Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1995, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1995, Blaðsíða 30
- sextán Jóhannar G. Jóhannssynir í þjóðskránni og minnst fimm fást við list af ýmsu tagi Jóhann G. Jóhannsson virðist vera nokkuð algengt nafn á íslandi. Ef flett er í þjóðskránni má sjá að alls sextán karlmenn heita Jóhann Jóhannsson og eiga sér jafnframt millinafn sem byrjar á G. Athygli vekur að minnst þrír þeirra hafa verið áberandi á vettvangi listarinnar undanfarið og eftir að hafa rætt við þá kom í Ijós að tveir til viðbótar hafa verið viðloðandi tónlistina. Fleiri sem bera nafnið Jóhann G. Jóhannsson hafa verið í fjölmiðlum undanfarið, má þar nefna for- stöðumann útlendingaeftirlitsins sem kom fram í fráttum liðinnar viku. DV ræddi stuttlega við þrjá Jóhanna G. og kom þá í Ijós margt spaugilegt Allir hafa þeir þurft að svara í síma fyrir hver annan, taka við pósti hver annars og jafnvel hrósi hver annars. Eitt sinn bað einn þeirra annan að skipta um nafn því báðir voru þeir þá að hasla sár völl á tónlistarbraut- inni. Sá yngri neitaði og vildi láta spyrja að leikslokum og sá sem bar upp bónina í upphafi sér ekki eftir því að nafni hans hélt fast í „G-ið" enda hefur hann orðið nöfnum sínum síst til skammar. Jóhann Georg „Ég hef nú ekki orðið fyrir teljandi vandræðum vegna þessa. Menn hafa í kokkteilboðum verið að óska mér til hamingju með tónlistina við leikritið Skilaboðaskjóðuna, sem nafni minn í Þjóðleikhúsinu samdi, og einnig hef ég veri beðinn að leika á píanó i partíum. Ég hef svarað að bragði að ég kunni nú ekki að spila á píanó og jafnan hefur fólk þá dáðst að hóg- værð þessa ágæta tónskálds," segir Jóhann Georg Jóhannsson, myndlistar- og tónlistarmaður. Jóhann Georg, sem er 48 ára og spilar á bassa, segist heita í höfuðið á föður sínum heitnum, sem var reyndar Runólfsson, sonur Runólfs Björnssonar frá Kornsá í Vatnsdal. Jóhann Georg, sem segist ekki hafa vitað af öllum þessum fjölda næstum því nafna sinna, segir mörg tUvik hafa komið upp þar sem misskilnings hafi gætt vegna nafns hans. „Það var einhver nafni minn sem lenti í fjármálavandræö- um fyrir eins og áratug. Um þetta leyti hitti ég lögfræðing sem ég var í samningaviðræðum við og hann hafði verið harður í horn að taka. Þegar við hittumst brá svo við að hann var ekk- ert nema samúðin uppmáluð. Kom þá í ljós að hann hafði hald- ið að ég hefði skömmu áður verið gerður gjaldþrota, sem var ekki, en einhver nafni minn hafði lent í því en enginn af þeim sem rætt er við á þessari síðu.“ Jóhann Georg hefur verið viðloðandi tónlist og reyndar myndlist líka í gegnum tíðina. Hann rak Púlsinn, tónlistarbar um tíma en seinustu ár hefur hann hins vegar snúið sér meira að myndlistinni og heldur um þessar mundir tvær sýningar, í Sparisjóði Hafnarfjarðar við Garðatorg og Argentínu steikhús við Barónstíg. „Ég hélt mína fyrstu sýningu eftir talsvert langt stopp í List- húsinu í Laugardal. Síðan hef ég verið að vinna að myndlist- inni á fullu og er nú með tvær sýningar í gangi. Sýningin á Argentínu er í tengslum við list og lyst. Við tókum upp á því sl. vor og tengdum sam- an myndlistarsýn- ingu og matargerð- arlyst. Þetta fékk mjög góðar undir- tektir og þvi ákváðum við að endurtaka þetta með nýjustu myndirnar mínar. Mér finnst fagnað- arefni að fyrirtæki og stofnanir séu í aukhum mæli að stuðla að kynn- ingu mynd- listar með þessum hætti.