Þjóðviljinn - 20.10.1983, Side 4

Þjóðviljinn - 20.10.1983, Side 4
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 20. október 1983 DlOÐVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyf- ingar og þjóðfrelsis Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans. Eramkvætndastjóri: Guörún Guðmundsdóttir. .....^ Jtitstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ólafsson. Umsjónarmaöur Sunnudagsblaðs: Guöjón Friðriksson. Auglýsingastjóri: Sigriður H. Sigurbjörnsdóttir. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: éára Siguröardóttir, Kristín Pétursdóttir. Blaðamenn: Auöur Styrkársdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Helgi Ólafsson, Lúövík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Ólafur Gíslason, Óskar Guömundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Valþór Hlööversson. íþróttafréttaritari: Víðir Sigurðsson. Utlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Þröstur Haraldsson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Magnús Bergmann. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Ólafur Þ. Jónssan. Skrifstofa: Guörún Guövaröardóttir. Jóhannes Haröarcnn. Sfmavarsla: Sigriöur Kristjánsdóttir, Margrét Guömundsd. Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir. Bílstjóri: Ólöf Siguröardóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir Útkgyrsla, afgreiösla og auglýsingar: Síöumúla 6, Reykjavik, s(mi 81333. Umbrot og setning: Prefnt. Prentun: Blaðaprent h.f., Vegvísir fyrir vinstrafólk Kauplækkun, samningabann og lokun alþingis voru eins og vænta mátti uppistaðan í gagnrýni fulltrúa stjórnarandstöðunnar í umræðum um stefnuræðu for- sætisráðherra á Alþingi. Stjórnarandstaðan er í fjórum flokkum, en talsmenn þeirra leiddu allir einkar vel í ljós að ríkisstjórnin hefur slitið í sundur lögunum og þar með sagt í sundur friðinn á íslandi. Ríkisstjórnin fékk á sig breiðsíðu frá stjórnarandstöðunni og það var ræki- lega undirstrikað hvernig hin „mannlegu sjónarmið“ hafa verið „flæmd burtu“ úr stjórnarráðinu og viðhorf reiknistokksins hafa tekið við og eira engu. Nýju flokkarnir settu ferskan svip á umræðuna á Alþingi, og á vegum þeirra tala einstaklingar, sem hafa mikið til brunns að bera og margt til mála að leggja. En enda þótt stjórnarandstaðan hafi fjórfalda árásargetu í umræðum á Alþingi þá er það ekki síður veikleiki henn- ar en styrkleiki. Það kann að endurspeglast í skoðana- könnun DV vegna þess að þrátt fyrir allt telji almenn- ingur litla von til þess að annað stjórnarmynstur heldur en það sem er í dag komi til greina að svo stöddu. Þessvegna er það mikilvægt verkefni að rækta samstarf og málefnasamstöðu félagshyggjufólks á þingi. Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins vék að því í sinni ræðu að ríkisstjórnin hefði þá stefnu í innanlandsmálum að lækka kaupið og skera niður fé- lagslega þjónustu, í atvinnumálum að hefja til vegs erlenda auðhringa og í utanríkismálum að gera eins og Bandaríkjastjórn fyrirskipar. „Þessi stefna stríðir gegn sjálfstæðisvitund landsmanna, réttlætiskröfum þeirra og jafnréttisviðhorfum. Þessvegna þurfa ailir andstæð- ingar ríkisstjórnarinnar að hefja undirbúning að traustu samstarfi sem leiðir þjóðina út úr því myrkri skammdegisins sem Steingrímur og Albert hafa lagt yfir borg og bæ. Vegvísirinn út úr myrkrinu er samstaða vinstrimanna, félagshyggjufólks, því það má aldrei aft- ur gerast að afturhaldsöflin komist til valda í skjóli sundrungarinnar.