Þjóðviljinn - 25.11.1944, Page 3
7
Laugardagur 25. nóv- 1944.
ÞJÓÐVILJINN
3
Málgagn
Æskulýðsfylkingarinnar
(Sambands ungra sósíalista)
Greinar og annað efni
sendist á skrifstofu félags-
ins, Skólavörðust. 19, merkt
„Æskulýðssíðan“.
4. þing Æskulýðsfylkingarinnar hófst
i Reykjavík 19. nóvember síðastliðinn
Á þíngínu mæta um 30 fulltrúar víðsvegar að af landínu. Míbíll áhugí er
ríkjandi um málefní alþýðunnar
Æskulýðsfylkingin á
Þingi
Ungum sósíalistum er það
ljóst, að ef hlutur alþýðuæsk-
unnar á ekki í framtíðinni, eins
■og hingað til, að vera borinn
fyrir borð, verður hún sjálf að
taka í taumana, ganga fram fyr
ir skjöldu, berjast fyrir málefn-
um sínum og sýna mátt heillra
og styrkra samtaka- Alþýðuæsk
an verður að sýna í verki, að
hún vilji og geti haft forustuna
um framgang sinna mála. Hún
verðúr að sýna, að hún sé þess
megnug að gegna framtíðarhlut
verki sínu: að skapa verkalýðs-
ríki á íslandi.
Ýmsar raddir hafa heyrzt, sem
vantreysta æskunni 1 þessum
efnum, en róttækari hluti al-
þýðuæskunnar hefur jafnan vís
að slíkum ásökunum á bug.
Ungir sósíalistar eru þess full-
vissir að æskunni er þetta mögu
legt, en gera sér jafnframt ljóst
að til þess þarf starf—þrotlaust
starf — baráttu við niðurrifsöfl
m í þjóðfélaginu, baráttu sem
verður að færa alþýðuæskunni
fullan sigur.
**
Þessa dagana stendur yfir 4.
þing Æskulýðsfylkingarinnar —
Sambands ungra sósíalista —.
Fulltrúar róttækrar alþýðuæsku
úr ýmsum hlutum landsins,
ræða þar hin aðkallandi vanda-
rnál íslenzkrar æsku. Þessir
ungu menn og konur hafa á bak
við sig fjölda ungs fólks úr
Æskulýðsfylkingunni. ungs
fólks, sem á sameiginleg hags-
muna- og velferðarmál. og kepp
ir að sama marki.
Ungir sósíalistar í bæjum,
þorpum og sveitum, fylgjast af
áhuga með hvað gerist á þingi
Æskulýðsfýlkingarinnar. Þetta
unga fólk veit að til umræðu
eru mál. sem snerta kjör þes^
og rétt.
Fjórða þing Æ.F. ber glögg
merki um bjartsýni og baráttu-
vilja. Það er glöggur vottur um
vöxt samtaka hinnar sósíalisku
æsku, og bendir ótvírætt á þá
staðreynd að æskunni er æ bet-
ur og betur að skiljast, að því
aðeins að haldið sé áfram bar-
áttunni gegn afturhaldi og fas-
isma undir merki sósíalismans,
á bjartsýn trú á framtíð ís-
lenzku þjóðarinnar rétt á sér.
Forseti þingsins var kosinn
Halldór Stefánsson, Reykjavík;
varaforseti: Magnús Torfi Ólafs
son, Akureyri; ritarar: Knútur
Skeggjason, ísafirði og Páll
Bergþórsson, Reykjavík.
Forseti fráfarandi sambands-
stjórnar gaf skýrslu um síðasta
starfstímabil. Rætt var um fram
tíðarstarf Æskulýðsfylkingarinn
ar. Þá var og rætt um nýtt laga
írumvarp fyrir sambandið og
hafði Gísli Halldórsson fram-
sögu. Síðan fóru fram nefndar-
kosningar.
Þingið hefur haft til meðferð-
ar ýms mál, svo sem: skólamál,
bindindismál, iðnnemamál, mál
efni sveitaæskunnar, starf æsk-
unnar í verklýðsfélögum, lækk-
un kosningaaldursins, o. fl.
Hér verður getið ályktana í
nokkrum málum, sem þegar
hafa fengið afgreiðslu.
Um lækkun kosningaaldurs.
Framsm-: Haraldur Steinþórss.
