Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1996, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1996, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 29 JANÚAR 1996 23 íþróttir Árni og Friöleifur Friðleifssynir fögnuðu sigrinum á Fram að vonum innilega, enda bikarúrslitaleikur fram undan hjá Víkingum. DV-mynd Brynjar Gauti. Víkingar komnir í bikarúrslitin: Ótrúlegar sveifl- ur í Safamýrinni - fimm Víkingsmörk undir lokin og sigur, 16-19 „Þetta var mjög sætur sigur. Leik- urinn var köflóttur og spennandi á báða bóga. Strákamir stóöust press- una og komust yfir í lokin eftir að hafa lent undir um tíma svo ég er mjög ánægður með þetta,“ sagði Árni Indriðason, þjálfari Víkinga, eftir sigur á 2. deÚdar liði Fram, 16-19, í Framhúsinu við Safamýri. Með sigrinum hafa Víkingar tryggt sér sæti í úrslitaleik bikarkeppni HSÍ og er það sannarlega gleðiefni fyrir Víkinga sem hafa verið í miklu basli í Nissan-deildinni í vetur. Leikurinn var skemmtilegur, spennandi og ótrúlega sveiflukennd- ur. Jafnræði var með liðunum fram undir lok fyrri hálfleiks en tvö mörk frá Víkingum í lokin ásamt tveimur öðrum í upphafi síðari hálf- leiks gaf þeim fjögurra marka for- skot, 9-13. Þegar hér var komið sögu virtust Víkingar hafa leikinn í hendi sér en þá lokaði Þór Björnsson, markvörð- ur Framara, markinu og Framarar gerðu næstu sex mörk áður en Vík- ingar náðu að svara fyrir sig. Þá komu fimm mörk Víkinga og Fram- arar urðu að játa sig sigraða. Það var stórleikur Reynis Reynis- sonar í síðari hálfleik sem gaf tón- inn að sigrinum en hann og Birgir Sigurösson voru bestu menn liðsins. Hjá Fram voru þeir Þór Björnsson og Hilmar Bjamason fremstir í flokki. „Við töpum þessum leik fyrst og fremst á því að við nýtum ekki dauðafærin. Þijú vítaköst fóru for- görðum og er það of mikið gegn liði úr fyrstu deild, en í heildina er ég mjög ánægður með strákana,“ sagði Guðmundur Guðmundsson, þjálfari Fram, eftir fyrsta tapleik sinna manna síöan 4. okt. en þá tapaði lið- ið fyrir HK í 1. umferð 2. deildar. -ÞG Fram-Víkingur (9-11) 16-19 1-0, 2-2, 5-2, 5-6, 7-7, 9-9, (9-11), 9-13, 15-13, 15-18, 16-19. Mörk Fram: Oleg Titov 5/2, Hilm- ar Bjarnason 4, Jón Andri Finnsson 3/2, Sigurður Guðjónsson 2, Siggeir Magnússon 1, Jón Þórir Jónsson 1. Varin skot: Þór Björnsson 18/2. Mörk Víkings: Knútur Sigurðs- son 5, Birgir Sigurðsson 5/2, Hjörtur Amarson 4, Kristján Ágústsson 2, Davor Kovacevic 2/2, Árni Friðleifs- son 1. Varin skot: Reynir Þór Reynisson 18/1, Hlynur Morthens 2/2. Brottvísanir: Fram 8 mín., Vík- ingur 10 mín. Dómarar: Gunnar Kjartansson og Ólafur Haraldsson, góðir. Áhorfendur: Um 500. Maður leiksins: Reynir Þór Reynis- son, Vikingi. Selfoss-KA (15-14) 31-32 1-0, 2-1, 2-5, 6-7, 10-10. 13-12, (15-14), 16-14, 19-16, 19-19, 23-21, 27-26, 29-29, 29-32,31-32. Mörk Selfoss: Einar G. Sigurðsson 10, Valdimar Grímsson 8/3, Sigurjón Bjama- son 5, Björgvin Rúnarsson 5 Hjörtur LevíPétursson2, Einar Guðmundsson 1. Varin skot GísU F. Bjamason 5, Hall- grimur Jónasson 4 Mörk KA: Julian Duranona 13/5, Patrekur Jóhannesson 6, Jóhann G. Jó- hannsson 6, Björgvin Björgvinsson 4 Leó Öm Þorleifsson 3. Varin skot Guðmundur Jónsson 12 Brottvisanh" Selfoss 10mín,KA12mín Dómarar: Guðjón L. Sigurðsson og Hákon Siguijónsson, komust ágætlega frá erfiðum leik. Áhorfendur. 