Þjóðviljinn - 24.02.1984, Page 12
24 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN! Föstudagur 24. febrúár l984
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið
Vestmannaeyjum
Viðtalstímar
Framvegis verður Garðar Sigurðsson alþingis-
maður með viðtalstíma að Bárugötu 9, síðasta
laugardag i' mánuði kl. 16-19. Næsti viðtalstími
verður laugardaginn 25. febrúar. Kaffi á könnunni.
- AB Vestmannaeyjum.
Húsvíkingar -Þingeyingar
Alþýðubandalagiö á Húsavík auglýsir árshátíð sína sem haldin verður
laugardaginn 25. febrúar í Félagsheimili Húsavíkur.
Hátíðin hefst með borðhaldi kl. 20.00. Húsið opnað kl. 19.30.
Steingrímur og Stefán koma og verða með ef færð og veður leyfa.
Skemmtiatriði við allra hæfi. Látiö skrá ykkur sem allra fyrst í símum
41813 og 41397.
Athugið: Hátíðin er ætluð öllum Allaböllum í Þingeyjarþingi. Hafið
samband. - Nefndin.
Alþýðubandalagið
Miðstjórnarfundur
Miðstjórn Alþýöubandalagsins er boðuð til fundar laugardaginn 3. og
sunnudaginn 4. mars n.k. að Hverfisgötu 105, Reykjavík. Fundurinn
hefst kl. 13.30 á laugardag.
Á dagskrá fundarins verða m.a. kjaramál, utanríkismál, fjármál Alþýðu-
bandalagsins, undirbúningur stefnuskrárumræðu flokksins, nefndakjör
og önnur mál.
Starf kvenna í AB
Þriðjudaginn 28. febrúar verður haldinn fundur í flokksmiðstöðinni um
störf kvenna í flokknum.
Framsögukonur verða Vilborg Harðardóttir varaformaður AB og Mar-
grét S. Björnsdóttir.
Nánar auglýst um helgina. Allt áhugafólk velkomið.
Miðstöð kvenna
Stjórnmálafundir á
Skagaströnd og Blönduósi
Alþýðubandalagið efnir til almennra stjórnmálafunda á Norðurlandi
vestra um næstu helgi á eftirtöldum stöðum:
Skagaströnd í félagsheimilinu, kl. 13 n.k. laugardag 25. febrúar.
Blönduós í félagsheimilinu, sama dag kl. 16.30.
Ragnar Arnalds alþingismaður hefur framsögu á fundunum.
Frjálsar umræður og fyrirspurnir. Fundirnir eru öllum opnir.
Alþýðubandalagið á Sauðárkróki
Bæjarmálaráðsfundur verður haldinn mánudaginn 27. febrúar í Villa
Nova. Dagskrá: Fjárhagsáætlun. - Stjórnin.
Alþýðubandalagið á Akureyri
Stofnun kvennahóps -
breyttur fundartími
Konur í Alþýðubandalaginu og aðrar sem áhuga hafa eru hvattar til að
mæta á rabbfund í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18, mánudaginn 27.
febrúar kl. 20.30. Kaffiveitingar. Athugið breyttan fundardag, þ.e.
mánudagskvöld í stað sunnudagskvölds eins og áður hafði verið
auglýst. - Áhugasamar konur.
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Söfnum fyrir leikföngum
Félagið okkar í Reykjavík er nú komið í nýja og glæsilega aðstöðu að
Hverlisgötu 105. Stórátak meðal félaganna hefur gert drauminn um
gott húsnæði að veruleika og skapað góða aðstöðu til starfs og leikja.
En ennþá vantar fé. Meðal þess sem foreldr-
ar hafa rekið sig á að sárlega vanhagar um er
leikaðstaða barna. Leikföng eru fá til í
flokksmiðstöðinni enn sem komið er.
Nú er hafin söfnun meðal flokksfólks og vel-
unnara Alþýöubandalagsins til að bæta úr
þessu. Allt verður vel þegið hvort sem það
eru fjárframlög eða gömul nothæf leikföng.
