Þjóðviljinn - 11.10.1960, Qupperneq 11

Þjóðviljinn - 11.10.1960, Qupperneq 11
Miðvikudagur 12. olctóber 1960 — ÞJÓÐVILJINN — (11 1 dag ©r miðvikudagur 12. októ- ber. — Maximilianus. — Tungl I hásuðri kl. 6.04. — Tungl fjærst jörðu. — Árdegisháflæði kl. 1021. — Síðdegiskáflæði kl. 22.57. ■Ijsavarðstofao er opin allan •ólarhringinn — Læknavörður er á sama stað klukkan 18- 8 síani 16030. Næturvarzla vikuna 8.-14. október er í Ingólfsapóteki sími: 1 13 30 riTVARPIÐ OAG 8.00—10.20 Morgunútvarp. 12,55 „Við vinnuna". 19.30 Óperettulög. 20.30 „1 Svartaskóla hjá Indriða miðli“, greinaflokkur eftir Guð- mund Hannesson prófessor; II. (Anna Guðmundsdóttir). 21.00 Einsöngur: Marian Anderson syngur negrasá’ma. 21.15 „Að deyja frá betri heimi", dagskrá um Jónas Kristjánsson lækni. — Dr. Broddi Jóhannesson og Pétur Gunnarsson tilraunastjóri taka saman að tilihiutan Náttúrulækn- ingafélags Islands. 22.10 Kvöld- sagan. 22.30 „Um sumarkvöld“: Karlakórinn Fóstbræður, Evert Taube, Eartha Kitt, Wa'.ter Lud- wig, I>oris E>ay, John Raitt, The Weavers, Nilla Pizzi, Emilio Dario og hljómsveit Leroys Andersons skemmta. 23.00 Dagskrárlok. —sí_ Hekla er á leið frá I Auatfjöfiðum til Rvík- ur. Esja fer frá Rvík á morgun austur um land í hringferð. Herðubreið er væntanleg til Kópaskers í dag á austurleið. Skjaldbreið er væntan- leg til Reykjavíkur árdegis i dag að vestan frá Akureyri. Þyrill er í Manchester á leið til Hamborg- ar. Herjólfur fer frá Reykjavik kl. 21 í kvöld til Vestmannaeyja. Dettifoss er á Akur- eyri. Fer þaðan í dag til Húsavikur og Austurlandshafna. , Fjallfoss fer frá Hull i kvöld til Reykjavíkur. Goðafoss kom til Bremen í gærmorgun. Fer þaðan til Tönsberg. Gullfoss er í Rvík. Lagarfoss fór frá Reykjavk 6 þ.m, til N.Y. Reykjafoss hefur væntanlega farið í gærmorgun frá Ventspils til Riga, Rostock og Reykjavíkur. Selfoss kom til Reykjavíkur í gærmorgun frá Hamþorg. Tröllafoss fór frá Norð- firði 9. þ.m. til Avonmouth, Rott- erdam, Bremen og Hambofgar. Tungufoss er á Sigluíirði. Hvassafell er vænt- anlegt til Rvíkur 14. þ.m. frá Gdynia. Arn- arfell er á Akureyri. Jökulfell fór í gær frá Reyðar- firði áleiðis til Hull. Disarfell fór í gær frá Djúpavogi áleiðis til Hull, Grimsby. Rotterdam, Brem- en, Hamborgar, Gdynia og Riga. Litlafell er i olíufiutningum • I 1. Fjárhagsnefnd, 2. samgöngu- Faxaflóa. Helgafell er 5 Onega. málanefnd; 3. landbúnaðarnefnd, 4. Fer þaðan væntanlega í dag áleið- sjávarútvegsnefnd, 5. iðnað- is til Austur-Þýzkalands. Hamra- fell er væntanlegt til Batumi 16. þ.m. frá Hamborg. Kolaastind er á Húsavík. Langjökull er í A- Þýzkalandi. Vatna- jökull er 1 Leningrad. . . Spaiið yður Waup á lailli œargra. ver7,laii&í . ($íð -ÁLLHai'stíúeti Frjálsíþróttamenn Ármanns. Æfingar verða á miðvikudögum og föstudögum frá kl. 7-8 í íþrótta- húsi Jóns Þorsteinssonar. Þjálfari verður Eiríkur Haraldsson. Millilandaflug: Milli- landaflugvélin Hrím- faxi fer til Glasgoiv og Kaupmannahafnar kl. 08.00 í fyrramálið. Innanlandsflug: 1 dag er áætlað að fljúga til Ak- ureyrar, Húsavíkur, Isafjarðar og Vestmannaeyja. Á morgun er áætlað að fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Egilsstaða, Kópaskers, Patreksfjarðar, Vestmannaeyja og Þórshafnar. Leifur Eiriksson er væntanlegur kl. 6.45 lm0 frá N.Y. Fer til Amsterdam og Lux- emborgar kl. 9.15. Snorri Sturlu- son er vænbanlegur kl. 23.00 frá Stafangri. Fer til N.Y. kl. 00.30. DAGSKRÁ ÁLÞINGIS Efri deild í dag kl. 1.30. Kosning í fastanefndir samkvæmt 16. gr. þingskapa: 1. Fjárhagsnefnd, 2. samgöngu-, málanefnd, 3. landbúnaðarnefnd, 4. sjávarútvegsnefnd, 5. iðnaðar- nefnd. 6. heilbrigðis- og félags- málanefnd, 7. menntamálanefnd, 8. allsherjarnefnd. Neðri deild í dag k'. 