Dagur - 03.12.1988, Blaðsíða 3

Dagur - 03.12.1988, Blaðsíða 3
3.mi8®fíÍtóÍD^ÍMíÍ3,J Saga K A að koma út - spjallað við Svavar Ottesen Saga Knattspyrnufélags Akur- eyrar, K.A., kemur út um miðjan desember. I tilefni af útgáfu bókarinnar ræddi blaða- maður við Svavar Ottesen, en hann hefur starfað mikið að útgáfunni ásamt fleirum. Saga K.A. er rituð af Jóni Hjalta- syni, sagnfræðingi. - Hvenær var ákveðið að rita sögu Knattspyrnufélags Akur- eyrar? „Það var í byrjun árs 1987 en þá ákvað stjórn K.A. að gefin skyldi út saga félagsins í máli og myndum. Jón Hjaltason, sagn- fræðingur, sem þá var að ljúka námi við Háskóla íslands, var ráðinn söguritari og hófst hann þegar handa. Nú vinnur Jón við ritun sögu Akureyrar sem starfs- maður Akureyrarbæjar, og er það mikið verk og vandasamt. Á stjórnarfundi 8. janúar á síð- asta ári var ákveðið að skipa sér- staka ritnefnd til að sjá um útgáfu sögunnar, velja myndir í bókina o.s.frv. í ritnefndinni eiga sæti þeir Hermann Sigtryggsson og Haraldur Sigurðsson, auk mín. Á fyrsta fundi nefndarinnar upp- lýsti Haraldur að hann væri að vinna að stóru verkefni, sögu leiklistar á Akureyri og nágrenni og gæti hann því ekki notað mik- ið af frítíma sínum okkur Her- manni til aðstoðar við ritun sögu K.A. Málin þróuðust því þannig að við Hermann vorum að rniklu leyti tveir einir við þetta verk. Við söfnuðum myndum, sömd- um myndatexta og röðuðum efn- inu upp. í fullri hreinskilni vil ég segja að þetta var miklu tíma- frekarara og vandasamara verk en okkur hafði nokkurn tíma grunað þegar við hófumst handa á síðasta ári.“ - Hafið þið ekki fengið aðstoð? „Jú, mjög margir K. A.- félagar hafa komið okkur til aðstoðar á lokastiginu við undirbúning bókarinnar, aðallega í sambandi við samningu myndatexta. Þá vil ég geta þess að Haraldur Sigurðs- son tók með okkur góðan enda- sprett þegar bókin var komin til vinnslu í prentsmiðju. Vinna við bókina er komin á lokastig og ætti hún að geta kom- ið út um miðjan desember.“ - Hvernig bók er þetta? „í sögu K. A. eru yfir 400 svart/ hvítar myndir og 48 litmyndir. Bókin verður um 270 bls. í stóru broti, þ.e. sama broti og Saga Menntaskólans á Akureyri. Bók- in skiptist í eftirfarandi kafla: 1. Undir Straumhvörfum. 2. Knattspyrnan í K.A. 3. „Hin hvíta list.“ 4. Frjálsar íþróttir. 5. Handknattleikur. 6. íþróttamenn í sókn 7. Það sem einu sinni var. Þá eru í bókinni viðtöl við sex K.A. menn, þá Tómas Stein- grímsson, Pál Línberg, Þormóð Einarsson, Hermann Sigtryggs- son, Harald Sigurðsson og Þor- leif Ananíasson. Jón Hjaltason söguritari ræddi einnig við 20-30 K.A.-félaga meðan á söguritun- inni stóð. Rætt er við Stefán Gunnlaugsson um byggingu K.A.-heimilisins og Björg Finn- bogadóttir ritar sjálf um skíða- ferðir í Ásgarð. Fremst í bókinni er ávarp forseta Í.S.Í., Sveins Björnssonar, ásamt ávörpum bæjarstjóra, formanns K.A. og ritnefndar. í bókinni er einnig Tabula gratulatoria með liðlega 250 nöfnum." Ritstjórn og söguritari K.A.-bókarinnar. F.v.: Hermann Sigtryggsson, Svav- ar Ottesen, ritstjóri bókarinnar, Jón Hjaltason, söguritari og Haraldur Sig- urðsson. Mynd: I'LV Þeir eru glaöbeittir á svipinn, Svav- ar Ottesen, ritstjóri K.A.-bókarinn- ar t.v. og Guðjón H. Sigurðsson prentsmiðjustjóri í Dagsprenti, enda eru þeir að ljúka við setningu hátt á fímmta hundrað myndatexta, sem eru í bókinni. Mynd: gb „Hún er prentuð í litlu upplagi og henni verður ekki dreift í bókabúðir. Ég vil því hvetja alla K.A.-menn til að tryggja sér ein- tak í tíma með því að hafa sam- band við einhvern í stjórn félags- ins eða stjórnum deilda. Einnig er hægt að panta bókina í K.A. heimilinu.“ - Var þetta erfitt verk? „Til marks um umfang verks- ins vil ég geta þess að setning myndatexta í bókina tók milli 40 og 50 klukkustundir. Ég veit ekki hversu nöfnin eru mörg undir myndunum en þau eru áreiðan- lega ekki færri en eitt þúsund, en mörg nöfnin koma fyrir oftar en eins og ég sagði í upphafi. Þá vil ég geta þess að Dagsprent hf. annaðist setningu, umbrot og filmuvinnu bókarinnar en prent- un og bókband fer fram í Reykja- vík.“ EHB HALCYON hágœðadýnur Munið 10% jólaafsláltinn Nykomnar 3 gerðir af úlpum á fullorðna Verð frá kr. 1.990.- Dömugallabuxur St. 36-44. Verð kr. 1.220.- Prjónaðar peysur fjórar gerðir Verð frá kr. 1.540.- Ullarfmtte nærfatnaður á dömur og herra í miklu úrvali Varmalökin vinsælu komin Verð kr. 2.220.- Herrafrakkar St. 50-56. Verð aðeins kr. 4.500.- Opið í dag frá kl. 10.00-16.00. • m 111EYFJORÐ Hjalteyrargötu 4 • Sími 22275 m Hafnarfjörður Svæöisstjórn málefna fatlaöra á Reykjanessvæöi leitar eftir hentugu 250-300 fermetra húsnæöi fyrir dagvist fatlaöra í Hafnarfirði. Æskileg staðsetning er í nálægð viö miðbæinn. Tilboö óskast send eignadeild fjármálaráðuneytis- ins, Arnarhvoli, 150 Reykjavík, fyrir 12. desember 1988. Fjármálaráðuneytið, 29. nóvember 1988. Þetta VATM5RÚM og mörg fleiri í - í hversu stóru upplagi er saga K.A. gefin út?

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.