Þjóðviljinn - 28.11.1985, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 28.11.1985, Blaðsíða 15
UEFA-bikarinn IÞROTTIR Realfekk rassskell í Diisseldorf! Tapaði 5-1 fyrir Gladbach. Jafntefli beggja Milanoliðanna Hið fræga spænska félag Real Real í 4-1 á 69. mínútu. Ewald Madrid fékk slæma útreið gegn Lienen innsiglaði síðan glæsisigur Borussia Mönchengladbach í 3. Gladbach, 5-1, sjö mínútum fyrir umferð UEFA-bikarsins í gær- leikslok. kvöldi. Leikurinn fór fram í Dúss- Úrslit í Evrópuleikjunum í eldorf í Vestur-Þýskalandi, að knattspyrnu í gærkvöldi: viðstöddum 68 þúsund áhorfend- um (leikvangur Gladbach tekur aðeins 36 þúsund) og Gladbach vann glæsilegan sigur, 5-1. Gott veganesti fyrir síðari leikinn í Ma- drid og ólíklegt að Real vinni upp þetta forskot. Áhorfendur máttu bíða í 36 mínútur eftir marki en þá skoraði Frank Mill. Fjórum mínútum síð- ar gerði Salguero sjálfsmark, 2-0 í hléi. Uwe Rahn bætti við tveimur mörkum á 55. og 59. mín, 4-0, en Gordillo lagaði stöðuna fyrir Evropukeppni bikarhafa 2. umferð, seinni leikur: Rauða Stjarnan-Lyngby.......3-1 (Rauða Stjarnan samanlagt 5-3) UEFA-bikarinn 3. umferð, fyrri leikir: Atl.Bilbao-Sporting Lissabon.....2-1 Dnjepr-HajdukSplit...............0-1 DundeeUtd-Neuchatel..............2-1 Gladbach-Real Madrid.............5-1 Hammarby-Köln....................2-1 InterMilano-Legia................0-0 Spartak Moskva-Nantes............0-1 Waregem-AC Milano................1-1 Geir Sveinsson átti góðan leik með Valsmönnum í gærkvöldi og hér skorar hann án þess að Egill Jóhannesson eða aðrir Framarar fái vörnum við komið. Mynd: E.ÓI. Handbolti - 1. deild Knattspyrna Arnesen til PSV Hollenska toppliðið PSV Eind- hoven keypti í gær danska lands- liðsmanninn Frank Arnesen frá belgísku meisturunum Ander- lecht fyrir um 8.2 miljónir ís- lenskra króna. Arnesen hafði ekki komist í lið hjá Anderlccht undanfarið en hann er 29 ára gamall og á að baki 43 landsleiki fyrir Dantnörku. Hann samdi við PSV, sem er rekið af Phillips- verksmiðjunum, til tveggja og hálfs árs. - VS/Reuter Knattspyrna Hilmar íVal Hilmar Arnason, einn af sterk- ustu leikmönnum Fylkis undan- farin ár, er genginn til liðs við Islandsmeistara Vals og leikur með þeim næsta sumar. Hann byrjar að leika með liðinu á sunn- udaginn í Stórmóti íþróttafrétta- manna í innanhússknattspyrnu sem fram fer á Akranesi. -VS Belgía Anderlecht í annað Anderiecht, belgísku meistar- arnir í knattspyrnu, unnu örugg- an sigur á Waterschei, liði Ragn- ars Margeirssonar, 4-1 í fyrra- kvöld. Þetta var frestaður leikur og með sigrinum komst Ander- lecht í annað sætið með 21 stig - FC Brúgge er efst með 24. Anderlecht hefur nýlega hafn- að góðu boði Mechelen í Arnór Guðjohnsen. Arnór var skorinn upp fyrir skömmu eins og kunn- ugt er og leikur ekki með liðinu fyrr en eftir áramót. -VS/Reuter ítalska stórliðið AC Milano var stálheppið í Belgíu. Waregem bafði mikla yfirburði og Veyt skoraði á 65. rnínútu, 1-0. En