“ Það var sameiginlegt með öllum stjórnarandstæðing- um sem töluðu við umræðuna á þingi í fyrrakvöld, að | þeir töldu fjárfestingarsukkið undirrót verðbólgunnar, I og enga lausn vera í því fólgna að láta launafólk greiða j hana niður einhliða. Svavar Gestsson sagði að verð- j bólguvaldurinn á íslandi væri fólginn í þeirri staðreynd, að reynt væri að skipta meiru en til er: i „Þegar verslunin hrifsar margfaldan hlut á við það i sem verið hefur - þá veldur það verðbólgu. Þegar skipulagsleysið einkennir sjávarútveginn, ; undirstöðuatvinnuveg Iandsmanna - þá veldur það verðbólgu. Þegar bankarnir fjárfesta fyrir hundruð milljóna króna á ári - þá veldur það verðbólgu. Þegar ríkissjóður er rekinn með stórfelldum halla - þá veldur það verðbólgu. Þarna er dýrtíðarvaldurinn á íslandi. Þessir aðilar eru að reyna að knýja fram skipti á því sem ekki er til. Verðmætasköpunin stendur ekki undir þessu þunga bákni sóunarinnar. Þeir sem ekki þora að ráðast á þetta Iterfi munu búa við áframhaldandi dýrtíð. Og enginn getur ætlast til þess að kerfisflokkarnir tveir hrófli við tilverugrundvelli sínum - seinvirku, ranglátu og sið- spilltu bákni fjármagnsaflanna.“ Nái stjórnarandstaðan saman um nýja stefnu í fjár- festinga og skipulagsmálum atvinnuveganna, og nýjar leiðir til fljótvirkari og réttlátari ákvarðanatöku í stjórnkerfinu, þá er kominn vísir að traustu samstarfi sem gæti orðið valkostur vinstri manna gegn hægri stjórninni.' klippt Blaut tuska framan í stjórnina Málgögn ríkisstjórnarinnar ætla vart að komast yfir þá ósvinnu, að einn úr stjórnarand- stöðunni tætir í sundur fjárlög ríkisstjórnarinnar í Þjóðviljan- um. Sighvatur Björgvinsson flett- ir ofan af tvöfeldni ríkisstjórnar- innar í málaflokki eftir mála- flokk. Staksteinar og Tíminn æsa sig í gær af þessu tilefni - og þó fárast ríkisstjórnarmálgögnin meir yfir því að maður sem ekki er Alþýðubandalagsmaður skuli fá rúm til þessa í Þjóðviljanum, heldur en hinu hvað hann segir, á hvað er bent. Þjóöviljinn málgagn stjórnar- andstöðunnar hleypur yfir öll flokksbönd í andstöðu sinni við ríkisstjórn peningaaflanna og að undanförnu hafa lesendur þessa blaðs séð Framsóknarmann úr verkalýðsforystunni skora á verkalýð að rísa upp, forystu- menn úr röðum Sjálfstæðis- manna úthúða hægri stjórninni og nú síðast eðalkratann Sighvat Björgvinsson henda blautri tusku framan í ríkisstjórnina. Á meðan sú ríkisstjórn situr og heldur áfram í þeim dúr sem hún hefur hafið verður ekkert lát á þessu. Og vonandi verður heldur aldrei lát á því að Þjóðviljinn taki pólit- íska hagsmuni þjóðarinnar fram yfir þröngflokkspólitíska hags- muni, ef einhverjir eru. Hvort sú ritstjórnarafstaða blaðsins rekst á samtryggingarbönd annara hagsmuna er ekki vandamál þess. Spilverk Olafs Ragnars Málgögnum ríkisstjórnarinnar er ómögulegt að skilja öðruvísi vinnubrögð og þankagang en klúbbahugarfarið sem praktiser- að er á þessum gögnum sjálfum. Þannig segir Tíminn að ástæða þess að Þjóðviljinn afhjúpi veik- leika í fjárlagafrumvarpinu - jafnvel þótt þeir komi frá Sig- hvati Björgvinssyni - sé þessi: „Það er afleysingaritstjóri Þjóð- viljans sem stendur fyrir boðun hins umfangsmikla stórasann- leiks“ Og Skaksteinar klappar sama steininn: „Forfallaritstjóri Þjóð- viljans fyrrverandi formaður þingflokks Alþýðubandalagsins, sem féll í þingkosningunum í vor, birtir í blaði sínu i gær þriggja dálka forsíðumynd af fyrrverandi formanni þingflokks Alþýðu- flokksins“. Hvílíkt innræti! Þurfti Þjóðvilj- inn nú að birta líka mynd af hon- um. Var nú ekki nóg samt? Auðvitað sýna þessi viðbrögð fyrst og fremst inní þann hugar- heim, þarsem flokksbönd halda öllu niðri, þarsem frelsi blaða- manna er sama og vilji útvalinna ritstjóra Tímans og Morgun- blaðsins. Og hvers eigum .vér hin- ir minni spámenn og fjölvísu kompónistar