Þjóðviljinn - 28.04.1989, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 28.04.1989, Blaðsíða 7
reyns\uak\ð Vill ekki á bás Stutt spjall við Elísabetu Jökulsdóttur sem nú gefur út sína fyrstu bók í dag kemur út fyrsta ljóðabók Elísabetar Jökulsdóttur sem um tíma var menningarblaðamaður Þjóðviljans. Bókin heitir Dans í lokuðu herbergi og höfundur gef- ur hana út sjálfur. Hvers vegna? „Ég reyndi ekki að fá hana út- gefna hjá forlagi,“ svarar Elísa- bet, „kannski er það sjálfstæðis- viðleitni en mér fannst ég alveg geta tekið ábyrgð á útgáfunni eins og hver annar. Það er hollt Þórbergur Pétur Stórkostleg veröld Pétur Gunnarsson talar um bernskuminningar Þór- bergs í Gerðubergi A morgun laugardag kl. 15 verður dagskrá í húsakynnum Borgarbókasafns í Gerðubergi um Þórberg Þórðarson í tilefni aldarafmælis hans. Þar flytur Pétur Gunnarsson erindi um skáldið út frá síðari bókum þess. „Þegar ég var beðinn um að halda þetta spjall hafði ég verið að lesa Suðursveitarbækurnar hans Þórbergs," sagði Pétur að- spurður. „Þær voru svanasöngur hans sem rithöfundar, mikið verk sem hann lauk þó aldrei við. Hann var lengi með það í smíð- um, var byrjaður á því þegar Ragnar í Smára pantaði ævisögu Árna Þórarinssonar og var að skrifa það þegar guð hringdi í hann og pantaði Sálminn um blómið. En sú bók var góð fingra- æfing fyrir Suðursveitarkróník- una því þar fann hann leið út úr Bílaverkstæöi Badda aftur á svið Hið vinsæla leikrit Ólafs Hauks Símonarsonar, Bflaverkstæði Badda, verður sýnt sjö sinnum á Litla sviði Þjóðleikhússins í maí- byrjun áður en haldið verður í leikferð um Austur- og Norður- land. Verkið var frumsýnt í október 1987 og sýnt 90 sinnum fyrir fullu húsi síðasta leikár. Þetta er átakaverk og gerist í afskekktri sveit. Sögusviðið er lítið bflaverk- stæði þar sem Baddi bifvélavirki sinnir sífellt færri bflum í sveit með sífellt færri íbúum. En þó að sviðið sé þröngt gerast þar ör- lagaríkir atburðir. Leikstjóri er Þórhallur Sig- urðsson; Bessi Bjarnason, Jó- hann Sigurðarson, Guðlaug Mar- ía Bjarnadóttir, Sigurður Sigur- jónsson, Arnar Jónsson og Árni Tryggvason leika. Leikritið er ekki við hæfi barna. Fyrsta sýning verður á þriðju- dagskvöldið. bóklega málfarinu og tón sem hentaði hans eigin barnaveröld í Suðursveit. Þetta er að mörgu leyti hápunktur á ferli Þórbergs, hann skapar stórkostlega veröld í þessum bókum. Það er gaman til þess að hugsa,“ bætir Pétur við, „að fyrir ári fékk ég tækifæri til að sökkva mér niður í verk Halldórs Lax- ness fyrir sjónvarpsþættina um hann á Stöð 2. Núna fékk ég tæki- færi til að fara á algert fyllirí í Þórbergi. Hvort tveggja er alveg ómetanlegt.“ SA fyrir rithöfunda að kynnast því af eigin raun hvernig bók verður til, komast að því hvað þarf að gera með því að gera það sjálfur: velja letur, velja pappír, hanna útlit og kápu. Ég teiknaði kápunasjálf og fannst það gaman. Það er líka skemmtilegt að kynnast starfi í prentsmiðju og sjá hvað hægt er að gera. Manni er strax skipað á bás ef forlag gefur út bækur eftir mann.“ Hvernig ætlarðu að koma bók- inni til lesenda? „Henni verður dreift í stærstu bókabúðir og til þeirra sem ég er með á lista. Svo býst ég við að ganga í hús með hana. Mér finnst það sjarmerandi tilhugsun að hitta alls konar fólk - þar með er orðið til eins konar leikhús. Leikhúsið höfðar mest til mín, það er að mörgu leyti svo skylt ljóðlistinni. Svo ætla ég að lesa upp á ljóðakvöldi Besta, vinár Ijóðsins snemma í maí. Þú hefur verið að birta ljóð lengi; af hverju bók núna? „Mig hefur ekki langað til þess fyrr. Eiginlega hefur mér fundist gamaldags að gefa út ljóðabækur og ég vildi fremur halda ljóðsýn- ingar með upplestri og mynd- verkum. Þá hef éggert ljóðaþætti með tónlist fyrir útvarp og komið fram í sjónvarpi. En bókin er nauðsynleg til að maður geti líka verið einn og sjálfur með ljóðun- um.“ Hvað hefurðu lesið af ljóðum? „Ég byrjaði á Steini eins og all- ir og las líka Tómas og Jóhannes úr Kötlum. - Svo er ég alltaf veik fyrir Einari Ben. Ég hef kynnst verkum flestallra ljóðskálda sem eru að verki núna hér á landi en lítið lesið af erlendum ljóðum. Reyndar les ég meira af skáld- sögum en ljóðum.“ Hverjir yrkja best af yngri skáldum núna? „Mér finnst mörg góð, en ef ég á að nefna einhver nöfn koma Linda Vilhjálmsdóttir og Gyrðir Elíasson fyrst í hugann. Ég er líka spennt fyrir Jóni Gnarr, og mér finnst gaman að lesa viðtöl við Sjón.“ SA Elísabet Jökulsdóttir: Reyndi ekki viö forlögin. Mynd: Jim. Raftónleikar hjá Musica Nova Laugardaginn 29. apríl heldur Musica Nova tónleika á Hótel Borg kl. 16.00. Á efnisskránni eru verk eftir ameríska tón- skáldið Neil B. Rolnick sem hann hefur samið fyrir rafhljóðfæri og flytur með aðstoð tölvu. Andrea Gylfadóttir syngur eitt verka hans á tónleikunum. ADA 89 Sýnum allar geróiraf LADA bílum helgina 29. og 30.apríl frákl. 10-17. Mikió úrval skrásettra bíla til afhendingar strax. Tökum gamla LADA bílinn upp í nýjan og semjum um eftirstöðvar. NÝTT HELGARBLAÐ - SÍÐA 7 Veitingar verða á boðstólum. I.APA - góður kostur í bílakaupum BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR HF. [1 " Ármúla 13 - 108 Reykjavík - 0 681200

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.