Þjóðviljinn - 15.12.1974, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 15.12.1974, Blaðsíða 3
Sunnudagur 15. desember 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 Lofsvert framtak Verðandi Umræöur um stjórnlist sósíalískrar hreyfingar Brynjólfur Bjarnason flytur erindi annað kvöld Eins og f ram kom i blað- inu í gær hyggst Verðandi gangast fyrir röð funda um stjórnlist (strategíu) sósíalískrar hreyfingar á íslandi. Alls verða haldnir a.m.k. fimm fundir og verður sá fyrsti annað kvöld. Til fundanna eru sérstaklega boðnir fulltrúar Alþýðubanda- lagsins, Fylkingarinnar og Kommúnistasamtakanna marx- istanna-leninistanna og munu þeir túlka viðhorf sinna samtaka til umræðuefnisins. Verið getur að fleiri aðilar taki þátt i umræð- unum. Eflaust taka flestir þeir sem kalla sig sósialista undir það, að brýn þörf er á umræðum sem þessum hér á landi. Siðan mynd- un pólitiskra hópa vinstra megin við Alþýðubandalagið hófst.um það leyti sem sá flokkur var stofnaður hafa menn littt fengist við að bera saman bækur sinar um stjórnlist vinstri hreyfingar nema innan eigin hóps. Þetta eru þvi fyrstu umræðurnar um þetta mikilvæga efni sem fram fara með nokkuð breiðri þátttöku vinstri manna. Þvi hljóta allir vinstri menn að fagna þessu frumkvæði Verðandi, hvort sem imenn kalla sig eða eru kallaðir t'rotskíistar; maóistar, stalinistar eða kratar. — Engin patentlausn Eins og áður segir hefjast um- ræður þessar annað kvöld. Þá flytur Brynjólfur Bjarnason er- indi. Ekki þarf að kynna Brynjólf fyrir lesendum þessa blaðs, en við höfðum tal af honum og innt- um hann eftir þvi hvernig hann tæki á efninu. — Ég tek það fyrst og fremst al- þjóðalega eins og ástandið er núna. Út frá þvi fjalla ég svo um ísland, afstöðuna til Alþýðu- bandlagsins og litlu hópanna. Höfuðviðfangsefnið er leiðin til sósialismans eins og nú er ástatt i heiminum. Þ.e.a.s. hvaða leiðir eru hugsanlegar. En það má ekki lita svo á að ég setji fram ein- hverja patentlausn heldur reyni ég fyrst og fremst að gera svolitla grein fyrir þeim vandamálum sem við stöndum frammi fyrir. — Ferðu eitthvað inn á þær til- raunir sem gerðar hafa verið i heiminum til að nálgast sósial- ismann? — Ég minnist á þær en þó aðal- lega valdatökuna. Ef ég ætlaði að fjalla um framkvæmd sósialism- ans yrði það allt of viðamikið. Maður verður að afmarka efnið og ég bind mig alveg við stjórn- listina. — Hefur þú lagt mikla vinnu I þetta erindi. — Nei, skammarlega litla. Ef vel ætti að vera þyrfti maður að stúdera efnið i marga mánuði ef ekki ár. Og ekki bara einn maður Brynjólfur Bjarnason heldur margir. Þetta er svo feiki- lega viðamikið. Erindi Brynjólfs hefst klukkan 20.30 annað kvöld og sagði hann að það tæki um klukkustund i flutningi. Að þvi loknu verða um- ræður. Fundurinn verður haldinn i Félagsheimili stúdenta við Hringbraut og er hann að sjálf- sögðu öllum opinn. Eftir þennan fund veröur svo hlé fram i febrúarbyrjun vegna prófa i Háskólanum. Þá verður þráðurinn tekinn upp að nýju, fyrst mætir fulltrúi Alþýðubanda- lagsins, þá Fylkingarinnar, KSML og loks verður umræðu- fundur um það sem fram hefur komið á fyrri fundunum. —ÞH Ef liösinnt ég gæti Ný bók frá Skuggsjá Ef liðsinnt ég gæti er heiti bókar sem komin er út hjá for- laginu Skuggsjá I Hafnarfirði. í henni eru fimmtán viðtöl sem Valgeir Sigurðsson blaðamaður við Tímann hefur tekið við bæði landskunna sem litt þekkta menn. Viðmælendur Valgeirs eru Arni Halldórsson hrl, Valdimar Björn Valdimarsson bifreiðarstjóri, Mggnús Magnússon skólastjóri, Páll Agnar Pálsson yfirdýra- læknir, Jón Sigurðsson frá Geira- Forsíðan Guðrún Svava Svavarsdóttir hefur teiknaö forsíðu sunnudags- blaðsins að þessu sinni og hafði þá m.a. I huga eftirfarandi grein úr Mósesbók: „Og guð sagði við þau: Verið frjósöm og uppfyllið jörðina og gjörið ykkur hana undirgefna”. Guðrún Svava var eitt ár við myndlistarnám i Moskvu og hefur veriö og er á kvöldnám- skeiðum Myndlistarskólans við Freyjugötu. Hún hefur unnið tals- vert að myndskreytingu, þ.á.m. fyrir Þjóöviljann, nú siðast I jóla- blaðið, og einnig myndskreytt bækur. Þá hefur hún fengist við leikbrúðugerð og gerði brúður fyrir Leikfélag Reykjavikur fyrr á þessu ári. stöðum i Mývatnssveit, Björn Gestsson forstöðumaður Kópa- vogshælis, Gunnar Þórðarson bóndi i Grænumýrartungu, Þorkell Björnsson frá Hnefilsdal, Skúli Jensson lögfræðingur, Guð- steinn Þengilss iæknir,dr. Stefán Aðalsteinsson búfjárfræðingur, Einar H. Einarsson bóndi Skammadalshóli, Sigriður Gisla- dóttir frá Ketilsstöðum, Sigurður Blöndal skógarvörður og Þor- steinn Magnússon smiður. Um viðtölin segir höfundur svo i formála: „Stundum leitaði ég eftir æviatriðum manna og lýsingum þeirra á horfinni tið, og þá helst á þann hátt, að þær frásagnir ættu um leið erindi við nútimann. Sumir ræddu við mig um tómstundavinnu sina og hugðarefni, aðrir töluðu um vandamál og viðfangsefni liðandi stundar. Hér er jafnvel sagt frá visindalegri starfsemi. Nú, og enn aðrir spjölluðu aðeins um daginn og veginn — það sem i hugann kom, eftir að við vorum farnir að tala saman.” PFAFF fyrir yóéan mat $ KJÖTIDNADARSTÖD SAMBANDSINS

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.