Þjóðviljinn - 08.12.1983, Síða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 8. desember W83
Enrico Berlinguer: vægðarlaus gagnrýni hans á Bettino Craxi er vatn á myllu einangrunarsinnanna segir
Lucio Colletti
Kommúnistaflokkur Ítfilíu
Flokkur í kreppu
I sveitar- og bæjarstjórn-
arkosningum sem nýlega
áttu sér stað í nokkrum hér-
uðum á Ítalíu beið Kommún-
istaflokkurinn óvæntan ósig-
ur og tapaði m.a. meirihlut-
astöðu sinni í Napoli. Sigur-
vegarar í kosningunum voru
þeir 5 flokkar sem mynda
meirihlutastjórn á Ítalíu undir
forystu sósíalistans Bettinos
Craxi.
Úrslitin komu meðlimum
flokksins mest á óvart að því er
virðist, og yfirskrift miðstjórnar-
fundarins sem haldinn var eftir
kosningarnar var þessi: hvað höf-
um við gert rangt?
Lucio Colletti, þekktur fræði-
maður úr röðum vinstri manna á
Ítalíu, er ekki í vafa um svarið.
Hann skrifar í grein í vikuritið
Espresso að Kommúnistaflokkur-
inn, sem náði 35% atkvæða í kosn-
ingum 1975, hafi verið á stöðugri
niðurleið síðan og ástæðan sé sú,
að flokkurinn hafi ekki náð að
móta haldbæra stefnu. Bendir
hann á að flokkurinn hafi á síðustu
fjórum árum gjörbreytt um stefnu
- horfið frá hinni „sögulegu mála-
miðlun“ við hin kaþólsku öfl í
landinu að því sem nefnt hefur ver-
ið „lýðræðislegi valkosturinn“,
sem fyrst kom á dagskrá haustið
1980 og felur í sér myndun vinstri-
meirihluta án þátttöku kaþólikk-
anna. Coletti segir hins vegar að
flokkurinn hafi aldrei náð að losa
Bettino Craxi krossar sig gagnvart
ásökunum Berlinguers um and-
lýðræðislegt stjórnarfar og segir
stefnu kommúnista innantómt
orðagjálfur
sig fuilkomlega úr fyrri hugmynd-
inni og aldrei náð að tileinka sér þá
síðari eða sýna fram á hana sem
raunverulegan valkost, heldur sé
flokkurinn nú sem rekald í tóminu.
Vikið hafi verið frá hinni „sögulegu
málamiðlun“ á miðri leið og um
leið hafi öflum einangrunarsinna
verið gefið undir vænginn með
vægðarlausri gagnrýni á Sósíalista-
flokkinn sem hafi ekki nema nei-
kvæð markmið: að fella meiri-
hlutastjórn Craxis hvað sem það
kosti, leysa upp fimm-flokka
bandalagið og þröngva Sósíalista-
flokknum út úr þeirri sterku stöðu
sem hann hefur náð.
Colletti bendir á fleiri veika
punkta í stefnu flokksins: Sú stað-
reynd að flokkurinn gekkst inn á
aðild Ítalíu að Nato hafi gert hann
tvísaga í friðarumræðunni. Afneit-
un flokksins á þeirri augljósu nauð-
syn að draga úr ríkisútgjöldum, að
halda aftur af verðbólgunni og hafa
hemil á launahækkunum sýni að
stefna hans og valkostur sé lítið
annað en innantóm slagorð.
Colletti segir að flokkurinn hafi
tapað um 4% í kosningunum 1979
og aftur 1,9% 1983 og úrslitin núna
sýni að hér sé um ákveðna þróun
að ræða sem eigi rætur sínar í
stefnu eða stefnuleysi flokksins.
„Þjóðin, sem býr nú við alvarlegt
kreppuástand, er nú að átta sig á
því að Kommúnistaflokkurinn hef-
ur ekki upp á neitt áþreifanlegt að
bjóða: hvorki raunhæfa lækningu
né færa útgönguleið úr krepp-
unni“. Og Colletti lýkurgrein sinni
með því að segja að tími goðsagn-
anna sé liðinn, og því sé það engin
furða að kjósendur dragi sínar
ályktanir, einnig í kjörklefunum.
Sjónarmið Collettis bera vitni
um vissa hugmyndafræðilega
kreppu sem einkennir vinstri-öflin
í V-Evrópu í dag: leiðin út úr efna-
hagskreppunni reynist torrötuð
þegar tími hinna einföldu lausnar-
orða er liðinn. ólg.
Venezúela_______
Sjálfstæðari
utanríkisstefna
eftir sigur
jafnaðarmanna
Sigur Accion Democratica
(AD) í kosningunum í Venez-
uela um síðustu helgi er ekki
talinn valda afgerandi
breytingum í stjórn efna-
hagsmála, en í utanríkismál-
um mun sigur jafnaðar-
manna styrkja viðleitni
Contadora-ríkjanna til þess
að fá fram pólitíska lausn á
deilunni í El Salvador og
styrkja sjálfstæði Nicaragua.
