Þjóðviljinn - 20.10.1983, Side 1

Þjóðviljinn - 20.10.1983, Side 1
UOBVIUINN „Við erum reiðubúin til þess að heyja langvinna baráttu“, segir Gabriel Lara um þjóðfrelsisstríð alþýðunnar í El Salvador í viðtali við blaðið. Sjá 8 október 1983 fimmtudagur 239. tölublað 48. árgangur Sjúkrahús aldraðra fœr ekki krónu á fjárlögum Þjóðarskömm að stöðva B-álmu Fulltrúar stjórnarandstöðunnar gagnrýndu kauplækkun, samningabann og lokun þings í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra. segir Adda Bára Sigfúsdóttir „Fari fjárlagafrumvarp Alberts Guðmunds- sonar óbreytt í gegnum þingið er bygging B- álmunnar þar með stöðvuð. Frumvarpið gerir ekki ráð fyrir einni krónu til þessarar fram- kvæmdar á næsta ári“, sagði Adda Bára Sigfús- dóttir í gær. „Það er þjóðarskömm að hætta við þessa framkvæmd . Lítið bara hver í eigin barm, og flestir vita áreiðanlega um eitthvert gamal- menni sem sárlega vantar hjúkrunarrými“, sagði hún. Leikfélag Akureyrar frumsýnir á föstudagskvöld söngleikinn vinsæla My Fair Lady með Arnar Jónsson og Ragnheiði Steindórsdóttur í aðaihlutverkum. Tillaga í borgarstjórn Fyrir borgarstjórnarfundi í kvöld liggur tillaga frá Öddu um áskorun á fjárveitinganefnd og þingmenn borgarinnar að þeir vinni að breytingum á fjárlagafrumvarpinu þannig að hægt verði að halda byggingunni áfram samkvæmt áætlun. „Reykjavíkurborg hefur sótt um 34ra miljón króna framlag úr Framkvæmdasjóði aldraðra til B-álmunnar á næsta ári“, sagði Adda, „en til hennar má sjóðurinn aðeins veita beinu ríkisframlagi. Samkvæmt fjár- lagafrumvarpinu er ekki krónu ætlað í beint framlag. Sjóðurinn á aðeins að fá nefskattinn, sem er 42 miljónir, en hann má aðeins setja í byggingu dvalarheimila og þjónustuíbúða fyrir aldraða.“ „Stöðvun framkvæmda við B-álmuna er gersamlega óþolandi vegna þess skorts sem er á hjúkrunarrými fyrir aldraða", sagði Adda að lokum. „Undir þau orð hljóta borgarfulltrúar og þing- menn Reykjavíkur að geta tekið.“ -ÁI í ár er veitt 22 miljónum króna til byggingar B-álmunnar en í fjárlagafrumvarpinu er ekki ætlað krónu til að halda henni áfram á næsta ári. Þessu verður að breyta, segir Adda Bára Sigfúsdóttir. - Ljósm. Magnús. Alþýðublaðið hœttir að koma út sem dagblað Það er rétt að málefni Al- þýðublaðsins voru til umfjöll- unar á flokksstjórnarfundi Alþýðuflokksins sl. mánudag, og verður aftur á dagskrá á næsta fundi. Það er einnig Ijóst að blaðið hættir sem dag- blað en við munum skoða alla aðra möguleika en að leggja blaðið niður, sagði Magnús H. Magnússon varaformaður Alþýðuflokksins I samtali við Þjóðviljann í gær. Vikuútgáfa til umrœðu. Munum reyna allt til þess að blaðið verði ekki lagt niður, segir Magnús H. Magnússon Magnús sagi aö tapið á blaðinu í því formi sem það er nú meira en flokkurinn réði við. Korhið hefði til tals í þssu sambandi að gera blaðið að vikublaði og væri það sú hugmynd sem mestan hljóm- grunn hefði nú. Vissulega væru til fleiri möguleikar og yrði þetta allt skoðað mjög vandlega, áður en ákvörðun verður tekin um fram- tíð blaðsins, sagði Magnús. Þá má geta þess að prentsmiðj- an sem Alþýðublaðið stofnsetti sl. vetur með mjög fullkomnum tölvusetningarbúnaði hefur nú verið seld Alþýðuprentsmiðj- unni. - S.dór Það var lítið um að vera á ritstjórnarskrifstofum Alþýðublaðsins í gær. Eftirsjá er að Alþýðublaðinu í fjölradda kór stjórnarandstöðunnar. (Ljósmynd - Magnús).

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.