Þjóðviljinn - 28.11.1985, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 28.11.1985, Blaðsíða 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663. Fimmtudagur 28. nóvember 1985 275. tölublað 50. órgangur DJOÐVILJINN Mosfellshreppur Ibúamir unnu sigur Fjölmennur borgarafundur ífyrrakvöld kom í vegfyrir hrossakaup sjálfstœðismanna íhreppsnefnd við borgaríhaldið. Aðalheiður Magnúsdóttir Abi: Mikillsigur. Einróma afstaðafundarmannagegn fulltrúum Sjálfstœðisflokks. Á fjórða hundrað undirskriftir hafa safnast í hreppnum. Fróði Jóhannsson: Afar ánœgjulegt Aþessum borgarafundi kom fram ótvíræður vilji íbúanna hérna um að hætta við þennan samning við Reykjavíkurborg og ég tel það mikinn sigur. Fundur- inn tók einróma afstöðu gegn áformum meirihlutans um að af- sala sér þessum jörðum til Reykjavíkurborgar, og ég á ekki von á að það verði gert eftir þetta, sagði Aðalheiður Magnúsdóttir fulltrúi Alþýðubandalagsins í í tilefni af 200 ára afmæli Reykjavíkurborgar á næsta ári mun Reykjavíkurborg gefa út almanak. Þar verður gerð grein fyrir afmælis- dagskrá og getið sem flestra merkisatburða, sem fram fara í Reykjavík á afmælisárinu. Félög, samtök, stofnanir og aðrir aðilar, sem óska eftir að koma upplýsingum á framfæri í almanakinu eru vinsamlegast beðin að senda skriflegar upplýsingar til framkvæmdastjóra undirbúningsnefndar fyrir föstudaginn 6. des. n.k. hreppsnefnd Mosfellshrepps í gær þegar hún var spurð um af- stöðu borgarafundar í Mosfells- sveit til fyrirhugaðs samnings Mosfellshrepss og Reykjavíkur- borgar um kaup á köldu vatni. Fundurinn sem var mjög vel sóttur samþykkti einróma tillögu um að hreppurinn hætti við að afsala sér forkaupsrétti á nokkr- um jörðum til Reykjavíkurborg- ar gegn því að Reykvíkingar sjái um framkvæmdir við vatnslagnir. Ef gengið hefði verið að samn- ingnum, sem borgarráð hefur þegar samþykkt, hefði lögsaga hreppsins minnkað til muna, eins og Þjóðviljinn hefur áður greint frá. Meirihluta hreppsnefndar var þannig stillt upp við vegg á fundinum og mun hann líklega ekki sjá sér annað fært en að hætta við að afhenda flokks- bræðrunum í Reykjavík þetta land. Yfirlýsingfékkst umþaðfrá hreppsnefnd á fundinum að mál- ið yrði ekki afgreitt að sinni, heldur yrði leitað annarra mögu- leika til öflunar vatns eða samið við Reykjavíkurborg á öðrum forsendum. „Við höfum nú safnað á fjórða hundrað undirskriftum gegn þessum fyrirætlunum sjálfstæðis- manna í hreppnum og munum láta listana liggja fyrir þar til þetta verður endanlega komið á hreint. Það er mjög ánægjuiegt að íbúarnir hafi ákveðið að ekki ætti að versla með hreppamörkin á þennan hátt,“ sagði Fróði Jó- hannsson varafulltrúi Abl. í gær. Fulltrúar Framsóknarflokks og Alþýðuflokks í hreppsnefnd, þau Haukur Níelsson og Gréta Aðal- steinsdóttir, hafa verið á sama máli og Alþýðubandalagið í þessu máli. -gg Daí>sbrún/Vari Vísað til sátta- semjara Fyrsti sáttafundur líklega boðaður í vikunni. Við ákváðum það nú um helg- ina í samráði við starfsmenn Vara að vísa deilunni til sáttasemjara og það var svo gert á mánudag- inn. Eg á von á að boðaður verði fundur nú í þessari viku, sagði Magnús Geir Einarsson hjá Dagsbrún í samtali við Þjóðvilj- ann í gær. Dagsbrún hefur undanfarnar vikur verið að reyna að fá Baldur Ágústsson eiganda öryggisþjón- ustunnar Vara að samningaborð- inu til að semja um laun starfs- manna hans. Baldur hefur reynst tregur til og fengið frest oftar en einu sinni. Nú hefur Dagsbrún semsé gefist upp á því og vísað til sáttasemjara. Kröfur Dagsbrúnar á hendur Vara eru þær að starfsmönnum verði greidd sömu laun og Secur- itas greiðir fyrir sömu vfhnu, en sem stendur fá starfsmenn Vara 30% lægri laun en félagar þeirra hjá Securitas. -gg Hafnarfjörður Afengiskosningar í febrúar Bœjarbúarfá að greiða atkvœði um opnun áfengisútsölu22. febrúarn.k. Samþykkt með 9 atkvœðum íbœjarstjórn. Tillaga um að kosiðyrðisamhliða n.k. bcejarstjórnarkosningum felld Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum í fyrrakvöld að fram fari atkvæða- greiðsla meðal bæjarbúa þann 22. febrúar á næsta ári um hvort heimila skuli opnun áfengisútsölu í bænum. Tillagan var samþykkt með 9 atkvæðum cn tveir bæjar- fulltrúar sátu hjá. Miklar umræður urðu á fund- inum um þessar kosningar og hvenær þær skuli fara fram. Tvær tillögur komu fram um að kosn- ingarnar færu fram samhliða næstu bæjarstjórnarkosningum og eins var lögð fram tillaga um að gerð yrði skoðanakönnun meðal bæjarbúa en úrslit kosn- inganna eru bindandi fyrir bæjar- yfirvöld. Tillagan um skoðana- könnun var felld og einnig tillaga um að kosningin færi fram sam- hliða næstu bæjarstjórnarkosn- ingum. Rannveig Traustadóttir bæjar- fulltrúi Alþýðubandalagsins sem bar fram síðarnefndu tillöguna sagði í samtali við Þjóðviljann að hún hefði talið eðlilegra og sjálf- sagðara að þar sem niðurstöður kosninganna væru bindandi þá ætti bæjarstjórn að tryggja sem mesta þátttöku með því að láta þær fara fram samhliða næstu bæjarstjórnarkosningum og eins væri ástæðulaust að leggja út í kostnaðarsamar sérkosningar svo nærri bæjarstjórnarkosninum en áætlað er að umrædd kosning muni kosta bæjarsjóð á bilinu 300-500 þús. kr. -íg- LÍFSKJÖR LÝÐRÆÐI Alþýðubandalagiðefnirtilopinsviðræöufundarmeö Reykvíkingum í kvöld á Hótel Borg í kvöld og hefst fundurinn kl. 20.30. Hvað gerðist á landsfundinum? Hvað næst? Frummælendur á fundinum í kvöld veröa Ólafsdóttir varaformaöur flokksins, Guörún Ágústsdóttir borgarfulltrúi, Ólafur Ragnar Grímsson formaöur Guörún Helgadóttir aiþingismaöur, Óttar framkvæmdastjórnar og Svavar Magni JóhannssonfráÆskulýðsfylkingu Gestsson alþingismaöur. Alþýðubandalagsins, Kristín Á. Guðrún Ágústsdóttir Guðrún Helgadóttir Kristín Á. Ólafsdóttir Óttar M. Jóhannsson Ólafur R. Grímsson Svavar Gestsson NY SOKN - NYTT FOLK - NYTT AFL ALÞÝÐUBANDALAGIÐ

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.