Vir- dis náði að jafna tveimur rnínút- um fyrir leikslok, 1-1, eftir að markvörður Belganna hafði var- ið aukaspyrnu frá Ray Wilkins en hélt ekki boltanum. Hitt Milanoliðið, Inter, var ekki jafnheppið og mátti sætta sig við óvænt jafntefli á heimavelli, 0-0, gegn Legia frá Póllandi. Gamli refurinn vestur-þýski, Uli Stielike, skoraði fyrir Neu- chatel frá Sviss gegn Dundee Un- ited í Skotlandi. David Dodds og Iain Redford svöruðu reyndar og tryggðu Skotunum 2-1 sigur en mark Stielikes kann að reynast Svisslendingunum dýrmætt. Englendingurinn Raphael Me- ade, sem áður lék nteð Arsenal, skoraði álíka dýrmætt fyrir Sport- ing Lissabon frá Portúgal sem tapaði 2-1 í Bilbao á Spáni. Áður höfðu Sarabia og Salinas komið Bilbao í 2-0. Ralf Geilenkirchen kom Köln- arbúum yfir í fyrri hálfleiknum gegn Hammarby í Stokkhólmi. Per Holmberg færði hinsvegar Svíunum sigur með tveimur mörkum á síðasta korterinu, 2-1. Sovésku liðin töpuðu bæði óvænt á heimavelli. Nantes, mót- herjar Vals í 1. umferð, unnu frækinn sigur á Spartak í Moskvu og gerði Maruice sigurmark Frakkanna. Dnjepr lá heima gegn Hajduk Split með . sömu markatölu og það var Sergei Puc- hkov sem tryggði Júgóslövum sigur með sjálfsmarki. Rauða Stjarnan komst í 8-liða úrslitin í Evrópukeppni bikar- hafa með sigri á Lyngby frá Dan- mörku. Þessum leik var frestað á sínum tíma þar sem rannsaka þurfti hvort leikmaður sem Júg- óslavarnir notuðu í 1. umferð hefði verið löglegur eða ei. -VS/Reuter Valur stakk af Góður kafli um miðjan leik og öruggur sigur á Fram Það má segja að Valsmenn hafi gert út um lcikinn gegn Fram á 20 mínútna kafla. Þegar 10 mínútur voru til loka fyrri háltleiks var staðan 11:9 Valsmönnum í hag. Þá tóku þeir góðan sprett og þeg- ar 10 mínútur voru liðnar af síðari hálfleik var staðan 20:12. Eftir það var aldrei spurning um sigur Valsmanna, 27:20. Leikurinn var mjög jafn fram- an af og áttu Framarar í fullu tré við Valsmenn. Þó menn alltaf yfir. voru Vals- og Óli, voru mjög lélegir í fyrri hálfleik, en dæntdu vel í þeini síðari. - Logi Laugardalshöll 27. nóv. Valur - Fram 27-20 (14-9) 3-1, 7-7, 11-9, 18-11, 20-12, 25-15, 27-17, 27-20. Mörk Vals: Valdimar Grímsson 6, Júl- íus Jónasson 6 (4v), Jakob Sigurös- son 5, Geir Sveinsson 4, Þorbjörn Jensson 2, Jón Pétur Jónsson 2, Þor- björn Guðmundsson 1 og Theódór Guðfinnsson.1 Mörk Fram: Egill Jóhannesson 11 (3v), Dagur Jónasson 4, Hermann Björnsson 2, Hlynur Jónasson 1, Jón Árni Rúnarsson 1 og Ragnar Hilmars- son 1. Dómarar: Gunnlaugur Hjálmars- son og Óli Ólsen - sæmilegir. Maður leiksins: Ellert Vigfússon, Val. Eftir þennan örlagaríka kafla, þegar 15 mínútur voru eftir fóru Valsmenn að slaka aðeins á. Þá náðu Framarar að minnka for- skotið og í lokin var munurinn 7 mörk. Það sem gerði gæfumuninn voru hraðaupphlaup Valsmanna. Þeir Jakob og Valdinrar skoruðu alls 10 mörk úr hraðaupphlaup- unum. Þá má ekki gleyma Ellert sem varði mjög vel, enda var vörnin nrjög góð með þá Geir og