Dagur - 04.05.1991, Blaðsíða 5

Dagur - 04.05.1991, Blaðsíða 5
Laugardagur 4. maí 1991 - DAGUR - 5 Bakhlið ráðherranna í ríkisstjóm Davíðs Það hefur varla farið fram hjá nokkrum manni að ný ríkissfjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðutlokks er tekin við völdum. Sumir kalla hana „viðreisn hina síðari“, aðrir Viðeyjarviðreisn, enn aðrir Við- eyjarundrið og sumir, sem lítið er um ríkisstjórnina gefíð, nefna hana Sorpu. Mun það nafn vísa til þess að sama dag og stjórnin var að fæðast úti í Viðey var formlega tekin í notkun Sorpa, sorpeyðing- arstöð höfuðborgarsvæðisins. Talnaglöggir menn hafa fundið út að aldur ráðherra ríkisstjórnar- innar er eilítið hærri en í síðustu ríkisstjórn. Meðalaldur ráðherr- anna er 49,3 ár en 49,2 í stjórn Steingríms Hermannssonar. Ólafur G. Einarsson, menntamálaráðherra, er elstur, 58 ára, og þeir Þor- steinn Pálsson, sjávarútvegsráðherra, og Davíð Oddsson, forsætis- ráðherra, eru yngstir, 43 ára. Lesendum til glöggvunar hefur undirritaður tekið saman nokkra fróðleiksmola um ráðherrana tíu í ríkisstjórn Davíðs Oddsonar, sem birtast hér á síðunni. Sighvatur Kristinn Björgvinsson, heilbrigðis- og tryggingainálaráðherra Fæddur 23. janúar 1942 í Reykjavík. Foreldrar: Björgvin Sig- hvatsson skólastjóri Barnaskóla ísafjarðar og Jóhanna Sæ- mundsdóttir handavinnukennari og húsmóðir. Maki: Björk Melax hús- móðir. Sighvatur Kristinn lauk stúdents- prófi frá MA árið 1961 og innritaðist síðan í forspjallsvísindi í HÍ og lauk prófi í þeim árið 1963 og fyrrihluta- prófi í viðskiptafræðum árið 1966. Hann var starfsmaður Sjómanna- sambands íslands og verkalýðsmála- nefndar Alþýðullokksins 1964-1965. Ritstjóri Alþýðublaðsins 1969-1974 og framkvæmdastjóri Norræna félagsins frá 1984. Sat á Alþingi fyrir Alþýðuflokkinn á árunum 1974-1983 og síðan frá 1987. Var fjármálaráðherra í ráðu- neyti Benedikts Gröndal 15. október 1979 til 8. febrúar 1980. Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegs-, dóms-, og kirkjumálaráðherra Fæddur 29. október 1947 á Selfossi. For- eldrar: Páll Sigurðsson skrifstofumað- ur og Ingigerð- ur Nanna Þor- steinsdóttir húsmóðir. Maki: Inibjörg Þórunn Rafnar hér- aðsdómslögmaður. Þorsteinn lauk stúdentsprófi frá Verslunarskóla íslands árið 1968 og lögfræðiprófi frá HÍ árið 1974. Hann var blaðamður á Morgun- blaðinu á árunum 1970 til 1975 og rit- stjóri Vísis á árunum 1975-1979. Framkvæmdastjóri Vinnuveitenda- sambandsins á árunum 1979-1983 og formaður Sjálfstæðisflokksins á árunum 1983-1991. Hefur setið á Alþingi fyrir Suður- landskjördæmi frá 1983. Fjármála- ráðherra í ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar 16. október 1985 til 8. júlí 1987. Forsætisráðherra 8. júlí 1987 til 28. september 1988. Ólafur Garðar Einarsson, menntamálaráðherra Fæddur 7. júlí 1932 á Siglu- firði. Foreldr- ar: Einar Kristjánsson lyfjasveinn, síðar forstjóri þar, á Akur- eyri og í Reykjavík, og Ólöf ísaksdóttir, húsmóðir. Maki: Ragna Bjarnadóttir. Lauk stúdentsprófi frá MA árið 1953. Stundaði nám í læknisfræði óþh 1953-1955 og lögfræðiprófi frá HÍ árið 1960. Var sveitarstjóri í Garðahreppi á árunum 1960-1972 og oddviti hrepps- ins 1972-1975. Forseti bæjarstjórnar Garðabæjar 1975-1978. Hefur setið á Alþingi fyrir Sjálf- stæðisflokkinn í Reykjaneskjördæmi síðan 1971. Formaður þingflokks sjálfstæðismanna frá 