680. Maður leiksins: Julian Duranona, KA Einar fékk glóðarauga Einar Gunnar Sigurðsson, sem átti stórleik með Selfyssingum gegn KA, fékk mikið högg á annað augað í lok fyrri hálfleiks þegar hann og Erlingur Kristjánsson rákust saman. Einar lék síðari hálfleikinn með mikið glóðarauga og nánast eineygður. Duranona skaut KA í úrslitin - skoraði 13 mörk þegar bikarmeistararnir lögðu Selfyssinga í frábærum leik Bikarmeistarar KA eru komnir í bikarúrslitaleikinn þriðja árið í röð eftir að hafa lagt Selfyssinga að velli, 31-32, í mjög fjörugum og spennandi leik á Selfossi á laugar- dag. Bikarmeistararnir þurftu svo sannarlega að hafa fyrir því að leggja baráttuglaða Selfyssinga að velli og það var ekki fyrr en á lokamínútunum sem þeir innsigl- uðu sigurinn. KA getur fyrst og fremst þakkað Julian Duranona fyrir sigurinn en Kúbumaöurinn snjalli fór á kostum í síöari hálfleik og skoraði 9 síðustu mörk norðanmanna i leiknum. Hafðist á seiglunni „Það er smá heppni sem skilur liðin í þessum leik. Ég var orðinn þrælstressaður í síðari hálfleik en þetta hafðist á seiglunni og reynsl- unni. Auðvitað ætlum við alla leið en við gerum okkur grein fyrir að úrslitaleikurinn gegn Víkingi verð- ur erfiður," sagði Alfreð Gíslason, þjálfari KA, eftir leikinn. Selfyssingar höfðu lengi vel frum- kvæðið í leiknum. Þeir börðust eins og ljón og voru btaðráðnir í að vinna en þar var eins og leikmenn liösins hefðu ekki trú á að þeir gætu lagt KA menn að velli og gerðu af- drifarík mistök á lokamínútunum. Við áttum þennan leik „Við áttum þennan leik nær allan tímann en við vönduðum okkur ekki alveg nógu vel í lokin. Menn lögðu sig allan fram í leiknum og börðust mjög vel en því miður réð- um við ekki við Duranona í síðari hálfleik og heppnin var ekki á okk- ar bandi. Þetta var langbesti leikur okkar í vetur,“ sagði Einar Gunnar Sigurðsson, fyrirliði Selfyssinga, eftir leikinn. Einar átti mjög góðan leik og var bestur í liði heimamanna. Valdimar var einnig mjög drjúgur og þeir Björgvin og Sigurjón léku vel. Hjá KA átti Duranona frábæran seinni hálfleik og þeir Patrekur og Jóhann voru sterkir. Sýndum styrk okkar í lokin „Selfyssingarnir léku mjög vel en við sýndum styrk okkar í lokin og höfðum þetta. Það kom ekki til greina að tapa enda ætlum við okk- ur að halda bikarnum," sagði Pat- rekur við DV eftir leikinn. „Við vorum að spila vel og mun betur en KA en því miður dugði það ekki. Ég get ekki verið annað en stoltur af minum mönrium en heppnin var KA-megin. Mér fannst dómgæslan í heild góð en tveir dóm- ar gegn okkur í lokin vógu þungt,“ sagði Valdimar Grímsson við DV eftir leikinn. -GH Besti kvennaleikurinn í Eyjum - Stjarnan og Fram í bikarúrslitum eftir nauma sigra á ÍBV og Fylki Það verða Stjaman og Fram sem leika til úrslita í bikarkeppni kvenna í handknatt- leik, eftir nauma sigra á ÍBV og Fylki í und- anúrslitunum á laugardaginn. Leikur ÍBV og Stjömunnar var hnífjafn frá upphafi til enda og án efa besti handbolta- leikur kvenna sem sést hefur í Eyjum. Sóley Halldórsdóttir markvörður var bjargvættur Stjörnunnar. Hún varði mjög vel og tryggði liðinu sigur þegar hún varði frá Malin Lake úr hraöaupphlaupi á lokamínútunni. í stað- inn skoraði Stjaman og vann, 29-22. Andrea Atladóttir skoraði 5 mörk fyirr ÍBV, Helga Kristjánsdóttir 4 og Malin Lake 4. Ragnheiður Stephensen skoraði 7 mörk fyrir Stjömuna, Guðný Gunnsteinsdóttir 4, Herdis Sigurbergsdóttir 4/1 og Nína Bjömsdóttir 4. Erfitt hjá Framstúlkum gegn Fylki í Árbænum Fram vann Fylki naumlega í Árbænum, 17-18. „Ég er mjög ánægð með sigurinn, ég vissi allan tímann að þetta yrði erfiður leik- ur því Fylkir hefur verið á mikilli uppleið. Við vorum komnar með fimm marka forystu í byrjun seinni hálfleiks en misstum það nið- ur, og það gerði allt erfiðara fyrir okkur," sagði Guðríður Guðjónsdóttir, þjálfari Fram. Rut Baldursdóttir skoraði 4 mörk fyrir Fylki, Irena Skorabogatykh 3, Anna Hall- dórsdóttir 3 og Anna Einarsdóttir 3 og Ágústa Sigurðardóttir 3/2. Guðríður skoraði 9/6 mörk fyrir Fram, Berglind Ómarsdóttir 4 og Þórann Garðarsdóttir 3. -ÞoGu/HS/VS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.