Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1995, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1995, Page 4
4 LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1995 Fréttir Fjármálaráðherra sakaður um hótanir - vildi til hagræðingar ræða tvö frumvörp í einu Þingflokkur Alþýöubandalagsins, meö Olaf Ragnar Grímsson í broddi fylkingar, kom í veg fyrir að Friörik Sophusson fjármálaráðherra gæti mælt fyrir báðum áfengislagafrum- vörpum ríkisstjórnarinnar á Alþingi í gær. Annars vegar er um er að ræða frumvarp um afnám á einka- rétti ÁTVR til innflutnings á áfengi og hins vegar frumvarp um gjald- töku af innfluttu áfengi í stað vín- andagjalds. í upphafi þingfundar óskaði Frið- rik Sophusson eftir því að fá aö tala fyrir báðum frumvörpunum í einu enda væru þau efnislega skyld. Þá kom fram í máli Friðriks að hann þyrfti að sitja fund íjármálaráðherra Norðurlanda og OECD-fund í byijun næstu viku og gæti þar að leiðandi ekki tekið þátt í umræðum um frum- vörpin. Ólafur Ragnar Grímsson túlkaði ræðu Friðriks á þann veg að ef stjómarandstaðan samþykkti ekki ósk hans um að ræða bæði frum- vörpin í einu myndi ríkisstjómin framvegis leggja skyld framvörp fram í formi bandorms. Þetta sagði Ólafur vera óásættanlega hótun og þverneitaði fyrir hönd Alþýðubanda- lagsins að verða við ósk Friðriks. Þegar þetta var ljóst mælti Friðrik fyrir frumvarpinu um afnám einokun- ar ÁTVR til innflutnings. Umræðu um frumvarpið var síðan frestað laust eftir klukkan 14.00 í gær. Frumvarpið um gjaldtöku af innfluttu áfengi var hins vegar tekið út af dagskrá. Búist er við hörðum deilum um áfengislagaframvörp ríkisstjórnar- innar. Innan Framsóknarflokksins eru skiptar skoðanir um frumvörpin, einkum vegna aukins frjálsræðis í innflutningi áfengis, og því ekki ólík- legt að tekist verði á um málið á stjómarheimilinu. Þá er mikil and- staða við frumvörpin innan Alþýðu- bandalagsins, ekki síst vegna þess að fyrirsjáanlega mun starfsmönn- umATVRfækka. -kaa Honda á íslandi frumkynnir um helgina nýjan 5 dyra Honda Civic. Þó að þessi bíll heiti gamal- kunnu nafni er þetta engu að síö- ur nýr bíll að flestu leyti og um margt afar áhugaverður. Verð á þessum fimm dyra bíl er frá 1.259.000 krónum. Sýningin stendur i dag, laugar- dag, klukkan 10-17, og á morgun, sunnudag, klukkan 13-17. Eldur í Moldariirauni Miklir sinueldar loguöu í Mold- arhrauni, austan Reykjanes- brautar, síðdegis í gær. Erfiðlega gekk að slökkva þá þar sem mik- il glóð var í mosa í hrauninu. Fiöldi manna reyndi fram eftir degi að slökkva eldana. Var allt slökkviliðíð Hafnarfjarðar kallað úttilslökkvistarfa. -pp Hundabanniö í Álakvísl: Stríðsástand sem varð að linna - segir Ami Sigfú: „Það er í mlnum huga alveg ljóst að þetta stríðsástand sem er þarna snýst um meira en hundinn. Þetta eru nágrannaeijur," segir Árni Sig- fússon borgarftílltrúi vegna þeirrar ákvörðunar borgaráðs að svipta Runólf Oddsson leyfi til að halda hund. Runólfur sagði í DV í gær að þama væri um að ræða pólítískar ofsóknir R-listans gagnvart sér sem byggðust á því að hann er bróðir Dayíðs Oddssonar forsætisráðherra. Árni segir að málið snúist ekki um pólítískar ofsóknir að sínu mati held- ur sé þarna um að ræða afgreiðslu byggöa á framkomnum gögnum. „íbúarnir lögðu fram myndir af garðinum og það varð til þess að 5onborgarfúUtrúi þessi ákvörðun var tekin. Eg kannast ekki við neinar pólítískar ofsóknir í þessu máli,“ segir Ámi. Páll Pétursson félagsmálaráö- herra, sem vísaði