Þjóðviljinn - 25.11.1983, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 25.11.1983, Blaðsíða 7
Sýrland: Fostudagur 25. rióvember 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7 Arabar eru ein þjóð og Assad er leiðtogi hennar „Við styðjum allar ákvarðanir lögmæta ráðs (PLO). Hið ólögmæta felst í því að fylgja ekki þessum ákvörð- unum. Arafat verður lögmætur þegar hann fer eftir þessum ákvörðunum, en þegar hann gerir það ekki tapar hann stöðu sinni... Við höldum því fram að allar palestínskar ákvarðanir verði að taka án samsæris gegn samþykktum æðstaráðs PLO um að berjast gegn heimsvaldastefnunni. Þessar samþykktir fela í sér að Palestínumenn verða að taka afstöðu með Sýrlandi því Sýrland berst gegn heimsvaldastefnunni“. Þannig komst dr. Fawwaz Suyy- agh, blaðafulltrúi Baath-flokksins í Sýrlandi að orði við fréttaritara danska blaðsins Information, þar sem hann reyndi að leita skýringa á þátttöku Sýrlendinga í aðförinni að Arafat og palestínskum stuðnings- mönnum hans í Tripoli í Líbanon. Röksemdafærsla blaðafulltrúans fer reyndar í hring, þannig að for- sendan verður að ályktun og öfugt, en í máli hans kemur fram að Sýr- lendingar byggja stefnu sína á tveim meginatriðum. Annars veg- ar er Arafat gagnrýndur fyrir að hafa í mars s.l. reynt að vinna fylgi við þá hugmynd að gefa Hussein Jórdaníukonungi umboð til þess að semja við Bandaríkin um svokall- aða Reagan-áætlun um stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínumanna í tengslum við Jórdaníu. Meirihluti æðstu valdastofnana A1 Fatah og PLO lagðist gegn þessum hug- myndum, og hafa þær ekki verið á dagskrá síðan, svo vitað sé. Þetta kalla Sýrlendingar svik Arafats við „baráttuna gegn heimsvaldastefn- unni“. „Palestínumenn eru ekki þjóð“ Hins vegar telja Sýrlendingar Palestínumenn ekki vera eiginlega þjóð, heldur séu þeir aðeins hluti af þjóð araba, eða eins og blaðafull- trúinn orðaði það: „Samkvæmt hugmyndafræði Baat-flokksins mynda allir arabar eina þjóð. Pal- estínumenn eru hluti af hinni arab- ísku þjóð, og margir félagar okkar í Baath-flokknum eru Palestínu- menn“. Þegar blaðafulltrúinn er síðan spurður um hvað gerast mundi, ef meirihluti Palestínu- manna mundi ákveða eitthvað, sem bryti í bága við stefnu Sýr- lands, svaraði blaðafulltrúinn: „Slíkt getur vart komið til, þar sem Baath-flokkurinn gerir ekki annað en að túlka vilja hins arabíska fjölda“. Jassir Arafat var vísað úr landi í Sýrlandi 24. júní s.l. eftir að hann hafði gagnrýnt sýrlensk stjórnvöld fyrir að styðja við bakið á upp- reisnaröflum innan PLO. Upp- reisnarmennirnir létu svo til skarar skríða gegn flóttamannabúðunum í Norður-Líbanon þar sem Arafat hélt til í byrjun þessa mánaðar og njóta til þess fulls stuðnings Sýrl- endinga, bæði í vopnum og mann- afla að því er fréttaritarar segja, þótt opinberlega hafi það ekki ver- ið viðurkennt. Uppreisnarmenn andvígir samningum Mahmoud Labadi, fyrrverandi talsmaður Arafats, sem vikið var frá störfum í apríl s.l., er einn þeirra sem snúist hafa á sveif með uppreisnarmönnunum. Hann segir í viðtali við fréttaritara Informati- on að auk eftirgefni við ísrael og Bandaríkin hafi Arafat gerst sekur um fjármálaspillingu og að starfs- hættir hans hafi virkað lamandi á A1 Fatah og að hann hafi ráðið óhæfa menn í ábyrgðarstöður í her Palestínumanna og að hann hafi ekki refsað þeim sem brutu af sér. Abu Mussa, sá sem stjórnað hefur hernaðinum gegn flóttamannabúð- unum í N-Líbanon var áður einn af æðstu mönnunum í herráði PLO og talinn kunna vel til verka í því sviði. Hann gagnrýndi Arafat fyrir eftir gagnssemi gagnvart ísrael og Bandaríkjunum eftir ósigurinn í Beirut fyrir ári síðan, og hann hef- ur haft með sér í uppreisnarliðið allmarga yfirmenn í