Þjóðviljinn - 29.06.1991, Qupperneq 11
Fkétiir
Tvær leiðir að velja til að tryggja launakröfur
A78. alþjóðavinnumála-
þinginu sem lauk í vik-
unni, fór fram fyrri um-
raeða um drög að alþjóðasam-
þykkt um ábyrgð launa við
gjaldþrot atvinnurekenda.
Samkvæmt þeim drögum er
gert ráð fyrir að aðildarríki geti
valið á milli tveggja leiða til að
tryggja launakröfur. Annars vegar
með þvi aö launakröfur njóti for-
gangs í þrotabú og hinsvegar með
stofnun ábyrgðarsjóðs sem greiði
launakröfur.
Þá afgreiddi þingið nýja al-
þjóðasamþykkt um vinnuskilyrði á
hótelum, veitingastöðum og f hlið-
stæðum stofnunum. Markmið sam-
þykktarinnar er að samræma kjör
og aðstæður þeirra sem vinna í
þessari atvinnugrein.
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra afhenti forstjóra ELO
skjöl vegna fullgildingar Islands á
tveimur alþjóðasamþykktum al-
þjóðavinnumálastofnunarinnar.
Um var að ræða samþykkt nr. 139,
um vamir gegn og eftirlit með
áhættu f starfi vegna efna sem
valda krabbameini og nr. ISS, um
öryggi og heilbrigði við vinnu og
starfsumhverfi. I ræðu sinni á
þinginu fjallaði ráðherrann um
stöðu heimavinnandi og svarta at-
vinnustarfsemi og lagði til að al-
þjóðavinnumálastofnunin taki
þessi mál til umfjöllunar. Jóhanna
gerði einnig að umtalsefni um-
hverfisráðstefhu Sameinuðu þjóð-
anna, sem haldin verður á næsta ári
i Brasilfu, og gildi þess að vemda
lífriki hafsins. Þá vakti ráðherrann
athygli á því að með fjölgun full-
gildinga á hafréttarsáttmála SÞ
væm skapaðar forsendur til að
vinna markvisst að vcmdun lffrikis
hafsins og þar með tryggð afkoma
þeirra sem lifa á fiskveiðum.
Á þinginu kom fram hörð
gagnrýni á rikisstjómir Panama og
Tælands fyrir alvarleg brot á al-
þjóðassamþykktum um félaga-
frelsi, en sýnu mesta athygli vakti
kærumál breska alþýðusambands-
ins um þann takmarkaða rétt starfs-
manna i fjarskiptastöð breska riks-
ins, GCHQ, til að gerast félagar f
stéttarfélagi að eigin vali. Þingið
samþykkti mjög ákveðin tilmæli til
bresku rfkisstjómarinnar um að
taka þegar upp viðræður við hlut-
aðeigandi stéttarfélög um lausn
þessa máls.
-grh
Framtíð fiskeldis í
höndum þriggja
manna nefndar
Halldór Blöndal, landbún-
aðarráðherra, hefur skip-
að Ingimar Jóhannesson,
Qskifræðing, formann í stjórn
þriggja manna úthlutunarnefnd-
ar sérstakra fískeldislána. Með
honum í nefndinni eru Jóhanna
Ottesen viðskiptafræðingur og
Snorri Tómasson hagfræðingur.
En eins og kunnugt er þá hefur
ríkisstjómin fallist á að veita 150
miljónum króna til fiskejdis í ár og
annað eins á næsta ári. Akvarðanir
þessa starfshóps em endanlegar og
mun hann ákvarða hversu miklu
verður úthlutað hveiju sinni og
með hvað hætti greiðslu til fyrir-
tækja verði háttað.
Samkvæmt þeim reglum sem
settar hafa verið við úthlutun íjárs-
ins verður því ekki varið til að
greiða niður það tap sem þegar
hefur orðið, heldur að það nýtist til
fiskeldis í framtiðinni.
Við úthlutun lána mun starfs-
hópurinn hafa til hliðsjónar eigin-
fjárstöðu fiskeldisfyrirtækja, lausa-
íjárstöðu þeirra, framleiðslu ársins
1990 og framan af þessu ári, eldis-
aðstæður og eldisárangur, tegund
rekstrar, veð, lánsfjárþörf og aðrar
aðstæður sem nefndin telur að
skipti máli við úthlutun lána. Þá
Isérblaði Þjóðviljans um hús
og heimili birtist mynd af
húsinu við Skerplugötu 5 í
Litla Skerjafirði þar sem sagt
var að húsið stæði á of háum
grunni og bent á mismun á
gluggum.