4. sambandsþing Æskulýðsfylk
ingarinnar — sambands ungra
sósíalista, skorar á Alþingi að
taka til greina við endurskoðun
stjórnarskrárinnar að færa kqsn
ingaaldurinn niður í 18 ár í
stað 21 árs, eins og nú er.
Þar sem 15—20% starfandi
verkamanna, og a. m- k. jafnstór
hluti starfandi kvenna mun
véra á aldrinum 18—21 árs,
finnst þinginu það eðlilegast að
þessi hluti þjóðarinnar, sem ber
að öllu leyti sömu skyldur og
aðrir þjóðfélagsborgarar, hljóti
einnig sömu réttindi. Þingið á-
telur því það ranglæti að svo
stór hluti þjóðarinnar skuli vera
útilokaður frá því að hafa á-
hrif á opinber mál.
íþróttamál.
Framsm.: Böðvar Pétursson.
Sambandsþing Æskulýðsfylk-
ingarinnar haldið í nóv. 1944,
skorar á deildir sambandsins
að taka íþróttir upp í starfsemi
sinni. Ennfremur vill þingið
nvetja sambandsfélaga til að
efla og styrkja slíkt starf.
Sambandsþing Æskulýðsfylk-
mgarinnar haldið í nóv- 1944,
átelur harðlega þá framkomu
fþróttasamtakanna í landinu.
sem þau hafa sýnt með' afstöðu
sinni til hinnar pólitísku æsku.
Æskulýðshallannálið.
Framsm.: Skúli H. Norðdahl.
Sambandsþing Æskulýðsfylk-
mgarinnar haldið í nóv. 1944,
skorar á þingmenn Sósíalista-
flokksins að beita sér fyrir því
á Alþingi:
að í lögum um Æskulýðshöllina
verði tryggt, að hún verði
einungis notuð í þágu æsku-
lýðsins og félagssamtaka
hans (undanskiljist Bæjar-
bókasafnið),
að Æskulýðshöllin verði rekin
sem menningarfyrirtæki en
ekki sem fjáröflunarfyrir-
tæki.
að engin sérstök æskulýðssam-
tök verði útilokuð frá Æsku-
lýðshöllinni.
Bindindismál.
Fr.s.m.: Böðvar Pétursson og
Gestur Þorgrímsson.
Þing Æskulýðsfylkingarinnar
— sambands ungra sósíalista —
skorar eindregið á allt æskufólk
í landinu og sérstaklega unn-
endur sósíalismans, að taka upp
öfluga baráttu gegn siðleysi á-
fengisneyzlunnar.
1. Með því að gerast virkir
þátttakendur í bindindisstarf
semi, hvar í samtökum sem
er.
2 Með bindindisfræðslu innan
alþýðusamtakanna, þar sem
áherzla sé lögð á, að drykkju
skapurinn er þjóðfélagsböl,
sem kemur sárast niður á
verkalýðnum og öðrum lág-
launastéttum.
V erkalýðssamtökin.
Fr.s.m.: Lárus Bjamfreðsson.
4. þing Æskulýðsfylkingarinn
ar ályktar:
Æskulýðsfylkingin er sam-
band félagssamtaka alþýðuæsk-
unnar í landinu og hlýtur um
leið að vera óaðskiljnlegur hluti
af stéttarsamtökumverkalýðsins
Það vill eindregið brýna það fyr
ir meðlimum sambandsins, að
ganga hvarvetna fram fyrir
skjöldu í hagsmunabaráttu
verkalýðsins, jafnframt því sem
sambandið gengzt fyrir víð-
tækri fræðslustarfsemi með-
lima sinna á því sviði.
Sveitaæskan.
Frams.m.: Páll Bergþórsson.
Varðandi það æskufólk, sem
býr í sveitum landsins, sam-
þykkir 4. þing Æskulýðsfylking
arinnar eftirfarandi ályktun:
1. Það er ófrávíkjanleg sann-
girniskrafa sveitaæskunnar,
að hún fái eins mikla mögu-
leika til að lifa félags- og
menningarlífi og það æsku-
fólk, sem býr 1 kaupstöðum
landsins. Hún þarf að hafa
greiðan aðgang að menning-
arstofnunum, skólum, bóka-
söfnum, leikhúsum, dans-
leikjum og íþróttastöðum
Hún þarf hentug og holl
húsakynni í stað dimmra og
hriplekra moldarkofa. Hún
þarf að njóta þeirra þæg-
inda, sem rafmagn og hvera-
orka veita, og hún þarf að
njóta þeirrar gleði og menn-
ingar, sem felst í heilbrigðu
félagslífi.