Accion Democratica er jafnað-
armannaflokkur, sem á aðild að
Alþjóðasamandi Jafnaðarmanna.
Flokkurinn hefur verið í stjórnar-
andstöðu frá 1979 á meðan flokkur
kristilegra, COPEI, hefur farið
með völdin.
Venezuela er eitt af þeim fáu
S-Ameríkuríkjum, sem hefur búið
við tiltölulega traustan efnahag síð-
asta áratuginn. En á síðustu tveim
árum hefur alvarlega sigið á ógæfu-
hliðina eins og landsmenn urðu vel
varir við í febrúar s.l. þegar gjald-
miðillinn „bolivar" var felldur um
300% gagnvart öðrum gjaldmiðl-
um. Skuldir Venezuela við útlönd
nema nú um 27 miljörðum dollara
og hallinn á fjárlögum ríkisins fer
stöðugt vaxandi. Luis Herrera
Campins, fráfarandi forseti úr
flokki kristilegra fékk frest hjá Al-
þjóða gjaldeyrissjóðnum fram yfir
áramótin til þess að grípa til „að-
haldsaðgerða" þannig að Venezu-
ela geti staðið við skuldbindingar
sínar. Það má því búast við því að
fyrsta verkefni Jaime Lusinchis ný-
kjörins forseta jafnaðarmanna
verði að grípa til slíkra aðhaldsað-
gerða að kröfu Alþjóða gjaldeyris-
sjóðsins, eins og nú eru í gangi í
Brasilíu, Mexíkó og víðar í álfunni.
Elnhæf framleiðsla
Um 95% af útflutningstekjum
Venezuela koma frá olíunni, og
með lækkandi olíuverði á síðasta
ári hefur það æ betur komið í ljós,
hversu hættulegt það er að búa við
jafn einhæfa afkomu. Samdráttur í
útflutningstekjum hefur komið
fram í hækkuðu verðlagi og auknu
atvinnuleysi heimafyrir, en nú mun
a.m.k. ein miljón vinnufærra
manna ganga atvinnulaus í landi
þar sem eru um 15 miljónir vinnu-
færra manna ganga atvinnulaus í
landi þar sem eru um 15 miljónir
íbúa.
Fráfarandi förseti lýsti því yfir
með bitrum orðum nýlega að í
Venezuela væri mikið af gjaldþrota
fyrirtækjum, en engu að síður stát-
aði landið af einhverjum ríkustu at-
vinnurekendum heims. Með þessu
var hann að vísa til þeirrar
geigvænlegu spillingar sem ríkir í
landinu en báðir stærstu flokkarnir
munu vera svo viðriðnir spilling-
una að fáir vænta þess að stjórn
jafnaðarmanna muni breyta þar
miklu. Þriðji stærsti flokkurinn í
Venezuela er Sósíalíska hreyfingin
(MAS), sem spáð var 12-15% at-
kvæða fyrir kosningarnar. Sá
flokkur er klofningur úr Kommún-
istaflokknum, sem sagt hefur skilið
við Sovétforræðið og tekið upp
hugmyndir Evrópukommúnista.
Sjálfstæðari
utanríkisstefna
í utanríkismálum er talið að
sigur jafnaðarmanna muni verða til
þess að styrkja stöðu Conta-
dora-ríkjanna (Mexíkó, Colomb-
ía, Panama og Venezuela) í við-
leitni þeirra til þess að stilla til
friðar í Mið-Ameríku og finna pól-
itíska lausn á borgarastyrjöldinni í
E1 Salvador.
Fyrri stjórn Venezuela var talin
baggi á Contadora-hópnum, þar
sem hún var of höll undir sjónar-
mið Bandaríkjanna, en stjórn Lus-
inchis mun taka upp stefnu
Alþjóðasambands jafnaðarmanna
um stuðning við stjórn Sandínista í
Nicaragua og pólitíska lausn í E1
Salvador er byggi á að gengið verði
til samkomulags við skæruliða, og
að Bandaríkin hætti íhlutun sinni í
borgarastríðið.
Þess er að vænta að hin nýja
stjórn jafnaðarmanna eigi erfiða
tíma frir höndum innanlands, og að
hún geti gegnt mikilvægu hlutverki
á alþjóðavettvangi við það að stilla
til friðar á því ófriðarsvæði sem nú
nær yfir Karíbahafið og Mið-
Ameríku. - ólg.
Hneykslismál í V-Þýskalandi
Stjómarsamstariið í hættu
I fyrsta skipti í sögu
Þýska sambandslýðveldis-
ins hefur það gerst að ráð-
herra hefur verið ákærður
fyrir mútuþægni og sviptur
þinghelgi. Ákæran á hend-
ur Otto Lambsdorf efna-
hagsráðherra úr flokki
frjálslyndra er alvarlegt
áfall fyrir ríkisstjórn Hel-
muts Kohl, sem mun að
öllum líkindum hafa í för
með sér breytingar á stjórn-
inni ef ekki stjórnarkreppu.
