Þjóðviljinn - 25.11.1983, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 25.11.1983, Blaðsíða 14
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 25. nóvember 1983 íshafssaga eftir H.Innes Iðunn hefur gefið út nýja sögu eftir Hammond Innes. Nefnist hún Hclför á heimskautaslóðir og er sautjánda bók höfundar sem út er gefin í íslenskri þýðingu. Ham- mond Innes er breskur og stendur nú á sjötugu. Hann hefur hlotið mikla viðurkenningu sem spennu- sagnahöfundur óg er kunnur að því að kynna sér vel vettvang sagna sem ýmsar gerast í fjarlægum löndum. Helför á heimskautaslóðir segir frá för Duncans Graig, fyrrverandi sjóliðsforingja, til Suður-íshafsins.' „Hundruð leiðangursmanna lenda íólýsanlegum mannraunum," segir í kynningu forlagsins, „bæði af manna völdum og óblíðrar náttúr- unnar. Þrír hvalveiðibátar og verksmiðjuskipið Suðurkrossinn farast í ísnum. Og meðal hvalveiði- manna er kaldrifjaður morðingi." Helför á heimskautaslóðir þýddi Álfheiður Kjartansdóttir. Bókin er 216 blaðsíður. Líf og list Jane Fonda Út er komin hjá bókaforlaginu Iðunni bókin Jane Fonda - Leikkonan í samtíð sinni. Höfund- ur er Fred Lawrence Guiles, en Alf- heiður Kjartansdóttir þýddi. - í bók þessari er rakinn æviferill hinnar frægu kvikmyndaleikkonu, stjórnmálamanns og nú síðast lík- amsræktarfrömuðar, Jane Fonda. í bókinni er mikill fjöldi mynda frá ferli hennar, jafnt í kvikmyndum sem einkalífi. Jane Fonda er dóttir hins fræga leikara Henrys Fonda. Hún ólst upp við erfiðar aðstæður að ýmsu leyti, þar sem foreldar liennar skildu og móðir hennar réð sér litlu síðar bana. Leið Jane til frama í kvikmyndum varð torsótt, en örlagaríkust á þeim vettvangi urðu kynni hennar af franska leikstjór- anum Roger Vadim. Undir hans stjórn lék hún í þeim kvikmynum sem gerðu hana fræga. Jane Fonda dvaldist um skeið í Indlandi seint á sjöunda áratugn- i?!Mi LaWMéiár irULUrh' um. Sú dvöl hafði mikil áhrif á hana og upp úr því tók hún að beita sér í stjórnmálum og barðist hart egn Nixon forseta og stefnu hans. kvikmyndum sínum seinni árin leitast hún við að sameina skemmtun og pólitískan boðskap og er myndin Kjarorkuleiðsla til Kína einna frægust í því samhengi. Unglinga- saga Andrésar Fjórtán...Bráðum fimmtán heitir unglingasaga eftir Andrés Indriðason sem komin er út hjá Máli og menningu. Hún er sjálf- stætt framhald sögunnar Viltu byrja með mér? sem kom út í fyrra. Söguhetjan er Elías sem býr í Breiðholtinu, fjórtán ára- bráðum fimmtán, og sagan gerist sumarið áður en hann byrjar í níunda bekk. Það verður viðburðaríkt sumar og skiptast á skúrir og skin. Það besta sem gerist er að hann kynnist Evu, aðal hlaupaspírunni á landinu, eins og Lási bróðir hans segir, fallegri stelpu af Akranesi. Hún er líka góður félagi þegar reynir á. AMDRÉS iMDRIDASON y Fjórtán...Bráðum fimmtán er 177 bls., prýdd mörgum myndum eftir Önnu Cynthiu Leplar. Að byrja í skólanum Ut er komin hjá