Dagur - 04.05.1991, Blaðsíða 13

Dagur - 04.05.1991, Blaðsíða 13
Laugardagur 4. maí 1991 - DAGUR - 13 Verkalýðsfélag Húsavíkur: GÚMMÍMOTTUR HJOLBARÐAR Fjölmenni á hátíðarsamkomu VW Golf Pajero Kyn Komið, sjáið og sannfærist um að bíll i^jfig! frá Heklu hf. borgar sig Coce Laugavegi 170-172 Simi 695500 Reynsluakstur! Möldur sf. Símar 27385 & 21715 • Fax 96-11152. GV gúmmímottur eru nauðsynlegar í bása hjá hestum og kúm, því að þær eru mjúkar, stamar, einangrandi og auðveldar í þrifum. Dráttarvélahjólbarðar heyvinnuvélahjólbarðar - vörubílahjólbarðar - fólks- bílahjólbarðar. Hjá GV fást hjólbarðar undir allar gerð- ir ökutækja. Gúmmívinnslan hf. Réttarhvammi 1, Akureyri, s. 96-26776. RÍLjtSÝtfbfáA í ^ ■ MITSUBISHI verður í sýningarsal Höldurs að Tryggvabraut 10, helgina 4.-5. maí frá kl. 13.00-17.00 báða dagana NYTT! TRÁN5P OKTER , L200 5 manna með palli (Aiíiaki gömlu ,, hálikassabílanna'') - vönduð og skemmtileg dagskrá á Húsavík 1. maí Troðfullt var í Félagsheimili Húsavíkur 1. maí, er á fimmta hundrað manns komu á afmæl- is- og hátíðarsamkomu Verka- lýðsfélags Húsavíkur. Vel var vandað til dagskrár hátíðarinn- ar og var fjölmörgu listafólki sem þar kom fram vel fagnað. Samkomugestir gæddu sér síð- an á kaffi og köku, en á borð- um var marsipanterta í fer- metratali frá Brauðgerð KÞ. Helgi Bjarnason, formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur setti samkomuna og sagði hann að í tilefni af 80 ára afmæli félagsins 11. apríl sl. hefði verið ákveðið að láta skrifa sögu félagsins. Síð- an lék Léttsveit Húsavíkur Internationalinn og samkomu- gestir risu úr sætum sínum. Sigurður Hallmarsson var kynnir á samkomunni og As- mundur Stefánsson, forseti ASÍ, flutti hátíðarræðu. Sigrún Hjálm- týsdóttir söng við undirleik Onnu Guðnýjar Guðmundsdóttur. Var þeim innilega fagnað og voru þær tvisvar klappaðar upp og fluttu aukalög. Diddú heillaði Húsvík- inga hreinlega upp úr skónum með ágætum söng, leik og elsku- legri framkomu. Félagar úr Leikfélagi Húsavík- ur fluttu þætti úr sögu Verkalýðs- félagsins sem Þorkell Björnsson hafði tekið saman. Flytjendur auk hans voru: Sigurður Hall- marsson, Hrefna Jónsdóttir og Regína Sigurðardóttir. Þorgerður Þórðardóttir, fyrr- verandi formaður Verkakvenna- félagsins Vonar ávarpaði sam- komuna. Snær Karlsson, fyrrver- andi starfsmaður Verkalýðsfé- lagsins flutti því kveðju sína, en flestum fyrrverandi starfsmönn- um var boðið til samkomunnar. Verkalýðsfélaginu bárust glæsilegar blómakörfur og kveðjur. Helgi Bjarnason afhenti gjafir í tilefni afmælisins, til Iþróttafélagsins Völsungs og Safnahússins á Húsavík. Garðar Jónasson tók við gjöf Völsungs, loforði um mörk á knattspynu- vellina til notkunar fyrir yngri flokkana og 150 þúsund krónum. Finnur Kristjánsson tók við gjöf til Safnahússins, 500 þúsund krónum til byggingar Sjóminja- safnsins. Flosi Ólafsson flutti einstaka, ábyrga baráttu og hátíðarræðu sem féll í mjög góðan jarðveg. Að lokum lék Léttsveit Húsavík- ur öðru sinni af miklu fjöri undir stjórn Norman Dennis. Náði hann í nokkra víðþekkta sam- Diddú, Sigrún Hjálmtýsdóttir söng við undirlcik Önnu Guðnýjar Guð- mundsdóttur við mikla hrifningu samkomugesta. komugesti og dreif þá í bjöllu- bumbuhljómsveit, til undirleiks með Léttsveitinni. Hin fjölsótta hátíðarsamkoma fór vel fram og er þeim er að stóðu til sóma. Dagur segir síðar nánar frá hátíðarhöldunum í myndum og máli. IM

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.