Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1996, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1996, Blaðsíða 1
29. JANÚAR 1996 Getraunir: Enski boltinn 2k1-x2x-22x-1 22x Italski boltinn x12-x11-11x-111x Lottó 5/38: 81420 31 38(21) Vala flaug yfir 4 metrana - Glæsilegt Norðurlandamet - Geirlaug með tvö met og Jón Arnar með eitt - Fimm með á EM? Vala Flosadóttir bætti enn Norð- urlandamet sitt í stangarstökki kvenna innanhúss á frjálsíþrótta- móti í Malmö á laugardaginn. Vala flaug yfir 4 metra slétta og bætti vikugamalt met sitt um heila 10 sentimetra. Hún er óðum að komast í fremstu röð í heiminum í þessari grein og hlýtur að eiga möguleika á að vinna til verðlauna á Evrópu- meistaramótinu innanhúss sem fram fer í Stokkhólmi í mars. Geirlaug Geirlaugsdóttir og Jón Amar Magnússon settu glæsileg ís- landsmet á alþjóölegu móti í Gauta- borg um helgina. Geirlaug setti tvö met. Hún hljóp á 7,55 sekúndum í undanúrslitum í 60 metra hlaupi kvenna en gamla metið hennar, og jafnframt lágmarkið fyrir EM, var 7,62. í úrslitahlaupinu varð Geir- laug þriðja á 7,58 sekúndum. í gær sigraði síðan Geirlaug í 200 metra hlaupi á 24,85 sekúndum, sem einnig er íslandsmet, en fyrra metið sem Svanhildur Kristjónsdóttir átti var 24,97 sekúndur. Jón Amar bætti eigið met í 60 Geirlaug Geirlaugsdóttir setti tvö íslandsmet í Gautaborg. metra grindahlaupi, hljóp á 7,99 sek- úndum og varð þriðji, en fyrra met- ið hans var 8,17 sekúndur. Jón Arnar sigraði í langstökki Jón Amar sigraöi síðan í lang- stökki, stökk 7,40 metra, og varð annar í 60 metra hlaupi á 6,82 sek- úndum. Hinn efnilegi Jóhannes Marteinsson varð þriðji í hlaupinu á 6,97 sekúndum og var nálægt EM- lágmarkinu, sem er 6,90 sekúndur. Jóhannes keppti aftur i gær og sigraði þá á 6,98 sekúndum. Fimm hafa náð lágmörkum fyrir Evrópumeistaramótið Nú hafa fimm íslendingar náð lágmörkum fyrir EM, en auk Geir- laugar og Jóns Amars era það Vala Flosadóttir, Guðrún Amardóttir og Pétur Guðmundsson. Ólíklegt er að Guðrún verði með því stórmót era á sama tíma hjá henni í Bandaríkjun- um, og einnig er óvíst hvort Pétur nýtir sér keppnisréttinn. -VS Vialli til Chelsea? Gianluca Vialli, hinn snjalli ieikmaður Juventus og ítalska landsliðsins í knattspyrnu, gæti verið á forum til enska félagsins Chelsea í sumar. Breska dagblaðið News of the World skýrði frá því í gær að Glenn Hoddle, framkvæmdastjóri Chelsea, legði mikla áherslu á að fá Vialli og átt mjög jákvæðar viðræöur við hann um málið. Vialii er sagður mjög spenntur fyi-ir því að leika á Englandi og í liði með Ruud Gullit. Samningur hans við Juventus rennur út i vor. Þekktir tennisleik- arar sakaðir um neyslu kókaíns Breska dagblaðið News of the World skýrði frá því í gær að tveir frægir tennis- leikarar, Mats Wilander og Karel Novacek, hefðu fallið á lyfjaprófi eftir opna franska meistarámótið í fyrra, og um kókaín hefði verið að ræða hjá þeim báð- um. Ennffemur var sagt að tvímenningamir héldu fram sakleysi sínu og hefðu ráð- ið sér öfluga lögfræðinga til að vinna í málinu. Talsmaður Alþjóða tennissamhandsins vildi hvorki staðfesta fréttina né afneita henni í gær. Nökkvi til Raufoss? Nökkvi Sveinsson, knatt- spyrnumaður frá Vest- mannaeyjum, dvelur nú viö æfingar hjá norska 2. deildar- liðinu Raufoss. Nökkvi, sem lék með Fram síð- asta sumar en gekk til liðs við ÍBV fyrir skömmu, hefur hug á að ganga til liðs við norska félagið en með því spilar Eyjamaöurinn Tómas Ingi Tómasson, og einnig Einar Páll Tómasson, fyrrum leikmaður Breiðabliks og Vals. -ÞoGu/VS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.