máli Ruriólfs til umhverfisráðuneytisins eftir að Runólfur hafði krafist þess aö hann viki sæti sem félagsmálaráðherra vegna tengsla við Sigrúnu Magnús- dóttur, segir að ekkert óeðlilegt sé við þá afgreiðslu. „Þetta er mál sem okkur kemur ekkert við þar sem lögin um hunda- hald og lögin um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit eru á verksviði umhverfisráðuneytisins. Þess vegna var kæran send þangað," segir Páll. -rt Blönduós: Hjálmur bjargar barni „Sex ára strákur var að klifra í spýtnahaug á svæði byggingaverk- taka hér á Blönduósi, hrasaði, lenti í grjóti og fékk spýtumar yfir sig. Hann hlaut nokkra áverka í andliti og hjálmurinn á höfði hans sprakk. Ég er ekki í nokkrum vafa um að hjálmurinn kom í veg fyrir stór- slys,“ sagði kona á Blönduósi sem hafði samband við DV gær. Hún sagði byggingaverktaka við aðalgötuna ekki fá að girða af svæði sitt vegna einhvers bæjarskipulags ogþaðbyðihættunniheim. -SV Mokveiði er nú á síldarmiðunum inni i færeysku lögsögunni. Skipstjórar segjast aldrei hafa séð aðra eins veiði og eru skipin aðeins nokkra tíma að fylla sig. Þarna má sjá Guðrúnu Þorkelsdóttur SU þar sem hún dælir úr nót Barkar NK. Kastið var alls um 1300 tonn og Guðrún fékk 500 tonn af þvi. DV-mynd Hjörvar Sigurjónsson Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur um BláfjaUasvæðið: Eldgos eða jarðskjálfti af stærðinni 7 mögulegur - gætihaftáhrifábyggðaþróunáhöfuðborgarsvæðinu „Það er brýnt aö hefja rannsóknir á svæðinu á milli Hellisheiðar og Bláfjallasvæðisins með tilliti til jarð- skjálftahættu á svipaðan hátt og gert er á Suðurlandsundirlendi. Mér finnst að hægt sé að búast við heldur stærri jarðsKjálftum þamg en sögu- legar heimildir gefa tU kynna. Svæð- ið er meira en hugsanlegt jarð- skjálftasvæði - það er jafnvel líka eldgosasvæði. Þama hófst mikið gos í kringum árið 950. Það hefði mikil áhrif á byggðaþróun á höfuðborgar- svæðinu ef gosvirkni hæfist þama aftur,“ sagði Ragnar Stefánsson jarð- skjálftafræðingur í samtali við DV. Ragnar hefur lagt til að sveitarfé- lögin á höfuðborgarsvæðinu skipi vinnuhóp jarðskjálfta- og jarðfræð- inga til að rannsaka svokallað Blá- fjallasvæði sem hefur orðið útundan hvað jarðskjálftamælingar varðar. Svæðin fyrir vestan það, á Reykja- nesi, og austan, t.a.m. við Hvera- gerði, séu virk og stööugt fylgst með þeim. Svæðið á milli virki hins vegar sem risafleki sem mikil spenna gæti verið að myndast á - eða þá að spenn- an losni um leið og landið færist, við svokallað misgengi. „Það vantar útbúnað á þetta svæði, sérstaklega með tilliti til þess hve margir íbúar eru á höfuðborgar- svæðinu," sagði Ragnar. „Það hefur orðið útundan í rannsóknum og við gætum vitað miklu meira um þaö. Við gætum hins vegar allt eins kom- ist að þeirri niðurstöðu að spenna á þessu svæði leystist út með hægu skriði - það er vissulega betri niður- staöa.“ Ragnar hefur sent borgarstjóra og öðrum sveitarstjórnum á höfuðborg- arsvæðinu erindi þar sem lagt er til að komið verði upp þremur jarð- skjálftamælistöðvum á Bláfjalla- svæðinu tengdum Veöurstofunni til rannsóknanna. Stofnkostnaður yrði 5 milljónir en rekstrarkostnaður áætlaður 1,2 milljónir á ári. Þá óskar Ragnar eftir að 2 milljónum verði varið í rannsóknir á nýjum og göml- um gögnum frá svæðinu. Hann hefur gert Almannavömum grein fyrir málinu auk ýmissa stofnana, t.d. hitaveitna, sem væntanlega myndu koma að rannsóknunum með ýms- um hætti. -Ótt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.