Eigandi hússins hringdi og kvaðst
vilja koma leiðréttingu á framæri.
Hann sagði að samráð hefði verið
haft við færustu sérfræðinga varð-
andi útlit þessa húss og hæðin á
því væri nákvæmlega sú sama og
hún var þar sem það stóð áður.
Gluggana sagði hann alla gamla
þó að þeir væra ef til vill misgaml-
ir.
Eigendur Skerplugötu 5 eru að
mun nefndin kalla eftir þeim gögn-
um sem hún telur þörf á hveiju
sinni við hveija afgreiðslu um sig.
sjálfsögðu beðnir velvirðingar á
öllu því sem missagt kann að vera
um þetta tiltekna hús.
Það breytir því hins vegar ekki
að háir, nýir steinsteypugrunnar
undir gömlum húsum eru enginn
sérstakur útlitsbætir. Með réttri
málningu og listum má engu að
síður oft laga þá snoturlega að
gömlu byggingunni.
Annar húseigandi hringdi og
benti á að þau mistök hefðu orðið í
þessari grein að ekki hefði verið
undirstrikað á hve misjöfnu bygg-
ingarstigi húsin væru. Þessum at-
riðum er hér með komið á fram-
færi.
~kj
-grh
Leiðrétting
AUGLÝSING
UM VAXTAHÆKKUN
Hinn 1. júlí 1991 hækka vextir í 4,9% á lánum,
sem veitt hafa veriö úr Byggingarsjóöi ríkisins frá og
með 1. júlí 1984 og borið hafa 3,5% og 4,5% vexti.
Undanskilin eru lán vegna greiðsluerfiðleika og til
byggingar almennra kaupleiguíbúða.
Þessi vaxtabreyting kemur fram á gjalddaganum
1. ágúst 1991. Á þeim gjalddaga verða
reiknaðir meðalvextir, þar eð vaxtabreytingin tekur
gildi milli gjalddaga.
Reykjavík, 24. júní 1991.
C&] HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
LJ SUÐURLANDSBRAUT 24 ■ 108 REYKJAVÍK • SÍMI696900
Útboð
Arnarnesvegur, Bæjar-
braut - Reykjanesbraut
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í of-
angreint verk.
Lengd vegarkafla 1,1 km, fylling og burð-
arlag 37.000 m3, skering 25.000 m3 og
malbiksslitlag 12.700 m2.
Vegurinn skal opnaður til umferðar 15.
október 1991 og verkinu að fullu lokið 15.
ipní 1992.
Utboðsgögn verða afhent hjá Veaagerð
ríkisins, Borgartúni 5, (aðalgjalakera),
Reykjavík, frá og með 1. júlí 1991. Skila
skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14.00
þann 15. júlí 1991.
Vegamálastjóri
J
HUSEIGANDI GÓÐUR!
inu MEfnuu
A VIDHAIDINU?
Eru eftirfarandi vandamál
að angra þig?
• Alkalí-skemmdir • Vaneinangrun
• Frost-skemmdir • Sprunguviðgerðir
• Lekir veggir • Síendurtekin málningarvinna
Ef svo er, skaltu kynna þér kosti
Stb -utanhúss-klæðningarinnar:
SÍO -klæðningin er samskeytalaus.
sto -klæðningin er veðurþolin.
sto -klæðningin er litekta og fæst í yfir 300
litum.
SÍO -klæðningin er teygjanleg og viðnám gegn
sprungumyndun er mjög gott.
sto -klæðningin leyfir öndun frá vegg.
sto -klæðningin gefur ótal möguleika í þykkt,
áferð og mynstri.
sto -klæðninguna er unnt að setja beint á veag,
plasteinangrun eða steinulL
sto -klæðninguna er hægt að setja á nær hvaða
byggingu sem er, án tillits til
aldurs eða lögunar.
sto -klæðningin endist — Yestur-þýsk gæðavara
Opið laugardag og sunnudag
RYDIf
Bíldshöfða 18 — 112 Reykjavík
Sími 673320
Síða 11
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 29. júní 1991