Dagur - 18.11.1994, Síða 7

Dagur - 18.11.1994, Síða 7
Föstudagur 18. nóvember 1994 - DAGUR - 7 HVAÐ ER AÐ O E RAST? Basar og kaffisala Kvenfélags Akureyrarkirkju Akureyrarkirkja var vígð 17. nóvember 1940. Hefur þess árlega verið minnst með hátíðarathöfn í kirkjunni á næsta sunnudegi vió vígsluafmælið og hefur Kvenfélag Akur- eyrarkirkju þá jafnan haft veitingar á borðum eftir þá athöfn og fjáröflun til ágóða fyrir kirkjuna. Að þessu sinni verður kvenfélagið með basar og kaffisölu í Safnaðarheimilinu eftir messu nk. sunnudag. Allur ágóði rennur í orgelsjóó kirkjunnar, en mikil og dýr við- gerð á orgelinu er framundan. Safnaðarfólk er hvatt til kirkjugöngu á sunnudaginn og til að leggja konunum og um leió góóum mál- stað lið. Páll Óskar og Milljónamær- ingarnir á KEA Páll Oskar og Milljónamæringarnir leika fyr- ir dansi á Hótel KEA annað kvöld, laugar- dagskvöld. Rétt er að minna á laugardagstil- boð hótelsins sem samanstendur af krydd- leginni hörpuskel, grísalundum í salthnetu- hjúp og pistasíutertu. Verð kr. 2800. Vaxtarrækt í Sjallanum Forkeppni Islandsmótsins í vaxtarrækt verð- ur í Sjallanum á morgun kl. 14. Annað kvöld verða úrslit og boðið upp á kvöldverð. Þá verður sýnd hár- og fatatíska og ennfremur verður danssýning. Diskótek og Na_mm leik- ur fyrir dansi. Miðaverð kr. 2900. í Kjallar- anum spilar Örvænting í kvöld og annað kvöld og Amar Guðmundsson verður í kvöld og annað kvöld á Góða dátanum. Risabingó í Höllinni Körfuknattleiksdeild Þórs stendur fyrir risa- fjölskyldubingói í Iþróttahöllinni á Akureyri nk. sunnudag kl. 16. Urval glæsilegra vinn- inga frá Radíónausti. Kynnir veróur Karl E. Pálsson, fréttamaður. Land míns föður á Dalvík Leikfélag Dalvíkur verður með þrjár sýning- ar um helgina á Land míns föður eftir Kjart- an Ragnarsson. Sýnt verður í kvöld, annað kvöld og sunnudagskvöld kl. 21 öll kvöldin. Sýnt er í Ungó. Miðasala kl. 17-19 sýningar- dagana í Lambhaga í síma 61900 og í Ungó í sama síma eftir kl. 19 fram að sýningu. Tek- ió er við pöntunum í símsvara allan sólar- hringinn. LA sýnir BarPar Leikfélag Akureyrar sýnir um helgina Bar- Par. Sýnt verðuL-í kvöld og annað kvöld kl. 20.30 í Þorpinu við Höfðahlíð. Athygli skal vakin á því að þetta er næstsíðasta sýningar- helgi. Aðalbjörg María í Deiglunni Á morgun, laugardag, kl. 14 vcrður opnuð í Deiglunni sýning á verkum Aó- albjargar Maríu Ólafsdóttur - Öddu. Sýningin cr á vcgum Menningarsamtaka Norólendinga. Myndir Öddu veróa cinnig til sýnis á Súlnabergi og Byggða- stofnun á Akureyri eins og vcrió hcfur með áðra þátttakendur í listkynningum samtakanna. Adda sýnir 17 málvcrk. Sýningin cr opin kl. 14-18 daglcga og stendur hún til 27. nóv. nk. Adda nam við Myndlistaskólann á Akurcyri 1980-1981 og 1982-1985. Hún var í uppeldis- og kennslufræði í KHÍ á árunum 1990-1992. Adda tók þáti í samsýningu norðlenskra kvcnna árió 1985 og listkynningu Alþýðubank- ans 1986. Hún hefur starfaó við mynd- listarkennslu frá 1986. Spilavist í Hamri Félagsvist verður í Hamri, félagsheimili Þórs á Akureyri, næstkomandi sunnudagskvöld kl. 20. Keppt verður um veglega vinninga og em allir velkomnir á félagsvistina. Styrktarsamkoma Lions- manna í Laugarborg I tengslum vió 20 ára starfsafmæli Lions- klúbbsins Vitaðsgjafa í Eyjafirði verður haldin styrktarsamkoma í félagsheimilinu Laugarborg næstkomandi laugardagskvöld og hefst