Það er vilji þingsins, að
sveitaæskan fái framgengt
þessum sjálfsögðu kröfum.
En til þess að svo megi
verða, þarf umsköpun í ís-
lenzkum. landbúnaði. Hér
þarf að koma stefnufesta í
stað stefnuleysis, nýtízku
vélanotkun í stað frum-
stæðra búnaðarhátta skipu-
lag framleiðslunnar í stað
skipulagsleysis og ringulreið
ar.
2 í þessu sambandi styður þing
ið eindregið frumvarp það
um stofnun byggðahverfa,
sem nú liggur fyrir Alþingi.
Með stofnun slíkra byggða-
hverfa vinnst það, að bezta
ræktunarlandið verður hag-
nýtt langtum betur en áður,
hægt verður að nota stór-
virkar jarðyrkju- og hey-
vinnuvélar, og síðast en ekki
sízt, að því æskufólki, sem
að öðrum kosti getur ekki
skapað sér lífvænleg skil-
yrði í sveitunum, verður
tryggt jarðnæði til að hefja
búskap og það við fullkomin
skilyrði. Um leið verður út-
rýmt þeirri einangrun og fá-
sinni, sem er á góðum vegi
með að hrekja æskulýðinn
frá landbúnaðarstörfum
Einnig lýsir þingið ein-
dregnu fylgi sínu við stefnu
núverandi ríkisstjójnar að
því er varðar nýsköpun land
búnaðarins, útvegun stór-
virkra landbúnaðarvéla og
raflýsingu sveitanna. Þó
verður að krefjast þess að
tæki þessi komi sem flestum
að notum, en verði ekki til
þess að bæta aðstöðu hinna
efnuðustu á kostnað þeirra,
sem búa við verri kjör. Þing
ið telur, að þessi nýsköpim,
ef framkvæmd verður, muni
verða til hinna mestu hags-
bóta og heilla fyrir æskulýð
sveitanna sem á að erfa land
ið frá núlifandi kynslóð.
4 Meðan landbúnaðinum hefur
ekki verið komið á tryggan
grundvöll, telur þingið nauð-
synlegt að þeim, sem land-
búnað stunda, verði tryggð
viðunandi lífskjör- Þingið er
þó algerlega andvígt því, að
styrkjum til landbúnaðarins
v verði úthlutað í formi verð-
uppbóta, eins og nú- er, þann-
ig, að þeir ríkustu beri mest
úr býtum, en þeir fátækustu
minnst. Er hér með skorað
á æskufólk sveitanna að rísa
upp og heimta réttlætingu á
þessari ósvinnu.
5. Þingið lýsir stuðningi sínum
við hugmyndina um land-
græðslu. Væri æskilegt að
sem fyrst yrði hafizt handa
um friðun landsvæða til und
irbúnings skógræktar og
sandgræðslu.
Þingið lætur í ljós þá ósk.
að sem bezt samstarf geti
orðið milli æskulýðs sveita
og kaupstaða um að koma
þessari hugsjón í fram-
kvæmd.
Iðnnemamál.
Frams.m.: Sigurður Guðgeii'sson
Sambandsþing Æskulýðsfylk-
ingarinnar lýsir sig andvígt
þeim tillögum sem fram hafa
komið á Alþingi, um breytingu
á iðnnámslöggjöfinni, er miða
í þá átt að leyfa ótakmarkaða
nematölu í hinar ýmsu iðngrein
ar. Þingið álítur að endurskoða
þurfi iðnnámslöggjöfina, eink-
um til samræminga kaupgjalds
og að sveinafélögunum verði
veittur samningsréttur fyrir
hönd iðnnema í hinum ýmsu iðn
greinum.
Jafnframt lýsir þingið yfir á-
nægju með stofnun Iðnnema-
sambandsins, og heitir á alla
unga sósíalista að veita því
fullan stuðning í baráttu þess
fyrir hagsmunamálum iðnnema.
Þinginu lokið.
Síðasti fundur þingsins var
haldinn í gærkvöld. Var þar lok
ið við afgreiðslu þeirra mála
sem sérstaklega koma við starf-
semi sambandsins inn á við, svo
og nokkurra annarra mála, sem
síðar mun verða getið hér í
Æskulýðssíðunni. Miklar um-
iæður urðu um öll þau mál,
Framh. á 5. síðu.