1.30. Kosning í fastanefndir samkvæmt 16. gr. þingskapa: arnefnd, 6. heilbrigðis- og félags- málanefnd, 7. menntamálanefnd, 8. allsherjarnefnd. Gefin hafa verið saman í hjóna band ungfrú Erna Vald s Viggósdótt- ir, M vahlið 43 og Steinar Hallgrámsson stud. jur. Heimili ungu hjónanna er að Mávahlið 41. Sl. sunnudag voru gefin saman í hjónaband ungfrú Olga Ragn- arsdóttir og Kristján Grétar Valdimarsson f'.ugvirki. Heimili ungu hjónana verður að Þórsgötu 1. Opinberað hafa trú- lofun sína ungfrú Vil- heimína Steinunn El- iasdóttir, Vesturgötu 69 Akranesi og Jón Sigurðsson stýrimaður, Kirkju’oraut 7 Akra- Vinninganna sé vitjað á skrifstofa SJ.B.S., Bræðraborgarstíg 9. Lárétt: 2 verzlun 7 einkennis- merki hernámsliðsins 9 bás 10 verkfæris 12 hljóms. 13 þel 14 ku’di 16 surga 20 ending 21 söngla — Lóðrétt: 1 kvenvargur 3 dúr 4 sæta 5 skst. 5 áttin 8 tveir eins 11 supu 15 karlmanns- nafn (þf) 17 forsetning 19 skst. Lestrarfélag kvenna Reykjavík hefur hafið vetrarstarfsemi sína. Bókasafnið á Grundarstíg 10 er opið til útlána mánudaga, mið- vikudaga og föstudaga kl. 4-6 og 8-9. Tekið á móti nýjum félögum í útlánstímum. Vinningar í merkjum Berkla- varnadagsins: Dregið var 5. þ.m. hjá borgarfó- geta um vinningana i merkjum Berklavarnadagsins. Eftii'talin númer hlutu vinninga: 36129 Sjálf- virk þvottavél verð ea kr. 18.000,00 26976 Hrærivél verð ca kr. 4.400,00 30578 Bónvél verð ca. kr. 3.900,00 31313 Ryksugá verð cá. kr. 3.60,00 13398 Ferðaútvarps- tæki verð ca. kr. 3.800,00 Heimilt er þeim, er hiutu vinninga að velja sér önnur heimilistæki en ' þau, er tilgreind eru, við jafnvirði. LÖGFRÆÐI- STÖRF endurskoðun og fasteignasala. Ragnar Ölafsson hæstaréttarlögmaður og löggiltur endurskoðandi. Sími 2 - 22 - 93. KRANA- viðgerðir og klósett-kassa. Vatnsveita Reykjavíkur Trúlof anir | Gifiinqar Afmœli C A M E R O N forsflórlnii 73. DAGUR. verða maðurinn efst í turn- inum. Það var misskilningur. Það var J. Walter Dudley sem átti að verða aðalforstjóri Tredway samsteypunnar. Hann sá tóman stólinn bak- við skrifborðið og nú sá hann manninn fyrir sér. . . alltof mjúkan kroppinn og vel sniðin fötin ... alltof hvítt hárið og alltof frítt adlitið .. alltof Ijómandi brosið ... alltof vin- gjarnlega röddin. Já, það var Walter Dudley .. . maðurinn sem alltaf bað um vináttu ... maðurinn sem mældi árangur sinn með því að telja það fólk sem brosti til hans og' kallaði hann skírnarnafni! En í fjarska heyrði hann rödd Aldersons — og það var eins og aðvörun: — enginn maður i þessari grein á eins marga vini og Walt Dudley — það er mikilvægt — það eykur vinsældir fyrirtækisins. — Hann gekk aftur að gluggan- um, sá þökin og fjarlægar verksmiðjumar og móðuna í loftinu og minninguna um Avery Bullard. Enginn hafði sagt neitt svipað um Avery Bullard og Alderson hafði sagt H AW LEY: fellur frá um Walt Dudley. En það var Avery Bullard sem hafði skap- að Tredway samsteypuna. Þetta birtist honum allt í einu eins og opinberun. Nú sá hann hina skelfilegu skyssu í áiyktunum Aldersons: mót- sagnirnar tvær. Það var ó- mögulegt að viðhalda Tredway samsteypunni eins og' Avery Bullard hafði skapað hana og hafa Walt Dudley fyrir for- stjóra. Sem snöggvast varð honum hugsað um það sem Alderson hafði sagt um samvinnu um stjórnina. Samvinna við Dud- ley? Honum var beinlíms ó- glatt við tilhugsunina. Alder- son var veiklundað gamal- menni . . . hafði leitað að auð- veldustu útgönguleiðinni. Gat Alderson ekki séð þetta sjálf- ur? Það var ekki rúm nema fyrir einn mann efst í turn- inum.. einn mann .. eina rödd . .. eina sterka stjórnsama hönd! Og allt í einu minntist hann íleiri orða Aldersons: „Þér getið gert það, Don — ég veit þér getið það. Þér getið hald- ið fyrirtækinu á þeirri