Þjóðviljinn - 25.11.1983, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 25.11.1983, Blaðsíða 3
Föstudagur 25. nóvember 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3 Banaslys um borð í Berki Aftakaveður á loðnumiðunum við Kolbeinsey í fyrrinótt 28 ára gamall sjómaður á Berki NK-102 lést í gærmorgun af slysförum þar sem skipið var statt á loðnuveiðum skammt undan Kolbeinsey. Tildrög slyssins voru þau að skömmu eftir að Börkur kastaði nótinni í fyrrinótt, gerði aftakaveður á miðunum og varð sjómaðurinn fyrir þungu höfuðhöggi. Var strax leitað hjálpar hjá landhelgisgæslu en ekkert varðskip var þá á loðnuveiði- svæðinu norður fyrir landinu. Einn- ig var leitað aðstoðar björgunar- þyrlu frá bandaríska hernum, en hún gat ekki athafnað sig vegna þess hve veðrið var slæmt á slysstað, um 10 vindstig og mikill sjór. Var þá gripið til þess ráðs að skera á hluta nótarinnar til að flýta fyrir að koma skipinu til hafnar, en þá tókst svo illa til að nótin flæktist í skrúfuna og varð Börkur vélarvana. Loðnuveiðiskipið Bjarni Ólafs- son frá Akranesi tók þá Börk í tog. Sjómaðurinn sem slasaðist var þá Börkur NK102 var að veiðum skammt undan Kolbeinsey þegar slys varð um borð og ekkert var hægt að gera til að koma hinum slasaða til aðstoðar. látinn. Var von á skipunum til Nes- kaupstaðar í nótt sem leið. Skipverjinn sem lést hét Sigurður Hálfdánarson, Starmýri 21, Nes- kaupstað. Hann var fæddur 17. des- ember 1955, giftur og þriggja barna faðir. Sigurður hafði verið skipverji á skipum Sfldarvinnslunnar í Nes- kaupstað í áratug. -Ig. Útför Tómasar skálds Guðmundssonar fór fram í gær frá Dóm- I Myndin er tekin er kista skáldsins var borin úr kirkju af fulitrúum kirkjunni á vegum Reykjavíkurborgar að viðstöddu fjölmenni. | borgarinnar og vinum Tómasar og samstarfsmönnum. (Ljósm. eik). Aróðurskostnaðurinn margfaldaðist á aðeins einum mánuði Steingrímur 13. október: 95 þúsund krónur Steingrímur 22. nóvember: 353 þúsund krónur • „Ég get upplýst það, að útgáfukostnaður þessa rits er áætlaður 95 þúsund krónur“, sagði Steingrímur Her- mannsson í svari við fyrirspurn Svavars Gestssonar í umræðum á alþingi 13. október í fyrra mánuði þegar Svavar spurðist fyrir um útgáfukostnaðinn af auglýs- ingabæklingi ríkisstjórnarinnar. • Á alþingi á þriðjudaginn sagði Steingrímur hins veg- ar að útgáfa bæklingsins hefði kostað 353 þúsund. Hann sagði að útgáfa bæklingsins og fundaherferð hefði kostað rúmlega 403 þúsund krónur. • í viðtali við Þjóðviljann um áróðursbæklinginn í október sl. sagði forsætisráðherrann: „Þetta er ekki svo kostnaðarsamt“. Þannig hefur ráðherrann talað tveim tungum við þing og þjóð. í umræðunum á alþingi sagði forsætisráðherra að ferðalög hans hefðu ekki kostað neitt af því hann ferðaðist á sinni eigin bifreið (Blazernum) og með flu- gvélum Flugmálastjórnar og með skipum Landhelgis- gæslunnar. „Óskammfeilni og bífræfni“, sagði Stefán Benedikts- son alþingismaður um málflutning forsætisráðherrans. „Ég tel þetta misnotkun á almannafé“, sagði Geir Gunnarsson alþingismaður um þessi ósköp Steingríms Hermannssonar. -óg Slysið á loðnumiðunum Sjómanna- sambandið krefst aðgerða „Sjómannasamband íslands vill þess vegna af gefnu tilefni krefjast þess að allt verði gert sem í mannlegu valdi stendur tH að tryggja öryggi loðnusjó- manna og neitar að trúa því að óreyndu að stjórnvöld meti þyngra sparnaðarsjónarmið heldur en líf og öryggi þeirra sjómanna sem eru við störf á ioðnumiðunum“. Þannig segir m.a. í yfirlýs- ingu sem Sjómannasamband íslands sendi frá sér í gær eftir hið hörmulega slys um borð í Berki á loðnumiðunum í fyrra- kvöld. Þetta mál var rætt í þing- sölum í gær er Pétur Sigurðs- son spurði sjávarútvegsráð- herra hvort einhver áform væru uppi um að bæta öryggi siómanna á hafi úti. Halldór Asgrímsson kvaðst hafa rætt við Landhelgisgæsluna í gær og fleiri aðila og væri nú í athugun að senda varðskip með lækni um borð á miðin. í ályktun Sjómannasam- bandsins segir að óverjandi sé að ekkert hjálparskip skuli fylgja loðnuflotanum eftir sem hafi aðstöðu til að veita nauðsynlegustu neyðarþjón- ustu. Sjómannasambandið gerir í yfirlýsingu sinni þá kröfu til ríkisstjórnarinnar að hún sendi varðskip þegar í stað á miðin og einnig er lögð áhersla á að þegar verði keypt þyrla til Landhelgisgæslunnar í stað TF RÁNAR sem nýlega fórst í Jökulfjörðum. Banaslys á gangbraut Kona á áttræðisaldri bcið bana í umferðinni síðdegis í fyrradag. Varð hún fyrir bifreið á gangbraut fyrir lraman Mjólkursamsöluna á Laugavegi. Lést hún á leið á sjúkra- hús. Slysið varð laust fyrir kl. 18 og því komið uiyrkur auk þess sem slæmt skyggni var vegna rigningar. Engin miðeyja er á götunni þar sem gang- brautin er og ekki heldur umferð- arljós. Þriggja nafna gata Byggingarnefnd Reykjavíkur- borgar hefur ákveðið þrjú nöfn á sömu götu í borginni, það er þeirri sem hingað til hefur að öllu leyti borið nafnið Selásbraut. Skal hún heita það frá Rofabæ og suður f nýja hverfið í Selásnum. Við göt- urnar Mýrarás, Malarás, Lækjar- ás, Kleifarás og Klapparás skal hún heita Sauðás og vestasti hlutinn frá Rofabæ og suður að íþróttasvæði Fylkis skal nafnið vera Fylkisveg- ur.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.