Þjóðviljinn - 20.10.1983, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 20.10.1983, Qupperneq 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 20. október 1983 Erum búnir undir langvinna baráttu segir Gabriel Lara, fulltrúi FMNL/FDR þjóðfrelsis- fylkingarinnar í El Salvador í viðtali við Pjóðviljann Stríðið í El Salvador mun halda áfram og Bandaríkin munu dragast æ meir inn í átökin á meðan fólkinu í landinu er ekki gefinn kostur á að láta vilja sinn í Ijós, sagði Gabriel Lara í viðtali við Þjóðviljann. Gabriel laraeryfirmaður upplýsingaskrifstofu Þjóðfrelsisfylkingarinnar FMNL7FDR í Stokkhólmi. Hann starfaði áður við Mið-Ameríkuháskólann í San Salvador þar sem hann vann að skipulagningu trúarbragðakennslu á landsbyggðinni. Hann var handtekinn og pyntaðuraf stjórnarhernum en flúði land 1980og hefurverið búsettur í Stokkhólmi frá 1981. Gabriel Lara sagði að bráða- birgðastjórn Alvaro Magana væri nú svo einangruð að jafnvel þau verkalýðsfélög undir forystu kristilega flokksins, sem hefðu áður stutt stjórnina, stæðu nú að sameiginlegum málefnagrund- velli allra verkalýðsfélaga í landinu. Nýleg morð á þrem verkalýðsforingjum sýndu best að ríkisstjórnin hefði engin pólit- ísk svör við vandamálunum, heldur beitti hún fyrir sér nöktu ofbeldi. Lýðræðið Sagði Lara að allt tal Banda- ríkjastjórnar um þróun í lýðræði- sátt í El Salvador stangaðist á við raunveruleikann. Kosningarnar í mars á þessu ári hefðu verið hreint svindl, þar sem sjónarmið stjórnarandstæðinga væru í reynd bönnuð og dauðasveitunum sigað á alla málsvara þjóðarsátta og lýðræðis. Sagði hann að óræk- asti votturinn um skort á lýðræði í landinu sæist á því að enn hefur enginn af liðsmönnum dauða- sveitanna og stjórnarhersins ver- ið ákærður fyrir dómstóli fyrir þau 45 þúsund morð sem framin hefðu verið í landinu. Sagði Lara að samkvæmt heimildum lög- fræðiaðstoðar kaþólsku kirkj- unnar í E1 Salvador hefðu 2853 óbreyttir borgarar horfið eða ver- ið drepnir á fyrstu 6 mánuðum þessa árs. Sambærileg tala fyrir síðari helming 1982 væri 2600, og sýndi þetta að ástandið í landinu færi versnandi. Landbúnaðarumbótin Þá sagði Gabriel Lara að sú landbúnaðarumbót, sem áform- uð hefði verið hefði nú verið stöðvuð. Hefðu fulltrúar Kristi- lega lýðræðisflokksins, sem hlynntir voru landbúnaðarumbó- tum verið flæmdir burt úr ráðu- neyti því sem fór með málið og fasistar úr ARENA-flokknum sest þar að. Þá hefði ARENA- flokkurinn lagt fram tillögur á stjórnlagaþinginu um 2 nýjar greinar í hina nýju stjórnarskrá landsins er hefðu það markmið að gera allar umbætur í landbún- aði óframkvæmanlegar. Þetta hefur tafið afgreiðslu stjórnar- skrármálsins á þinginu. ARENA-flokkurinn hefur einnig lagst gegn hugmyndum Banda- ríkjastjórnar og Kristilega flokksins um nýjar kosningar á þeim forsendum að þingið hafi ekki ennþá afgreitt hina nýju stjórnarskrá. Þá hefur ARENA- flokkurinn undir forystu Roberto d’Aubisson dauðasveitir á sínum snærum sem leika lausum hala án afskipta stjórnarinnar. Allt sýnir þetta getuleysi stjórnarinnar og einangrun, sagði Gabriel Lara. Stríðið Stjórnin á nú í erfiðleikum með að fjármagna stríðið, þrátt fyrir að hún hafi fengið nærri einn miljarð bandaríkjadala í aðstoð á síðustu 3 árum. Herinn hefur nú breytt um taktík, og hefur landinu verið skipt niður í 5 her- stjórnarsvæði. Hersveitir FMNL hófu sókn hinn 3. september s.l. og hefur hún kostað stjórnarher- inn um800 fallna. Á meðan bar- áttuviljinn innan FMNL hefur farið vaxandi hefur hið gagns- tæða átt sér stað innan stjórnar- hersins, m.a. vegna þeirrar stefnu FMNL að afhenda Rauða krossinum alla stríðsfanga. FMNL/FDR ráða nú yfir um fjórðungi landsins þar sem búa um 250.000 manns. í september s.l. var stofnuð ný lýðræðisleg héraðsstjórn á