1979. Jón Sigurðsson, viðskipta- og iðnaðarráðherra Fæddur 17. apríl 1941 á ísafirði. For- eldrar: Sig- urður Guð- mundsson bakarameistari og Kristín Guðjóna Guðmunds- dóttir húsmóðir. Maki: Laufey Þor- björnsdótlir bókavörður. Stúdent frá MA árið 1960. Lauk Fil. kand. prófi í þjóðhagfræði, töl- fræði o.fl. frá Stokkhólmsháskóla árið 1964. Þrem árum síðar lauk Jón M.Sc. Econ. í þjóðhagfræði við London School of Economics and Political Science. Starfaði sem hagfræðingur við Efnahagsstofnun 1964-1967, deildar- stjóri hagdeildar þar 1967-1970, hag- rannsóknastjóri þar 1970-1971. For- stöðumaður hagrannsóknadeildar Framkvæmdastofnunar 1972-1974 og forstjóri Þjóðhagsstofnunar frá 1974 til 1987 þegar hann tók sæti á Alþingi fyrir Alþýðuflokkinn í Reykjavík. Situr nú hins vegar á þingi fyrir Reykjaneskjördæmi. Var viðskipta-, dóms- og kirkju- málaráðherra í stjórn Þorsteins Páls- sonar og iðnaðar- og viðskiptaráð- herra í stjórn Steingríms Hermanns- sonar frá 28. september 1988 til 30. apríl 1991. Eiður Svanberg Guðnason, umhverfísráðberra Fæddur 7. nóvember 1939 í Reykja- vík. Foreldrar: Guðni Guð- mundsson verkamaður og Þóranna Lilja Guðjóns- dóttir húsmóð- ir. Maki: Eygló Helga Haraldsdóttir, píanókennari. Eiður Svanbcrg lauk stúdentsprófi frá MR árið 1959 og hélt að því búnu til Bandaríkjanna þar sem hann nam stjórnmálafræði við University og Delaware á árunum 1960-1961. Hélt síðan heim til Fróns og lauk prófi í ensku og enskum bókmenntum við HÍ árið 1967. Vann við Alþýðublaðið á árunum 1962 til 1967 og yfirþýðandi og frétta- maður við Sjónvarpið frá 1967 til 1. desember 1978. Hefur verið alþingis- maður fyrir Vesturlandskjördæmi frá árinu 1978 og formaður þingflokks Alþýðuflokksins frá 1983. Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra. Fæddur 21. febrúar 1939 á ísafirði. For- eldrar: Hanni- bal Valdimars- son alþm. og ráðherra og Sólveig Ólafs- dóttir húsmóð- ir. Maki: Bryndís Schram húsmóðir. Stúdent frá MR 1958. Lauk M.A. prófi í hagfræði við Edinborgarhá- skóla í Skotlandi 1963. Framhalds- nám í vinnumarkaðsfræði við Stokk- hólmsháskóla 1963-1964. Próf í upp- eldis- og kennslufræðum við HÍ 1965. Framhaldsnám við Harvard- háskóla í Bandaríkjunum 1976-1977. Jón Baldvin var kennari og blaða- maður við Frjálsa þjóð 1964-1969. Tók við embætti skólameistara við Menntaskólann á ísafirði árið 1970 og gegndi því til 1979. Ritstjóri Alþýðublaðsins næstu þrjú ár. Jón Baldvin var kosinn á þing fyrir Alþýðuflokkinn í Reykjavík árið 1982 og hefur setið þar síðan. Áður var hann varaþingmaður fyrir Vest- firðinga og Reykvíkinga. Formaður Alþýðuflokksins frá 1984. Jón Baldvin var fjármálaráðherra í ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar og utanríkisráðherra í stjórn Steingríms Hermannssonar. Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra Fædd 4. októ- ber 1942 í Reykjavík. Foreldrar: Sigurður Egill Ingimundar- son alþingis- maður og for- stjóri Trygg- ingastofnunar og Karítas Guðmundsdóttir húsmóð- ir. Lauk prófi frá Verslunarskóla íslands árið 1960. Ár árunum 1962-1971 var Jóhanna flugfreyja hjá Loftleiðum og skrif- stofumaður hjá Kassagerð Reykja- víkur 1971-1978. Jóhanna var formaður Flugfreyju- félags íslands 1966 og 1969 og í stjórn Verslunarmannafélags Reykjavíkur.. Hefur verið varaformaður Al- þýðuflokksins frá 1984. Var kjörin á