Dagur - 27.11.1993, Síða 5
FRETTI R
Akureyri:
Verslimaraiiðstöðin Krónan eins árs
- framkvæmdir við annan áfanga á lokastigi
ió og Akureyrarbær kaupi aögengi
fyrir Heilsugæslustöðina í gegnum
Krónuna, nýti lyftur og opnast þá
leió um húsió frá Oddagötu nióur
í göngugötu og öfugt. Viðræöur
við þessa aóila hafa staðiö um
nokkurn tíma og er stcfnt aó því
að ganga frá samningi á næstu
dögum. Verður þá hafist handa
við að fullgera húsið, með lyftu og
tengingu yfir í Amaróhúsið að
Hafnarstræti 99.
Hluthafar í byggingarfélaginu
Lind hf. eru llestir aðilar í bygg-
ingariðnaði og hugmynd þcirra í
upphall var aó skapa sér vinnu við
bygginguna, ásamt því að byggja í
þaó skarð er var við húsaröð
göngugötunnar og skapa þannig
fallegri miðbæ. Vonast aðstand-
endur félagsins til að þessu mark-
ntiði verði náð, aó félagið komist
heilt frá verkinu og aó viðskipta-
vinir og gestir bæjarins kunni vel
að meta Verslunarmiðstöðina í
framtíðinni. KK
Verslunarmiðstöðin Krónan í
göngugötunni á Akureyri fagn-
ar eins árs afmæli um þessar
mundir. Illutafélag um bygg-
ingu verslunar- og skrifstofu-
hússins að Hafnarstræti 97, var
stofnað 8. desember 1988 og var
nefnt byggingarfélagið Lind hf.
Hluthafar voru 10 í upphafi,
ýmis verktakafyrirtæki og ein-
staklingar.
Framkvæmdir við byggingu
hússins hófust sumarið 1989 en
stöðvuðust síðan um haustið.
Sumarið 1991 var hafist handa að
nýju og fyrstu verslanirnar fluttu
inn á götuhæðina í nóvember
1992 og húsið skýrt Verslunar-
miðstöðin Krónan.
Nú ári síðar er fyrsta áfanga
hússins lokið með því að sjö
verslanir hafa opnað á fyrstu hæð-
inni. Þegar er hafin vinna við ann-
an áfanga, frágang annarrar hæðar
en þar er áætlað að verói sjö versl-
anir til viðbótar. Framkvæmdir
eru á lokastigi en óvíst er hvenær
hægt verður aó opna þar verslanir
en eigendur ætla að lcigja eða
selja verslunarsvæðið.
Þá hefur lengi staðið til að Rík-
í tilefni eins árs afmælis Vcrslunarmiðstöðvarinnar Krónunnar á Akureyri
var gestum boðið upp á afmælistcrtu og kaffisopa í vikunni. Verslanir í
Krónunni verða opnar í dag frá kl. 10-16 og á morgun frá kl. 13-17.
Mynd: Robyn
Þingeyjarsýslur:
Verslumn Þingey með
lægsta vöruverðið
Verslunin Þingey á Húsavík reyndist með lægsta vöruverð í 10 til-
fellum af 15 í verðkönnun sem Verkalýðsfélag Þórshafnar hefur sent
frá sér. Könnunin náði til verslana í Þingeyjarsýslum og var hún
gerð 18. nóvember sl. Verslunin Þingey var einnig eina verslunin
sem hafði á boðstólum allar þær vörur sem könnunin náði til.
1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9.
Kclloggs kornncks 500 g. - 283 257 361 280 314 239 235 299
Aricl Ultra 2 kg. - 894 768 - 750 - 756 - -
Rivcr hrísgr. 3 Ib. - - 254 - 265 - 234 233 298
Frón mjólkukex 175 146 120 139 151 139 117 115 169
Toro sveppasúpa 95 - 82 - 78 96 96 72 89
DDS sykur 2 kg 166 147 125 98 137 114 125 114 129
Sano majoncs - - - 195 172 193 143- 142 195
Flórukakó 400 g. 310 304 224 299 - 239 267 254 299
Lux sápa 125 gr. - 53 48 56 59 56 60 49 -
Vcx uppþv. gulur - 148 119 - - 139 120 119 153
Colgate tannkr. - - 251 - - 277 239 208 277
Libbys tómatsósa - 119 115 143 125 143 108 99 138
Saltkjöt 1 kg 625 515 610 654 580 - 645 625 326
Nautafilc 1 kg - 2106 - - - - 2055 - -
Pampers maxi pl. 1145 1307 1220 1095 1193 1165 1059 998 -
Eftirtaldar vcrslanir tóku þátt í könnuninni: 1. Vcrslunarfélag Raufar-
hafnar. 2. Kaupfélag Langnesinga á Þórshöfn. 3. KEA Grenivík. 4.
