Þjóðviljinn - 21.06.1984, Page 23
IÞROTTIR
Pétur Ormslev í einhverju besta færi íslands í fyrrí hálfleik. Norski mark vörðurinn kom út á móti honum og kom í veg fyrir mark á síðustu stundu.
Landsliðið
á leið
til Tékkó!
íslenska karlalandsliðið í
handknattleik fer í æfinga- og
keppnisferð til Tékkóslóvakíu á
sunnudaginn kemur, 24. júní.
Leiknir verða þrír leikir við
Tékka. Bogdan Kowalczyck hef-
ur valið eftirtalda 18 leikmenn til
fararinnar:
Markverðir: Einar Þorvarðar-
son, Val, Kristján Sigmundsson,
Víkingi, Jens Einarsson, KR, og
Brynjar Kvaran, Stjörnunni.
Aðrir leikmenn: Jakob Sig-
urðsson, Val, Guðmundur Guð-
mundsson, Víkingi, Steinar Birg-
isson, Víkingi, Bjarni Guð-
mundsson, Wanne-Eickel, Þor-
bjöm Jensson, Val, Þorgils Óttar
Mathiesen, FH, Þorbergur Aðal-
steinsson, Víkingi, Atli Hilmars-
son, Bergkamen, Alfreð Gísla-
son, Essen, Sigurður Gunnars-
son, Víkingi, Sigurður Sveins-
son, Lemgo, Kristján Arason,
FH, Geir Sveinsson, Val, og Páll
Ólafsson, Þrótti.
Liðið er væntanlegt heim
föstudaginn 29. júní.
-VS
Það munaði sekúndubrotum!
Frekar tilþrifalítill landsleikur í gœrkvöldi og mark Norðmanna tíu mínútum
fyrir leikslok dugði þeim til sigurs.
,,Ég var í boltanum, það mun-
aði sekúndubrotum að ég næði að
koma í veg fyrir þetta sigurmark
Norðmanna. Sá sem skoraði var
skyndilega laus í dauðafæri en
mistökin lágu í því að við leik-
maður númer 6, Ahlsen, týndist
úti á kanti og gat sent fyrir“, sagði
Ólafur Björnsson landsliðsmið-
vörður í knattspyrnu um sigur-
mark Norðmanna gegn íslandi í
landsleiknum á Laugardalsvellin-
um í gærkvöldi. Leikurinn endaði
0-1, varamaðurinn Egill Jo-
hannsen skoraði markið á 80.
mín. eftir nokkuð snarpa sókn,
var óvaldaður á vítapunkti og
sendi knöttinn í netið.
í heild var leikurinn ekki mikið
fyrir augað. fsland lék af var-
kárni: „Það fannst mér jákvætt,
við reyndum að dempa niður
hraðann og fá ró í leik okkar og
það gekk betur en oft áður“,
sagði Janus Guðlaugsson fyrirliði
eftir leikinn. En þessi varkárni
kom niður á skemmtilegheitum
leiksins, hann varð aldrei hraður
og æsandi.
ísland fékk hættulegt færi.
Karl Þórðarson var á góðum stað
eftir aukaspyrnu á 20. mínútu en
náði ekki krafti í skotið sem var
varið nokkuð auðveldlega.
Ragnar Margeirsson og Sigurður
Grétarsson lögðu skemmtilega
upp færi fyrir Pétur Ormslev á 41.
mínútu (sjá mynd) en markvörð-
urinn, hinn tröllvaxni Thorstvet,
náði boltanum af tám hans. Tvö
góð færi í lokin, Páll Ólafsson
braust að endamörkum og renndi
inná markteig þar sem norsari var
rétt á undan Janusi að renna sér í
boltann. Síðan fékk Páll Ólafsson
glæsisendingu frá Guðmundi
Þorbjörnssyni á síðustu mínútu
en Thorstvet varði skot hans úr
nokkuð þröngu færi. Best færa
Norðmanna var það sem David-
sen fékk á 67. mínútu, hann var
laus í vítateignum en Bjarni Sig-
urðsson varði skot hans vel.
„Við miðjumennirnir studdum
ekki nógu vel við sóknina og okk-
ur tókst því ekki að pressa norsku
vörnina nægilega vel“, sagð Jan-
us. Þarna er sennilega að finna
hluta skýringar þess að mörkin
komu ekki. „Mörkin komu ekki
og þau færi sem gefast þarf að
nýta betur", sagði Karl Þórðar-
son.
Janus var bestur í íslenska lið-
inu, lék af yfirvegun og öryggi á
miðjunni og er greinilega búinn
að ná sér eftir meiðslin. „Ég er
feginn að vera kominn á kreik og
þessi meiðsli voru bara ágætis
upphersla!" sagði hann. Karl átti
ágæta kafla, var sveltur einum of
á kantinum, hraða hans og tækni
hefði mátt nyta mikið betur. Mið-
verðirnir Ólafur og Sigurður
Halldórsson stóðu sig vel en bak-
verðirnir Kristján Jónsson og
Þorgrímur vroru stressaðir, enda
reynsluminnstir í liðinu. Ragnar
Margeirsson var mest ógnandi,
hann nýtti vel sinn eiginleika að
skýla boltanum vel og vann ótelj-
and aukaspyrnur fyrir íslenska
liðið á vallarhelmingi Norð-
manna.
