Dagur - 06.07.1989, Blaðsíða 2

Dagur - 06.07.1989, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 6. júlí 1989 fréttir Umsagnir Jafnréttisráðs til Alþingis: Jákvæðar undirtektír um tímabundnar aðgerðir til að bæta stöðu kvenna Jafnréttisráði bárust á árinu 1988 nokkur frumvörp til laga og þingsályktunartillögur til umsagnar á Alþingi. Um var að ræða frumvörp um breyt- ingar á lögum um jafna stöðu kvenna og karla og breytingu á barnalögum svo og tillögur til þingsályktunar um jafnréttis- ráðgjafa, tímabundnar aðgerð- ir til að bæta stöðu kvenna, mat á heimilisstörfum og könnun á stöðu handmennta í grunnskólum. Í frumvarpinu um iafna stöðu og rétt kvenna og karla var gerð tillaga um breytt orðalag á þeirri grein laganna sem fjallar um skipan í stjórnir, nefndir og ráð af ráðuneytum eða á vegum opin- berra stofnana og fyrirtækja og að þar skuli ekki sitja færri en 40% af hvoru kyni. Jafnréttisráð tók undir það markmið að brýnt sé að auka hlut kvenna í stjórnum, nefndum og ráðum en telur vænlegra að beita tilnefn- ingarleið. Þá eru tveir, kona og karl tilnefndir og við skipun er þess síðan gætt að hlutur kynj- anna sé sem jafnastur. Um breytingu á barnalögum var gerð tillaga um að Iögfest verði heimild til sameiginlegrar forsjár foreidra við hjónaskilnað eða sambúðarslit. Lögð var áhersla á í umsögn Jafnréttisráðs að ef slík heimild yrði lögfest þá yrði reynt að tryggja eins vel og kostur er að hún feli ekki í sér íþyngingu fyrir það foreldri sem fer með daglega umsjá barnsins. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið: Nýr skrifstoíustjóri í ráðuneytinu Hinn 1. júlí 1989 skipaði forseti íslands að tillögu heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra Ingi- björgu R. Magnúsdóttur skrif- stofustjóra í heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðuneytinu. Ingibjörg var hjúkrunarfor- stjóri Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri frá 1961 til 1971. Hún tók við starfi fulltrúa í heilbrigð- is- og tryggingamálaráðuneytinu I. júlí 1971 og við stöðu deildar- stjóra sjúkrahúsa- og heilsu- gæsludeildar 1. október sama ár. Hún hefur setið í ýmsum ráðum og nefndum á vegum ráðuneytis- ins og gegnt þar margs konar trúnaðarstörfum. Ingibjörg hefur verið náms- brautarstjóri námsbrautar í hjúkrunarfræði í Háskóla íslands frá 1. janúar 1976. í ráðuneytinu starfa því alls 4 skrifstofustjórar auk staðgengils ráðuneytisstjóra Jóns Ingimars- sonar, skrifstofustjóra. WiHu ekki ¥MÍa af baminuþínu öruggu? Vönduðustu barna-bílstólarnir á markaðinum, 3 gerðir. 3 nestin Tillagan um jafnréttisráðgjafa gekk út á að ráðnir yrðu á vegum félagsmálaráðuneytisins þrír jafnréttisráðgjafar sem vinni að leiðréttingu á stöðu kvenna í stofnunum og fyrirtækjum. Jafn- réttisráð mælti með samþykkt þingsályktunartillögunnar. Jafnréttisráð tók jákvætt undir tillögu til þingsályktunar um sér- stakar, tímabundnar aðgerðir til að bæta stöðu kvenna. Talið var löngu tímabært að ráðið og fé- lagsmálaráðuneytið mótuðu sér- stakar reglur á grundvelli laga- heimildar um jafna stöðu og rétt kvenna og karla. í umsögn Jafnréttisráðs um til- lögu um mat á heimilisstörfum var áhersla lögð á að ef slík úttekt væri framkvæmd yrði til- gangur hennar að vera áð auka veg og virðingu heimilisstarfa og sambærilegra starfa á vinnumark- aðinum. Ekki væri æskilegt að þetta hvetti konur inn á heimilin aftur eða ýtti undir mat á hvort hagkvæmt væri að konur ynnu utan heimilis. Jafnréttisráð taldi jákvætt að könnun færi fram á stöðu hand- menntakennslu í