Ef þið lúrið á einhverju vinsamlegast látið Kristján Valdimarsson vita í
síma 17500 eða Auði Styrkársdóttur í síma 81333 (heimasími 79017).
Framlög verða sótt heim ef óskað er.
Æsku lýðsfy I king Al þýðubandalagsins
Framhaldsstofnfundur
Æskulýðsfylkingarinnar á Húsavík
Fundurinn verður haldinn laugardaginn 25. febrúar í Félagsheimilinu.
Allir ungir vinstrimenn á Húsavík og nágrenni mæti hressir og kátir. A
fundinn koma Steingrímur Sigfússon, alþingismaður, og Olafur Olafs-
son, stjórnarmaður ÆFAB.
Nefndin
Verkalýðsmálanefnd ÆAFB
Rabbfundur verður í verkalýðsnmálanefnd ÆFAB laugardaginn 25.
febrúar kl. 13 í flokksmiðstöðinni Hverfisgötu.
Vinsamlega sendiö eða hringið inn auglýsingar í þennan
dálk fyrir klukkan 16 daginn áður en þær eiga að birtast og
talið við Valþór eða Álfheiði. Ritstj.
Garðar
Erlend lán 60% af þjóðartekjum
1338 miljóna
skuldaaukning!
Samkvæmt frumvarpi því til
lánsfjárlaga, sem nú liggur fyrir Al-
þingi, verður heildarlántaka á yfír-
standandi ári 4548 milj. kr. Endur-
greiðslur af löngum lánum eru
áætlaðar 3160 milj. kr. Hrein
skuldaaukning verður þannig 1388
milj. kr. Nemur hún 2% af áætl-
aðri þjóðarframleiðslu. í spá Seðl-
abankans er gert ráð fyrir því að
löng, erlend lán verði í lok þessa árs
tæp 60% af þjóðartekjum.
Þetta kemur fram í nefndaráliti
minni hluta fjárhags- og viðskipt-
anefndar Efri deildar um frumvarp
til lánsfjárlaga fyrir árið 1984.
Nefndarálitið fer hér á eftir:
Nefndin hefur haft frumvarp til
lánsfjárlaga fyrir árið 1984 til at-
hugunar og umræðu í allmörgum
fundum. Embættismenn, m.a. frá
fjárlaga- og hagsýslustofnun, hafa
mætt á fundum nefndarinnar og
veitt margvíslegar upplýsingar.
Við fyrstu athugun frumvarpsins
kom í Ijós að þar vantaði eitt og
annað og ýmsir liðir voru ýmist
vanáætlaðir eða hreinlega utan
frumvarpsins, eins og t.d. fjár-
magnskostnaður Sjóefnavinnsl-
unnar hf. á Reykjanesi sem ríkið á
80% í.
í meðförum nefndarinnar hafa
ýmsir augljósir gallar á frumvarp-
inu verið lagfærðir og meiri hl.
nefndarinnar flytur við það
breytingartillögur.
Það gildir um þetta frumvarp til
lánsfjárlaga eins og það hefur verið
áður að það gefur alls ekki rétta
mynd af því hvernig lántökum
ríkisins verður hagað á yfirstand-
andi ári. Minni hl. nefndarinnar
minnir sérstaklega á að fyrirhugað
er, til viðbótar þeim lántökum sem
greint er frá í frumvarpinu, að taka
sérstök lán til að efla innlenda
skipasmíði og enn fremur er fyrir-
huguð lántaka til að styrkja stöðu
útgerðarinnar. Þessa sér hvergi
stað í frumvarpi til lánsfjárlaga
fvrir árið 1984. Þá er það skoðun
minni hl. að lántökur vegna at-
vinnuveganna, sem gert er ráð fyrir
að séu 1000 millj. kr., séu verulega
vanáætlaðar.
Samkvæmt frumvarpinu verður
heildarlántaka á árinu 1984 4548
millj. kr. Endurgreiðslur af
löngum lánum eru áætlaðar 3160
millj. Samkvæmt spá Seðlabank-
ans er nú áætlað að löng erlend lán
verði í lok ársins 1984 tæp 60% af
þjóðartekjum.