hún kl. 22. Samkoman er haldin til stuðnings söfnun Lionsmanna fyrir þjálfun- arlaug vió endurhæfingardeild FSA á Krist- nesi. A skemmtuninni syngur Leikhúskvar- tettinn lög úr væntanlegri sýningu Leikfélags Akureyrar á „Svörtum fjöðrum", Freyvangs- leikhúsió bregóur upp nokkrum Kabarettat- riðum og Einar Georg Einarsson, Lionsmað- ur og pistlahöfundur úr Hrísey flytur orð kvöldsins. Einnig spilar harmoníkuhljóm- sveit Þuríðar og hásetanna og henni til að- stoðar verður hljómsveitin „Fimmtán % fé- lagsmannaafsláttur". Miðaverð á skemmtun- inaerkr. 1500. Hagar hendur með sölusýningu Samstarfshópurinn Hagar hendur verður með sölusýningu í Blómaskálanum Vín í Eyjafjarðarsveit um helgina, á morgun og sunnudag kl. 12-19 báða dagana. í boði verður fjölbreytt úrval af gjafa- og nytjavör- um, t.d. skartgripir úr homi, beini og silfri, auk úrvals af sokkum, vettlingum og húfum. Þá verður margt annað á boðstólum. Allt er þetta handverk unnið í Eyjafjarðarsveit. Tríó í Deiglunni Næstkomandi sunnudag, 20. nóvember, leika þrír kcnnarar úr Tónlistarskólanum á Akureyri, þau Eileen Silcocks, Jacqueline Simm og Richard Simm, barokktónlist fyrir blokkflautu, óbó og sembal eftir Telemann, Totteterre, Scarlatti, Chédeville og Vivaldi í Deiglunni á Akureyri kl. 17. Þrír í Þingi A morgun, laugardag, kl. 15 verð- arfélaginu en Myndsmiðjan var ur opnuð í Listhúsinu Þingi á Ak- forveri Myndlistaskólans á Akur- ureyri myndlistarsýning þciira Jó- eyri. Óli starfar nú scm sjómaður hanns Nóa Ingimarssonar, Óla G. og rifstjóri Ölduróts auk þess að Jóhannssonar og sonar hans Arnar stunda málverkið. Ólasonar. Jóhann Óli Ingimarsson er Öm Ólason er fæddur 1971. fæddur 1926. Hann hefur starfaó Hann stundar nú nám við Emely sem framkvæmdastjóri og hús- Carr listaskólann í Kanada. A gagnahönnuður. Hann var um ára- þessari fyrstu sýningu Amar sýnir bil framkvæmdastjóri og rak hann 17 teikningar. ásamt eiginkonu sinni húsgagna- Óli G. Jóhannsson cr fæddur vcrslunina Örkin hans Nóa og cr 1945. Hann sýnir að þessu sinni nú einn eigenda Öndvegs, sem er 19 málverk, það elsta frá 1992. ný húsgagnaverslun við Dals- Óli hcfur haldið fjölda sýninga frá braut. Jóhann hefur lagt gjörfa árinu 1972. Hann hefur haldið hönd á máiverk og höggmyndir einkasýningar á Norðurlandi, og tekið þátt í sýningum. Á sýn- cinnig hcfur hann sýnt á Kjarvals- ingunni í Þingi sýnir hann 5 ný stöðum, í Norrætw húsinu og þrívíddarverk. Listasafni alþýðu. Óli var einn Málverk Óla G. og teikningar stofncnda Myndlistarfélags Akur- Amar cru til sölu. Verð málverk- eyrar og fyrsti formaður þess. anna er á bilinu 50-180 þúsund en Eigandi Gallerýs Háhóls á Akur- tcikningamar kosta 15-20 þúsund. cyri ásamt eiginkonu, cn Háhóll Sýningin er opin laugardaga var lyrsta gallerýið á íslandi. Óli og sunnudaga kl. 15-20 og virka vann að stofnun Myndsmiðjunnar daga kl. 17-20. Sýningunni lýkur í formannstíð sinni hjá Myndlist- 27. nóvcmbcr. komnir. Klukkan 23 verður salurinn rýmdur og tónlistin rokkuð upp. Aldurstakmark árg. 1980. Miðaverð kr. 300. Tónleikar og jólabasar Haldnir veróa tónleikar og jólabasar í Tón- menntaskólanum í Lóni v/Hrísalund nk. sunnudag kl. 14. Nemendur flytja fjölbreytta efnisskrá og verður aógangur ókeypis. Allir eru velkomnir. Á basarnuni verður margt fallegra og eigulegra muna. Ágóóinn rennur í hljóófærasjóó Tónmenntaskólans. Laufabrauðs- og