En - ekki nógu gott að tapa
fyrir miðlungsliði norsku hér á
heimavelli. Dómari var Ferguson
(einsog traktorinn, útskýrði
norskúrblaðamaðurístúkunni í
símtali við sitt heimaland) og
dæmdi nokkuð vel. Áhorfendur í
vætunni voru 6.139, bara ágætt.
-VS
Iberar í undanúrslit
Spánverjar slógu Evrópumeistara V.Pjóðverja út ígœrkvöldi
og fara í undanúrslit ásamt Portúgölum.
Ármenningar stóðu
sig vel í Englandi
Fimleikafólk úr Ármanni er
nýkomið heim úr tíu daga æfinga-
og keppnisferð um England.
Keppt var við þrjú félög og var
árangurinn mjög góður og sýnir
að fimleikar á íslandi eru á upp-
leið.
í nágrenni Newcastle var keppt
við Whitburn fimleikafélagið í
flokkakeppni stúlkana. Whit-
bum sigraði með 176,10 stigum
gegn 158,55 stigum Ármanns-
stúlkna.
f Halifax var keppt við Calder-
dale fimleikafélagið. Ármann
sigraði í flokkakeppni yngri
stúlkna með 88,90 stigum gegn
82,40 og í flokkakeppni eldri
stúlkna með 93,70 gegn 92,30.
Drengirnir úr Calderdale sigmðu
hins vegar Ármannspiltana
133.20 gegn 104,20.
Loks var keppt við Hincley í
nágrenni Leicester en Hincley
hefur á að skipa einu besta
drengjaliði Englands. Yngri
stúlkur Ármanns unnu Hincley
106.50 gegn 82,30 en eldri stúlkur
Hincley unnu jafnöldrur sínar úr
Ármanni 82,50 gegn 79,00. Loks
vann hið sterka drengjalið
Hincley sigur á Ármannspiltum,
156.20 gegn 114,00.
Þessi ferð var endirinn á mjög
árangursríku starfi kínversku
fimleikaþjálfaranna sem störf-
uðu hjá Ármanni í vetur.
Frá Guðmundi S. Maríassyni
fréttamanni Þjóðviljans í París:
Liðin frá Íberíuskaganum kom-
ust bæði í undanúrslit Evrópu-
keppni landsliða í knattspyrnu
með 1-0 sigrum í Frans í gær.
Spánverjar unnu V.Þjóðverja,
Evrópumeistarana sjálfa, í París
og mæta Dönum í undanúr-
slitum.Portúgalarunnuá Rúmen-
um í Nantes og leika gegn
Frökkum. Leikið verður á laugar-
dag og sunnudag. Það bar mjkið
á Þjóðverjum hér í París í gær,
þeir fóru í hópum um göturnar
meö mikla fána. Þeir voru ekki
jafn vígreifir að leiknum loknum
og áttu greinilega erfitt með að
sætta sig við orðinn hlut.
Mikil spenna var í leiknum og
bæði lið börðust vel. Spánverj-
arnir voru þó öllu sterkari og
sóttu meira en þýsku færin voru
hættulegri.
Markið kom á síðustu mínútu
leiksins. Senor gaf fyrir markið,
tveir Þjóðverjar stukku aftan að
einum Spánverja, knötturinn
sigldi yfir þá alla og til Maceda
sem kom hlaupandi að og skall-
aði inn. Senor og Santillana voru
bestir Spánverja en atkvæða-
mestir Þjóðverja voru þeir Rum-
menigge og Allofs.
Leikur Portúgala og Rúmena
var mjög jafn allan tímann. Bæði
lið fóru mjög varfærnislega af
stað og fátt gerðist lengi vel. Um
miðjan fyrri hálfleik var Portú-
gali borinn af leikvelli og púuðu
áhorfendur duglega á rúmensku
vörnina. Leikurinn var mjög
grófur og aðeins eitt umtalsvert
færi í fyrri hálfleik er rúmenska
markverðinum tókst með naum-
indum að slá boltann í stöng.
Portarar sóttu heldur meira í
seinni hálfleik og áttu þau færi
sem gáfust. Markið kom þegar 12
mínútur lifðu af leiknum, gefið
fyrir að vítapunkti, framhjá fjór-
um varnarmönnum, Portúgalinn
Nene hitti boltann illa en kom
honum þó í vinstra hornið. Ekk-
ert varð tíðinda síðan. Leikmenn
beggja liða voru mjög svipaðir,
helst skar Rúmeninn Augustin
sig úr.
Mér sýnast Frakkarnir sigur-
stranglegir í keppninni. Þeir eru
með það lið sem spilar
skemmtilegustu knattspymuna
og eru nú örugglega ánægðir með
að þurfa ekki að mæta V.Þjóð-
verjum í undanúrslitum eða úrs-
litum! -gsm/iWVS
Fimmtudagur 21. júní 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 23