Máli og menn- ingu ný íslensk barnabók eftir Sig- ríði Eyþórsdóttur, sem heitir Lena- Sól. Sigríður hefur áður gefið út bækur handa börnum auk þess sem hún er kunn fyrir barnatíma sína í Ríkisútvarpinu. Sagan gerist daginn sem Lena- Sól fer í skólann í fyrsta sinn. Hún er nýflutt í bæinn með mömmu sinni og þekkir engan ennþá, þess vegna er það henni mikið til- hlökkunarefni að byrja í skóian- um. En margt fer öðruvísi er ætlað er og dagurinn verður afdrifaríkari en nokkurn gat grunað. Bókin er 40 bls., prentuð með góðu letri fyrir þá sem eru nýfarnir að lesa sjálfir. Margar teikningar eru í bókinni eftir Onnu Cynthiu Leplar. leikhús » kvikmyndahús K ÞJOÐLEIKHÚSUa Skvaldur í kvöld kl. 20. Afmælissýning íslenski dansflokkurinn 10 ára laugardag kl. 15. Ath.: Verö aðgöngumiða hið sama og á barnaleikrit. Eftir konsertinn laugardag kl. 20. Næst síðasta sinn. Lína langsokkur 60. sýning sunnudag kl. 15. Návígi 6. sýning sunnudag kl. 20. Afmælissýning íslenski dansflokkurinn 10 ára þriöjudag kl. 20. Siðasta sinn. Litla sviðið Lokaæfing sunnudag kl. 20.30. Þriðjudag kl. 20. Uppselt. Miðasalakl. 13.15-20, sími 11200 lkikfeiac; REYKIAV-IKIJR Ur lífi ánamaökanna í kvöld kl. 20.30 fimmtudag kl. 20.30 Allra síðasta sinn. Hart í bak laugardag kl. 20.30 miðvikudag kl. 20.30. Guð gaf mér eyra 8. sýn. sunnudag kl. 20.30. Appelsinugul kort gilda. 9. sýn. þriðjudag kl. 20.30. Tröllaleikir Leikbrúðuland sunnudag kl. 15 mánudag kl. 20.30. Síðustu sýningar á árinu. Miðasala í Iðnó kl. 14-20.30, simi 16620. Forseta- heimsóknin Miðnætursýning í Austurbæjarbíói laugardag kl. 20.30. Miðasala i Austurbæjarbíói kl. 16-21, sími 11384. ÍSLENSKA ÓPERAN La Travíata ' I kvöld kl. 20. Sunnudag kl. 20. Síminn eftir Menotti Einsöngvarar: Elín Sigurvinsdóttir, John Speight. Miðillinn eftir Menotti Einsöngvarar: Þuríður Pálsdóttir, Katrin Sigurðardóttir, Sigrún V. Gestsdóttir, Jón Hallsson og Viðar Eggertsson leikari. Hljómsveitarstjóri: Marc Tardue. Leikstjóri: Hallmar Sigurðsson. Leikmynd: Steindór Sigurðsson. Búningar: Hulda Kristín Magnús- dóttir. Lýsing: Sigurbjarni Þórmundsson. Sýningarstjóri: Kristin S. Kristjáns- dóttir. FRUMSÝNING föstudag 2. des. kl 20 2. sýn. sunnudag 4. des. kl. 20 Miðasala opin daglega frá kl. 15-19 nema sýningardag til kl. 20 Sími 11475. REVIULEIKHÚSIÐ SÝNIR íslensku revíuna á Hótel Borg föstudags- og laugardagskvöld kl. 20.30 Sérstakur revíumatseðill. Ath. Aðeins fáar sýningar. Simi 11440. SIMI: 1 89 36 Salur A Drápfiskurinn (Flying Killersj •ECJ Islenskur texti Afar spennandi ný amerísk kvik- mynd í litum. Spenna frá upphafi til enda. Leikstjóri: James Cameron Aðalhlutverk: Tricia O'Neil, Steve Marachuk, Lance Henriksen. Sýnd kl. 5, 9 og 11. Bönnuð innan 14 ára. Midnight Express Heimsfræg amerísk verðlauna- kvikmynd i litum. Aðalhlutverk: Brad Davis, Irene Miracle. Endursýnd kl. 7. Islenskur texti. Salur B Trúboðinn (The Missionary) Islenskur