“ Jóhann fæst fyrst og fremst við stemningarmyndir með iandslagsívafi - fantasíur með blandaðri tækni þar sem lita- samspilið er nokkuð líflegt. í Sparisjóðnum kveður hins vegar við dálítið annan tón. Þar er aðallega að finna landslagsmynd- ir - landslag séð með augum Jóhanns Georgs Jóhannssonar myndlistarmanns. Nú er Jóhann að kynna sér tölvutæknina í tengslum við tón- listina. Segir hann sér hafa fundist sem hann væri hálf utan- veltu í allri umræðu um tónsmíðar og því ákveðið að bæta úr þessari fötlun sinni. Hann segist sjá mikla möguleika með tölvutækninni, bæði í tónlistinni og myndlistinni. Með inter- netinu væri til dæmis hægt að opna sína eigin heimasíðu með myndverkum eftir sjáifan sig og halda „sýningar" þar. Jóhann Gunnar „Eg er bara að nota nafnið og frægð nafna minna til að ná mér í stelpur. Svo atvikaðist það þannig að ég fór í leiklist og skemmtanabransann líka þannig að þetta skapar engin óþæg- indi og fleytir mér áfram,“ segir Jóhann Gunnar Jóhannsson, leikari og söngvari. Jóhann Gunnar, 24 ára, er skírður í höfuðið á föður sínum, Jóhanni Gunnari Gíslasyni. Hann segir engin óþægindi hafa skapast af þessum fjölda nafna sinna. Óvenju oft sé að vísu spurt um hann heima í síma og þegar til kastana kemur reyn- ist sá sem hringir vera að reyna að ná í allt annan Jóhann G. Jóhann Gunnar er söngvari hljómsveitarinnar Tríós Jóns Leifssonar. Hljómsveitin- hefur verið starfandi um árabil en var fyrst nú í vikunni að taka upp hljómplötu. Upptakan fór fram á lifandi tónleikum á veitingastaðnum Gauki á Stöng. Jó- hann Gunnar nam leiklist í Bandaríkjunum. Þessa dagana leikur hann Dag í samnefndum dans- og söngleik eftir Helenu Jónsdóttur sem sýndur er í Borgarleikhúsinu. Verkið fær góða dóma og sömu sögu er að segja af leik Jóhanns Gunnars. Þá hefur Jóhann Gunnar leik- ið í söngleiknum Hárinu og víðar. og póst ætlaðan öðrum. Eins hefur ég orðið var við í blöðum að verk mín séu eignuð öðrum og öfugt. Það er hins vegar ekki til óþæginda heldur einfaldur misskilningur," segir Jóhann Guðmundur Jóhannsson, tónlistarstjóri Þjóðleikhússins, í samtali við DV. Jóhann Guðmundur, sem er fertugur og spilar á píanó, er líkt og nafnar hans skírður Jóhann í höfuðið á föður sínum. Hann heitir hins vegar Guðmundur í höfuðið á afa sínum og það kom honum á óvart að svo margir Jóhann G. Jóhannssjm- ir væru til. „Ég vissi þó af nokkrum og fleiri en tveimur sem hafa verið eitthvað í músík, þá Jóhann Georg og Jóhann G„ sem var í Ham. Jóhann G. í Ham hætti hins vegar að nota „G-ið“. Svo veit ég um fleiri: Einn heitir Jóhann Gisli og sá spilaði á bassa.“ Eins og fyrr segir er Jóhann Guðmundur tónlistarstjóri Þjóðleikhússins og hefur hann verið það frá árinu 1991. Þar áður var hann meira og minna samfellt hjá Leikfélagi Reykja- víkur og Borgarleikhúsinu í sama starfi. Hann segir starf sitt fjölþætt og hann fáist við ýmislegt, allt frá því að æfa söng í leikritum og spila undir í það að útsetja og semja tónlist við leikrit og stjórna hljómsveitum. Auk þess að vera tónlistar- stjóri hefur Jóhann Guðmundur spOað, útsett og samið tónfist fyrir söngflokkinn Bláa hattinn. Þá nam hann eðlisfræði með tónlistarnáminu en hefur ekki starfað sem slíkur enda segir hann tónlistina hafa verið meira spennandi þegar til kom. Jóhann segist ekki eiga sér neina uppáhaldsstefnu í tónlist- inni enda hefur hann fengist við dægurtónlist, djass, klassík og nýrri tónlist. Hann segist kunna þessu samkrulli vel og það sé einn kostanna við leikhúsið að hann lendi í ólíkum verkefnum frá einum tíma til annars. Nú er hann hins vegar að lesa þýð- ingu á nýjum söngleik sem á að fara að æfa með vorinu í Þjóð- leikhúsinu. Um er að ræða lítinn og nettan söngleik eftir Bengt Al- fors, finnsk/sænskan söng- leikjahöfund, í þýðihgu Þóranns Eldjárn. Einnig er hann að skrifa verk fyrir blásarakvintett og sinna öðrum verkefn- um fyrir Þjóðleikhús- ið sem hann vill ekki greina frekar frá nú á þessum vettvangi. -PP Johann mÉ Guömundur „Það hafa nú ekki fylgt þessu beinlínis óþægindi. Maður hefur oft fengið símhring- ingar S3F
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.