braut, sem hann óskaði“. Röddin ómaði í eyrum hans, hvað eftir annað, hljómaði í hinum stóra sal hins nýja heila. Alderson hafði gabbað hann til að sætta sig við Dud- ley sem forstjóra! Það var hann sjálfur sem átti að verða forstjóri! Alderson hafði við- urkennt það . .. hann liafði vit- að það allan tímann, en nú á þessari stundu var þessi gamli auli í þann veginn að e.vði- leggja fyrirtækið með því að bjóða Dudley forstjórastólinn Don Walling leit í flýti á úrið sitt. Það voru aðeins nokkrar mínútur þar til lest Dudleys kæmi. Hann yrði að stöðva Alderson. Hann reif upp dyrnar og þaut fram að lyft- unni. KI. 9,37 Loren Shaw hafði loks náð sambandi við Pearson í Chic- ago. Nú sat hann og hlustaði; andlit hans var reiðilegt og fingur hæsri handar fitluðu án afláts við vasaklútinn og vöðl- uðu honum saman í kúlu. — Já, þökk fyrir, Pearson, sagði hann að lokum. — Það hafa orðið þarna einhver mis- tök; ég hef ekki íengið boðin írá Alderson. Hvenær kom lestin? —■ níu fjörutíu og fimm -— já, ég' skil — nei, annað var það ekki. Þér látið mig svo vita hvernig' fundiniir ganga. í þ.rem sporum var hann kominn að dyrunum, en þar stanzaði hann ,allt í einu, eins og kaldur messinghúnninn hefði kælt löngun hans eftir að hitta Alderson. Hann stóð and- artak á báðum áttum, hann vildi ekki leggjast svo lágt að fara inn á skrifstofu Alder- sons, og þó var hann rekinn áfram af óviðráðanlegri löng- un til að fá grun sinn stað- festan. Hann varð að fá að vita það. Hann opnaði dyrnar með hæg'ð og hlustaði. Það heyrðist hvorki fótatak né mannamál Hann opnaði betur og gekk fram fyrir. Þá sá hann Don Walling standa við lyftuna. Það var of seint að snúa við. Walling var búinn að sjá hann. — Góðan daginn, Don, sagði Loren Shaw. Honum tókst bæði að brosa og bæla niður skjálft- ann í röddinni. — Skyldi Fred vera á skrifstofunni. Vitið þér það? Eða hvort von er á hon- um? — Ég veit það ekki. sagði Walling og ýtti aftur óþolin- móður á lyftuhnappinn. Forvitnin rak Shaw til að spyrja aftur: — Vitið þér ann- ars nokkuð, hvenær von er á Walt frá Chicago? Walling ýtti aftur á hnapp- inn og virtist ekki hafa heyrt spurninguna. Loren Shaw var í þann veg- inn að spyrja aftur, 'þegar Walling sagði allt í einu: —Hann kemur níu fjörutíu og fimm með lestinni. Hann sagði þetta eins og úti á þekju og rödd hans var kuldaleg og dá- lítið fyrirlitleg. Loren Shaw greip í húninn og áður en Walling var búinn að snúa sér við, var hann aftur kominn inn á skrifstofu sína. Hann hélt þétt í húninn til að koma í veg fyrir skell. Þegar hann sleppti, var hönd hans svo vot af köldum svita, að það var eins og hann hefði haldið um ís. Framkoma Wallings hafði staðfest allt. Alderson ætlaði að taka á móti Dudley við lest- ina . . . Walling ætlaði að hitta þá einhvers staðar .. þrjú at- kvæði . .. Grimm yrði hið fjórða. Ef eitthvað yrði ekki gert í tíma, þá var Alderson búinn að fá þau fjögur at- kvæði sem hann þurfti með til að verða forstjóri. Heili hans var lamaður eftir langvarandi áreynslu. Hann varð að gera eitthvað .. . hvað sem væri.. . hvað sem vera skyldi! Diidley.. . . Dudley . .. Dudley. . hann varð að ná í Dudley! Án Dudleys var öll von úti. Kl. 9.40. Óþolinmæði Dons Wallings var að breytast í reiði. Hvaða hangs var þetta á bannsettrl lyftunni! Það voru ekki nema fimm mínútur þangað til von var á lestinni. .. það var heil' veröld í húfi . . . og bara vegna þess að rolan i lyftunni . . . Dyrnar opnuðust. — Hvaual fjandanum varstu, Luigi? — Við vorum að halda — — Fljótur nú, í hamingju bænura, fljótur! Um leið og dyrnar voru að lokast kom hann auga á Ericu Martin sem kom hlaupandi niður stigann og heyrði hana kalla á hann.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.