texti Bráðskemmtileg og alveg bráð- fyndin ný ensk gamanmynd í litum um trúboða, sem reynir að bjarga föllnum konum í Soshohverli Lund- únarborgar. Leikstjóri: Richard Loncraine. Aðalhlutverk: Michael Palin, Maggle Smith, Trevor Howard, Denholm. Sýnd kl. 9 og 11. Annie Heimsfræg ný amerisk stórmynd um munaðarlausu stúlkuna Annie sem hefur fari sigurför um allan heim. Annie sigrar hjörtu allra. Sýnd kl. 4.50 og 7.10. Heimsfræg stórmynd: Blade Runner Óvenju spennandi og stórkostlega vel gerð stórmynd, sem alls staðar hefur verið sýnd við metaðsókn. Myndin er í litum, Panavision og Dolby Stereo. Aðalhlutv.: Harri- son Ford, Rutger Hauer, Sean Young. Islenskur texti. Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 5, 7.05, 9 og 11.10. Hækkað verð. Draumar í höfðinu Kynning á nýjum íslenskum skáld- verkum. Leikstjóri: Arnór Benónýsson. 3. sýn. föstudag 25. nóv. kl. 20.30 4. sýn. mánud. 28. nóv. kl. 20.30. i Félagsstotnun stúdenta v/Hringbraut. Veitingasala. Sími 17017. LAUGARA Sophies Choice Ný bandarisk stónnynd gerð af snillingnum Allan J. Pakula. Meðal mynda hans má nefna: Klute, All the Presidents men, Starting over, Comes a horseman. Allar þessar myndir hlutu útnefn- ingu Oskarsverðlauna. Sophies Choice var tilnefnd til 6 Oskars- verðlauna. Meryl Streep hlaut verðlaunin sem besta leikkonan. Aðalhlutverk: Meryl Streep, Ke- vin Kline og Peter MacMicol. Sýnd kl. 5 og 9 Hækkað verð. Q 19 OOO Soldier blue Hin frábæra bandaríska litmynd, um átök við indíána og meðferð á þeim, með Candice Bergen, Pet- er Strauss. Islenskur texti. Bönnuð innan 16 ára. Endursýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15. Prá Veroniku Voss Mjög athyglisverð og hrifandi ný þýsk mynd, gerð af meistara Fass- binder, ein hans síðasta mynd. Myndin hefur fengið margskonar viðurkenningu, m.a. Gullbjörninn í Berlín 1982. Aðalhlutv.: Rosel Zech, Hilmar Thate, Annemarie Diiringer. Leikstjóri: Rainer Werner Fassbinder. Islenskur texti. Sýnd kl. 7.05 og 9.05. í greipum dauðans Hin æsispennandi Panavision- litmynd, um ofboðslegan eltinga- leik. Hann var einn gegn öllum, en ósigrandi, með Sylvester Stal- lone, Richard Crenna. - Leik- stjóri: Ted Kotcheff. íslenskur texti. - Bönnuð innan 16 ára. Myndin er tekin i Dolby-stereo. Sýndkl. 3.05, 5.05 og 11.05. Gúmmí-Tarsan Frábær skemmtimynd, „Maður er alltaf góður í einhverju". Aðal- hlutv.. Axel Svanbjerg, Otto Brandenburg. Leikstjóri: Sören Kragh Jacobsen. Islenskur texti. Sýnd kl. 3,10 og 5,10. Ránið á týndu örkinni Sýnd kl. 7 - 9 og 11,10 Dýrlingurinn á hálum ís Spennandi og bráðskemmtileg ævintýramynd, um afrek hins fræga kappa „Dýrlingsins", með Roger Moore, Sylvia Syms. Islenskur texfi. Bönnuð innan 12 ára. Endursýnd kl. 3.15, 5.15, 7.15, 9.15 og 11.15, Lif og fjör á vertið i Eyjum með grenjandi bónusvikingum, fyrrver- andi fegurðardrottningum, skip, stjóranum dulræna, Júlla húsverði, Lunda verkstjóra, Sigurði mæjón- es og Westuríslendingunum John Reagan - frænda Ronalds. NÝTT LÍF! VANIR MENN! Sýnd kl. 5, 7 og 9. Nú fer sýningum fækkandi. TÓNABlÓ SÍMI: 3 11 82 Verðlaunagrínmyndin: Guðirnir hljóta að vera geggjaðir (The Gods Must be Crazy) ..