grunnskólum. Pað undirstrikaði jafnframt mikilvægi þess að allir nemendur óháð kyni, nytu sömu kennslu í öllum námsgreinum. KR Hitaveita Akureyrar: Rannsóknir á Hrafiiagilssvæðinu Starfsmenn Hitaveitu Akur- eyrar luku nýlega við að mæla hitastig í flestum borholum veitunnar á Hrafnagilssvæð- inu. Jafnframt var unnið að svoköliuðum botnrannsóknum á svæðinu. Franz Árnason, heitaveitu- stjóri, segir að tilgangurinn með hitastigsmælingunum hafi verið í téngslum við gerð vinnslu- og afkastaspár fyrir hitaveituna. Botnrannsóknirnar, eða við- námsmælingar, eins og þær heita á fagmáli, hafi verið gerðar í framhaldi af rannsóknum sem fóru fram í fyrra, en markmiðið með þeim er að leita að heppileg- um stöðum til borunar. „Það er vitað um vatnskerfi þarna en það er byggt upp af svo þröngum sprungum, eins og önn- ur vatnskerfi hér í firðinum, að Möðruvallasókn: Staða prests auglýst á næstimni „Staða prests á Möðruvöllum verður auglýst á næstunni og mun Biskupsstofa sjá um það,“ sagði Magnús Stefáns- son, bóndi í Fagraskógi og for- maður sóknarnefndar Möðru- vallasóknar, en eins og kunn- ugt er var séra Pétur Þórarins- son, sem hefur gegnt stöðu sóknarprests á Möðruvöllum s.l. 7 ár, kjörinn prestur í Gler- árprestakalli fyrir skömmu. Magnús sagðist búast við að Pétur myndi flytja til Akureyrar í kringum mánaðamótin ágúst- september og staða sóknarprests á Möðruvöllum yrði veitt frá þeim tíma. Pétur mun þjóna sókninni út júlí en hann verður síðan í sumarfríi í ágúst. óþh Netaveiði- bann Eins og undanfarin ár hefur sjávarútvegsráðuneytið gefið út reglugerð um bann við veið- um í þorskfisknet. Bannið gildir að þesssu sinni frá 1. júlí til 15. ágúst og tekur til allra veiða í þorskfisknet innan íslenskrar fiskveiðilögsögu. menn gera sér ekki virkilega góð- ar vonir um að unnt sé að hitta í eina slíka nema með miklum til- kostnaði. Tilgangur rannsókn- anna er því að finna út hvort hægt sé að finna réttan stað án þess að ienda í ítrekuðum borun- um,“ sagði hann. EHB Tilkynning frá Ólafi H. Oddssyni héraðslækni: Sundlaugin í Grímsey verið opnuð aftur eftir sótthreinsun Um miðjan júnímánuð kom upp útbrotafaraldur í Grímsey. Yfir 40 manns fengu einkenni. Flestir fengu útbrot en sumir bæði út- brot og óþægindi í augu og eyru. Sjúkdómseinkennin má rekja til bakteríunnar pseudomonas aeruginosa, en hún ræktaðist frá nokkrum einstaklingum með ein- kenni. Smitleið virðist hafa legið um sundlaug staðarins. Klór- blöndun sundlaugarvatnsins mun hafa farið niður fyrir viðmiðunar- mörk einhverja daga. Líklegt er að þá hafi bakterían náð að fjölga sér og sýkja sundlaugar- gesti. Pseudomonas bakterían, sem þrífst vel í raka, getur hafa borist úr umhverfi eða með fólki, en engin leið er að rekja það til hlítar. Rétt er að taka fram, að þegar heilbrigðisfulltrúi tók sýni úr sundlaugarvatninu þann 15. júní sl., fundust engar bakteríur í vatninu, og klórblöndun var eðli- leg. Þeir sem sýktust eru á góðum batavegi og laugin hefur verið opnuð aftur eftir sótthreinsun. Tveir enskir kylfmgar: Færðu GA forláta trébekk að gjöf Tveir enskir kylfingar, þeir Fred Verity og Mike Haith, er tóku þátt í opna Arctic-mótinu í golfi, færðu Golfklúbbi Akureyrar forláta trébekk að gjöf í mótslok. Þeir félagar höfðu á orði þegar þeir tóku þátt í mótinu í fyrra, að það vantaði fleiri bekki við 18. flötina og ákváðu að gera eitt- hvað sjálfir í málinu. A myndinni sést er þeir félagar afhentu klúbbnum bekkinn, það er Haith sem stendur en stitjandi er Verity.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.