Laugaverslunin. 5. Verslunin Kópaskcri. 6. KÞ Fosshóli. 7. KÞ-Matbær,
Húsavík. 8. Þingey, Húsavík. 9. Búrfell, Húsavík.
Hraðsveitakeppni Bridgefélags Akureyrar:
Sveit Reynis leiðir
Hraðsveitakeppni Bridgefélags
Akureyrar hófst í Hamri sl.
þriðjutlagskvöld. Eftir fyrsta
spilakvöldið af fjórum, er sveit
Reynis Helgasonar í efsta sæti
með 305 stig.
Svcit Antons Haraldssonar er í
2. sæti með 295 stig cn jafnar í 3.-
4. sæti cru sveitir Ragnhildar
Gunnarsdóttur og Stefáns G.
Svcinssonar mcð 291 stig. Mcðal-
skor var 270 stig.
Ef'stu pör í Sunnuhlíðarbridds
sl. sunnudagskvöld urðu; Jón
Sverrisson og Asgeir Valdimars-
son mcð 132 stig, Jónína Pálsdótt-
ir og Una Sveinsdóttir með 124
stig og Magnús Magnússon og
Stefán Sveinsson nteð 122 stig.
Lítil þátttaka var í Landství-
ntenningnum (Philip Morris) á
Akureyri. Bestum árangri náðu
þeir Sigurbjörn Haraldsson og
Rcynir Helgason scm fengu
62,07% skor og urðu í 4. sæti í
N/S riðli yfir landið. Riðilinn
unnu þeir Sveinn Herjólfsson og
Þorsteinn Bcrgsson frá Bridgefé-
lagi Fljótsdalshéraðs, rneð 65,44%
skor. KK
Frsftrestii
FM 98,7 • Sími 27687
Dabbi Rún og Siggi Rún
alla virka daga milli
kl. 9.00 og 12.00.
Laxveiðimenn
Laxveiðimenn
Veiðifélag Fnjóskár óskar eftir tilboðum í
Fnjóská, veiðitímabilið 1994.
Skilafrestur er 15. des. 1993.
Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öll-
um.
Upplýsingar veitir Sveinn Sigurbjörnsson í síma 96-33167
eða Benedikt Sveinsson í síma 96-33267.
NORÐURLANDS HF.
Hlutaf járútboð í nóvember 1993
HlutabréfasjóSur Norðurlands hf. var stofnaður 14. nóvember 1991
og varð því tveggja ára í þessum mánuði.
Tilgangur með rekstri félagsins er að skapa farveg fyrir samvinnu lögaðila
og einstaklinga um fjárfestingar í hlutabréfum
og skuldabréfum atvinnufyrirtækja.
Fjárfestingarstefna félagsins miðar að (oví að 40-70% af eignum félagsins
sé að jafnaði bundið í hlutabréfum og 25-60% í skuldabréfum.
Ávöxtun, stærð og hluthafar:
Þau tvö ár sem félagið hefur starfað hafa hlutabréf þess
hækkað í verði um 19%, eða sem svarar til 6,7% raunávöxtunar á ári.
Sjóðurinn er nú um 65 milljónir króna að stærð og hluthafar tæplega 500.
Stjórn og rekstraraðili:
Stjórn félagsins skipa Róbert B. Agnarsson, bæjarstjóri, formaður,
Ingi Björnsson, framkvæmdastjóri og Halldór Jónsson, bæjarstjóri.
I varastjórn eru þau Lilja Steinþórsdóttir, löggiltur endurskoðandi,
Kári Arnór Kárason, framkvæmdastjóri og Arni Magnússon, fjármálastjóri.
Dagleg stjórnun félagsins er í höndum starfsmanna
Kaupþings Norðurlands hf. á Akureyri.
Framkvæmdastjóri er Jón Hallur Pétursson.
Söluaðilar útboðsins:
Fjárfestingarfélagið Skandia hf., Handsal hf., Kaupþing hf., Kaupþing Norðurlands hf.,
Landsbréf hf., Verðbréfamarkaður Islandsbanka hf., Verðbréfaviðskipti Samvinnubankans,
auk afgreiðslna Búnaðarbankans og sparisjóðanna.
Umsjón með útboði:
Kaupþing hf. Kringlunni 5, 103 Reykjavík, Sími 91-689080 og
Kaupþing Norðurlands hf., Kaupvangsstræti 4, 600 Akureyri, Sími 96-24700.