-<ii Með mynd þessari sannar Jamie Uys (Funny Peoþle) að hann er snillingur i gerð grinmynda. Myndin hefur hlotið eftirfarandi verðlaun: Ágrínhátíðinni í Chamro- usse Frakklandi 1982: Besta grín- mynd hátíðarinnar og töldu áhorf- endur hana bestu mynd hátíðar- innar. Einnig hlaut myndin sam- svarandi verðlaun í Sviss og Nor- egi. Leikstjóri: Jamie Uys. Aðalhlutverk: Marius Weyers, Sandra Prinsloo. Sýnd kl. 5, 7.10 og 9.15. Simi 78900 Salur 1 Frumsýnir grínmyndina Zorro og hýra sverðið (Zorro, the gay blade) Eftir að hafa slegið svo sannarlega i gegn í myndinni Love at first bite, ákvað George Hammilton að nú væri tímabært að gera stólpagrin að hetjunni Zorro. En afhverju Zorro? Hann segir: Búið var að kvikmynda Superman og Zorro kemur næstur honum. Aðalhlutverk: Geoge Hamilton, Brenda Vaccaro, Ron Leibman, Lauren Hutton. Leikstjóri: Peter Medak. Sýnd kl. 5, 7, 9og 11. X Salur 2 Skógariíf (Jungle Book) og Jólasyrpa Mikka mús Einhver sú alfrægasta grinmynd sem gerð helur veriö. Jungle Book hefur allstaðar slegið aðsóknar- met, enda mynd fyrir alla aldurs- hópa. Saga eftir Rudyard Kipling um hið óvenjulega lif Möwglis. Aðalhlutverk: King Louie, Mow- gli, Baloo, Bagheera, Shere- Khan, Col-Hathi, Kaa. Sýndkl. 3, 5,7, 9 og 11. ________Salur 3_________ Herra mamma (Mr. Mom) Splunkuný og jafnframt frábær grinmynd sem er ein aðsóknar- mesta myndin í Bandaríkjunum þaþa árið. Mr Mom er talin vera grínmynd ársins 1983. Jack missir vinnuna og verður að taka að sér heimilisstörfin, sem er ekki beint við hæfi, en á skoplegan hátt krafl- ar hann sig fram úr því. Aðalhlutverk: Michael Keaton, Teri Garr, Martin Mult, Ann Jil- lian. Leikstjóri: Stan Dragoti. Sýnd kl. 5, 7,9 og 11. ________Salur 4_________ Porkys Hin vinsæla grínmynd sem var þriðja vinsælasta myndin Vestan- hals í fyrra. Aðalhlutverk: Dan Monahan og Mark Herrier. Sýnd kl. 5 Ungu lækna- nemarnir Sýnd kl. 9 og 11. Afsláttarsýningar 50 krónur. Mánudaga til föstudaga kl. 5 og 7 50 krónur. Laugardaga og sunnudaga kl. 3. SIMI: 2 21 40 Flashdance Þá er hún loksins komin - myndin sem allir hafa beðið eftir. Mynd sem allir vilja sjá - aftur og aftur og... Aðalhlutv.: Jennifer Beals, Michael Nouri. Sýnd kl. 7. ATH! hverjum aðgöngumiða fylgir rr.iöi, sem gildir sem 100 kr, greiðsla upp í verð á hljómplötunni Flashdance. „Foringi og fyrirmaður Afbragðs óskarsverðlaunamynd með einni skærustu stjörnu kvik- myndaheimsins í dag Richard Gere. Mynd þessi hefur allsstaðar fengið metaðsókn. Aðalhlutverk: Richard Gere, Lou- is Crossett, Debra Winger (Ur- ban Cowboy). Sýnd kl. 9. Fáar sýningar eftir. Hækkáð verð.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.