íLtnsja
Þá er enn fremur augljóst að nú
stefnir í mikinn halla á ríkisbú-
skapnum. Samkvæmt fjárlögum
verður hallinn 388 millj. kr. við
þetta bætast svo skattalækkanir í
þágu atvinnurekstrarins sem ekki
er ljóst hve háum upphæðum muni
nema og enn fremur eru á döfinni
ýmiss konar sparnaðaráform í
ríkisrekstrinum sem vel flest hanga
í lausu lofti og verðá sennilega
aldrei annað en óraunhæfar tölur á
blaði. Sú skuldasöfnun ríkissjóðs,
sem nú á sér stað í Seðlabankan-
um, er í rauninni sama eðlis og er-
lend lántaka.
Stjórnarandstaðan gerir ekki
ágreining um einstök atriði í frum-
varpi til lánsfjarlaga fyrir árið 1984
né flytur minni hl. breytingartil-
lögur við frumvarpið. Með hlið-
sjón af því, sem áður segir, munu
þingmenn stjórnarandstöðuflokk-
anna sitja hjá við afgreiðslu máls-
ins, en greiða atkvæði gegn hinni
miklu skerðingu á framlögum til
Framkvæmdasjóðs fatlaðra og
Erfðafjársjóðs, sbr. 16. og 18. gr.
frv.
Minni hluta nefndarinnar skipa:
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir,
Eiður Guðnason og Ragnar Arn-
alds. Stefán Benediktsson frá
Bandalagi jafnaðarmanna sat
fundi nefndarinnar sem áheyrnar-
fulltrúi er fjallað var um málið.
Styður hann álit minni hluta nefnd-
arinnar. mhg
Fyrirspurnir á þingi
í gær voru lagðar fram á Alþingi
fyrirspurnir frá Guðmundi Ein-
arssyni, svohljóðandi:
I. Til heilbrigðisráðherra um
sjúklingaskrár:
1. Hvaða reglur gilda um varð-
veislu upplýsinga um sjúklinga á
opinberum heilbrigðisstofnun-
um?
2. Hverjir hafa aðgang að þeim
upplýsingum í daglegu starfi
stofnananna?
3. Hvernig er háttað eftirliti með
því að reglur séu haldnar?
4. Eru uppi áform um tölvuskrán-
ingu á upplýsingum um sjúkl-
inga?
5. Ef svo er, hvaða reglur munu
gilda um meðferð upplýsing-
anna?
II. Til félagsmálaráðherra um
fjármögnun húsnæðislána:
Telur ráðherra að fjármögnun
húsnæðislánakerfisins sé tryggð á
viðunandi hátt á fjárlögum og með
frumvarpi til lánsfjárlaga fyrir
1984?
III. Til fjármálaráðherra um
endurgreiðslu söluskatts af kostn-
aði við snjómokstur, frá Páli Pét-
urssyni:
Hvenær hyggst fjármálaráðherra
neyta heimildar í lögum nr. 24. frá
16. mars 1983, um breytingu á
lögum um söluskatt, og endur-
greiða söluskatt af kostnaði
sveitarfélaga við sujómokstur?
- mhg
fy' Allar
m vörur J|i
l á markaðsverði
Opið í kvöld til kl. 20,
■w og kl. 9
4 á laugardögum
lótlSiöl
GLÆSILEGT ÚRVAL
HÚSGAGNA
Á TVEIMUR HÆÐUM
RAFTÆKI - RAFLJÓS
og rafbúnaður.
Raftækjadeild ||. hæð
FLATEY, II. HÆÐ,
bækur, búsáhöld,
gjafavörur
JL-PORTID
a NÝ VERSLUN
g TAU OG TÖLUR
VISA
alltígarni
Næg
bílastæði
Munið okkar hagstæðu
greiðsluskilmála
jl-grillio Grillréttir allan daginr
Jli ^
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 Simi 10600