Málið er talið styrkja stöðu
Franz Josefs Strauss í
stjórnarsamstarfi kristilegu
flokkanna og frjálslyndra
um leið og höggið er nærri
kanslaranum sjálfum.
Ákærumálið snýst um
greiðslur Flick-auðhringsins til
stjórnmálaflokkanna. Er þar
ekki einungis um Frjálslynda
flokkinn að ræða, heldur einnig
kristilegu flokkana og Jafnað-
armannaflokkinn. Er talið að
greiðslur til flokkanna hafi oft og
tíðum farið ólöglegar leiðir í
gegnum góðgerðarfélög í þeim
tilgangi að veita viðkomandi
yz—
<fe «sar
,JVIeð leyfi, er sætið ekki laust?“ Þannig lýsir teiknari eins Miinchen-
arblaðsins stöðunni í vesturþýskum stjórnmálum.
fyrirtækjum skattfríðindi. Mál
Ottos Lambsdorf er hins vegar
þannig vaxið að hann er ákærður
fyrir að hafa þegið 1,4 miljónir
króna í flokkssjóðinn frá Flick-
auðfélaginu gegn því að veita því
í krafti ráðherraembættis síns
skattívilnun sem nam hátt á 4.
miljarð íslenskra króna.
Síðastliðinn föstudag svipti
Sambandsþingið í Bonn ráð-
herrann þinghelgi til þess að hægt
væri að kalla hann fyrir rétt.
Lambsdorf hefur lýst yfir sakleysi
sínu, en þær raddir verða nú æ
háværari, einnig innan stjórnar-
flokkanna, að ráðherrann láti af
embætti vegna þessa máls.
Mál þetta er sérstaklega við-
kvæmt í stjórnarherbúðunum í
Bonn vegna kröfu Franz 'Josefs
Strauss leiðtoga CSU í Bayern
um ráðherraembætti. Kohl
kanslari hefur valið þann kostinn
að taka upp hanskann fyrir
Lambsdorf af þeirri einföldu ást-
æðu að staða hans sem kanslara
stendur og fellur með samstarf-
inu við Frjálslynda flokkinn.
Frjálslyndir hafa hótað því að yf-
irgefa stjórnina verði Strauss
látinn taka sæti Lambsdorfs. Ein-
ir munu þeir Kohl og Strauss ekki
valda því að halda uppi minni-
hlutastjórn og því á Kohl engan
góðan kost í stöðunni: stuðn-
ingurinn við Lambsdorf setur
spillingarmerki á stjórn hans í
augum almennings og veikir
stöðu hennar út á við. Kohl virð-
ist hins vegar hafa veðjað á þá
veiku von að lögfræðileg meðferð
og rannsókn málsins dragist svo á
langinn að það muni grafast og
gleymast í vitund almennings í
skjóli nýrra mála.
Mál þetta er ekki síður mikið
áfall fyrir frjálslynda flokkinn,
sem beið mikið afhroð í kosning-
um eftir stjórnarslitin við Jafnað-
armenn fyrir rúmu ári síðan.
Flokkurinn er vart áreiðanlegur
meðreiðarsveinn fyrir kristilegu
flokkana til frambúðar. Sú hefur
einmitt verið afstaða Franz Josefs
Strauss í fyrri deilum hans við
Kohl kanslara. Er nú mótleiks
Strauss beðið í stöðunni, en hann
hefur haft hægt um sig á meðan
málið hefur fyllt síður fjölmiðla í
Sambandslýðveldinu.
Málið hefur hins vegar orðið til
þess að treysta samstöðuna á
milli Genschers formanns Frjáls-
lynda flokksins og Kohls kansl-
ara, sem sjá báðir sína pólitísku
framtíð hanga á slíku samstarfi.
Að sögn fréttaskýrenda hefur
Kohl gefið Genscher loforð um
að þótt svo fari að Lambsdorf
verði að víkja, þá muni embætti
efnahagsmálaráðherra verða
áfram í höndum Frjálslynda
flokksins.
Mál þetta hefur einnig orðið til
þess að þingið í Bonn setti í síð-
ustu viku ný lög um fjármögnun
stjórnmálaflokka. Samkvæmt
þessum lögum eiga flokkarnir nú
að falla undir þau félagssamtök
sem njóta þeirrar sérstöðu að
fjárframlög til þeirra eru frádrátt-
arbær til skatts. Lög þessi eru þó
ekki afturvirk að því leyti að þau
geti orðið Lambsdorff og hugsan-
lega öðrum háttsettum flokks-
leiðtogum til sakaruppgjafar.
„Það skammarlega við þetta
mál er að samtök stjórnmála-
manna og stefna þeirra virðist
ganga kaupum og sölum eins og
hver önnur markaðsvara" var
haft eftir einum fulltrúa jafnaðar-
manna um mál þetta. Væntan-
lega er það sjónarmið ríkjandi á
meðal almennings í V-Þýskalandi
um þessar mundir.
ólg/Spiegel, DN.