa verður haldinn í Sólgarði sunnudaginn 21. febrúar kl. 13.30. Fundarefni: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Úrsögn félagsins úr L.H. 3. Væntanleg innganga í U.M.S.E. Áríðandi að félagsmenn fjölmenni og taki afstöðu í þessum málum. Stjórnin. Nýkomid Eyrnalokkar og hárskraut í úrvali. Nýjar peysur, blússur, kjólar, pils, 3 gerðir af jogginggöllum og stuttermabolir. Alltaf sama lága verðið. Komið meðan úrvalið er mest. Sendum í póstkröfu. Ath. Opið á laugardögum L frá kl. 10-16. Verslunin Uilog n Sunnuhlíð 12, sími 22484. Jakjkaföt á yngri meniiina. Stakir jakkar og buxur frá tíallahuxur og bolir í miklii tirvali. RúUukragabolir frá kl. 750.- Herra terlyne buxur. Verð aðeins kr. 1.190.- IVliiinuiii á liiuar vinsælu þýsku buxur uAn.| frá MobiÍEIasto. YuRU

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.