frelsuðu svæði í norðurhluta landsins, og sýnir það best að gagnsókn stjórnar- hersins á þessu hausti hefur runn- ið út í sandinn. Pólitísk lausn Gabriel Lara sagði að FMNL/ FDR stefndi að því að ná fram pólitískri lausn á deilunni á milli FMNL/FDR annars vegar og bráðabirgðastjórnarinnar og Bandaríkjastjórnar hins vegar. Hafa viðræður átt sér stað á milli aðila án árangurs. Fundir þessir hafa hingað til fjallað eingöngu um formsatriði, en Lara sagði að FMNL/FDR vildi ræða framtíð- arstjórn landsins í þessum við- ræðum, nýja stjórnarskrá, skip- ulagningu hersing og framtíðar- stöðu landsins á alþjóðavett- vangi. Við viljum m.a. ræða það við Bandaríkjaþing, hvers vegna þeir álíta að framtíðarstjórn fólksins í EI Salvador muni ógna öryggi Bandaríkjanna. Gabriel Lara sagði að FMNL/ FDR endurspeglaði breiðfylk- ingu er næði allt frá kristilegum lýðræðissinnum til kommúnista. Fylgið á bak við FMNL/FDR skýrðist best af því að þeir hags- munir sem bráðabirgðastjórnin og herinn stæðu um væru hags- munir þess eina hundraðshluta þjóðarinnar sem ætti 60% alls lands og eigna í landinu. - Við viljum að mynduð verði þjóð- stjórn í framtíðinni, lýðræðisleg þjóðstjórn þar sem eini aðilinn sem verður útilokaður er fasist- arnir, því þeir eru á móti lýðræði. íhlutun Bandaríkjanna Gabriel sagði að enn sem kom- ið væri hefði Bandaríkjastjórn neitað að taka upp samninga um þessi efni, en hún ætti engu að síður í erfiðleikum með að rétt- læta fjármögnun stríðsins fyrir Bandaríkjaþingi þar sem fram- farir í lýðræðisátt væru formlega sett skilyrði áframhaldandi að- stoðar. Nú eru 55 bandarískir hernaðarráðgjafar starfandi í E1 Salvador, og hafa þeir m.a. verið gerðir uppvísir að því að stjórna lofthernaði á óbreytta borgara. Þá munu nokkur hundruð Bandaríkjamanna starfa leyni- lega í E1 Salvador á vegum CIA. Bandaríkjamenn hafa þar fyrir utan um 5000 bandaríska her- menn í Honduras, þar sem þjálf- un hefur farið fram á uppreisnar- mönnum frá Nicaragua og stjórn- arhermönnum frá E1 Salvador. Þá sagði Lara að Bandaríkin hefðu nú um 10.000 sjóliða á her- skipum útifyrir ströndum Nicar- agua og E1 Salador. Þá hefði Bandaríkjastjórn látið stjórnar- hernum í E1 Salvador í té nýja gerð flugvéla (A-37) til loftárása og hafa loftárásir hersina á borgir og bæi stóraukist á síðustu mán- uðum. Gabriel Lara sagði aðhvorki stjórnarherinn né Bandaríkjaher gætu unnið hernaðarlegan sigur í E1 Salvador. Þjóðfrelsisfylkingin byggði á langri og lýðræðislegri hefð og þjóðin í E1 Salvador ætti sér einnig langa baráttusögu fyrir frelsi og mannréttindum. En á meðan stjórnvöld í Bandaríkjun- umsæju ekki að sér og hættu stuðningi við stjórnina í E1 Salva- dor myndi styrjöldin halda áfram, og FMNL/FDR væri búin undir langvinna og harða bar- áttu. - ólg. Örvar af gráhærðum streng Silja Aöalsteinsdóttir skrifar um leikhús Hafi einhver haldið að höfuð- staðarbúar sneru baki við Stúd- entaleikhúsinu um leið og at- vinnuleikhúsin tækju til starfa með haustinu, vona ég að sá hinn sami hafi reynt að komast inn á frumsýninguna þar sl. sunnudagskvöld. Þaðan urðu margir að hverfa vonsviknir. Frumsýning var á dagskrá í samantekt Antons Helga Jóns- sonarog Hlínar Agnarsdóttur um atómskáldin, Hvers vegna láta börnin svona? Flutningur á Ijóðum, brotum úr ræðum, greinum og smásögum eftir skáld sem hösluðu sér völl um 1950 og nokkra andmælendur þeirra. Dagskráin var í tveim hlutum og hvor í sínum ramma. Fyrri hlutinn var settur í ramma frægra málfunda sem Stúdentafélag Reykjavík hélt um formbyltingu í ljóðagerð árið 1952, en ekki hélt sá rammi þétt utan um efnið. „Formfastur mað- ur“ (Daníel Ingi Pétursson) heldur ræður, þar sem kenna má málflutn- ing Sveins Bergsveinssonar (hon- um ber einnig heiðurinn af heiti dagskrárinnar) og