kökubasar Jafnaðarmannafélag Akureyrar verður með árlegan laufabrauðs- og kökubasar í Laxa- götu 5 á morgun, laugardag, kl. 14. Kynningarfundur FAASAN Félag aðstandenda Alzheimer sjúklinga á Akureyri og nágrenni heldur fund í Dvalar- heimilinu Hlíð á morgun, laugardag, kl. 13. Kynnt verður starfsemi sambýla í Reykjavík fyrir Alzheimer sjúklinga. Allt áhugafólk er velkomið. SSSól á Húsavík SSSól veróur með tónleika í Heiðarbæ á Húsavík í kvöld og annað kvöld verður sveitin á Eskifirói og á Vopnafirði á sunnu- dagskvöldið. A þessum tónieikum kynnir SSSól efni af nýútkomnum geisladiski. Heimir með tónleika Karlakórinn Heimir í Skagafirði heldur tón- leika í Akureyrarkirkju á morgun, laugardag, kl. 17 og í Freyvangi annað kvöld kl. 21. Söngstjóri Heimis er Stefán R. Gíslason. Söngskráin er fjölbreytt eftir innlenda og er- lenda höfunda. Einsöng með kórnum syngja Einar Halldórsson og Pétur Pétursson, þrí- söng syngja Bjöm Sveinsson, Pétur Péturs- son og Sigfús Pétursson og einnig Gísli Pét- ursson, Hjalti Jóhannsson og Jón St. Gísla- son. Söngvarar í Karlakómum Heimi eru 60. íslands- Sambíóin og Borgarbíó á Akureyri frumsýna í kvöld, föstudag, spennu- tnyndina The Specialist eó:t Sérfræðing- urinn eins og hún hefur verió nefnd á ís- lensku. Mcð aðalhlutvcrkin fara Syl- vester Stallone og Sharon Stone en með önnur hlutverk fara m.a. Eric Roberts, James Woods og Rod Stciger. Myndin segir frá sprengjusérfræð- ingnum Ray Quick (Stallone) sem hittir fyrir hina undurfögru May Munro (Stone) og heillast umsvifalaust upp úr skónum. Hún sækist eftir hefnd á niorð- ingjum forcldra sinna og hefur árum saman skipulagt andsvar sitt og finnst nú vcra kominn tími á aðgerðir. Myndin cr ekta spennuntynd og hún hefur gengið ntjög vel vestur í Banda- rikjunum. En sjón er sögu ríkari. Mynd- incr bönnuðinnan 16ára. Baldursbrá með jólabasar Kvenfélagið Baldursbrá hcldur sinn árlega jólabasar nk. sunnudag í anddyri Glerár- kirkju. Konurnar hafa komið saman einu sinni í viku til að búa til fallega jólamuni. Þar má finna marga eigulega muni, hvort heldur til gjafa eða til að skreyta með fyrir jólin. Auk þess verða kökur og ýmislegt ann- aó nytsamlegt og spennandi til sölu. Sjö stelpur á Húsavík Leikklúbbur Framhaldsskólans á Húsavík, Piramus og Þispa, sýnir verkið Sjö stelpur eftir Erik Thorstenson í Samkomuhúsinu í kvöld, föstudag, kl. 20.30 og á morgun, laugardag, kl. 16. Leikstjóri er Sigurður Hallmarsson. Haustmót Skákfélagsins Haustmót Skákfélags Akureyrar fyrir 12 ára og yngri og 13-15 ára hefst á morgun, laug- ardag, kl. 13.30. Kaffíhúsastemmning í Dynheimum í kvöld, föstudag, veróur kaffihúsastemmn- ing í Dynheimum kl. 21-23. Hægt veróur að sitja og hlusta á rólega tónlist 1 flutningi hljómsveitarinnar Asks Yggdrasils við kerta- ljós og njóta léttra veitinga. Foreldar eru vel- V AKUREYRARBÆR Hundaeigendur Akureyri Aukadagur verður í hundahreinsun föstudaginn 18. nóvember kl. 16-19 í Gróðrarstöðinni v/Krók- eyri. Framvísa ber kvittunum fyrir greiðslu leyfisgjalds og ábyrgðartryggingar hundsins. Áríðandi er að hundaeigendur mæti með hunda sína svo komist verði hjá óþarfa óþægindum og kostnaði. Akureyrarbær — Heilbrigðiseftirlit. J í bamadeild aukaafsláttur við kassa Aðeins föstudag, laugardag og sunnudag HAGKAUP gceöi úrval þjónusta

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.