Þorbjörn Jensson í broddi fylk- ingar. AUt annað var að sjá til Fram- liðsins. Þeir áttu svo að segja eng- in hraðaupphlaup og sóknarleik- urinn oft á tíðum klúðurslegur. Vörnin var slök, en þó átti Jens ágætan leik ef undanskildar eru „skógarferðirnar". Egill hélt sóknarleik Frammara uppi og skoraði alls 11 mörk. Dómararnir, þeir Gunnlaugur Staóan í 1. deild karla i handknattleík: Víkingur.......11 Stjarnan........11 Valur...........10 FH.............11 KA.............11 Fram...........11 KR.............11 Þróttur.........10 271:210 18 257:222 16 228:202 16 268:255 12 223:229 9 256:264 7 234:256 7 10 207:306 0 Markahæstir: Egill Jóhannesson, Fram...........72 Þorgils Óttar Mathiesen, FH.......72 Gylfi Birgisson, Stjörnunni.......66 ValdimarGrimsson, Val.............64 ÓskarÁrmannsson, FH...............64 Nú verður gert hlé á 1. deildar- keppninni til 4. janúar en þá verða þrjár síðustu uniferðirnar lciknar á átta dögum. Maradona 3. deild Reynir slapp naumlega! Reynismenn sluppu með skrekkinn gegn Hvergerðingum í gærkvöldi þeg- ar liðin léku í 3. deild karla í hand- knattleik í Sandgerði. Þeir misstu nið- ur forystu í lokin en unnu 26-25, einn leikmaður Hvergerðinga skoraði 3 sekúndum fyrir leikslok en markið var dæmt af þar sem hann steig á línu! Reynir hefur nú tveggja stiga forystu í 3. deild. Skallagrímur og UMFN gerðu jafn- tefli í miklum baráttuleik í Borgar- nesi, 25-25, og í Laugardalshöll vann IH sigur á Ögra, 25-15. yS Tvo í bann Argentínumaðurinn Dicgo Maradona var í gær dæmdur í tveggja leikja bann mcð Napoli í ítölsku knattspyrnunni. Hann var rckinn af leikvelli um síðustu helgi fyrir að slá mótherja sem braut illa á honum. Hann missir af leikjum gegn Bari og AC Mi- lano. - VS/Reuter Enska knattspyrnan Jafnt í Portsmouth Portsmouth og Tottenham skildu jöfn, 0-0, í framlengdum leik á Fratton Park í Portsmouth í gærkvöldi. Þetta var önnur við- ureign liðanna í 4. umferð enska deildabikarsins og þau verða að leika í þriðja sinn um réttinn til að leika við Oxford í 8-liða úrslitun- um. Aston Villa sigraði nágranna sína, WBA, 2-1 á útivelli í öðrum leik liðanna í sömu umferð og leikur heima gegn Arsenal í 8- liða úrslitunum. -VS/Reuter Fimmtudagur 28. nóvember 1985 PJÓÐVILJINN - SÍÐA 15 Golf Siguröur áfram Gœti komist í keppni atvinnumanna Sigurður Pétursson úr Golf- klúbbi Reykjavíkur er kominn í 2. umferð í forkeppni fyrir kepp- ni atvinnumanna í golfi. Fyrstu umferðinni lauk á Spáni í gær og Sigurður varð framarlega í hópi 356 keppenda. Af þeim komust 124 áfram í 2. umferð. Ragnar Ólafsson úr GR féll úr keppni en hann hafði verið í 80. sæti eftir fyrri dag keppninnar. Sigurður var þá í hópi fyrstu manna. Önnur umfcrð fer fram í byrjun desember á sama stað. Þar kcppa um 200 golfleikarar um 50 sæti í mótum atvinnumanna. Þetta er í fyrsta skipti sem íslenskir golf- menn freista þess að ná svo langt í keppni í íþróttinni. -VS

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.