Björns Sigfús- sonar, yfir einni „ljóðelskri konu“ (Soffíu Karlsdóttur), en inn á milli fær hún að hlusta á dæmi um hina „úrkynjuðu list“. Þar bar hæst flutning Antons Helga á „Orðum“ Sigfúsar Daðasonar, dýrindis góð- an. Einnig var afar skemmtilegt að horfa á leik Ara Matthíassonar að „Hraða“ Jónasar Svavars og flutn- ing hópsins á „Flugum, dæmisögu úr daglega lífinu" eftir Thor Vil- hjálmsson. Svo fór áður en lauk fyrri þætti að hin ljóðelska kona var snúin á sveif með atóm- skáldum. Þau voru aðallega kynnt með verkunum sjálfum, þó heyrðist m.a. málflutningur Steins Steinars og Sigfúsar Daðasonar sem Anton Helgi og Már Jónsson léku. Már var raunar holdi klædd hugmynd manns um hið sanna at- ómskáld, sitjandi á Laugavegi 11, drekkandi svart kaffi, þúnglyndis- legur í holningu. Seinni hlutinn var mun mark- vissar rammaður inn af sögu Ástu Sigurðardóttur, „Gatan í rign- ingu“. Inn á milli leikinna atriða úr Síðari hluti dagskrárinnar er ranunað ur inn af sögu Ástu Sigurðardóttur „Gatan í rigningu“ sögunni voru flutt ljóð í anda henn- ar eftir hin helstu atómskáld og frá- bær bútur úr Ástum samlyndra hjóna eftir Guðberg Bergsson sem þó hlýtur að hafa fengið að vera með efnisins vegna en ekki vegna þess að hann tilheyri kynslóðinni. Hér þótti mér hlutur Ástu gerð- ur minni en efni stóðu til. Ekki svo að skilja: Flutningurinn á sam- tölum úr sögunni var afbragðsgóð- ur. Vilborg Halldórsdóttir lék ungu drukknu konuna af innlifun og Anton Helgi var sannfærandi fyllibytta - raunar var þetta atriði sett upp af mikilli dirfsku miðað við reynslu leikenda, en það heppnað- ist alveg. Og aðrir þátttakendur stóðu sig eins og vera bar. En texti sögunnar var sárlega sniðgenginn, og hefði þó mátt lesa hann eins og ljóð: „Það færðist yfir mig værð, - notalegur dofi. Eg heyrði stærðar hljómsveit leika í þakrennunum og á öskutunnulokunum. Sönglandi fallhljóð dropanna varð að sam- felldu lagi með hraða og stígandi, - sá ódauðlegi snillingur lék píanó- sóló við undirleik þess mikla or- kesturs. - Hikandi, leitandi stakk- ató. Úrkoman jókst svo það dundi í trommunum og hvæsandi kjuðarn- ir féllu á málmgjallirnar eins og skriður“. Vel hefði hann sómt sér í heilu lagi, texti Ástu, en lengri brot en samtölin stuttu hefðu líka verið vel þegin. Áhorfendur voru ýmislega minntir á hvernig tíminn hagar sér í dagskránni um atómskáldin. Á undan henni voru t.d. leikin þjóð- leg lög með karlakórum sem þögnuðu þegar málstaður „form- fasta mannsins" glataði fylgi. Andi atómskáldanna ríkti lengi einn í seinni hlutanum, en svo fór að ung- ur aðsópsmikill maður (Hilmar Jónsson) kom til atómskáldsins á kaffihúsinu og vildi selja honum ljóðahefti. Var atgangur hins unga skálds (sem gat heitið Einar) svo harður að þunglynda baráttu- •skáldið frá eftirstríðsárunum flýði af hólmi. Eftir að dagskránni lauk söng svo Megas. Snjall endir á góðu kvöldi. Efni dagskrárinnar er val um- sjónarmanna úr verkum atóm- skáldanna og hefur um margt tekist þannig til að dagskráin ætti að Iaða nýja lesendur að þessum djörfu byltingarmönnum síns tíma. Þó er ekki hægt að ljúka svo þessu spjalli að ekki sé minnst á manninn sem vantar í dagskrána, að eigin ósk að því er segir í leikskrá, Stefán Hörð Grímsson. Að hinum ólöstuðum, Sigfúsi Daðasyni, Hannesi Sigfúss- yni, Einari Braga, Jóni Óskari og prósaskáldunum Ástu og Thor, þá er Stefán Hörður listfengasta skáld sinnar tíðar og enginn tekur honum fram þar sem hann er bestur. Að lokum loka vil ég þakka fyrir læsilega leikskrá og tónlistina í styrkum höndum Svanhildar Ósk- arsdóttur og Sigríðar Eyþórsdóttur sem voru ekki minnstir leikarar í sýningunni og létu hljóðfærin sín leika líka, í minnsta kosti tveim merkingum þess orðs.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.