Alþingi fyrir Alþýðu- flokkinn í Reykjavík árið 1978 og hefur setið þar síðan. Félagsmálaráð- herra í stjórn Þorsteins Pálssonar 1987-1988 og stjórn Steingríms Her- mannssonar 1988-1991. Halldór Blöndal, landbúnaðar- og samgönguráðherra Fæddur 24. ágúst 1938 í Reykjavík. Foreldrar: Lárus H. Blöndal bóka- vörður og Kristjána Benedikts- dóttir. Maki: Kristrún Eymundsdóttir kennari. Lauk stúdentsprófi frá MA árið 1959. Hóf nám í lögfræði við HÍ, lauk upphafsprófum, en hætti námi. Hefur lengst af unnið við kennslu, í Réttarholtsskóla í Reykjavík, Gagnfræðaskólann á Akureyri og stundakennari við Menntaskólann á Akureyri. Blaðamaður við Morgun- blaðið í sex ár, síðast 1978-1980. Hefur einnig unnið í rnörg sumur við hvalskurð og um tveggja ára skeið á endurskoðunarskrifstofu. Var erind- reki Sjálfstæðisflokksins í Norður- landskjördæmi eystra 1963-1967. Alþingsmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðurlandskjördæmi eystra frá árinu 1979. Hafði áður verið vara- þingmaður frá 1971. Friðrik Klemenz Sophusson, fjármálaráðherra Fæddur 18. október 1943 í Reykjavík. Foreldrar: Sophus Auð- unn Guð- mundsson skrifstofustjóri og Áslaug María Friðriks- dóttir skólastjóri. Maki: Sigríður Dúna Kristmundsdóttir mannfræð- ingur. Lauk stúdentsprófi frá MR 1963. Stundaði nám við læknadeild HÍ 1963-1965, en síðan í lagadeild og lauk þaðan prófi 1972. Var stundakennari í gagnfræða- deild Hlíðaskóla í Reykjavík 1963- 1967 og framkvæmdastjóri Stjórnun- arfélags íslands 1972-1978. Formaður Sambands ungra sjálf- stæðismanna 1973-1977 og varafor- maður Sjálfstæðisflokksins frá 1981- 90 og aftur frá 1991. Var kjörinn alþingismaður Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík árið 1978. Gegndi starfi iðnaðarráðherra í stjórn Þorsteins Pálssonar 1987- 1988. Davíð Oddsson, forsætis-, og hagstofuráðherra Fæddur 17. janúar 1948. Foreldrar: Oddur Ólafs- son læknir og Ingibjörg Lúðvíksdóttir húsmóðir. Maki: Ástríð- ur Thoraren- sen húsmóðir. Lauk stúdentsprófi frá MR árið 1970. Innritaðist síðan í lögfræði í HÍ og lauk þaðan prófi árið 1974. Jafn- hliða lögfræðinámi vann hann sem leikhúsritari hjá Leikfélagi Reykja- víkur á árunum 1970-1972. Næstu tvö ár var hann einn af þingfréttarit- urum Morgunblaðsins og skrifaði einnig Staksteina á móti Haraldi Blöndal. Var kjörinn varaformaður Sjálf- stæðisflokksins árið 1990 og formað- ur hans árið 1991. Kjörinn borgarfulltrúi í Reykjavík árið 1974 og borgarstjóri í Reykjavík frá 1982. Hefur ekki áður setið á Alþingi. FVRK MIEM BÚAÚHÁIANM Frítt innanlandsflugfrá öllum áfangastöðum Flugleiða í eftirtaldar ferðir: 13.6. og 4. 7. til COJTA DEL JOL Glœsilegir gististaðir og iðandi mannltfí Torretnolinos. Verðfrá 58.360 kr. á mann. * Haföu samband viö söluskrifstofur okkar eöa nœsta umboösmann og tryggöu þér sceti í líflegustu sólarferöir ársins. * Verðdœm 't miðastvið 4 samati í 2ja herb. íbúð í 3 vihur, staðgreiðslu oggetigi 4. april 1991. Flugvallarshattur ogforfallagjald er ekki itwifalið. 22.6. og 13. 7. ti/ MAQAUIF Á MAUORCA Einn líflegasti sólarstaðurinn við Miðjarðarhafið. Verðfrá 53.860 kr. ámann.* ^Nrval-útsýn ^^^^\^^\* í Mjódd: sími 60 30 60; við Austurvött; sími 2 69 00; í Hafnarfirði: sími 652366; við Ráðhústorg á Akureyri: simi 2 50 00 - og hjá umboðsmónnum um allt land.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.