hersveitum PLO sem þótti Arafat leggja of mikla áherslu á hina pólitísku og diplómatísku hlið deilunnar á kostnað hins hernaðarlega viðbún- aðar. Þessi öfl innan PLO hafa í raun og veru sett sig gegn öllum samningum eða samkomulagi er fæli í sér viðurkenningu á ísrael. Sýrlendingar hafa nú séð sér hag í að styðja þessi öfl, jafnvel þótt Sýr- land sjálft standi áfram að hinni mikilvægu yfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna númer 242, þar sem til- vera ísraels er viðurkennd. Sýr- lendingar leika því tveim skjöldum eða fleiri í þessu máli. Þversögn í Líbanon Þannig er hlutverk þeirra í Lí- banon í meira lagi tvírætt: annars vegar eru þeir í þann veginn að ganga á milli bols og höfuðs á PLO og færa þar með ísrael og Banda- ríkjunum langþráðan sigur á silf- urfati. Hinsvegar eru þeireinaher- veldið sem stendur gegn því að Bandaríkin og ísrael geti fengið vilja sínum framgengt í einu og öllu á þessu svæði. Þessi þversagnafulla staða Sýrlendinga hefur orðið til þess að veita þeim óvenju sterka stöðu, bæði gagnvart öðrum araba- ríkjum, sem og gagnvart Banda- ríkjunum og ísrael. Sýrlendingar hafa nú 30-40.000 hermenn í Líbanon. Þetta herlið kom þangað 1976 að beiðni Araba- bandalagsins til þess að stilla til friðar í borgarastríðinu sem skollið var á á milli kristinna manna og múslima í Líbanon. Síðastliðinn vetur fór ríkisstjórn Gemayels í Lí- banon fram á það að sýrlenskar hersveitir hyrfu á brott úr landinu. Talsmaður Baath-flokksins segir að hér hafi þó ekki verið um form- lega beiðni að ræða, heldur viljayf- irlýsingu, og að ekki væri hægt að taka hana til greina af tveim ástæð- um: annars vegar sé ríkisstjórnin í Líbanon ekki þjóðkjörin og hafi því ekki umboð þjóðarinnar, held- ur einungis hinna kristnu maron- íta. „f öðru lagi voru engir ísra- elskir hermenn í Líbanon þegar við komum, og við munum ekki fara á meðan landið er hersetið af ísra- el“. Spil á hendi Þegar Sýrlendingar hafa náð valdi á PLO munu þeir geta notað samtökin sem spil á hendi í viður- eign sinni við Bandaríkin og ísrael um framtíð Mið-Austurlanda. Með slíkt spil á hendi ættu þeir að hafa meiri möguleika á að endur- heimta Golan-hæðirnar sem ísra- elsmenn unnu af þeim í stríðinu 1967, en margir eru þeirrar skoð- unar að Golan-hæðirnar skipti meira máli fyrir Sýrlendinga en sjálfstæði palestínsku þjóðarinnar. Hin auknu áhrif Sýrlendinga verða því endanlega á kostnað pal- estínsku þjóðarinnar. Málstað hennar er enn einu sinni fórnað, en í þetta skiptið kann það einnig að verða ísrael og Bandaríkjunum dýrkeypt. Þá má einnig ætla að slík staða muni auka á spennuna á milli Sýrlendinga og Jórdaníu, þar sem Palestínumenn eru fjölmennastir og stuðningur virðist mestur við málstað Arafats. En sú forsenda friðar á Mið-Austurlöndum, að Palestínumenn fái að stofna sitt eigið ríki virðist nú lengra undan en nokkru sinni fyrr. • Blikkiðjan Iðnbúð 3, Garðabæ Onnumst þakrennusmiði og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíði. Gerum föst verðtilboð SÍMI 46711 Auglýsið í Þjóðvil.janum Hermaður úr liði Arafats freistar þess að komast yfir götuvígi í Líbanon. Liðsmönnum Arafats hefur nú verið gefinn frestur til laugardags til að yfirgefa Tripoli. Réttarholtsútibú Iðnaðarbankans á mótum Sogavegarog Réttarholtsvegar. Aukin þjónusta við íbúa nærliggjandi hverfa pg þá sem leið eiga hjá. í Réttarholtsútibúinu fara fram öll almenn bankaviðskipti. Við leggjum sérstaka áherslu á persónulega þjónustu og ráðgjöf; - t.d. um þau mismunandi inn- og útlánsform sem henta hverju sinni. Verið velkomin á nýja staðinn og reynið þjónustuna. Mnaðaitankinii Réttarhoftsútibú, Réttarholtsvegi 3, sími 85799 ólg/inf.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.