á Þjóðviljanum að gjalda? Og mikill maður er „mist- er Grímsson". Dagur líka Málgagn KEA á Akureyri, Dagur, kemur stundum í brotum í Tímanum og þá er nú heldur betur sambandsveislan. Tíminn er að átta sig á því eftir meira en hálfrar aldar náið samstarf hvar Dagur stendur í pólitíkinni: „Dagur á Akureyri er ekki alls kostar sáttur við ritstjórnar- stefnu Þjóðviljans". Þetta er niðurstaða Tímans eftir að hafa flett Degi áratugum saman - og menn verða að taka ofan fyrir svona nýstárlegri niðurstöðu. Gleyma fjárlögunum Viðbrögð ríkisstjórnarmál- gagnanna við afhjúpun Sighvats Björgvinssonar á fjárlagafrum- varpinu eru einnig þann veg, að efnisatriði málsins gleymast þeim í ákafa þeirra við að búa til þröng- flokkslega „fléttu". Þannig er því ekki svarað að rekstrargjöld ríkisstjórnarinnar hækki um 564%, ekki orð um 300% hækk- un á lántökum ríkissjóðs, ekki orð um 175% aukningu á utan- ferðum, ekki orð um 225% aukningu á skrifstofukostnaði ráðherra. Það er máske von, því þessi atriði eru að sjálfsögðu óverjandi. Hins vegar gerir Staksteinar eitt efnisatriði að umræðuefni, þarsem hann hafnar því að skatt- píning vaxi - og segir Sighvat vera að bera saman við fjárlög Ragn- ars Arnalds 1983. Þetta er rangt og dæmalaust að jafn vandaður maður og ágætur húmoristi og Stefán Friðbjarnarson höfundur þessara Staksteina skuli láta þetta hrökkva út úr pennanum. Sjá má á bls. 187 í fjárlögum að hækkunin um 26% er miðuð við endurskoðaða áætlun Alberts Guðmundssonar 1983 en ekki fjárlög Ragnars Arnalds. Segir Stefán, sem einnig skrifar leiðara í Morgunblaðið, að Sighvatur taki inní dæmi sitt áætlaða inn- heimtu eldri skatta og það breyti samanburðinum. Þetta er einnig rangt. Sighvatur miðar við það semstendurábls. 184ífrumvarpi Alberts Guðmundssonar um að sé „gengið út frá svipuðu inn- heimtuhlutfalli og á þessu ári“. Nei, höggið hittir ekki Ragnar Arnalds fyrir. Þvert á móti, það sýnir hve vel var að staðið í hans tíð. Hins vegar hæfir það beint í kviku allra þeirra sem styðja rík- isstjórn þeirra Alberts og Stein- gríms einsog viðbrögð þessi sýna. Enn fremur undirstrika þessar upplýsingar að ekkert er að marka hvað þessir stjórnarherrar segja. En það var gaman af strengjabrúðunum íTímanum og Mogganum í gær. _ög og skorið Litli Heimdallur í Framsókn Samband ungra framsóknar- manna samþykkti ályktun sem birt hefur verið í Tímanum sem er nánast í engu frábrugðin ályktun- um þeim sem frjálshyggjumenn og hægri ungliðar í Heimdalli hafa verið áð senda frá sér síðustu árin: „Nauðsynlegt er að létta sem mest af þeim álögum sem lagðar eru á atvinnureksturinn í landinu“. „Þetta er og verður brýnasta verkefni ríkisvaldsins á næstu misserum“. „Ríkisstjórnin verður að vinna markvisst að frekari minnkun ríkisumsvifa og fjárfestinga á veg- um hins opinbera til að tryggja varanlcika þeirra aðgerða sem nú hefur verið gripið til“. „Ataks er þörf að hefja samn- inga við erlenda aðila um bygg- ingu stóriðjuvera hér á landi“. „Miðstjórnarfundur SUF fagn- ar því að opnast hefur leið til samninga við Alusuisse“. Allar eru þessa setningar úr á- lyktun miðstjórnar SUF keimlík- ar hliðstæðum ályktunum frá Heinidalli og slíkum félögum. Sú var áður önnur tíðin. Dagur enn Ekki er Dagur ýkja langt frá seinheppni Tímans í þeim tilvitn- analeik sem ástundaður er í dálk- um sem þessum. Þannig þykist Dagur vera að skamma Þjóðvilj- ann: „Bærilega tókst Þjóðviljan- um að koma höggi á Steingrím Hermansson forsætisráðherra út af bílafríðindum ráðherra“. Og við skulum slá botninn í þetta með því að vera sammála Degi á Akureyri. -óg - ekh

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.